Dagur - 30.05.1986, Síða 15
fþróttiL
30. maí 1986 - DAGUR - 15
ÍSÍ áfrýjar
til Hæstaréttar
- máli Jóns Páls Sigmarssonar
Eins og komið hefur fram í
fjölmiðlum hefur Bæjarþing
Reykjavíkur úrskurðað í máli
Jóns Páls Sigmarssonar gegn
íþróttasambandi ístands. En á
síðasta ári dæmdi ÍSÍ Jón Pál í
tveggja ára keppnisbann fyrir
að mæta ekki í tyfjapróf. Jón
Páll mættiekki í lyfjaprófið
þar sem harin er í Kraftlyft-
ingasambandi íslands sem er
ekki aðili innan ÍSÍ og taldi því
að ÍSÍ hefði ekki lögsögu yfir
sér. í úrskurði undirréttar segir
að bann það sem ISI dæmdi
Jón Pál Sigmarsson í á síðasta
ári sé ólöglegt. Vegna úrskurð-
ar undirréttar hefur Degi bor-
ist eftirfarandi fréttatilkynning
frá íþróttasambandi Islands
dagsett 29. maí 1986.
Samþykkt var einróma á fundi
framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær að
áfrýja til Hæstaréttar dómi
Bæjarþings Reykjavíkur í málinu
nr. 7108/1985. Jón Páll Sigmars-
son gegn íþróttasambandi
íslands og fleirum vegna brots
Jóns Páls á 8. grein reglugerðar
ÍSÍ um eftirlit með notkun
örvunarefna.
Greinargerð:
Framkvæmdastjórn ÍSÍ telur
áfrýjunina nauðsynlega af tveim
megin ástæðum. f fyrsta lagi,
forsendur dómsins virðast byggð-
ar á afar veikum grunni. í öðru
lagi, ólögleg lyfja- og efnanotkun
er vágestur eins og tekið er fram
í forsendum dómarans og hefur
ÍSÍ eins og íþróttasamband ann-
arra landa og með sama hætti tek-
ið að sér að berjast gegn þeim
vágesti með nauðsynlegu eftirliti.
Rétt er að vekja athygli á að
þrátt fyrir dómsniðurstöðu hafn-
ar dómarinn yfirleitt kröfum
stefnanda en byggir dóminn fyrst
og fremst á því að stefnanda,
(Jóni Páli Sigmarssyni) hafi ekki
Mjókurbikarinn:
Tindastóll sigraði Magna
verið gefinn kostur á að skýra
mál sitt fyrir nefndinni sem að
hvað upp úrskurðinn. Hér virðist
sem það ráði ferðinni hjá dómar-
anum hvað honum finnst pers-
ónulega að hefði átt að gera en
ekki tekið ntið af skýrum og
ótvfræðum ákvæðum reglugerðar
ÍSÍ um eftirlit með notkun
örvunarefna. Ef til vill stafar þessi
afstaða dómarans af þekkinga-
eða upplýsingaskorti en hvergi í
heiminum tíðkast að íþrótta-
mennirnir séu kallaðir sérstak-
lega fyrir. Þá verður að hafa hug-
fast að Jóni Páli var bent á að
hann gæti áfrýjað úrskurðinum til
íþróttadómsstóls.
Keppnisbannið yfir Jóni Páli Sigmarssyni var dæmt ólöglegt.
Þriggja landa keppnin í knattspyrnu:
Tékkar sigruðu
íslendinga
Já þaö kom í hlut íslenska
landsliðsins að verma neðsta
sætið í þriggja landa keppninni
í knattspyrnu sem háð var í
vikunni. í gærkvöldi tapaði
íslenska liðið fyrir því tékkn-
eska með tveimur mörkum
gegn einu og má þakka fyrir að
sá ósigur hafi ekki orðið stærri.
Tékkarnir voru allan tímann
mun atkvæðameiri í leiknum og
ef ekki hefði verið fyrir allt of
mikið dutl hefðu þeir getað skor-
að enn fleiri mörk. Tékkar hófu
leikinn með látum og Friðrik
Friðriksson markvörður þurfti að
taka á honum stóra sínum strax á
1. mín. er hann varði gott skot
frá vítateig. Á 2. mín. áttu Tékk-
ar svo þrumuskot í hliðarnetið af
stuttu færi.
