Dagur - 02.06.1986, Síða 12
Akureyri, mánudagur 2. júní 1986
Þjónusta fyrir
háþrýstislöngur
olíuslöngur og barka
Pressum
tengin á
Fullkomin tækni
vönduð vinna
Á kjörstað á laugardaginn.
Mynd: KGA.
Sauðárkrókur:
Þreifingar um
meirihlutamyndun
Úrslit kosninganna á Sauðár-
króki urðu eins og margir
höfðu spáð þar um slóðir.
Meirihluti Framsóknarflokks
og Alþýðubandaiags er fallinn
og þreifingar á nýju meirihluta-
samstarfi milli Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og K-
listans, flokks óháðra að hefj-
ast eftir því sem næst verður
komist.
Pátttaka í kosningunum varð
85,4% og féllu atkvæði þannig:
A-listi Alþýðuflokks fékk 159
atkvæði og 1 mann kjörinn, en
hafði engan í síðustu bæjar-
stjórn. B-listi Framsóknarflokks
fékk 441 atkvæði og 3 menn
kjörna, en hafði 4 áður. D-listi
Sjálfstæðisflokks fékk 411
atkvæði og 3 menn kjörna eins og
áður. G-listi Alþýðubandalags
fékk 163 atkvæði og 1 mann kjör-
inn eins og áður. K-listi óháðra
kjósenda fékk 163 atkvæði og 1
mann kjörinn eins og áður og N-
listi, Nýtt afl fékk 45 atkvæði og
engan mann kjörinn. N-listinn
bauð ekki fram síðast.
Jón E. Friðriksson 1. maður á
lista Framsóknarflokksins sagðist
hafa orðið fyrir nokkrum von-
brigðum með að flokkurinn
missti einn mann. „Framsóknar-
flokkurinn er samt stærsti flokk-
urinn í bænum og útkoman hér er
með því besta sem gerðist hjá
flokknum yfir landið. Okkur
vantaði aðeins 18 atkvæði til að
hljóta jafnmikið fylgi og í síðustu
kosningum. Við verðum líklega
að bíta í það súra epli að vera í
minnihluta næsta kjörtímabil,“
sagði Jón E. Friðriksson.
„Ég er ekki óánægður með okk-
ar hlut. Þó er ég óánægður með
að Framsóknarflokkurinn skuli
enn vera stærsti flokkurinn í
bænum, en þetta kemur í næstu
kosningum, og okkar útkoma er
með því besta sem gerist yfir
landið,“ sagði Þorbjörn Árnason
1. maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins. „Við gáfum út yfirlýsingu
þess efnis í kosningabaráttunni
að Framsóknarflokkurinn ætti að
fá frí í næsta meirihluta bæjar-
stjórnar og við ætlum að standa
við það,“ sagði Þorbjörn.
Karl Bjarnason 2. maður á
lista Alþýðubandalags sagði að
hann hefði viljað sjá hagstæðari
tölu fyrir flokkinn. „Um meiri-
hlutasamstarf er það að segja að
ég reikna ekki með því að
Alþýðubandalagið gangi til sam-
starfs við Sjálfstæðisflokkinn,“
sagði hann. þá/gej-
Blönduós:
„Hvað er
eiginlega
að gerast?“
Á Blönduósi buðu einungis
fram tveir listar í síðustu kosn-
ingum, D listi sjálfstæðis-
manna og H listi vinstri
manna. Nú voru hins vegar
þrír Iistar í framboði, D listi
Sjálfstæðisflokks, H listi
vinstri manna og óháðra og K
listi Alþýðubandalags og
óháðra. Að auki varð sú breyt-
ing að fulltrúum í hreppsnefnd
var fjölgað úr fimm í sjö. Úr-
slitin urðu þau að H listi hlaut
279 atkvæði og þrjá menn
kjörna, D listi hlaut 185
atkvæði og tvo menn kjörna,
og K listinn hlaut 143 atkvæði
og tvo menn kjörna. Menn á
Blönduósi spyrja nú sjálfa sig
hvort líta eigi á H listann eða K
listann sem sigurvegara þess-
ara kosninga, þar sem sjálf-
stæðismenn komu út með
óbreytta fulltrúatölu.
Dagur hafði tal af efstu mönn-
um listanna og innti þá álits á
útkomu kosninganna. Jón Sig-
urðsson, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, sagðist vera
mjög óhress með þessi úrslit.
Hann sagðist vera að velta því
fyrir sér hvað það væri við H list-
ann sem verðskuldaði þessi
úrslit. „Hvað hefur eiginlega ver-
ið að gerast hér síðastliðin fjögur
ár sem veidur því að vinstri menn
fá öll þessi atkvæði?" spurði Jón.
Jafnframt sagði hann að sjálf-
stæðismenn hefðu ungt og
reynslulítið fólk á sínum lista og
einnig hefði kosningavél H list-
ans verið miklu sterkari en þeirra
sjálfstæðismanna. „K listinn er
tvímælalaust sigurvegari þessara
kosninga þar sem hann hafði
ekkert framboð fyrir og ég óska
þeim til hamingju með þennan
sigur," sagði Jón Sigurðsson að
lokum.
