Dagur - 02.06.1986, Blaðsíða 11
■2. júm 1986 - DAGUR - 11
M-hátíð á Akureyri:
Leitað að myndverkum
Einn þáttur svo kallaðrar M-
hátíðar, menningarhátíðar sem
menntamálaráðuneytið efnir
til í samvinnu við Akureyrarbæ
dagana 14. og 15. júní er sam-
sýning norðlenskra myndlist-
armanna sem fram fer í
Iþróttaskemmunni.
Myndlistarsýningin verður
tvíþætt, annars vegar samsýning
starfandi myndlistarmanna og
hins vegar sýning á verkum
þeirra er voru starfandi á fyrri
hluta aldarinnar og tengjast
Akureyri eða Norðurlandi á ein-
hvern hátt.
Ætlunin er að sýna verk eftir
Hauk Stefánsson, Freymóð
Jóhannesson, Kristínu Jónsdótt-
ur, Einar Jónsson frá Fossi,
Eggert M. Laxdal, Svein Þórar-
insson, Jónas Jakobsson, Sölva
Helgáson, Arngrím Gíslason,
Arngrím Ólafsson, Eórhall
Björnsson, Ármann Sveinsson,
Skúla Skúlason og Maju
Baldvins.
Nú stendur yfir leit að mynd-
verkum eftir þessa listamenn og
er það ósk sýningarnefndar að
þeir sem eiga verk eftir þá séu
fáanlegir til að lána þau til þess-
arar sýningar. Þeir sem geta lið-
Erfingjar hjónanna Helga Ei-
ríkssonar og Hólmfríðar Páls-
dóttur frá Þórustöðum hafa
boðið stjórn Amtsbókasafns-
ins á Akureyri að kaupa bóka-
safn þeirra hjóna fyrir hálft
virðingarverð eða kr. 784
þúsund. Hinn helming virðing-
arverðsins vilja erfingjarnir
gefa safninu til minningar um
þau hjón og tvö börn þeirra
sem eru látin.
í bréfi ættingjanna til safnsins
sagði ennfremur m.a. að verð
sinnt þessu eru vinsamlega beðn-
ir að hafa samband við Guðmund
Ármann í síma 22196, Rósu Júl-
íusdóttir í síma 24542 eða Daníel
Guðjónsson í síma 24196.
það sem safnið myndi greiða fyrir
safnið ætti að gefa Öngulsstaða-
hreppi þar sem þau hjón bjuggu í
nær hálfa öld og skyldi þeim pen-
ingum varið til menningarstarf-
semi.
Eftir að amtsbókavörður
hafði borið bókaskrána sam-
an við eignaskrá Amtsbóka-
safnsins kom í ljós að mikill
meirihluti bókanna eða um 90%
er þegar til í eigu safnsins og því
sá stjórn safnsins sér ekki fært af
fjárhagsástæðum að þekkjast
þetta ágæta tilboð. gk-.
Amtsbókasafnið:
Bókasafni á hálfu
virðingarverði hafnað
Eignast ríkið handrit Nonna?
Jesúítareglan í Köln í Vestur-
Þýskalandi hefur boöið
íslenska ríkinu öll frumrit
verka rithöfundarins Jóns
Sveinssonar, Nonna. Kom
þetta fram á fundi með Sverri
Hermannssyni, menntamála-
ráðherra og sagði hann að
ríkisstjórnin væri búin að gefa
samþykki sitt fyrir því að leita
eftir kaupum á verkunum.
Eru handritin handskrifuð af
rithöfundinum sjálfum. Eru þetta
ekki aðeins barnabækur Nonna
heldur allt sem Nonni skrifaði og
hefur margt af því aldrei verið
gefið út á prenti. Það er Haraldur
Hannesson, hagfræðingur sem
hefur handritin í fórum sínum og
bauð hann ríkinu þau fyrir hönd
Jesúítareglunnar. „Handrit
Nonna eru að mínu mati mjög
verðmæt og við verðum að gera
allt sem við getum til að eignast
þau, við verðum að leggja allt í
sölurnar," sagði Sverrir.
Jesúítareglan bauð einnig
íslenska ríkinu myndir Colling-
woods, bresks málara sem ferð-
aðist um landið og málaði. Taldi
Sverrir að þær yrði ríkið einnig'
að eignast. -HJS
Tilboðsverð
á Stiga mótorsláttuvél með Briggs og Stratton móton
Verð aðeins 17.590 • 2ja ára ábyrgð.
Eigum einnig rafmagnssláttuvélar og '
fleiri gerðir af mótorvélum. Þá minn-
um við á garðáhöldin í úrvali.
iWmí
SIMI
(96)21400
Barkar og slöngur
SF
STRAUMRAS
ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- 0G RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 ■ 600 Akureyri ■ Sími 96-26988
j|j| Félagsmálaráðuneytið óskar
1ÍS: eftir að taka á leigu
1200-1500 fermetra húsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir starfsemi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins.
Húsnæðið þarf að hafa gott aðgengi fyrir fatlaða.
Tilboð sendist félagsmálaráðuneytinu Arnarhvoli
fyrir 15. júní n.k.
Nánari upplýsingar veittar í félagsmálaráðuneyt-
inu í síma 25265.
Vantar starfsmann
til afleysinga
júní-september
Umsóknir óskast sendar skrifiega fyrir 6. júní.
Sporthú^id
Hafnarstræti 94 Sími 24350
Vélstjóra vantar
á Mars ST-150 sem fer á rækjuveiðar frá Ólafs-
firði. Upplýsingar í síma 62256 og 62484 eftir
kl. 19.
Óskum að ráða vanan
mann á smurstöð
okkar í sumar.
MÖL&SANDURHF.
V/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra:
Viljum ráða nú þegar
starfsmenn vana saumaskap.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Iðjulundar
í síma 25836.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi
eystra.
Viljum ráða nú þegar
trésmiði vana
verkstæðisvinnu
Nóg verkefni.
Upplýsingar gefur Óskar.
Upplýsingar eftir kl. 18 í síma 97-1609.
\ BaldurótÖskarsf. simi 1 m. verkst.
"byggingaverktakar sími 1766, skrifst.