Dagur - 05.12.1986, Síða 9

Dagur - 05.12.1986, Síða 9
8 - DAGUR - 5. desember 1986 Þegar jólahátíðin nálgast verður mörgum hugsað til „jólanna í gamla daga“. Hvort þetta stafar af söknuði eftir gamla tímanum þegar lífið var ein- faldara en núna eða vanabundinni hugsun veit ég ekki, en það er staðreynd að um jól og áramót vilja margir hugsa til baka. Þegar blaðamaður var á ferð um Dalvík fyrir nokkru var honum bent á konu sem dvelur á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, því hún væri einstaklega minnug og hefði lifað langa ævi. Unnur Sigurðardóttir hefur lengst af búið á Dalvík en hún er fædd þar 12. júlí árið 1908. Eiginmaður hennar er Guðjón Sigurðs- son. Æska og uppruni - Pú ert fædd og uppalin á Dalvík, Unnur. „Ég er fædd hér á Dalvík í húsi sem heitir Höfn og er hér úti á Bakkanum, þau hétu nú alltaf eitthvað húsin í gamla daga. Þau höfðu sérstakt nafn því þá voru ekki neinar götur með nöfnum. Höfn var byggð árið 1906. For- eldrar mínir voru Ingibjörg Sig- urðardóttir og Sigurður Jóhanns- son. Ingibjörg var dóttir Sigurðar Jónssonar sem kenndur var við Böggvisstaði og Snjólaugar Jóns- dóttur. Faðir minn var sonur Jóhanns Rögnvaldssonar en hann var ættaður hérna framan úr sveitinni. Við Ingimar heitinn Óskarsson áttum sömu lang- ömmu. Petta var nú aðallega hérna úr sveitinni en mín ætt er líka úr Fljótunum. Ég hef ekki verið á Dalvík alla mína tíð. Ég var hérna til fimm ára aldurs en þá fluttu foreldrar mínir austur á Langanes. Þar átt- um við heima á Skálum í hálft fimmta ár en fluttum aftur til Dalvíkur haustið 1919. Pabbi var mest á sjónum og réri alltaf á ára- bátum. Hann var alinn upp hérna á Brimnesi hjá Jóhanni Sigurðs- syni því hann var móðurbróðir hans Jón heitinn á Brimnesi faðir Stefáns Jónssonar og þeir voru uppeldisbræður Stefán Jónsson og pabbi. Pabbi fór snemma að fara til sjós og hann var rétt innan við tvítugt þegar hann fór að vera formaður á árabátum hér frá Dalvík. Svo fór hann á hákarla- skip og ég vissi að hann var mörg ár með Guðmundi Hreinssyni.“ Skólagangan - Hvernig var skólagöngu þinni háttað? »Ég var nú ekki mörg ár í skóla, það voru ekki nema þrír vetur og það var ekki kennt nema annan hvern dag. Eldri og yngri bekkjum var skipt svoleiðis niður að þegar annar bekkurinn var í skólanum þá átti hinn frí. Hann kenndi okkur hann Tryggvi Kristinsson, bróðir séra Stefáns á Völlum. Tryggvi hafði 'með sér annan kennara sem kenndi í tvo tíma á morgnana, lestur og reikn- ing. Skólagangan var búin þegar börnin voru fjórtán ára nema hjá einstaka barni sem fór eitthvað lengra en það var ekki algengt, maður var látinn fara að vinna snemma, raunar löngu innan við fermingu við að vaska fisk og þurrka. Svo var línuvinnan, krakkar voru oft hafðir við að stokka upp og beita línu, og þau voru nú ekki stór þegar farið var að láta þau vera við það. Á haustin var tætt smáband úr haustullinni og úr því voru búnir til sokkar og vetlingar. Þegar gærurnar voru rakaðar á haustin var öll ullin höfð í þetta smáband. Þetta var svo selt í búðir og fólk kepptist við að prjóna úr þessu. Ullin var kembd á kömbum og spunnin á rokkum. Þá var ekki allt keypt í búðum eins og núna.