Dagur - 02.06.1986, Blaðsíða 2
2 - 'DAGUR - 2. júní 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari.
Miklar sviptingar
Gífurlegar sviptingar urðu í sveitarstjórnar-
kosningunum - sviptingar sem enginn virðist
hafa séð fyrir með öllu. Fyrirfram benti að
vísu allt til þess að Alþýðuflokkurinn væri í
stöðugri sókn, en engan gat órað fyrir því að
sigur hans yrði eins mikill og raun ber vitni. A
hinn bóginn tapar Framsóknarflokkurinn á
flestum vígstöðvum og er ekki nokkur vafi á
því að landsmálin hafa haft veruleg áhrif. Erf-
iðleikar í þjóðarbúskapnum, sem almenning-
ur hefur orðið var við með áþreifanlegum
hætti, á mestan þátt í því hvernig fór. Þessir
erfiðleikar hafa komið verulega niður á sveit-
arfélögunum og ef til vill eiga skýringar
Sigurðar Jóhannessonar, efsta manns á lista
Framsóknarflokksins, við um landið allt, þeg-
ar hann segir:
„Ástæður þessara úrslita eru margþættar,
en ég tel að megin ástæðurnar séu tvær.
Fyrst og fremst þeir erfiðleikar sem fram
komu í vissum greinum atvinnulífsins á síð-
asta kjörtímabili. Þessir erfiðleikar voru not-
aðir til harkalegrar og óréttlátrar gagnrýni á
meirihluta bæjarstjórnar. Þessari gagnrýni
reyndum við að svara með málefnalegum
umræðum þar sem fram komu orsakir erfið-
leikanna og þær ráðstafanir sem framkvæmd-
ar voru af bæjaryfirvöldum til lausnar á vand-
anum. Þessi umræða hefur ekki nægjanlega
náð eyrum kjóenda. Sú ábyrga afstaða sem
við tókum í þessum málum hefur ekki notið
nægan hljómgrunn.
Hin meginástæðan er viss andbyr sem
Framsóknarflokkurinn hefur haft í landsmál-
um að undanförnu", sagði Sigurður Jóhann-
esson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á
Akureyri í viðtali um úrslit kosninganna.
Það er tæplega hægt að skýra slæma
útkomu Framsóknarflokksins með öðrum
hætti en þeim að landsmálin hafi spilað veru-
lega inn í. Þetta endurspeglast einkum á
þeim stöðum þar sem framsóknarmenn hafa
verið í meirihluta. Þrátt fyrir býsna góða mál-
efnastöðu gjalda framsóknarmenn í sveitar-
stjórnum þess að almenningur í landinu hefur
verið hart keyrður í efnahagslegu tilliti. Sá
bati sem virðist vera í sjónmáli í efnahags-
málunum hefur enn ekki náð að vekja tiltrú
og traust almennings.
Fylgi þeirra flokka sem nú koma út sem sig-
urvegarar hefur á undanförnum áratugum
verið mjög sveiflukennt og svo mun verða
áfram.
—viðtal dagsins..
Sara Hólm, Skógum í Reykjahverfi:
„Ymislegt óvænt gerist
í oriofsferðum húsmæðra"
Árið 1960 gaf Alþingi út lög um
orlof húsmæðra og árlega fjár-
veitingu úr ríkissjóði til þess,
gert var ráð fyrir framlagi úr
heimahéraði á móti. Þeirra
framlaga var aflað frá ýmsum
aðilum t.d. kvenfélögum,
sveitarfélögum. Einnig styrktu
búnaðarfélög og kaupfélög
þessar ferðir nokkrum sinnum
í Suður-Þingeyjarsýslu. Fyrsta
orlofsdvölin var í Húsmæðra-
skólanum á Laugum ’61 en
fyrsta orlofsferðin var farin til
Austurtands ’63. Nú líður að
hinni árlegu orlofsferð og því
ekki úr vegi að spjalla við Söru
Hólm sem starfar í orlofsnefnd
húsmæðra í S.-Þing.
„Núna 23. júní varður farin
fimm daga hringferð um Vest-
firði. Pað hefur aldrei verið farin
hringferð á þessar slóðir áður og
mjög gaman að bjóða þessa ferð
núna. Við ætlum að skoða okkur
um eftir bestu getu, eins og allir
vita er þetta mjög skemmtileg
leið.“
- Hvað kostar þátttaka í ferð-
inni?
„Svona milli 5 og 6 þúsund kr.,
þá er innifalin gisting, fjórir
morgunverðir og fjórir kvöld-
verðir. Nú fáum við styrki frá
sveitarfélögunum sem nema 17
kr. á hvern íbúa. Þetta var mikið
léttara áður þegar við fengum
líka styrki frá ríkinu og ýmsum
félögum. Ferðirnar hafa líka
breyst, nú er meiri lúxus, áður
var meira um að nesti væri haft
með og útveguð voru svefnpoka-
pláss í sölum t.d. Nú fáum við
frekar svefnpokapláss í rúmum
og jafnvel uppbúin rúm.“
- Hvaða konur hafa rétt til
þátttöku í þessum ferðum? Nú
eru ekki að verða svo margar
konur, hvorki í bæjum eða sveit-
um sem vinna bara sem húsmæð-
ur.