Fyrsta færi íslands kom á 4.
mín. þegar litlu munaði að Guð-
mundur Þorbjörnsson kæmist í
gegn eftir góðan undirbúning
Péturs Péturssonar. í fyrri hálf-
leik skiptust liðin á um að sækja
og sást oft mjög gott spil hjá lið-
unum en minna var um afgerandi
færi. Þó átti íslenska liðið góða
sókn á 38. mín. og skapaðist stór-
hætta við tékkneska markið er
þeir Pétur og Arnór spiluðu sig í
gegnum vörnina en Tékkar náðu
að hreinsa í horn. Á 41. mín. átti
Gunnar Gíslason hörkuskot af
löngu færi sem tékkneski mark-
vörðurinn varði vel en hélt ekki
boltanum en íslensku sóknar-
mennirnir náðu ekki að fylgja
skotinu eftir.
íslendingar byrjuðu seinni
hálfleikinn mjög vel og á 5. mín.
var Pétur Pétursson felldur rétt
utan teigs er hann var kominn í
gegnum tékknesku vörnina en
ekkert varð úr aukaspyrnunni.
íslenska liðið hélt áfram að sækja
en það var svo gegn gangi leiksins
að Tékkar ná að skora fyrsta
markið á 53. mín. Það var Kula,
er stóð einn og óvaldaður á
markteig sem skallaði í markið af
miklu öryggi.
íslendingar gáfust ekki upp og
héldu áfram að sækja en tókst
ekki að skapa sér nein afgerandi
færi. Það var svo á 60. mín. að
Tékkar bæta við öðru marki og
var þar Chovanec að verki. Hann
skaut boltanum að marki íslands
af löngu færi og Friðrik mark-
vörður virtist öruggur með bolt-
ann en hann hefur eitthvað mis-
reiknað sig og í netið fór boltinn.
Tékkarnir hresstust allir við
eftir að hafa skorað seinna mark-
ið og héldu áfram að sækja en
Friðrik markvörður hirti það sem
á markið kom. íslenska liðið fór
heldur að hressast á ný síðustu 15
mín. og gerði þá oft harða hríð
að tékkneska markinu. Það var
svo á 83. mín. að Guðmundur
Steinsson sem kom inn á sem
varamaður náði að minnka mun-
inn er hann skoraði með skalla í
opið markið eftir góðan undir-
búning þeirra Sigurðar Grétars-
sonar og Arnórs Guðjónsen. Og
iná segja að það hafi verið það
síðasta markverða sem skeði í
leiknum.
Bestir í íslenska liðinu voru
þeir Pétur Pétursson, Sigurður
Grétarsson, Pétur Ormslev,
Ragnar Margeirsson og Gunnar
Gíslason.
Tékkneska liðið er mjög jafnt
að getu og átti ágætan dag.
AE/Reykjavík
Það var frekar ójafn leikur
sem fór fram á Sauðárkróks-
velli í fyrrakvöld. En þar mætt-
ust lið Tindastóls og Magna í
Mjólkurbikarkeppni KSÍ.
Leiknum lauk með stórsigri
Tindastóls sem skoraði 8
mörk gegn 1 marki Magna.
Fyrri hálfleikurinn var ein-
stefna að marki Magna. Eiríkur
Sverrisson byrjaði leikinn af
krafti og var búinn að skora tvö
mörk eftir 15 mín. Þá tók bróðir
hans Eyjólfur við og skoraði
þriðja markið á 29. mín. Eiríkur
bætti þriðja marki sínu við og
fjórða marki Tindastóls á 31.
mín. Fimmta markið kom á 32.
mín og það sjötta á 35. mín og
það gerði Eyjólfur. í hálfleik var
staðan 6:0.
í síðari hálfleik gáfu Tinda-
stólsmenn örlítið eftir og komust
Magnamenn þá meira inn í leik-
inn. Þeir náðu þó ekki að skapa
sér nein færi. Á 75. mín. skoraði
Tindastóll sitt sjöunda mark og 6
mín. seinna það áttunda. Það
voru svo Grenvíkingar sem áttu
síðasta orðið í leiknum er þeir
skoruðu mark úr vítaspyrnu
skömmu fyrir leikslok. En örugg-
ur sigur Tindastóls var í höfn.