“ Jólin ádur fyrr - Hvernig voru jólin í gamla daga? „Jólamaturinn var aðallega hangikjöt og laufabrauð, svo fékk maður kleinur og smákök- ur, svo var jólabrauðið. Matur- inn var skammtaður á diska á jólanóttina, þá fékk maður hangikjötið og tvær eða þrjár laufabrauðskökur. Svo fékk maður viðbót á jóladag. Þetta var aðalmaturinn og svo spónamat- ur. Ég man ekki eftir því lengi framan af að maður fengi steik á jólunum. Það var ekki siður að hafa svið á jólunum, það var frekar um nýárið. Það var mikið spilað á spil um hátíðina en það voru engar gjafir nema að maður fékk kerti og spil og venjulega einhverja nýja flík, oftast eitt- hvað smálegt. Guðjón bróðir minn fékk að fara til Ákureyrar í fyrsta sinn þegar hann var um fermingu og þá keypti hann englahár og litlar kúlur. Hann kom með pappír til að ríða poka úr. Mamma gaf okkur gráfíkjur og fleira góðgæti í þessa poka og þegar húslestrinum lauk var okk- ur krökkunum leyft að draga um pokana. Það var alltaf mikil tilhlökkun í manni yfir jólunum þó ekki væri eins mikið um að vera þá og er núna. Ég man eftir fyrstu jólun- um mínum. Mamma hafði verið gift áður og var ekkja þegar hún giftist pabba svo ég átti eldri systkini. Guðjón bróðir minn er eina systkini mitt sem eftir lifir og er tíu árum eldri en ég. Hann lærði trésmíði og vann í Völundi í Reykjavík þar sem hann býr nú. Hann fór suður haustið 1918 með vermönnum sem voru á Skálum til að læra trésmíði. Hann veiktist af spönsku veikinni sem gekk þá og lá í henni. Ég held að það séu fyrstu jólin sem ég man eftir að þá áttum við jólatré úr tré sem Guðjón bróðir smíðaði. Það voru tólf álmur út frá því og á því voru tólf ljós. -- ? y&'A fcÍÍllBillim mlmm *xiyyi'r'' /,f'' ý Unnur Sigurðardóttir man tímana tvenna. Hún fór snemma að vinna, sá um stórt heimili og byrjaði búskap á kreppuárunum. 1 æsku hennar voru aðeins fáein hús á Dalvík og hefur hún því séð byggðina þróast á löngum tíma. Hún man greinilega eftir jarðskjálftanum á Dalvík 1934; og segir á eftirminnilegan hátt frá lifnaðarháttum og aðstæðum fólksins fyrr á öldinni. „Þá v/ar nú ekhi al keypt í búðum" — Unnur Sigurðardóttir á DalvíK T helgarviðtali Jólatréð var sett á borðið í stofunni milli glugganna, en þeir voru tveir. Áður en skammtað var las pabbi lesturinn. Mamma söng jólasálmana og við krakk- arnir sungum með og horfðum á jólatréð með lýsandi ljósunum á borðinu. Mér fannst þetta mjög hátíðlegt. Mamma hafði saumað kappa fyrir stofugluggana því þá þekktust ekki þessar síðu gardín- ur sem komu seinna. Þessir kapp- ar voru hvítir að neðan með rauðum rósum og lausum skýlum neðan við, en þær voru bara hengdar fyrir á kvöldin.“ - Svo hefur verið farið í kirkju? „Við fórum til kirkju á jóla- dag, ég man ekki eftir því að það hafi verið farið á jólanótt. Svo var alltaf lesinn húslesturinn, pabbi las alltaf húslestur og ég man alltaf eftir því hvað mér fannst hátíðlegt þessa fyrstu jóla- nótt. Pabbi gaf okkur kerti því þá voru farin að fást lítil, snúin kerti. Þegar hann kom frá kaup- staðnum gaf hann okkur pakka með litlum kertum í til að setja á jólatréð. Eins og ég sagði áðan þá hafði Guðjón bróðir minn komið með pappír frá Akureyri. Þetta voru nokkrar gerðir af mis- litum skrautpappír og einhvers staðar hafði hann lært að búa til poka úr honum. Þegar ég var nú orðin þetta gömul sem ég er núna þá datt mér í hug að gefa minnstu barnabörnunum mínum svona poka til að hengja á jólatréð. Ég fór af stað til að leita að svipuð- um pappír og Guðjón bróðir hafði verið með.