Dagur - 02.06.1986, Page 6
6 - DAGUR - 2. júní 1986
íþróttiL
Það var mikið um að vera á knatt-
spyrnusviðinu um helgina. Öll norð-
lensku liðin sem leika í 3. og 4. deild
léku um helgina og kom góður
árangur Magnamanna einna mest á
óvart en Iiðinu hefur ekki gengið
neitt allt of vel fram að þessu. Magni
sigraði Leikni á Fáskrúðsfirði með
tveimur mörkum gegn einu.
Leikurinn var sæmilega vel leikinn
af báðum liðum og voru færi á báða
bóga. Gamla kempan Hringur
Hreinsson kom Magna yfir er hann
skoraði í fyrri hálfleik og þannig var
Leikni
staðan í leikhléi.
Leiknismenn mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og þeir náðu að
jafna á 65. mín. En Magnamenn
nældu sér í öll stigin þrjú er Sverrir
Heimisson skoraði gott mark um 15
mín. fyrir leikslok.
Það hefur einhver Sauðkræking-
urinn haldið að lið Reynis, skipað
sjómönnunum frá Árskógsströnd
yrði auðveld bráð fyrir Tindastól
er liðin mættust í 3. deildinni í
knattspyrnu á Sauðárkróki á laug-
ardag en annað kom á daginn.
Það var Reynisliðið sem vildi mun
meira í leiknum og verðskuldaði
annað stigið. Það var sérstaklega í
fyrri hálfleiknum sem Reynismenn
höfðu umtalsverðan vilja fram yfir
heimamenn. Þeir uppskáru laun erf-
iðisins um miðbik hálfleiksins er
Öruggur sigur
Leifturs á Val
Leiftur Ólafsfirði vann öruggan
sigur á Val Reyðarfirði er liðin
mættust á Ólafsfjarðarvelli í 3.
deildinni í knattspyrnu á laugardag.
Úrslit leiksins urðu 4:0.
Óskar Ingimundarson skoraði tvö
mörk gegn Val.
Leiftursmenn fóru rólega af stað O;
voru frekar daprir í fyrri hálfleik.
lok hálfleiksins fiskaði Óskar Ingi-
mundarson vítaspyrnu sem Sigur-
björn Hafsteinsson skoraði úr af
öryggi og þannig var staðan í hálf-
leik.
Ólafsfirðingar náðu að skora sitt
annað mark snemma í síðari hálfleik
og var þar Hafsteinn Jakobsson að
verki. Stuttu seinna fengu Valsarar
vítaspyrnu sem þeir brenndu af.
Það var svo Óskar Ingimundarson
þjálfari sem átti síðasta orðið. Hann
skoraði tvö góð mörk með mjög
stuttu millibili og innsiglaði þar með
góðan sigur.
Leiftursliðið lék ágætlega í þessum
leik og sérstaklega eftir að þeir náðu
að skora fyrsta markið. Verður fróð-
legt að fylgjast með þeim í deildinni í
sumar.
íslandsmótið 4. deild:
Vaskur sigraði
Höfðstrending
Vaskur sigraöi Höfðstrending meö
einu marki gegn engu í 4. deildinni
í knattspyrnu á laugardag. Það var
Valdimar Júlíusson sem skoraði
eina mark leiksins.
Mikill getumunur er á liðunum og
var svo til einstefna að marki Höfð-
strendings nær allan leikinn. Var það
einungis fyrir mikinn klaufaskap
Vaskara að sigurinn varð ekki stærri
en raun varð á. Sem dæmi áttu þeir 3
sláarskot og eitt í stöng. í hálfleik var
staðan 0:0.
Úrslitamarkið skoraði Valdimar
svo um miðjan síðari hálfleikinn.
Vaskarar fengu mörg tækifæri til við-
bótar til að bæta við mörkunt en tókst
ekki.
Lið Höfðstrendings er slakt og er
ekki líklegt til afreka í sumar. I liði
Vasks eru aftur á móti góðir leik-
menn og ætti liðið að geta unnið riðil-
inn sinn í 4.deildinni og komist þann-
ig í úrslit.
Valdimar Júlíusson skoraði sigurmark
Vasks.
Tómas Karlsson komst inn í send-
ingu varnarmanns til Gísla mark-
varðar og renndi boltanum af öryggi
í markið. Þetta var að vísu eina færi
Reynis í fyrri hálfleik. Tindastóls-
menn áttu nokkur góð færi en annað
hvort voru þeim mislagðir fætur eða
að Eiríkur markvörður og þjálfari
varði af snilld.
Strax á 2. mín. síðari hálfleiks
jafnaði svo Tindastóll er Eyjólfur
Sverrisson skoraði af stuttu færi.
Tindastóll sótti mun meira í seinni
hálfleik en Reynismenn náðu nokkr-
um hættulegum skyndisóknum. Úr
einni þeirra skoraði Svanlaugur Þor-
steinsson á 20. mín. er hann fékk
sendingu inn fyrir vörnina, hafði bet-
ur í návígi við Gísla markvörð og
renndi boltanum í tómt markið.
Litlu munaði að Reynismenn bættu
við öðru marki skömmu síðar en þá
bjargaði Gísli snarlega. 5 mín. síðar
náði svo Tindastóll að jafna er Guð-
brandur Guðbrandsson skallaði í
markið af stuttu færi.
