Dagur - 05.12.1986, Blaðsíða 4

Dagur - 05.12.1986, Blaðsíða 4
iOAH_r^RP T R. 4 - DAGUR - 5. desember 1986 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, SÍMI 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON, EGGERT TRYGGVASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Innlendur orkubúskapur leiðari_________________ Á síðastliðnum 20 árum hafa mikil stórvirki verið unnin í orkumálum lands- ins. Rafvæðing landsins alls er nú að mestu í höfn m.a. með byggðalínum og hring- tengingum um landið. Víð- ast hvar á landinu er virkj- un jarðvarma nú lokið, þar sem slíkt er hagkvæmt. Hin hraða uppbygging í orku- málum hefur þó oft leitt til þungs fjármagnskostnaðar sem hefur endurspeglast í háu orkuverði. Nú er hins vegar að verða breyting til hins betra í þessu efni og orkuverð er tiltölulega stöðugt og jafnvel lækkandi að raunvirði. Enn vantar þó talsvert á að allir íbúar þessa lands búi við sama orkuverð og þá sérstaklega hvað varðar upphitunarkostnað. Ríkis- stjórnin er nú að láta kanna hvað hægt sé að gera til leið- réttingar í þessum efnum enda mun þessi mismunun milli landshluta leiða til búseturöskunar í landinu ef ekkert verður að gert. Á 19. flokksþingi Fram- sóknarflokksins var sér- staklega ályktað um orku- búskapinn. í ályktuninni er það rakið sem áunnist hef- ur en síðan segir: „Þrátt fyrir að stórvirki hafi verið unnin á sviði orkumála hér á landi, bíða óteljandi verkefni úrlausn- ar. Þannig er áætlað að ís- lendingar hafi nú aðeins virkjað um 12% af því vatnsafli og um 5% af þeim jarðvarma, sem talið er hagkvæmt að virkja. Þrátt fyrir það er nú flutt inn olía og bensín, sem nemur 40% af heildarorkunotkun lands- manna. Árið 1984 fóru um 17% af útflutningstekjum landsmanna til kaupa á elds- neyti. í nokkrum greinum ætti að vera mögulegt að ná umtalsverðum sparnaði með notkun innlendrar orku í stað innflutts eldsneytis, auk þess sjálfstæðis og af- komuöryggis sem innlend orkunotkun veitir þjóðinni. “ Flokksþing Framsóknar- flokksins varar við því and- varaleysi sem felst í að gera ráð fyrir að hið lága olíuverð haldist til langframa. Það sé þvert á móti almenn skoðun sérfræðinga, að á næsta ára- tug muni olía verða dýrari en nokkru sinni áður. Bent er á að í íslensku atvinnulífi sé í mörgum tilvikum aug- ljóslega hægt að nota jarð- varma í stað innflutts elds- neytis. í orkumálum vill flokks- þing Framsóknarflokksins því leggja áherslu á eftirfar- andi atriði: 1. Með verðlagningu á mis- munandi orkugjöfum verði stuðlað að þjóðhagslega hagkvæmri nýtingu inn- lendra orkulinda. 2. Gætt verði varkárni í áætlanagerð og fjármögnun stórframkvæmda í raforku- kerfinu og þannig stuðlað að því að raforkuverð verði sambærilegt við ná- grannalöndin. 3. Gerð verði alhliða hag- kvæmnisathugun þar sem metið yrði hvort og á hvern hátt jarðhiti geti komið í stað olíu. 4. Gerð verði ítarleg rann- sókna- og framkvæmdaáætl- un til að nýta innlendar orkulindir og innlend hrá- efni til framleiðslu tilbúins eldsneytis í stað innfluttrar olíu. Með því móti gætum við brugðist fyrr við þegar olía verður orðin óhóflega dýr og framleiðsla tilbúins eldsneytis hagkvæmari sem því nemur. “ í þessum málum er nauð- synlegt að marka ákveðna stefnu og það hefur Fram- sóknarflokkurinn gert. BB. Hljómsveitin De Soto í Sjallanum - Hafa starfað með heimsþekktum stjörnum Band on The Run. Þá ákvað Paul að fara í hljómleikaferð og ég var með þeim frá 1975 til 1980. Paul er indælismaður, ég hef þekkt hann lengi. Hann er mjög örlátur en hann er, þrátt fyrir heims- frægð, mjög eðlilegur maður. Hann er snillingur á sviði tónlist- ar, einhver mesti snillingur sem ég veit um. Paul er mikið fyrir fjölskyldu sína en hann á í vök að verjast fyrir aðdáendunum. Sér- stök skrifstofa sér um flest hans mál út á við.“ Að sögn Casey mun hljóm- sveitin leika rokk, rythm & blues og fleiri lög, bæði ný og eldri. Hann segir að íslendingar hafi tekið sér og hljómsveitinni vel, hann kunni vel við sig á Akureyri þó hér sé meiri snjór en hann sé vanur. EHB „Ég lék í fnnm ár með Paul McCartney og Wings og spil- aði ásamt þeim inn á plötuna Band on The Run. Þar sem ég er alinn upp í Liverpool þekkti ég Bítlana frá upphaíl,“ sagði Howie Casey, en hann mun ásamt bresku hljómsveitinni De Soto leika í Sjallanum um helgina. Meðlimir De Soto hafa flestir spilað eða sungið með frægum listamönnum, sumum heims- þekktum. Steve Hayes (básúna) hefur leikið með ýmsum amer- ískum hljómsveitum, t.d. The Drifters, Howie Casey (tenór sax.) með Wings, David Bowie o.fl., Paul Gill (trommur) með Alvin Stardust, Mart Jenner (gítar) var gítarleikari með Cliff Richard í níu ár, Pat Davey (bassi) lék með Tom Robinson, Neil Sunderland (hljómborð o.fl.) lék með Alvin Stardust og Sheila Casey (söngkona) söng með Paul McCartney, Ringo Starr, James Last og Les Humphries Singers. Hljómsveitarmeðlimir De Soto frá vinstri: Steve Hayes, Howie Casey, Paul Gili, Mart Jenner, Pat Davey, Neil Sunderland og Sheila Casey. Howie Casey segir um kynni sín af Paul McCartney: „Hann hringdi í mig og bað mig um að vera með í að spila inn á plötuna Hljómsveitin De Soto á æfingu í Sjallanum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.