“ Nýi og gamli tíminn - Hvernig finnst þér jólahátíðin fara fram í dag og hvernig kanntu við það? „Ég get ekki sagt að ég kunni illa við það. Það eru svo mikil stökk í þessu. Maður getur ekki líkt þessu saman þó maður fari að hugsa um þetta. Ég er ekki viss um að börnin núna séu neitt ánægðari en við vorum, þó við fengjum þetta miklu minna. Það voru gerðar minni kröfur til alls og maður þurfti að eiga sömu flíkina kannski í mörg ár. Fötin voru þannig gerð að það var hægt að síkka pilsin og lengja ermarn- ar, því þá var allt með löngum ermum, blússur o.þ.h. Svo voru sauðskinnsskórnir, ég var á sauð- skinnsskóm lengi vel og þótti gott. Það voru prjónaðir íleppar innan í skónum. Skinnið var blásteinslitt og bryddað var með hvítu eltiskinni." - Er þér fleira minnisstætt úr bernsku og æsku? „Þegar við fluttum frá Langa- nesi haustið 1919 þá keypti pabbi lítinn torfbæ sem Svæði hét og var hér utan við ána. Það var tals- vert af fólki sem bjó þarna fyrir utan ána því þá voru ekki nema fáein hús á Dalvík. Þarna geng- um við í skóla og bömin vom allt- af samferða. Ég kynntist Guð- jóni, manninum mínum, þegar við vorum samferða í skólann sem börn.“ - Heldur þú að yngra fólkið viti hvað það er að tala um þegar það talar um kreppu? „Nei, það veit það ekki. Það er ekki hægt að segja það. Á stríðs- árunum og áður gat maður sagt að það væri kreppa því þá var manni skammtað allt upp í hend- urnar. Maður fékk svona smá- miða sem vörurnar voru skammt- aðar út á. Það var til vikunnar sem manni var skammtað. Það var eitt pund af hveiti og sykri á mann yfir vikuna. Allt var skrifað á þessa miða, hveiti, haframjöl og rúgmjöl. Kaffið var líka skammtað. Ég vann við að vaska fisk og fór fyrst í kaupavinnu þegar ég var fimmtán ára. Ég fór um vorið á krossmessu og fékk 60 krónur á mánuði sem kaupakona á Böggvisstöðum. Þetta þótti ágætt kaup. Yfir vetrarmánuðina fékk maður ekki nema tíu eða fimmt- án krónur.“ - Getur þú nokkuð sagt mér hvað var hægt að fá fyrir tíu krónur þá? „Ég er nú búin að gleyma verði á flestum hlutum en það var ekki mikið. Ég get sagt sem dæmi að þegar ég var á Böggvisstöðum þá fékk ég að fara í kaupstað um haustið með bátum sem gengu inn til Akureyrar. Ég keypti mér kápu á Akureyri sem kostaði 85 krónur. Ég var meira en heilan mánuð að vinna mér inn fyrir einni flík. Unnið í fiski Haustið 1932 vorum við aðeins naskari og vorum hjá honum Jóhanni Jóhannssyni sem var hérna á Jaðri en hann tók fisk til að salta. Þetta var þá mestallt málsfiskur og það þurfti að himnutaka og skera úr. Við feng- um krónu á 200 punda vigtina. Okkur var vigtað út. En það voru ekki nema 75 aurar á varðið, sem kallað var. Þegar við vorum að breiða og taka saman fengum við ekki nema 60 aura á tímann því það var tímavinna.“ - Hvað var vinnudagurinn langur? 5. desember 1986 - DAGUR - 9 „Hann var nú aldrei styttri en tíu tímar og stundum miklu lengri. Þá var ekki alltaf verið að líta á klukkuna. Ég hafði talsvert stórt heimili á þessum árum. Við Guðjón giftum okkur 1932 svo það eru bráðum 55 ár síðan. Við vorum með kindur og kýr og maðurinn minn var oftast á sjón- um svo það kom mikið á mig að passa skepnurnar, sérstaklega á veturnar því þá fór maðurinn minn svo oft á Suðurlandsvertíð eftir nýárið. Fyrstu árin lifðu foreldrar mínir báðir og mamma lifði lengi því hún varð fjör- gömul. Þau voru bæði hjá okkur. Bærinn sem pabbi keypti á sínum tíma var afskaplega lélegur og hann reif hann strax og byggði upp. Þá var byggð baðstofa sem var ein fjögur stafngólf. Svo var eldhús og gangur framan við. Þetta stóð nokkuð lengi, húsið sem pabbi byggði. En þegar jarð- skjálftinn kom árið 1934 þá eyði- lögðust allir þessir torfbæir. Það voru fleiri torfbæir þarna utan við ána og þeir hrundu allir eða flestir, meira að segja mörg steypt hús hér á Dalvík hrundu líka.