A síðustu sek. leiksins sendi Eirík-
ur Sverrisson boltann í markið hjá
Reyni, línuvörðurinn gerði enga
athugasemd en Magnús Jónatansson
dæmdi markið af án þess að ráðfæra
sig við línuvörðinn eftir að Reynis-
menn höfðu haft uppi kvartanir.
Magnús er ekki vinsælasti maðurinn
á Króknum í dag. Leiknum lauk því
eins og áður sagði með 2:2 jafntefli.
Reynismenn börðust vel í þessum
leik og voru þeir Eiríkur markvörð-
ur, Tómas og Birgir þeirra bestu
menn. Er liðið til alls líklegt í sumar.
Tindastólsmenn þurfa ekki að láta
sig dreyma um 2. deildar sæti að ári
ef viljinn verður ekki meiri í sumar
en í þessum leik. Bestir voru þeir
Eiríkur þjálfari og Gísli markvörður.
4. deild:
Áttu ekki
ílið
Hvöt og Kormákur áttu að leika í
4. deildinni í knattspyrnu á Iaugar-
dag en ekkert varð af leiknum þar
sem Kormákursmenn mættu ekki
til leiks. Var sagt að ástæðan hafi
verið sú að þeir áttu ekki í lið.
Verða það að teljast harla ein-
kennileg vinnubrögð hjá þeim að
senda lið til keppni í íslandsmótinu
og eiga svo ekki til mannskap þegar
til kasta kemur. Urðu Hvatarmenn
fyrir miklum vonbrigðum yfir þessu.
Samkvæmt heimildum Dags var
töluvert um það í 4. deildinni að lið
mættu ekki til leiks um helgina af mis-
jöfnum ástæðum.
Leik Æskunnar og Tjörness sem
fram átti að fara á laugardag var frest-
að þar sem einhverjir leikmenn voru í
kosningastússi.
slá Víðismarksins
Halldór Áskelsson sendir boltann
leiknum á laugardag
íslandsmótið 1. deild:
Fátt um fína d
í leik Víðis og
- og markalaust jafntefli staðre'
Sigurbjörn Viðarsson rekinn af lei
„Þetta var stutt gaman en
gott,“ sagði Sigurbjörn Viðars-
son leikmaður Þórs eftir að
hafa verið vikið af velli í
markalausu jafntefli Víðis og
Þórs í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Það var fátt um fína
drætti í þessum leik, lítið var af
samspili en þeim mun meira
um tæklingar út um víðan völl.
Undirritaður man varla eftir
að hafa séð aðra eins hörku í
nokkrum leik. Var sumum
varnarmanna Víðis auðsjáan-
lega margt betur til lista lagt en
að stunda knattspyrnuiðkun.
Leyfði slakur dómari leiksins
Eysteinn Guðmundsson þeim
að komast upp með allt of
mikið.
Víðismenn hófu leikinn undan
norðangarra og voru mun at-
kvæðameiri í fyrri hálfleik án
þess þó að skapa sér afgerandi
færi. Það markverðasta sem
gerðist í hálfleiknum var það að
Baldvin markvörður varði mjög
vel langskot frá Grétari Einars-
syni á 27. mín. Á 40. mín. átti
svo Mark Duffield gott skot rétt
framhjá marki Þórs.
Eina umtalsverða færi Þórsara
í fyrri hálfleik átti Siguróli en
skaut rétt framhjá Víðismarkinu.
í seinni hálfleik lifnuðu Þórsar-
ar heldur við og gerðu þeir oft
harða hríð að marki heima-
manna. Á 9. mín. komust þeir
næst því að skora er Hlynur skall-
aði niður fyrir fætur Halldórs
Áskelssonar sem þurfti að teygja
sig aðeins of mikið og skaut í
slána af stuttu færi. Aðeins 2
mín. síðar komst Halldór upp að
endamörkum og renndi boltan-
um út í teiginn þar sem þrír Þórs-
arar þvældust hver fyrir öðrum
og tækifærið rann út í sandinn.
Á 15. mín. náðu Víðismenn
góðri sókn en Baldvin varði mjög
vel skot af stuttu færi. Á 18. mín.
komst Halldór aftur upp að enda-
mörkum og renndi á ný út í teig-
inn en varnarmönnum Víðis
tókst þrívegis að þvælast fyrir
skotum Þórsara.
Lítið markvert gerðist svo fyrr
en á allra síðustu mín. leiksins. Á
43. mín. brunuðu Víðismenn í
skyndisókn og eftir varnarmistök
komst einn Víðismaðurinn frír
inn fyrir vörn Þórs og mark virtist
óumflýjanlegt. En þegar neyðin
er stærst er hjálpin næst og Sigur-
björn Viðarsson sem var nýkom-
inn inn á sem varamaður renndi
sér aftan í Víðismanninn, skellti
honum rétt fyrir utan teig og
hlaut rautt spjald fyrir vikið. A
síðustu mín. leiksins var Bjarni
Sveinbjörnsson næstum kominn í
gegnum Víðisvörnina er Daníel
Einarsson braut gróflega á hon-
KS-menn sækja að marki Þróttar.