Dagur - 02.06.1986, Síða 5
2. júní 1986 - DÁGUR - 5
—lesendahornið_________
Mæöraeftirlitiö
Á mæðraeftirlit að vera í hönd-
um heimilislækna eða sérfræð-
inga í fæðingarlækningum?
í dag ríkir sú stefna að heimil-
islæknar sjái um alla heilsugæslu,
að meðtöldu mæðraeftirliti, ung-
barna- og barnaeftirliti. Er þessi
stefna rétt eða röng? Að mínu
mati er hún röng. Ég tel að
barnaeftirlit eigi að vera í hönd-
um barnalækna, vegna sérþekk-
ingar á barnasjúkdómum og
meiri reynslu í skoðun ungbarna
en heimilislæknar hafa. Einnig
tel ég að mæðraeftirlit eigi að
vera í höndum fæðingarlækna.
Þótt meðganga og fæðing séu
eðlilegt fyrirbæri getur ýmislegt
gerst á meðgöngutíma sem krefst
hjálpar læknis. Mikilvægt er að
öll frávik frá eðlilegri meðgöngu
uppgötvist snemma. Sérfræðing-
ur í fæðingarhjálp ætti að hafa
meiri hæfileika til að greina slíkt í
tæka tíð, eða til hvers var hans
sérmenntun?
Undirbúningsmenntun og
reynsla heimilislækna á þessu
sviði er mjög mismunandi og
hæfni þeirra því mismikil. Það er
skoðun mín að nýta beri sér-
menntun lækna til fullnustu.
Hver myndi vilja að heimilis-
læknir skoðaði í okkur tennurnar
og benti síðan tannlækninum á
hvaða tennur hann ætti að gera
við.
Ég sem er móðir og á von á bami
nú, hef bæði farið í mæðraskoð-
un á Landspítalann (Lsp.) og svo
hér, á heilsuverndar-/heilsu-
gæslustöð Akureyrar.
Á Lsp. eru það ljósmóðir og
fæðingarlæknir sem skoða í hvert
sinn. Meinatæknir er á staðnum
sem rannsakar þvag í hvert sinn
og blóð þegar við á. Svo er stutt í
zonarinn.
Hér á Akureyri er það fæðing-
arlæknir sem skoðar í fyrsta sinn.
Síðan eru það ljósmóðir og heim-
ilislæknir sem skoða konuna þeg-
ar hún kemur í mæðraeftirlit.
Ljósmóðir athugar þvagprufu.
Verðandi móðir er send í blóð-
prufu þegar við á í öðru húsi. Ef
ástæða þykir til er konan send
aftur til fæðingarlæknis.
Þegar ég ber þetta tvennt
saman, finnst mér ég vera í
öruggari höndum hjá fæðingar-
lækni en heimilislækni, að mín-
um heimilislækni ólöstuðum.
Nú er komin stórgóð göngu-
deild á FSA. Væri ekki upplagt
að mæðraeftirlit yrði staðsett
þar? Sérfræðingur (fæðingar-
læknir sem hver verðandi móðir
veldi sér) og ljósmóðir skoðuðu í
hvert sinn, meinatæknir á staðn-
um og zonar á staðnum.
Mér finnst það vera ábyrgð og
skylda fæðingarlækna að sjá um
skoðun hjá verðandi mæðrum
alla meðgönguna.
Margrét Ólafsdóttir.
Það er löngu viðurkennt og lega kom mér ekkert á óvart við En nú ætla óg ekki að þreyta
raunar ómótmælanlegt, að það síðustu kosningar, annað en lesendur með flóknum reikn-
er ekki heiglum hent að spá, - tala bæjarfulltrúa. Eftir því sem ingsdæmum. Miklu nær væri að
sérstaklega fram í tímann og mér skilst, voru að lokum kosnir reyna að einfalda hlutina. I
um óorðna hluti. Hitt er eigin- ellefu menn í bæjarstjórn Akur- þessu tilfelli, væri einföldun að
lega mun auðveldara, að spá eyrar. Ég hélt sem sagt í ein- sjálfsögðu fólgin i því að draga
eftir á og þá er líka miklu meira feldni minni, að búið væri að tíu frá eliefu. Þá verður eftir
að marka spádómana. fjölga bæjarfulltrúum töluvert. einn.
Þegar þessi spaklegu orð, Þessi trú min, byggist á yfirlýs-
sem hér voru rétt lesin, koma ingum oddvita flokkanna í fjöl- Mín uppástunga er sú, að
fyrir augu lesenda, er væntan- miðlum fyrir kosningar. þessi aðferð verði notuð i
lega komið logn á eftir stormin- sambandi við stjórnun bæjar-
um. Bæjarstjórnarkosningar að Ég gat ekki betur heyrt, en ins: Hinir ellefu kjörnu fulltrúar
baki og búið að telja upp úr sjálfstæðismenn ætluðu að komi sér saman aö fela einum
kössunum. Og nú er i sannleika bæta við sig einum til tveimur úr sinum hópí stjórnun bæjar-
mun auðveldara að „spá“ til um mönnum i kosningunum. Nú, ins. Að sjálfsögðu mætti hann
kosningaúrslit. Framsókn ætlaði aö bæta við fá sér til aðstoðar svo sem eins
Sjálfsagt eru menn misjafn- sig minnst einum manni. Alla- og eina vólritunardömu. Þetta
lega ánægðir meö niðurstöðu ballar þóttust öruggir með einn ætti samkvæmt alþjóðlegum
kosninganna. En einn Ijósasti mann til viðbótar og einhvern „staðli", að nægja. Og ef tekiö
punkturinn við þetta allt er þó veginn fannst mér kratar vera er mið af þeirri miklu heims-
sá, að fyrir kosningar ætluðu búnir að panta tvö stykki, takk. borg, New York, - þá ætti sam-
allir að vinna, en aö kosningun- Samkvæmt mínum útreikningi kvæmt höfðatölureglunni að
um loknum hafði enginn tapaö. eru þetta heilir sex menn, ef allt nægja að hafa í þessu „djobbi*',
Það er þess vegna ekkert því til er talið. Og miðað við gömlu, hálfan mann. Eða eins og sagði
fyrirstöðu, að allir geti verið góöu margföldunartöfluna, gerir í auglýsingunni: Hittumst heilir,
ánægðir. ellefu plús sex, sama sem verðum hálfir.
Ég verð þó að játa, að eigin- sautján. Högni.
Hinir geysivinsælu
DAIH
bílar til afgreiðslu strax.
Allar almennar
bílaviðgerðir.
□AIHATSU
r
Umboð
Varahlutir
Viðgerðir
BILVIRKI sf.
Fjölnisgötu 6 • Sími 23213
Landeigendur
í Saurbæjarhreppi
Óheimilt er að sleppa hrossum úr afgirtum hólfum á
afrétt fyrr en eftir 15. júní n.k. Hross sem tekin eru í
hagagöngu má ekki sleppa úr afgirtum hólfum.
Oddviti.
Útihurðir, gluggar
og gluggagrindur
Framleiðum útihurðir, glugga oggluggagrinduraf
mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um
ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine,
mahogni, furu o.fl. Gluggaviðgerðir
Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst-
um þéttilista.
Sérsmíðum eftir ósk kaupanda.
Gerum verðtilboð.
Bílskúrshurðir
Bílskúrshurðajárn
(i^ z 'ITRÉSMIÐJAN
^BDRKURf
Fjölnisgötu 1a
Akureyri
Sími 96-21909
Léttmjólk
er fitulítil mjólk
Mjóikursamlag