“ Jarðskjálftinn á Dalvík 1934 - Manst þú hvar þú varst stödd þegar jarðskjálftinn kom? „Ég var að vaska fisk þegar þetta kom fyrir. Þetta var að morgni til, rétt eftir matinn. Þetta var alveg agalegt, jörðin gekk öll í bylgjum. Það gat ekki nokkur maður staðið uppréttur þegar skjálftinn gekk yfir. Þetta kom svo snögglega að maður gaf sér ekki tíma til að verða hræddur. Það var stafalogn og bátarnir voru allir í landi þennan morgun því það var beitulaust og þv! ekki róið. Pabbi og Guðjón voru að taka svörð því þá var svo mikið notað af sverðinum til elds- neytis. Guðjón var niðri í svarð- argröfunum og var að stinga og kasta upp en pabbi var uppi á bakkanum. Þeir voru nýkomnir heimanað. En þennan morgun var ágætis veður, ekki sólskin en stillt og hlýtt. Það var búið að láta út kýrnar og ég var að vaska fisk niður við sjó og mér var bara sendur matur. Við vorum nýbúin að borða þegar þetta kom fyrir. Við vorum fjórar stújkurnar sem vorum að vaska hjá Jóhanni á Jaðri og vor- um nýkomnar aftur í vinnuna eft- ir matinn. Suður á kantinum var einfaldur skúr úr timbri og báru- járni. Við vorum með tvö kör og vorum því tvær um hvert kar. Við sátum meðan við vorum að skera úr áður en við fórum að vaska vigtarnar. Hann Sveinn Jóhannsson, sem síðast var spari- sjóðshaldari hérna, flutti að okk- ur fiskinn í hjólbörum innan úr skúrnum og svo frá okkur aftur þegar við vorum búnar að vaska, fram á kant þar sem honum var stakkað upp áður en hann var þurrkaður. Sveinn var stundum að hrekkja okkur þannig að þegar hann kom og hafði tíma til þá dró hann spýtu eftir bárujárninu á skúrn- um og þá hvein mikið í honum eins og gefur að skilja. Við áttuð- um okkur ekki neitt á neinu. Það kom dálítill rigningarskúr þarna þegar við vorum rétt komnar úr mat og það voru tveir fiskstakkar með óþvegnum fiski sitt hvorum megin við dyrnar. Þessa dyr voru stórar og breiðar því það var hægt að koma vörubíl þarna inn. Dótið okkar var uppi á stökkun- um. Ein konan sat og var nýbúin að skera úr vigtinni sinni en ég var nýstaðin upp. Þvert yfir körin lágu spýtur sem við notuðum til að vera fljótari að vaska fiskinn, við létum vatna á honum á spýt- unum. Ég var nýbúin að skera úr vigtinni minni og var að dýfa fiskinum niður í þegar miícill hvinur kemur. Konan sem stóð á móti mér segir þá: Nú tekur Sveinn til. En við héldum að nú væri Sveinn enn að hrekkja okkur ein og hann gerði stundum. En í því kemur þá þessi litli hvellur og allt lék á reiðiskjálfi. Fiskurinn hoppaði upp í stæðunum og við fórum fram á gólfið. Konan sem sat sagði þá: Það er að koma jarðskjálfti, því hún fann hrist- inginn á undan okkur þar sem hún sat. Við æddum fram á gólfið og ætluðum út en við komumst ekkert því við gátum ekki fótað okkur á gólfinu. Þetta var eins og bylgjur sem gengu um allt. Svo komumst við að lokum út og þá var nú heldur einkennilegt umhorfs því það rauk hérna úr fjallinu. Þetta var eins og stórhríð, moldrykið var svo mik- ið úr fjallinu því þar hefur hrunið niður.