Dagur - 02.06.1986, Síða 7
2. júní 1986 — DAGUR - 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Islandsmótið 2. deild:
Völsungar náðu að
jafna á síðustu stundu
- í leiknum við KA á föstudagskvöld
Mynd: AE.
Irætti
Þórs
ynd.
ikvelli
um og hefði mátt hljóta rauða
spjaldið fyrir vikið þar sem dóm-
arinn var áður búinn að áminna
hann, auk þess sem Daníel og
bróðir hans í vörn Víðis voru
búnir að vera það sem kallast get-
ur síbrotamenn.
Víðisliðið á heiður skilinn fyrir
baráttu en ekkert annað.
Þórsliðið átti einn af sínum
lakari dögum og þeir sem stóðu
upp úr voru Baldvin markvörður,
Baldur Guðnason sem er ört vax-
andi leikmaður og Siguróli.
Slakur dómari leiksins var
Eysteinn Guðmundsson og gaf
hann Nóa og Baldri áminningu
hjá Þór en Daníel hjá Víði, auk
þess að vísa Sigurbirni af velli.
AE/Reykjavík
„Það var ferlega grátlegt að
missa þetta niður í jafntefli.
Þeir náðu yfirhöndinni í seinni
hálfleik og þannig vill það oft
verða þegar annað liðið er yfir
og reynir að hanga á því. Við
gáfum allt of mikið eftir og
þeir gengu á lagið,“ sagði Erl-
ingur Kristjánsson fyrirliði KA
eftir leikinn við Völsung í 2.
deildinni í knattspyrnu á KA-
velli á föstudagskvöld. KA
hafði 1:0 yfír svo til allan leik-
inn en Völsungar náðu að
jafna á síðustu mínútu leiksins.
Fyrri hálfleikur fór frekar
rólega af stað, bæði liðin þreif-
uðu fyrir sér. Völsungar voru þó
öllu ákveðnari í byrjun og á 6.
mín. átti Björn OÍgeirsson skot
yfir mark KA af markteig. Hin-
um megin komst Haraldur Har-
aldsson í færi en Þorfinnur mark-
vörður Völsunga varði gott skot
hans vel.
KA-menn fóru síðan að kom-
ast meira inn í leikinn og á 15.
mín. skoraði markavélin í KA-
liðinu, Tryggvi Gunnarsson mjög
gott mark af stuttu færi. Boltinn
barst fyrir markið frá hægri og
þar var Tryggvi mættur og sendi
boltann í bláhornið, algjörlega
óverjandi fyrir Þorfinn í marki
Völsungs.
5 mín. síðar átti Kristján 01-
geirsson hörkuskot í hliðarnetið
á marki KA eftir mikinn darrað-
ardans inni í vítateig. Á næstu 20
mín. gerðist fátt markvert.
Á 42. mín. sluppu Völsungar
með skrekkinn er Erlingur Krist-
jánsson skallaði af miklum krafti
í slá Völsungsmarksins eftir
hornspyrnu. Boltinn barst út í
teiginn og eftir mikinn hamagang
þar tókst varnarmönnum Völs-
ungs að hreinsa frá marki. Það
var svo Kristján Olgeirsson sem
átti síðasta orðið í fyrri hálfleik
er hann átti gott skot af löngu
færi en Haukur markvörður KA
varði í horn.
KA-menn áttu fyrstu tvö um-
talsverðu færin í síðari hálfleik.
Fyrst Tryggvi á 50. mín. er hann
skaut góðu skoti að marki sem
Þorfinnur varði vel. 5. mín. síðar
átti Haraldur skot framhjá mark-
inu eftir að hafa komist í ágætt
færi eftir samleik við Tryggva.
Völsungar fóru síðan meira að
láta að sér kveða og KA-menn
bökkuðu um leið. Gerðu Völs-
ungar oft harða hríð að marki
KÁ án þess þó að skapa sér nein
dauðafæri. KA átti nokkrar
skyndisóknir og var Tryggvi aðal-
maðurinn í þeim öllum. Sem
dæmi átti hann tvö hörkuskot
með stuttu millibili að marki
Völsungs en Þorfinnur varði þau
bæði mjög vel.
Guðmundur þjálfari Völsungs
tók til þess ráðs að skipa Vil-
helm Fredriksen inn á snemma í
síðari hálfleik og átti það eftir að
reynast vel. Vilhelm vann mjög
vel og skapaði oft usla í vörn KA
með hraða sínum og krafti. Það
var einmitt eftir sendingu frá
honum að Völsungar náðu að
jafna á síðustu mín. leiksins. Vil-
helm komst upp að endamörkum
vinstra megin og gaf góðan bolta
fyrír á fjærstöng þar sem Grétar
Jó.:°son var. Hann skallaði bolt-
ann út í teiginn þar sem Kristján
Olgeirsson kom á fullri ferð og
sendi boltann í bláhornið hjá
Hauki markverði. Glæsileg sókn
og gott mark. KA-menn rétt
náðu að taka miðju áður en góð-
ur dómari leiksins Sæmundur
Víglundsson flautaði af og jafn-
tefli var staðreynd.