„Petta er ekkert bundið við
vinnu eða kvenfélög. Það hafa
allar konur rétt til að fara í þessar
ferðir hvort sem þær eru hús-
mæður eða ekki, giftar eða ógift-
ar.“
- Hvaða konur fara helst í
þessar ferðir í dag?
„Pað er meira um að fullorðn-
ar konur fari og sumar hafa farið
margar ferðir, þetta eru kannski
einu ferðalögin sem sumar konur
eiga kost á að fara í. Kannski fer
meira af sveitakonum vegna þess
að engin hefðbundin sumarfrí
eru í sveitum. Meira er um að
konur í kaupstöðum hafi sumar-
frí og skipuleggi þau með fjöl-
skyldunni, þó fer alltaf talsvert af
konum frá Húsavík með. Ég vil
endilega hvetja yngri konurnar til
að koma með. Ég hef heyrt þær
spyrja hvort þetta séu ekki ein-
tómar gamlar konur sem fari
með. Það er bara vitleysa, þær
eru allar svo hressar og kátar að
þær yngjast upp.
Ég hef heyrt að ef konur byrji
að fara í svona ferðir þá haldi þær
því áfram.“
- Er gaman fyrir konur að
ferðast með konum? Er þetta
ekki orðið úrelt í dag?
„Já, þetta er gaman og langt
frá því að vera nokkuð úrelt, það
er mikið sungið, sagðar sögur og
við reynum að rifja upp þjóðsög-
ur, íslendingasögur og það sem
við vitum um landið.“
- Hafa ferðirnar lengst eða
breyst mikið með árunum?
„Þær hafa breyst að því leyti að
nú eru færri konur sem fara,
fyrstu árin fóru allt upp í þrjár
rútur. En bæði höfum við minni
fjárráð núna og ferðirnar virðast
ekki vera orðnar eins eftirsóttar.
Það hefur verið farið um mest allt
land og þegar við erum búnar að
fara þessa Vestfjarðaferð eigum
við eiginlega bara Vestmannaeyj-
ar eftir og Grímsey.“
- Komdu með dæmisögu um
hvað er svona gaman í ferðunum.
„Það er alltaf gaman í góðum
félagsskap þegar góður félags-
andi ríkir. Ymislegt óvænt getur
gerst í ferðunum. Ég man eftir
fyrstu ferðinni minni, ég fór með
hálfum huga, það er orðið svo
langt síðan ég hélt að ég væri
kannski of ung til að fara í svona
ferð. Við fórum suður Sprengi-
sand og gistum í Landmanna-
laugum.
Petta var mjög skemmtileg
ferð þó ýmislegt færi úrskeiðis,
t.d. var skálinn í Landmanna-
laugum sem við áttum að gista í
fullur af útlendingum. Við vorum
búnar að panta gistingu en skála-
vörðurinn hafði fengið uppgefna
ranga dagsetningu á komu þess-
ara þingeysku orlofskvenna og
því hafði hann leyft þessum
útlendinguni að fá gistingu. Þeir
höfðu með sér viðlegubúnað en
við ekki og þarna voru komnar
tvær rútur fullar af konum og leit
helst út fyrir að þær yrðu að sitja
í rútunum um nóttina. En hús-
vörðurinn gekk l’ram í því að
rýma skálana, þannig að konurn-
ar kæmust inn. Þó var það svo
þröngt að ég og önnur kona feng-
um að endingu gistingu í íbúð
húsvarðarins.
Það var orðið áliðið kvölds
þegar við komum og frekar þung^
búið. Þegar við komum út um
morguninn og ætluðum að fara
að skoða okkur um þá brá okkur
í brún, því nakið fólk var á göngu
um svæðið, í gúmmístígvélum og
með handklæði. Það var að fara í
bað í laugina og hirti ekkert um
þó allar þessar konur væru á ferð-
inni. Fyrst í stað þorðum við ekki
að horfa nema á hæstu fjalla-
tinda.“
- Áttu von á góðri þátttöku í
ferðinni í sumar?
„Ég vona það sannarlega. Jón
Árni Sigfússon verður bílstjórinn
okkar. Það þarf að skrá þátttak-
endur fyrir 5. júní. Á vegum
orlofsnefndarinnar er líka orlofs-
dvöl við Vestmannsvatn í ágúst.
Þetta á að vera mjög góð hvíldar-
og hressingarvika og einnig verð-
ur farið í skoðunarferðir.
Formaður orlofsnefndar er
María Helgadóttir á Arndísar-
stöðum, einnig störfum við Sig-
ríður Hermóðsdóttir í Straum-
nesi í nefndinni. Konurgeta einnig
látið skrá sig hjá öllum kven-
félagsformönnum.
Ég vona að við fáum góða þátt-
töku, veðrið og færðin verði orð-
in góð. Nú er gert grín að mér fyr-
ir það að ég fylgist meira með því
hvernig færðin er á Steingríms-
fjarðarheiði héldur en hvort það
gráni í rót í túninu heima.“ IM