“ Allt á hvolfí - Var þá ekki fyrst fyrir að fara heim? „Jú, auðvitað. Það var allt á hvolfi þegar ég kom út og hver flýtti sér heim til sín. Það var eitt atriði sem fólki fannst kímilegt og mikið var hlegið að. Þannig var að Jóhann var að byggja sér skúr sem hann ætlaði undir þurr- fiskinn. Þeir voru þrír við það verk; Kristinn, sem átti heima á Hjalla, og Sveinbjörn Zophan- íasson og Jóhann á Jaðri. Þeir voru að reisa sperrurnar upp og sátu náttúrlega uppi. Þegar fyrsti hvellurinn kom sagði Jóhann: Hvern andskotann ertu að hrista Kristinn. í því duttu þeir bara niður af skúrnum. En þeir sköðuðust ekkert. Það var það einkennilega við þetta að eins og þetta var nú allt hérna að þá skyldi ekki nokkur einasta mann- eskja meiðast. Nú hrundu skor- steinarnir af húsunum og brakið var úti um allt. Ég hljóp heim upp í Svæði og þá var eldavélin komin fram á gólf og allt á hvolfi. Diskarnir hrundu niður og mikið brotnaði af leirtaui en það var allt haft í rekkum þá í eldhúsunum. Það var hús við norðurendann hjá okkur en þar hafði mamma mjólk uppi í skáp sem hún setti í skápnum því ekki var nein skil- vinda komin þá, en þetta var gert í gamla daga að renna rjómanum ofan af mjólkinni til að hægt væri að strokka hann. Hún átti mjólk í potti sem hún ætlaði að flóa og fá undanrennu til að búa til skyr. Þessi pottur stóð á kvartéli úti í skemmunni. Þetta fór allt út um allt og pottarnir hvolfdust alveg við. Pabbi og Guðjón létu kýrnar inn þegar rigningarskúrinn kom, rétt fyrir jarðskjálftann. Þegar þeir komu utan frá svarðargröf- inni rétt eftir að mesti kippurinn var yfirstaðinn þá voru kýrnar búnar að slíta sig lausar, hurðin á fjósinu var opin og kýrnar hlupu um allt tún með böndin á hálsin- um. Það var hvergi farið að láta út kýrnar á syðri kotunum þegar þetta var nema hjá okkur, en eft- ir þetta voru allar kýr settar út. Þær komust út með sama hætti og hjá okkur og þegar ég kom hlaupandi heim voru kýrnar hlaupandi út um allt.“ - Var ekki farið í að gera við húsin fljótlega? „Þetta var eiginlega allt byggt upp aftur, öll torfhúsin fyrir utan ána. Það var 2. júní sem skjálft- inn kom og smiðir frá Akureyri voru fengnir til að smíða hérna. Tveir smiðir byggðu upp húsið heima hjá mér. Skemmdirnar á húsinu voru miklar því veggirnir göptu allir hver frá öðrum. Þekj- an sprakk í sundur svo maður sá út um hana. Margt fólk svaf í tjöldum lengi vel en við á syðri bæjunum sváfum inni en höfðum allar dyr vel opnar lengi vel á eftir. Það var náttúrlega ekki búið að kippa þessu strax í lag en það var búið að byggja mikið upp um haustið.“ Ég kvaddi Unni og þakkaði henni fyrir spjallið. Frásögn hennar er lifandi því minnið er gott og það var ekki laust við að manni fyndist sem hulu væri svipt frá atburðum sem gerðust fyrir mörgum áratugum. Svo mikið er víst að ungu fólki er hollt að hug- leiða við og við aðstæður þeirrar kynslóðar sem Unnur tilheyrir. EHB Til ungra myndlistarmanna ara og yngn í tilefni af 20 ára afmæli IBM á Islandi, hyggst fyrirtækið standa fyrir sýningu á verkum ungra myndlistarmanna, 35 ára og yngri. Yfirskrift sýningarinnar er „Áhrif tölvuvæðingar í 20ár“. I tengslum við sýninguna hyggst fyrirtækið veita verðlaun einum listamanni að upphæð kr. 100.000,- og jafnframt áskilja sér rétt til kaupa á sýningarverkum. Ætlast er til að send séu inn ekki færri en þrjú verk eftir hvern listamann og geta þau verið úr hvaða listgrein sem er innan myndlistar- innar. Miðað er við að verkunum sé skilað inn fyrir 10. janúar 1987 til IBM, Skaftahlíð 24. Sýningarnefnd skipa: Gunnar M. Hansson forstjóri, formaður Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður Einar Hákonarson, listmálari Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Halldór B. Runólfsson, listfræðingur SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 27700

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.