Leikurinn í heild var ekki mik-
ið fyrir augað en þó sáust góðir
sprettir inn á milli.
Bestir í liði KA voru þeir Erl-
ingur, Þorvaldur Örlygsson og
Tryggvi Gunnarsson sem er
ávallt hættulegur upp við mark
andstæðinganna. Þá var Haukur
Bragason öruggur í markinu.
Bestir í liði Völsungs voru
varnarmennirnir Birgir Skúlason
og Eiríkur Björgvinsson. Þá voru
þeir Grétar Jónsson og Vilhelm
Fredriksen einnig góðir og þá
stóð Þorfinnur Hjaltason mark-
vörður fyrir sínu.
Staðan
1. deild:
Staðan í 1. deild ísiandsmóts-
ins í knattspyrnu er þessi:
FH-Valur 0:1
Víðir-Þór 0:0
KR-ÍA 1:1
ÍBV-UBK 1:1
Fram-ÍBK 0:1
FH 4 2 11 6:4 7
UBK 3 2 1 0 3:1 7
KR 4 1 3 0 6:2 6
Valur 4 2 0 2 6:3 6
ÍA 4 1 2 1 4:2 5
Víðir 4 1 2 1 2:3 5
Þór 3 1 1 1 3:3 4
Frani 3 1 1 1 2:2 4
ÍBK 4 1 0 3 2:7 3
ÍBV 3 0 1 2 1:8 1
2 . deild:
Staðan í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu að loknum
leikjum helgarinnar er þessi:
Þróttur-KS 2:3
KA-Völsungur 1:1
ÍBÍ-Einherji 2:2
Selfoss-Víkingur 1:0
Skallagrímur-UIVIFN 0:3
Selfoss 3 2 1 0 6:2 7
KA 3 1 2 0 7:3 5
UMFN 3 1 2 0 7:4 5
KS 3 1 2 0 5:2 5
Völsungur 3 1 2 0 5:2 5
Víkingur 3 1 1 1 5:4 4
Einherji 3 1 1 1 4:7 4
Þróttur 3 0 12 4:6 1
ÍBÍ 3 0 2 1 7:9 2
Skallagrímur 3 0 0 3 1:10 0
íslandsmótið 2. deild:
Mjög góð barátta KS
skóp sigur gegn Þrótti
Það var fyrst og fremst barátt-
an sem varð þess valdandi að
Siglfírðingar fóru þremur stig-
um ríkari úr viðureign sinni við
Þrótt í Reykjavík eftir að hafa
unnið 3-2 í hörkuspennandi
leik. Heldur er nú staðan orðin
ógæfuleg hjá Þrótturum sem
féllu úr fyrstu deild í fyrra, af-
raksturinn úr þremur fyrstu
leikjunum aðeins 3 stig.
Siglfirðingar hófu leikinn mjög
vel og sóknarloturnar buldu á
Þróttarvörninni fyrsta korterið,
án þess þó að leikmönnum KS
tækist að nýta færin til marka.
Það voru hins vegar Þróttarar
sem skoruðu fyrst, öllum á óvör-
um, og þar var að verki Nikulás
Tómasson af stuttu færi eftir
mjög vel útfærða skyndisókn.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
var mikið barist út um víðan völl,
en fleiri urðu mörkin ekki þrátt
fyrir tækifæri á báða bóga.
í síðari hálfleik fundu leik-
menn hins vegar leiðina í netið
svo um munaði. Á 15. rnínútu
jafnaði Gústaf Björnsson fyrir
KS með skot úr þvögu eftir langt
innkast. Fimm mínútum síðar
kom Sigurður Hallvarðsson
Þrótturum yfir á ný er hann skor-
aði úr þvögu. Ekki liðu nema sex
mínútur þar til Gústaf Björnsson
var búinn að jafna á ný er hann
fékk boltann skyndilega dauða-
frír inni í vítateig Þróttar. Sigur-
markið fyrir Siglfirðinga skoraði
svo Hörður Júlíusson á 32. mín-
útu úr geysifallegum skalla eftir
hornspyrnu. Eftir það héldu leik-
menn KS auðveldlega fengnum
hlut.
Sigur KS í þessum leik vannst
einna helst vegna stórgóðrar bar-
áttu. og þetta var öðru fremur
sigur liðsheildarinnar.
AE./Reykjavík.