Dagur - 02.06.1986, Qupperneq 9
2. júní 1986- DAGUR-9
Kosið á Akureyri
Svipmyndir frá kosningadeginum
„Ég hef iítið um þessi úrslit að
segja, ætli við höfum ekki orð-
ið fyrir vonbrigðum, eins og
þeir sem verða undir,“ sagði
Ármann Þórðarson, efsti mað-
ur á H-listanum, lista vinstri
manna í Ólafsfirði. H-listinn
fékk þrjá menn kjörna, hafði
fjóra og tapaði þar með meiri-
hlutanum.
Urslit kosninganna urðu þau
að listi sjálfstæðismanna fékk 359
atkvæði og fjóra menn kjörna,
vinstri menn 352 atkvæði og þrjá
menn, eins og áður sagði. Sjálf-
stæðismenn eru því komnir í
meirihluta. „Við áttum ekki von
á að missa meirihlutann, sjálf-
stæðismenn lögðu mikla áherslu
á að skipta um meirihluta og þeir
íengu ósk sína uppfyllta,“ sagði
Ármann.
„Við erum auðvitað ánægð
með úrslitin, því er ekki að
leyna,“ sagði Birna Friðgeirs-
dóttir, sem var í 1. sæti á lista
Ólafsfjörður:
Sjálfstæðismenn
í meirihluta
it
'Um I
ímm* ®
: wk wmm mm& w
vmú ár*
iM.í. m&fá,
sjálfstæðismanna. „Það var mjótt
á mununum og við vissum að það
gæti farið á hvorn veginn sem var
og áttum ekkert frekar von á að
ná meirihluta. Þetta voru því
bæði ánægjuleg og óvænt úrslit
að vissu marki. Okkar fólk vann
geysilega gott starf fyrir kosning-
arnar og ég held að það hafi ráðið
úrslitum.“ -HJS
Hrísey:
Óhlutbundnar
kosningar
Kosningarnar í Hrísey voru
óhlutbundnar, þ.e.a.s. engir
listar voru lagðir fram og allir
íbúar eyjarinnar voru í kjöri.
Kosnir voru fimm fulltrúar,
þeir Narfi Björgvinsson, Árni
Kristinsson, Björgvin Pálsson,
Mikael Sigurðsson og Ásgeir
Halldórsson. JHB.