Guðmundur Teódórsson, efsti
maður K listans, sagðist vera
ánægður með árangurinn. „Þetta
var ánægjulegur sigur vinstri
rnanna," sagði Guðmundur, en
sagði jafnframt að samstarfið í
framtíðinni réðist af stefnumál-
um flokkanna. „Vissulega verður
það athugað hvort ekki næst sam-
starf með H og K listunum,"
sagði Guðmundur að lokum.
Sigmar Jónsson, efsti maður H
listans, sagði þetta mjög góð úr-
slit frá sínum sjónarhóli séð. Bar-
áttan hefði snúist um það hvort H
listinn næði þremur mönnum inn
en það hefði aðeins munað fjó'r-
um atkvæðum að þeir næðu
fjórða manni inn, ef þau atkvæði
hefðu komið frá K listanum.
G.Kr/JHB
Sauöburöur
gengur vel
„Ég hef ekki heyrt annað en
að sauðburður hafi almennt
gengið vel,“ sagði Ólafur
Vagnsson ráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi Eyjafjarðar í
samtali við Dag.
Fornleifarannsóknir að Gásum:
„Mikilvægar rannsóknir“
- segir Bjarni Einarsson forstöðumaður Minjasafns Akureyrar
„Ég tel þetta vera feikilega
merkilegar rústir og mjög
mikilvægar fyrir alla verslunar-
sögu íslands fyrst og fremst,“
sagði Bjarni Einarsson forn-
leifafræðingur og forstöðu-
maður Minjasafnsins á Akur-
eyri, en hann ásamt Margréti
Hermannsdóttur fornleifa-
fræðingi ætlar að hefja for-
rannsóknir á rústum á Gáseyri
við Eyjafjörð í ágúst í sumar.
Þessar forrannsóknir felast í
sýnatöku á staðnum og verða þau
síðan send til aldursgreiningar í
Svíþjóð. Bjarni sagði að sótt
hefði verið um styrki til ýmissa
aðila sem styrkja slíkar rann-
sóknir og hefði Akureyrarbær
veitt 50 þúsund krónur, Eyja-
fjarðarsýsla 25 þúsund, Þjóð-
hátíðarsjóður neitaði að styrkja
verkefnið og Vísindasjóður tæki
ákvörðun fljótlega. „Við sóttum
um 450 þúsund krónur til verks-
ins og teljum að sú upphæð sé
nauðsynleg til að vinna verkið
eins og þyrfti. Aðalkostnaðurinn
felst í aldursgreiningum erlendis,
sem eru dýrar,“ sagði Bjarni.
Hann sagði að ekkert væri vit-
að með vissu um aldur rústanna,
en elstu skriflegu heimildir væru
frá lokum 12. aldar, „þær eru
örugglega mikið eldri,“ sagði
Bjarni. Hann telur að rannsóknir
leiði í Ijós að á Gásum hafi verið
verslun með útflutningsvörur og
líklega landbúnaðarvörur, sem
hafa að öllum líkindum farið til
Noregs. „Verið er að grafa upp
svipaðan stað í Noregi, sem var
miðstöð fyrir landbúnaðarvörur í
nágrenninu, en fluttist síðan til
Bergen, sem var höfuðstöð versl-
unar á þeim tíma. Spurningin er
því, voru Gásar líka einhvers
konar miðstöð fyrir Bergen á
þessum tíma,“ sagði Bjarni.
Aðalrannsóknirnar í sam-
bandi við Gásar fara fram á næsta
ári. Þá verður einnig grafið á
eyðibýlum sem vitað er um í
nágrenninu og reynt að komast
að því hvort þar hafi framleiðslan
farið fram, sem síðan var flutt út
frá Gásum. gej-
Sagði Ólafur að úrfellið á síð-
ustu dögum hefði að líkindum
einhver áhrif haft, þar sem bænd-
ur hefðu nýlega verið búnir að
setja fé sitt út. „Við getum reikn-
að með einhverju bakslagi af
þeim völdum," sagði Ólafur.
Sauðburði er vfða lokið eða
langt kominn, að sögn Ólafs. „Það
er staðreynd að oft á tíðum virð-
ist sem köld og þurr tíð sé hentug
fyrir sauðburð. Það er meðal
annars vegna þess að kuldinn
virðist halda ýmsum smitefnum
niðri. Það er fyrst og fremst
bleytan sem fer illa með lömb og
ær, vetrarrúnar ær þola illa
úrfelli," sagði Ólafur Vagnsson.
Að sögn Sigurgeirs ísakssonar
í Byrgi í Kelduhverfi hefur sauð-
burður gengið þokkalega þar um
slóðir og kuldakastið síðustu
daga ekki haft nein áhrif þar á.
„En það vantar allan gróður,“
sagði Sigurgeir.
Skúli Ragnarsson Ytra Álandi
í Þistilfirði sagði sauðburð ekki
kominn í fullan gang hjá sér. „Ég
er í seinna fallinu," sagði hann.
Skúli tók í sama streng og Sig-
urgeir og sagði að gróður væri
ákaflega lítill orðinn. „En það
rætist vonandi úr því bráðlega.“