Dagur - 05.09.1986, Side 3
5. september 1986 - DAGUR - 3
Heimilið '86.
„Lapparnir"
slá í gegn
Einn sérhæfðasti básinn á
heimilissýningunni í Laugar-
dalshöll er tvímælalaust bás Þ.
Þórðarsonar en þar fást nær
eingöngu inniskór af ýmsum
stærðum og gerðum.
Eiginlega er illa gert að nota
orðið „inniskór"" um varning
þann sem þarna er á boðstólum,
því Þórður Þórðarson, innflytj-
andinn, kallar þetta „lappa“ og
vill þannig gefa orðinu nýja
merkingu í málinu.
Þórður er sjálfur við afgreiðslu
í básnum og er líflegur mjög -
greinilega sölumaður af Guðs
náð. Meðan blaðamaður Dags
staldraði við seldi hann 9 pör af
„löppum“ og það brást ekki að
þeir sem á annað borð mátuðu
lappana, drógu upp veskið
skömmu síðar.
„Ég flyt þetta inn af hugsjón,“
fullyrðir Þórður, sem reyndar
hefur innflutninginn sem auka-
búgrein. Rekstur skyndibitastað-
ar í Hafnarfirði er hans aðalstarf.
„Ég keypti mér fyrst svona skó
fyrir 13 árum úti á Ítalíu þar sem
þeir eru framleiddir og síðan hef
Allir til Eyja. Engilbert Gíslason hafði í mörgu að snúast í bás Ferðaskrif-
stofu Vestmannaeyja. Ungi maðurinn fremst á myndinni hafði hins vegar
meiri áhuga á Ijósmyndaranum.
Vikulegar ferðir
milli Skotlands
og Eyja
Margir hafa staldrað við hjá
Ferðaskrifstofu Vestmanna-
eyja og kynnt sér það sem hún
hefur upp á að bjóða, „enda
básinn okkar í þjóðbraut á
heimilissýningunni,“ eins og
Engilbert Gíslason hjá Ferða-
skrifstofunni orðaði það.
Dagur hafði hlerað að Ferða-
skrifstofa Vestmannaeyja væri
meö einhverjar nýjungar á döf-
inni fyrir næsta sumar og þeirri
spurningu var beint til Éngil-
berts.
„Það er rétt, við stefnum að
því að bjóða upp á vikulegar
ferðir á milli Skotlands og Vest-
mannaeyja næsta sumar. Þá yrði
lagt upp frá Scrabster í Skot-
landi, þaðan yrði farið til Þórs-
hafnar í Færeyjum og síðan til
Vestmannaeyja og Þorlákshafn-
ar. Við erum komnir í samband
við ýmsa aðila á Bretlandseyjum
og þótt ekki sé búið að ganga
endanlega frá samningum, bend-
ir allt til þess að af þessu verði.“
Engilbert sagði að þessar ferðir
yrðu í svokölluðum „túrista-
klassa“ og hefðu menn augastað
á gamla Smyrli í verkefnið. „Með
þessu erum við ekki að stofna til
samkeppni við Herjólf. Ég held
þvert á móti að þetta verði til að
auka ferðamannastrauminn til
Eyja og sé ekkert því til fyrir-
stöðu að góð samvinna geti tekist
á milli þeirra aðila í Eyjum sem
eru í þessum „bransa“,“ sagði
Engilbert að lokum. BB
Menn máta og kaupa. Lapparnir renna út. Þórður Þórðarson fylgist með og
er tilbúinn með aðra stærð ef þessi skyldi ekki passa. Mynd: bb
ég ekki gengið í öðru innanhúss.
Ég hef alltaf haft einhver ráð
með að endurnýja enda eru lapp-
arnir vanabindandi. Það endaði
með því að öll fjölskyldan var
komin með „lappa-æði“ og ég
ákvað að gefa fleirum tækifæri til
að kynnast þessum einstaka fóta-
búnaði og skellti mér því í inn-
flutninginn.
Reyndar fannst mörgum það
vera hreint brjálæði af mér að
vera með heilan bás á svona sýn-
ingu eingöngu undir inniskó, en
ég er ánægður með árangurinn
enda búinn að selja um 100 pör á
dag frá því að sýningin hófst.“
Þ. Þórðarson er með þrjár
gerðir „lappa“ á boðstólum, úr
frotté-efni, ull og bómull. Þeir
eru mjög litskrúðugir, stórköfl-
óttir og alla vega munstraðir. Erf-
itt er að finna tvö pör nákvæm-
lega eins, því skórnir eru hand-
unnir og litasamsetningar mjög
frjálslegar.
„Þeir eru hallærislega smartir“,
sagði einn unglingur sem staldr-
aði við til að líta á dýrðina.
„Fríkaðir“, bætti kunningi hans
við og báðir keyptu sér par.
Blaðamaður Dags lét einnig
„plata sig upp úr skónum“ til að
máta - og þá var ekki að sökum
að spyrja. . . BB.
strevma inn efni
1 haustlítum!
aarn
-
Prjýrtaéfni í peýét|t%:fl
Flaueí í.þuxut' og iákki
gro
og
YH
* Röndótf öa tótóti áarefni í s
og jakka.
„I1™ aukiö tu muda úrval af prjónag
Newtak snið n0kkrUn1 'rÖnSkUm 9eröum
onablað. í
isle
æmnian
Saumanámskeio
hefjast 8. sept.
Sníðaþjónusta.
Póstsendum.
GLERARGATA 34 SIMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 602 AKUREYRI