Dagur - 02.06.1986, Side 1
* Bitvmnsluíomt
* Áætianagerðarfonit
Hr Teikniforrít
Tölvutæki sf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð ■ Akureyri • Sími 96-26155
Kosið í Oddeyrarskólanum á Akureyri.
rwynd: kua.
Akureyri:
Stórsigur krata!
- Framsóknarflokkurinn tapaði manni - „kommarnir" unnu einn
Sigurður Jóhannesson:
Erfiðleikar
atvinnu-
lífsins
notaðir
gegn okkur
„Eðtiiega eru þessi úrslit okk-
ur framsóknarmönnum á
Akureyri mikið áfall og
áhyggjuefni og þau hljóta að
kalla á vissa endurskoðun á
okkar inálum,“ sagði Sigurður
Jóhannesson efsti maður á
lista Framsóknarflokksins á
Akureyri í samtali við Dag í
gær.
„Astæður þessara úrslita eru
margþættar, en ég tel að megin-
ástæðurnar séu tvær. Fyrst og
fremst þeir erfiðleikar sem fram
komu í vissum greinum atvinnu-
lífsins á síðasta kjörtímabili.
Þessir erfiðleikar voru notaðir til
harkalegrar og óréttlátrar gagn-
rýni á meirihluta bæjarstjórnar.
Þessari gagnrýni reyndum við að
svara með málefnalegum umræð-
um þar sem fram komu orsakir
erfiðleikanna og þær ráðstafanir
sem framkvæmdar voru af bæjar-
yfirvöldum til lausnar á vandan-
um. Þessi umræða hefur ekki
nægjanlega náð eyrum kjósenda.
Sú ábyrga afstaða sem við tókum
í þessum málum hefur ekki hlotið
nægan hljómgrunn.
Hin meginástæðan er viss and-
byr sem Framsóknarflokkurinn
hefur haft í landsmálum að
undanförnu. En það kemur dag-
ur eftir þennan dag og aftur verð-
ur kosið. Við munum skoða okk-
ar mál og koma öflugir til næstu
baráttu.
Fylgi þeirra flokka sem nú telja
sig sigurvegara hefur verið afar
sveiflukennt á síðustu árum og
svo mun verða áfram.“ -mþþ
Miklar breytingar urðu á skip-
an bæjarstjórnar Akureyrar í
kosningunum síðastliðinn
laugardag. Alþýðuflokkurinn
jók fylgi sitt verulega frá síð-
ustu kosningum og bætti við
sig tveimur mönnum, hafði
einn fulttrúa en hefur nú þrjá.
Alþýðubandalagið bætti einnig
við sig manni og hefur nú tvo
bæjarfulltrúa, Sjálfstæðis-
flokkurinn hélt sínum hlut og
hefur áfram fjóra bæjarfull-
trúa, en Framsóknarflokkur-
inn tapaði manni. Kvenna-
framboðið bauð ekki fram nú,
en Flokkur mannsins bauð
fram að þessu sinni og fékk
ekki kjörinn fulltrúa. A
kjörskrá voru 9494, 7252 kusu.
Kosningaþátttaka var 76,39%.
Alþýðuflokkurinn kemur sem
sigurvegari út úr þessum kosning-
um, fékk 1544 atkvæði, eða
21,29% greiddra atkvæða. í
kosningunum árið 1982 fékk
Alþýðuflokkurinn 643 atkvæði
eða 9,8% greiddra atkvæða.
Alþýðuflokkurinn bætir við sig
901 atkvæði frá síðustu bæjar-
stjórnarkosningum. Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk 2504 atkvæði eða
34,53%, en fékk við síðustu
bæjarstjórnarkosningar 2261
atkvæði eða 34,6%. Sjálfstæðis-
flokkurinn bætti við sig 243
atkvæðum miðað við síðustu
bæjarstjórnarkosningar. Fram-
sóknarflokkurinn fékk 1522
atkvæði eða 20,90% greiddra
atkvæða, en fékk við síðustu
bæjarstjórnarkosningar 1640
atkvæði eða 25,1%. Miðað við
síðustu kosningar tapaði Fram-
sóknarflokkurinn 118 atkvæðum.
Alþýðubandalagið fékk 1406
atkvæði eða 19,39%. Við síðustu
bæjarstjórnarkosningar fékk
Alþýðubandalagið 855 atkvæði
eða 13,1%. Alþýðubandalagið
bætti við sig 551 atkvæði frá síð-
ustu kosningum. Flokkur manns-
ins fékk 129 atkvæði eða 1,78%.
Flokkur mannsins bauð ekki
fram árið 1982, en þá bauð
Kvennaframboðið fram og fékk
1136 atkvæði eða 17,4% greiddra
atkvæða.
Að kosningum loknum verða
bæjarfulltrúar þessir: Freyr
Ófeigsson, Gísli Bragi Hjartar-
son og Áslaug Einarsdóttir fyrir
Alþýðuflokkinn, Sigurður
Jóhannesson og Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir fyrir Framsóknar-
flokkinn, Gunnar Ragnars,
Sigurður J. Sigurðsson, Bergljót
Rafnar og Björn Jósef Arnviðar-
son fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Sig-
ríður Stefánsdóttir og Heimir
Ingimarsson fyrir Alþýðubanda-
lagið. -mþþ
Lögreglan:
Róleg
kosninga-
helgi
Að sögn lögreglumanna á
Norðurlandi var helgin ákaf-
lega róleg. Víða var gleði ríkj-
andi á kosninganóttina, en lög-
reglan þurfti lítil afskipti að
hafa af því.
Á Akureyri voru tveir teknir
fyrir ölvun við akstur og þrír fyrir
of hraðan akstur. Þrír árekstrar
urðu í bænum um helgina, þeir
voru minniháttar og engin slys á
fólki. Sex fengu að gista fanga-
geymslur lögreglunnar um helg-
ina vegna ölvunar.
Á laugardag urðu tvö umferð-
aróhöpp í S.-Þingeyjarsýslu. Bíll
valt við Laxamýri og skemmdist
mikið. Tveir bílar lentu í árekstri
í Kinninni, en skemmdir á þeim
voru minniháttar. Engin slys
urðu á fólki í þessum óhöppum.
-HJS
Það var tvöfaldur hátíðisdagur hjá stúdentum úr Verkmenntaskólanum á laugardag. Eftir að hafa sett upp hvitu
húfurnar fjölmenntu þeir á kjörstað. Á myndinni má einnig sjá Frey Ófeigsson ræða við kjósanda, en listi hans,
A-listinn, vann stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri. Mynd: KGA
Sjá bls. 3 og 9.