Dagur - 30.05.1986, Side 9

Dagur - 30.05.1986, Side 9
3Ó. maíT986 - DAGltö - 9:“' iiii BÍLASÝNING AKUREYRI: BÍLASALAN STÓRHOLT Jón Ágúst Eggertsson. ,Heimilið ’86“: Norðlendingar með? Að undanförnu hafa verið haldnir fundir með forvígis- mönnum fyrirtækja og bœjar- félaga víðs vegar um Norður- land og fulltrúa fyrirtœkisins Kaupstefnan Reykjavík hlf, varðandi þátttöku Norðlend- inga í sýningunni Heimilið ’86 sem fyrirhugað er að halda í Reykjavík í ágúst. Mikill áhugi um þátttöku kom fram á fundunum sem haldnir voru á Húsavík og á Akureyri en minna er vitað um árangur ann- arra funda. Iðnþróunarfélagið á Húsavík tók að sér að kanna frekar um þátttöku þeirra aðila sem sóttu fundinn þar, og má í því samb- andi nefna að meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem líklegir þátttakendur er Skútustað- ahreppur, sem þá myndi að öll- um líkindum leggja áherslu á að kynna hreppinn og helsta nág- renni hans sem mikla ferðamannaparadís. Sýningar Kaupstefnunnar Reykjavík h/f hófust 1955 en það var ekki fyrr en 1968 sem þær tóku á sig þá mynd sem flestir þekkja nú orðið, en þá var í fyrsta sinn sýnt í Laugardalshöll. Ýmislegt nýstárlegt hefur verið gert til að vekja áhuga almenn- ings á sýningunum, 1977 var tákn sýningarinnar tveggja hæða strætisvagn, 1980 var fengið tívolí frá Danmörku, 1985 kom franskur tískusýningarflokkur og fleira mætti telja. Undanfarin ár hafa sýningargestir verið frá 50 til 80 þúsund svo greinilegt er að áhugi fyrir slíkum sýningum er mikill á íslandi. Jón Ágúst Eggertsson fram- kvæmdarstjóri Kaupstefnunnar sagði að sýningarsvæði það sem stæði Norðlendingum til boða væri um 500 fermetrar í miðjum sýningarsalnum, og taldi hann ekki nokkurn vafa á því að þátt- taka smærri fyrirtækja í slíkum sýningum gæti orðið mikil lyfti- stöng fyrir þau og auðveldað þeim að komast inná stærsta markaðinn hérlendis. Iðnaðarráðuneytið mun verða stór aðili að sýningunni að þessu sinni, en um síðustu áramót var ákveðið að efna til „hugmynda- stefnu“ og er tilgangur hennar að leiða saman hugmyndasmiði og framkvæmdamenn í þeim til- gangi að miðla framleiðsluhug- myndum til þeirra sem sem hafa hug á að fjármagna nýjungar í iðnaði. Mun vera meiningin að kynna uppfinningar og hugmynd- ir sem tilbúnar eru til markaðs- færslu af hálfu höfunda. Væntanlega verður svo haldin námstefna í tengslum við sýning- una um vöruþróun, einkaleyfi, uppfinningar, frumgerðasmíð, mat á hugmyndum og fleira sem tengist nýsköpun. Sem dæmi um ávinninginn af þátttöku í slíkum sýningum má nefna að fyrir nokkrum árum miðuðu bandarísk fyrirtæki við það að kostnaðurinn við þátttöku skilaði sér sjöfalt í dollurum talið, en undanfarin ár er þetta hlutfall komið í 12 dali fyrir hvern einn sem gestur er í sýn- ingu. G.Kr. LAUGARDAG 31. MAI KL. 10:00-18:00 SUNNUDAG 1. JÚNÍ KL. 10:00-18:00

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.