Dagur - 30.05.1986, Qupperneq 3
30. maí 1986- DAGLJR-3
Það var létt yfir mönnum og
mikil baráttugleði á kosninga-
og skemmtifundi Framsóknar-
flokksins sem haldinn var á
Hótel KEA í gærkvöldi. Fimm
ungir frambjóðendur á B-list-
anum fluttu stutt ávörp, Ásgeir
Arngrímsson, Kolbrún Þor-
móðsdóttir, Þórarinn Sveins-
son, Unnur Pétursdóttir og
Sigfús Karlsson. Fundarstjóri
var Jón Sigurðarson. Auk þess
skemmtu Edda Björgvinsdótt-
ir og Júlíus Brjánsson (Túrilia
og Indriði Skordal) og Pallí-
etturnar (Erla Skúladóttir og
Sigríður Pétursdóttir við
undirleik Edwards Fredriksen
og Birgis Karlssonar).
í stuttu ávarpi Sigfúsar Karls-
sonar kom m.a. fram að hann
teldi bera vitni mikilli blindu að
halda því fram að lítið sem ekk-
ert hefði verið gert fyrir ungt fólk
á síðasta kjörtímabili. Nefndi
hann í því sambandi geysimiklar
framkvæmdir við Verkmennta-
skólann, Síðuskóla, íþróttahöll-
ina og breytingar á Dynheimum,
sem allt nýttist ungu fólki. „Já,
elskurnar mínar, það er nú eða
aldrei. Sameinumst á lokasprett-
inum - kjósum X-B,“ sagði Sig-
fús i lokaorðum sínum. í svipað-
an streng tók Unnur Pétursdótt-
ir, en hún og Sigfús skipa sjötta
og sjöunda sætið á lista fram-
sóknarmanna.
„Hvar eru hugmyndir og fram-
kvæmdir íhalds og krata hér í
bænum? Það er aldeilis ekki þeim
að þakka að atvinnumál og upp-
bygging á Akureyri hafa tekið
jákvæða stefnu, nú sem áður,“
sagði Kolbrún Þormóðsdóttir
m.a. en hún skipar 4. sætið.
Flestir líta á það sem baráttusæti
framsóknarmanna í kosningun-
um á morgun.
„Allt tal um atvinnumál hefur
snúist um það að bæjarstjórn eigi
að eiga frumkvæði, bæjarstjórn
eigi að gera hitt og þetta. Við
skulum snúa af þessari villubraut
og hvetja framtakssamt fólk til að
taka höndum saman til athafna,
með stuðningi bæjarfélagsins,
t.d. með því að fella niður
aðstöðugjald í þrjú ár hjá nýjum
fyrirtækjum. Við ætlum að ná 4
fulltrúum í næstu bæjarstjórn.
Pað er alltaf skemmtilegast að
vinna sigur þegar maður veit að
allir hafa gert sitt besta. Þess
vegna skulum við sýna andstæð-
ingum okkar hvers megnugur
flokkur samvinnu- og félags-
hyggju er,“ sagði Ásgeir Arn-
grímsson m.a. í sínu ávarpi á
fundinum.
„Ég get ómögulega skilið það
þegar fólk er að tala um að hún
Kolbrún fjórða sé í baráttusæt-
inu. Ég tók ekki þátt í þessum
slag með það í huga að tapa. Það
leiðir því af sjálfu sér að ég er í
baráttusætinu. Slagorðið í þess-
Jón Sigurðarson var fundarstjóri á kosninga- og skemmtifundi B-listans á
Hótei KEA í gærkvöldi. Ræðumenn voru þau sem skipa þriðja til sjöunda
sætið á listanum, en þau eru t.f.v. Sigfús Karlsson, Þórarinn Sveinsson,
Unnur Pétursdóttir og handan við fundarstjórann Ásgeir Arngrímsson og
Kolbrún Þormóðsdóttir.
Mynd: HS
Kosninga- og skemmtifundar B-listans:
Myndir: - KGA
um kosningum er: Kýlum á Kollu
og þrykkjum Pórarni inn,“ sagði
Þórarinn Sveinsson, fimmti mað-
ur á B-listanum, en sló einnig á
alvarlegri strengi.
Hann sagði að málstaður fram-
sóknarmanna væri góður:
„Spurningin stendur um trausta,
íslenska framkvæmdastefnu, þar
sem manngildið er ofar auðgildi
og málin eru leyst í anda sam-
vinnu og félagshyggju."
Góður rómur var gerður að
ávörpunum og skemmtiatriðum
kvöldsins og í lok samkomunnar
ávarpaði Sigurður Jóhannesson,
fyrsti maður á B-listanum
fundinn. Hann hvatti fundar-
rnenn til samstöðu á lokasprettin-
um, samstöðu um farsæla fram-
kvæmdastefnu framsóknar-
manna. Andstæðingar meirihlut-
ans í bæjarstjórn hefðu ekkert
sjálfstætt haft fram að færa á síð-
asta kjörtímabili og valið ætti því
að vera auðvelt.
„Akureyringar, tryggjum Kol-
brúnu Þormóðsdóttur öruggt sæti
í bæjarstjórn," sagði Sigurður
Jóhannesson að lokum.
HS
'W" I ..—i iii——
Frambjóðendur B-listans buðu vegfarendum upp á kafti og með því í göngugötunni í gær, jafnframt því sem þeir
kynntu stefnu Framsóknarflokksins í mikilvægum málefnum Akureyrar. Mynd: KGA