Dagur - 30.12.1986, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 30. desember 1986
í tengsium við aldarafmæli Kaupfélags Eyfirðinga var efnt til veglegra afmælisveislna í íþróttahöllinni. Þar mættu
um 2000 manns til veislu og fór þessi „veisla aldarinnar“ mjög vel fram.
lagið þar sem stærsta listaverk
landsmanna „Auðhumla" var af-
hjúpað. Þá var efnt til tveggja
veglegra afmælisveisla í íþrótta-:
ihöllinni og sóttu þær þúsundir
manna.
23. Aðalfundur Sambands
íslenskra samvinnufélaga var
haldinn á Akureyri. Heildarvelta
Sambandsins á árinu 1985 nam
tæpum 11,8 milljörðum króna
sem var 37% aukning frá fyrra
ári. Hagnaður varð af rekstrinum
upp á 3 milljónir króna á móti 78
milijóna tapi árið áður.
Á fundinum kom fram að
fyrstu mánuði ársins 1986 voru
allar deildir Sambandsins reknar
með hagnaði nema verslunar-
deild. Á fundinum sagði Valur
Arnþórsson stjórnarformaður að
kaupfélögin ættu við mikla
rekstrarerfiðleika að etja og væri
afkoma þeirra slæm. „Það er
margþætt verkefni að hagræða
amerískum hraða svo ég get ekki
annað en verið ánægður,“ sagði
Vilhelm.
4. Páll Þórðarson bóndi á
Sauðanesi missti 12 kýr, að því er
virtist úr hjartaslagi. Sigurður H.
Pétursson sem rannsakaði málið
sagði að þarna væri greinilega um
magnaða eitrun að ræða. Páll
bóndi var að vonum óhress en
sagðist fá einhverjar bætur fyrir
kýrnar úr Bjargráðasjóði.
7. Sæmilega heitt var á Akur-
eyringum í júní. Þótt kalt væri
framan af mánuðinum reyndist
hann í heild vera sá hlýjasti á
Akureyri síðan 1960. Hitinn fór
hæst í 24 stig og marga aðra daga
var hiti um 20 gráður. En vegna
þess hversu kalt hafði verið fram-
an af mánuðinum reyndist meðal-
hitinn „ekki nema“ 10,7 stig.
9. „Okkur vantar konur,“
sagði Gísli Óskarsson hjá Hrað-
frystistöðinni á Þórshöfn í viðtali
hluta í stjórnum sveitarfélaga. i
6. Mjólkurframleiðendur á
svæði Mjólkursamlags KEA
stóðu sig vel á árinu 1985 því
99,17% af mjólk þeirra lenti í 1.
flokki.
9,5 millj. króna halli varð á
rekstri Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri árið 1985. Veltan var rúm-
lega 400 milljónir, afskriftir 11
milljónir, fjármunamyndun í
fyrirtækinu var 7-8 milljónir.
11. Veiði í Laxá í Aðaldal
hófst 10. júní. Vel veiddist strax í
upphafi og það vakti athygli að
selur var skotinn í ánni opnunar-
daginn.
11. Þótt komið væri fram í
miðjan júní og sumarið ætti að
vera komið samkvæmt dagatal-
inu var kuldalegt um að litast
víða á Norðurlandi. Víða snjóaði
í fjöll og á Grímsstöðum á Fjöll-
um var jörð alhvít.
17. Séð var fyrir endann á veik- j
indum hins fræga stóðhests
Snældu-Blesa og var hann „tek-
inn til starfa" af fullum krafti.
„Héðan í frá eru erfiðleikarnir að
baki,“ sagði Magni Kjartansson
bóndi í Árgerði og eigandi Blesa.
19. Kaupfélag Eyfirðinga varð
100 ára 19. júní og var þess
minnst á margvíslegan hátt.
