Dagur - 25.09.1986, Qupperneq 11
íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
25. september 1986 - DAGUR - 11
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
Sovéski „björninn"
slapp með skrekkinn!
íslenska landsliðið bætti enn
einni skrautfjöður í hatt sinn í
gærkvöld, er liðið gerði jafn-
tefli við sovéska landsliðið í
Dæma á
Norður-
landamótinu
Þeir Olafur Haraldsson og
Stefán Arnaldsson handknatt-
leiksdómarar frá Akureyri,
hafa verið valdir til þess að
dæma fyrir íslands hönd á
Norðurlandamóti unglinga-
landsliða, skipað leikmönnum
21 árs og yngri. Mótið fer
fram í Noregi, 16.-20. október
næstkomandi.
Alls taka 6 lið þátt í mótinu að
þessu sinni, frá Islandi, Færeyj-
um, Danmörku, Svíþjóð, Noregi
og Finnlandi og má reikna með
að þeir Ólafur og Stefán dæmi í
það minnsta þrjá leiki.
Valið á þeim félögum kemur
ekki á óvart, þeir hafa sýnt það í
þeim leikjum sem þeir hafa
dæmt, að þeir eru í fremstu röð
íslenskra handknattleiksdómara.
Á laugardaginn leika Þór og
bikarmeistarar Hauka, æflnga-
leik í körfuknattleik í Höllinni
og hefst hann kl. 14. Þórsarar
tefla fram tveimur nýjum
mönnum í þessum leik, þeim
ívari Webster þjálfara og Guð-
mundi Björnssyni sem kominn
er í herbúðir Þórs á ný, eftir
ársveru í KR.
knattspyrnu á Laugardalsveil-
inum. Leikurinn var viðureign
liðanna í B-riðli Evrópumóts-
ins í knattspyrnu og var þetta
annar leikur íslenska liðsins.
Um daginn gerði liðið marka-
laust jafntefli við það franska.
Sovéska liðið sótti mun meira í
fyrri hálfleik og áttu hinir snjöllu
Atli Eðvaldsson fyririiði íslenska
landsliðsins í knattspyrnu.
Haukar hafa verið með eitt
besta liðið í íslenskum körfubolta
undanfarin ár en nú hefur liðið
misst eitthvað af mönnum og þar
á meðal Webster. Engu að síður
eru í Haukaliðinu nokkrir af
bestu leikmönnum landsins og
má þar nefna, Pálmar Sigurðs-
son, Henning Henningsson og
Ólaf Rafnsson.
leikmenn liðsins nokkur mjög
góð skot að marki íslands án þess
þó að skora. íslenska liðið átti
nokkur skyndiupphlaup án þess
þó að skapa mikla hættu í víta-
teig Sovétmanna.
Pað var svo frekar gegn gangi
leiksins að íslenska liðið náði for-
ystu á 30. mín. Arnór Guðj-
ohnsen vann þá boltann af varn-
armanni Sovétmanna og skoraði
með góðu skoti upp undir þak-
netið af markteig, 1:0.
Eftir markið sóttu Sovétmenn í
sig veðrið og á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks náðu þeir að jafna.
Einn sovésku leikmannanna átti
þá fast skot að markinu, boltinn
fór í íslenskan varnarmann og af
honum í markhornið, óverjandi
í kvöld kl. 17.30 leika landslið
íslands og Tékkóslóvakíu skip-
uð leikmönnum 21 árs og
yngri, landsleik í knattspyrnu á
Þjálfari Hauka er Jón Sigurðs-
son en hann hefur þjálfað og leik-
ið með KR undanfarin ár. Jón
tók við af Einari Bollasyni sem
nú stýrir liði ÍR x 1. deildinni.
Verður fróðlegt að sjá hver mun-
urinn er nú á Úrvalsdeildarliði
Hauka og 1. deildar liði Þórs.
Körfuknattleiksáhugamönnum
gefst hér því kærkomið tækifæri
að því að sjá Þórsara spila gegn
einu af besta liði landsins.
ívar Webster leikur með Þór á laug-
ardag gegn sínuni gömlu félögum í
Haukum.
fyrir Bjarna Sigurðsson. Staðan
1:1 í hálfleik.
í síðari hálfleik fengu bæði lið
nokkur ágæt marktækifæri en
íslenska liðið barðist mjög vel,
gaf hvergi eftir og úrslitin 1:1.
íslenska liðið lék vel í þessum
leik og náði mun betur saman í
gær en gegn Frökkum um dag-
inn.
Eftir tvo jafnteflisleiki í röð er
íslenska liðið í efsta sætinu í
B-riðli Evrópukeppninnar, með
2 stig. Noregur og A.-Þýskaland
gerðu markalaust jafntefli í Nor-
egi í gær og eru hin liðin í B-riðl-
inum, Frakkar, Rússar, Norð-
menn og A.-Þjóðverjar öll jöfn
að stigum, með 1 stig hvert eftir 1
leik.
Akureyrarvellinum. Leikurinn
er annar leikur íslenska liðsins
í Evrópukeppninni. Fyrsti leik-
ur liðsins var við Finna um
daginn í Finnlandi og tapaðist
hann 2:0.
í íslenska landsliðshópnum eru
fjórir leikmenn frá Akureyri, þrír
frá Þór, þeir Siguróli Kristjáns-
son, Hlynur Birgisson og Júlíus
Tryggvason og Þorvaldur Örlygs-
son úr KA. Þá er einnig í hópn-
um Hermann nokkur Haraldsson
en hann lék í marki KA fyrir
nokkrum árum en spilar nú í
Danmörku.