Mikill getumunur var á liðun-
um og er hætt við að Magnamenn
eigi fyrir höndum langt og strangt
sumar. Tindastólsmenn léku vel
og gætu orðið til alls líklegir í
sumar.
Eins og áður sagði skoraði Ei-
ríkur Sverrisson 3 mörk, bróðir
hans Eyjólfur 2 og þriðji bróðir-
Golf:
Gullsmiða-
bikarinn
Kylfingar á Akureyri láta ekki
sitt eftir liggja urn helgina. En þá
fer fram að Jaðri keppnin um
gullsmíðabikarinn. Þetta er 36
holu mót með fullri forgjöf.
Keppni hefst kl. 8.30 á morgun
laugardag og lýkur á sunnudag.
Skráning í mótið fer fram að
Jaðri og lýkur í kvöld.
inn Sverrir 1 mark. Fjórði bróðir-
inn leikur einnig með liði Tinda-
stóls en hann lék ekki með að
þessu sinni. Hin mörkin tvö
gerðu þeir Hermann Þórisson og
Ingvar Magnússon.
Tindastóll heldur því áfram í
bikarnum og liðið leikur næst
gegn KS á Siglufirði þann 11.
júní.
Knattspyrna
- um helgina
Það verður nóg að gera á
knattspymusviðinu um helg-
ina. Þórsarar fara í Garðinn á
ntorgun og leika við Víði í 1.
deild íslandsmótsins og hefst
leikurinn kl. 14.
Hér á Akureyri verður stór-
leikur í kvöld er lið KA og Völs-
ungs mætast í 2. deildinni.
Leikurinn fer fram á KA-velli og
hefst kl. 20. í Reykjavík leika
Þróttur og KS á sama tíma.
í þriðju deildinni eru nokkrir
leikir á morgun. Á Fáskrúðsfirði
leika Leiknir og Magni. Tinda-
stóll og Reynir Árskógsströnd
leika á Sauðárkróki og Leiftur og
Valur Reyðarfirði leika á Ólafs-
firði. Allir leikirnir hefjast á
sama tíma eða kl. 14.
í 4. deildinni verður einnig
leikið á morgun. Vaskur og
Höfðstrendingur leika á KA-velli
kl. 12 á hádegi. Hvöt og Kormák-
ur leika á Blönduósi og Æskan og
Tjörnes leika á Svalbarðseyrar-
velli. Báðir leikirnir hefjast
kl. 14. KK
Leiftur sigraði
Vask naumlega
Leiftur og Vaskur léku í íýrra- dugði ekki til þar sem Ólafsfirð-
kvöld í Mjólkurbikarkeppni
KSÍ á Ólafsfirði. Leiftur sigr-
aði með þremur mörkum gegn
tveimur. Leiftur heldur því
áfram í keppninni og leikur
næst við sigurvegarann úr leik
Völsungs og KA sem fram fer
á Húsavík á þriðjudag í næstu
viku.
Leikur Leifturs og Vasks var
nokkuð jafn og spennandi. Liðin
skiptust á að sækja en þó voru
sóknaraðgerðir Leiftursmanna
hættulegri. Leiftursmenn skor-
uðu fyrsta markið á 20. mín. og
bættu svo við öðru 10 mín. síðar.
Vaskarar náðu að minnka mun-
inn í 2:1 úr víti fyrir hlé og þannig
var staðan í hálfleik.
Vaskarar mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og þeir náðu
að jafna strax á 55. mín. Það
ingar náðu að bæta við þriðja
markinu skömmu fyrir leikslok
og urðu það endanleg úrslit leiks-
ins. Leiftur fékk dæmda víta-
spyrnu í byrjun síðari hálfleiks en
sá er tók spyrnuna skaut franthjá.
Mörk Leifturs gerðu þeir Hall-
dór Guðmundsson 2 og Helgi
Jóhannsson 1. Mörk Vasks gerði
Valdimar Júlíusson.
Kvennaknattspyrna:
Leik Þórs og
Hauka frestað
Leik Þórs og Hauka í 1. deild
kvenna sem fram átti að fara á
Þórsvelli á laugardag hefur verið
frestað.