Dagur - 05.12.1986, Blaðsíða 1
69. árgangui________________________ Akureyri, föstudagur 5. desember 1986 230. tölublað
Kaupir Akureyrarbær húsnæði í
Gleráraötu undir stjómsýslu?
„Norðurverk hefur boðið
Akureyrarbæ húseign í Gler-
árgötu til kaups en við höfum
ekki fjallað um þetta tilboð
ennþá í bæjarkerfinu og erind-
ið er óafgreitt,“ sagði Valgarð-
ur Baldvinsson bæjarritari í
samtali við Dag en sá orðróm-
ur hefur gengið að Akureyrar-
bær sé að kaupa húsnæði
Norðurverks h.f. að Glerár-
götu 26 á Akureyri.
Húsnæðið sem um ræðir er
1820 fermetrar að flatarmáli á
fjórum hæðum, 4x455 fermetrar.
Norðurverk á allar nema jarð-
hæðina en hún er engu að síður
með í „pakkanum“.
Bæjarritari sagði að óskaplega
þröngt væri um stjórnsýsluna í
núverandi húsnæði og skrifstofur
Akureyrarbæjar væru dreifðar
um allan bæ. Það hefði oft verið
rætt, m.a. í bæjarráði, hvernig
leysa ætti þessi húsnæðismál
skrifstofa bæjarins. Að hans mati
væri nauðsynlegt að fara að móta
ákveðna stefnu í þessum málum.
„Ég tel afskaplega mikla þörf á
að koma embættum bæjarins sem
mest undir eitt þak. Það voru nú
uppi hugmyndir um að byggja við
þetta hús sem við erum í og þeim
hugmyndum hefur svo sem ekki
verið varpað neitt fyrir róða.
Þetta er bara ein hugmyndin, að
kaupa hús sem er í byggingu, ef
það gæti leyst einhvern vanda.
Húsnæðismál slökkviliðsins hafa
einnig verið til athugunar og það
brennur á bæjarstjórn að gera
eitthvað fyrir slökkviliðið
einnig," sagði Valgarður.
Hann sagðist vona að málið
yrði tekið til umfjöllunar á næst-
unni en á þessu stigi væri ekkert
hægt að segja til um viðbrögð
bæjarstjórnar: Hvort hún hugs-
aði sér að byrja á byggja yfir
slökkviliðið, byggja við ráðhúsið,
ellegar kaupa húsið að Glerár-
götu 26. „Þetta er allt saman opið
enn sem komið er,“ sagði ,Val-
garður.
„Það er rétt, við höfum verið
að reyna að selja húsnæðið í
Glerárgötunni,“ sagði Franz
Árnason framkvæmdastjóri
Norðurverks og verðandi hita-
veitustjóri aðspurður. „Bæinn
vantar sárlega hús af þessari
stærð í nágrenni við aðalráðhús-
ið, því stofnanir bæjarins eru
dreifðar um allt og á mjög
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins á Akureyri
var verið að moka veginn fyrir
Ólafsfjarðarmúla í gær en ekki
var vitað hvort það tækist
vegna hríðar sem skall á síðari
hluta dags. Verið er að moka
vegi í nágrenni Akureyrar.
óheppilegan hátt margar hverjar.
Við höfum ekki sett upp
ákveðið verð en markaðsverð hér
í bænum er u.þ.b. 15 þúsund
krónur á .fermetra fyrir húsnæði
sem er tilbúið undir tréverk og
20-22 þúsund fyrir fullbúið skrif-
stofuhúsnæði. Þetta eru þær við-
miðunartölur sem við höfum í
huga.
Neðsta hæðin er fullbúin
en aðrar hæðir eru tilbúnár undir
tréverk. Verðið er auðvitað sam-
Vegurinn fram að Kristnesi var
mokaður í gær og einnig er fært
til Grenivíkur. Ofært var í gær
um Víkurskarð og Ljósavatns-
skarð til Húsavíkur en sú leið
verður opnuð í dag. Öxnadals-
heiði verður einnig opnuð í dag
og þokkaleg færð er í Skagafirði.
komulagsatriði en segja má að
24-28 milljónir króna séu nærri
lagi fyrir svona húsnæði.“
Samkvæmt heimildum Dags
hafa bæjarstjóri, bæjarritari og
bæjarverkfræðingur verið að
skoða þessi mál að undanförnu
en þau hafa ekki enn komið til
kasta bæjarstjórnar. Ljóst þykir
að byggingaáformum slökkviliðs-
ins verði að fresta enn um sinn ef
gengið verður til samninga við
Norðurverk. BB.
Ófært er til Siglufjarðar.
Hjá Veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að suðaustlæg átt
yrði ríkjandi um helgina á
Norðurlandi, skýjað en þurrt að
mestu. Vænta má einhverra élja
en frost verður ekki mikið.
Veður og færð um helgina
iff':-- ... *ÍfK
TcPIJIjr- ’ Sgliib. fW'' ■ " ; il
ifw m? <*J«g
Hópur Norðlendinga frá Eyjafirði, einkum Dalvík, og frá Húsavík, kom í gær heim frá
Bretlandi, þar sem hann kynnti sér fiskmarkaði og fleira því viökomandi í Hull og Grimsby.
Þar var ýmislegt að sjá og fróðlegt að kynnast þessum málum, einkum þar sem þau eru nú
mjög til umræðu hér á landi - hugmyndir uppi um fiskmarkaði við Eyjafjörð og víðar. Þá var
ekki síður forvitnilegt að sjá íslenskan fisk sem berst á markaðina og hvernig Bretarnir með-
höndla hann, en það er greinilegt að þeir líta á þessa vöru sem gífurlegt verðmæti, þótt hún
sé ærið misjöfn þegar hún berst á markaöinn. Á myndinni má sjá frá vinstri: Valdimar
Bragason frá Dalvík, Jón Olgeirsson frá Húsavík, Anton Gunnlaugsson frá Dalvík, Þorleif
Ólafsson sem er frá Neskaupstað og starfar við og rekur umboðsskrifstofu í Grimsby, Hilmar
Daníelsson frá Dalvík, en hann skipulagði ferðina, Svein Ríkharðsson frá Dalvík og lengst
til hægri sést í Aðalgeir Bjarnason frá Húsavík.
Mynd: HS