íslenski hópurinn hefur dvalið
á Akureyri frá því á þriðjudag
við æfingar.
Guðni Kjartansson þjálfari
sagðist vera hæfilega bjartsýnn
fyrir leikinn en hann sagðist þó
vita lítið sem ekkert um tékkn-
eska liðið. „Ég á þó von á því að
þeir séu bæði líkamlega sterkir
og mjög fljótir,“ sagði Guðni.
Knattspyrnuáhugamönnum á
Norðurlandi gefst hér kjörið
tækifæri til þess að sjá einn
alvöru leik í lok knattspyrnuver-
tíðarinnar.
Keppa í
Reykjavík
Þeir félagar Víkingur Trausta-
son og Aðalsteinn Kjartansson
frá Lyftingaráði Akureyrar
taka á laugardag þátt í opna
KR mótinu í kraftlyftingum
sem fram fer í Reykjavík. Vík-
ingur sem keppir í plús 125 kg
flokki á mjög góða möguleika
á því að vinna besta afrek
mótsins og þá um leið glæsileg-
an bikar.
Kári Elíson ætlar ekki að taka
þátt í mótinu. Hann æfir nú að
kappi fyrir heimsmeistaramótið í
kraftlyftingum sem frarn fer í
Haag í Hollandi í byrjun
nóvember og ætlar Kári sér stóra
hluti þar.
„Verið haft samband
frá þremur félögum"
- seglr Gústaf Baldvinsson
Eins og komið hefur fram í
fréttum, mun það ákveðið að
Gústaf Baldvinsson láti af
störfum sem þjálfari meist-
araflokks KA í knattspyrnu.
Gústaf hefur verið með liðið
síðustu þrjú ár og hann hefur
nú skilað liðinu þangað sem
það var er hann tók við því
þá, þ.e. í 1. deild.
Gústaf býr nú og starfar á fsa-
firði og Dagur sló á þráðinn
þangað og spurði hann að því
hvort hann væri búinn að ráða
sig til starfa hjá öðru félagi.
. „Á þessu stigi get ég ekkert
sagt um það hvort ég þjálfa
nokkuð næsta ár. En það hefur
þegar verið haft samband við
mig frá þremur félögum og þau
beðið um viðræður þess efnis.
Þetta eru eitt lið í 1. deild og tvö
lið úr 2. deild en hvaða félög
þetta eru get ég ekki látið uppi.
Ég á þó von á því að það skýrist
á næstu dögum hvort ég fer út í
þjálfun áfram og þá hjá hvaða
félagi,“ sagði Gustaf Baldvins-
son.
Það kemur ekki á óvart að
félögin sýni Gústaf áhuga, því
hann hefur sýnt það með KA-
liðið að hann er mjög fær þjálf-
ari.
Körfubolti:
Hvað gera Þórsarar gegn
bikarmeisturum Hauka
- Liðin leika æfingaleik í Höllinni á laugardag
Knattspyrna:
Landsleikur á
Akureyri í kvöld
Handbolti:
KAtil
Eyja
Handknattleikslið KA leik-
ur tvo æflngaleiki í Vest-
mannaeyjum um helgina.
Annar leikurinn verður við
heimamenn en hinn er við
Val úr Reykjavík.
KA-menn æfa nú af fullum
krafti fyrir keppnistímabilið
sem nú fer í hönd en eins og
komið hefur fram leikur KA
fyrsta leikinn í 1. deildinni
gegn Fram þann 8. október.
•
Spjótkast:
Gott kast
hjá Sigurði
Sigurður Matthíasson spjót-
kastari frá Dalvík bætti enn
árangur sinn í greininni á
frjálsíþróttamóti í Osló um
síðustu helgi og kastaði
spjótinu 72,16 m. Þetta kast
Sigurðar dugði honum til
sigurs á mótinu.
Hann átti einnig ógilt kast
sem var um 74 m. Besti árang-
ur Sigurðar var áður 70,80 m.
Eins og áður hefur komið
fram í Degi, mun Sigurður
stunda nám og æfingar í
Bandaríkjunum í vetur og á
eflaust eftir að bæta sig enn
meira þar.
Skfða-
æfingar
Skíðaæfingar á vegum for-
eldrafélags SRA og SRA, fyrir
krakka 12 ára og yngri hefjast
á laugardaginn kemur, kl. 14
og fara fram í íþróttahúsi
Glerárskóla.
_AHir krakkar, yngri en 12
ára sem hafa áhuga á skíða-
nþróttinni, eru hvattir til að
mæta.
•
HKRA:
Aðal-
fundur
Aðalfundur Handknattleiks-
ráðs Akureyrar verður hald-
inn miðvikudaginn 1. október.
Fundurinn verður í ÍBA-her-
berginu við Laugargötu og
hefst kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Hvað er
að ske?
Fjórða skiptið í röð kom engin
tólfa upp hjá íslenskum get-
raunum nú í 5. leikviku. 9 rað-
ir voru nxeð 11 rétta og fær
hver röð kr. 83.580 og 141 röð
með 10 rétta sem gefa kr.
2.286.
Einungis í 1. leikvikunni á
þessu starfstímabili hefur unn-
ist á 12 rétta.