Aðalfundur félagsins var haldinn
í tengslum við afmælið og kom
þar fram að 12,3 millj. króna
hagnaður varð af rekstrinum árið
1985. Heildarvelta félagsins var
3796,6 milljónir auk þess sem
samstarfsfyrirtæki veltu 1113,5
milljónum króna. Um 5 milljónir
króna voru greiddar til starfs-
fólks í formi launauppbótar og
nam hún um 5 þús. kr. á hvern
starfsmann.
í tilefni afmælisins var haldinn
hátíðarfundur við Mjólkursam-
Gígja Birgisdóttir frá Akureyri var kjörin „Fegurðardrottning íslands
1986“.
Togarinn Drangey frá Sauðárkróki kom til heimahafnar í haust frá Þýska-
landi þar sem gagngerar breytingar voru gerðar á skipinu.
vegna vantalinna birgða í árslok
1984. Frystingin var í raun rekin
með 2,5 millj. kr. tapi, hagnaður
af skipaútgerðinni nam um 10
millj. króna og hagnaður af fisk-
verkuninni í heild var um 1,3
millj.
16. Stórbruni varð á Skaga-
strönd er Plastiðjan Mark brann
til kaldra kola. Einn maður var
við vinnu í fyrirtækinu er eldur-
inn kom upp og gat hann bjargað
sér á þann hátt að kasta sér út um
glugga. „Þetta er gífurlegt reið-
arslag, við höfum lagt allt okkar
f þetta fyrirtæki tvö síðustu árin,“
sagði Eðvarð Ingvarsson, annar
eigandi fyrirtækisins.
22. Lögreglan á Akureyri var
kærð til jafnréttisráðs. Það var
Jafnréttisnefnd Akureyrar sem
stóð að kærunni og var í henni
óskað eftir rannsókn á því hvort
um brot á jafnréttislögum hefði
verið að ræða er umsóknum
kvenna um störf í lögreglunni
nokkru áður var hafnað.
26. Gígja Birgisdóttir frá
Akureyri var kjörin „Ungfrú
ísland" í veitingahúsinu Broad-
way í Reykjavík.
28. „Stólamálinu“ svokallaða
lauk með því að húsgagnafyrir-
tækinu Kótó hf. á Akureyri var
falið að smíða stóla fyrir Verk-
■ menntaskólann í bænum. Mikið
hafði gengið á í þessu máli er til
stóð að kaupa norska stóla og
m.a. var farið með undirskrifta-
lista um bæinn þar sem því var
mótmælt.
JÚNÍ:
2. Kratar unnu stórsigur í sveit-
arstjórnarkosningunum sem fram
fóru um mánaðamótin. Á Akur-
eyri bættu kratarnir við sig tveim-
ur mönnum og víða unnu þeir
mun stærri sigra.
3. „Ég tel góða möguleika á
verkefnum á Grænlandi og við
ætlum að gera tilboð í tvö verk-
efni þar,“ sagði Hörður Túliníus
hjá Híbýli hf. á Akureyri, en
hann hafði verið á ferð á Græn-
landi á vegum Eyfirskra verk-
taka. Ekkert hefúr þó enn orðið
um vinnu Eyfirskra verktaka á
Grænlandi hvað sem síðar
verður.
4. Krátar og sjálfstæðismenn
náðu samkomulagi um myndun
meirihluta í bæjarstjórn Akur-
eyrar. Á Siglufirði sömdu kratar
og allaballar og víða voru menn
snarir að semja um nýja meiri-
MAÍ:
6. Fram kom að meðaltalslaun
hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga á
árinu 1985 námu 909 þúsund
krónum. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins og svaraði þessi
upphæð til þess að hver starfs-
maður hefði fengið 76 þúsund
krónur í laun á mánuði. Vöktu
þessar tölur mikla athygli enda
hefur Norðurland vestra löngum
verið talið láglaunasvæði.
6. Rekstrartap Kaupfélags
Þingeyinga á árinu 1985 nam 7,8
milljónum króna sem var um 2
millj. króna minni halli en 1984.
Þetta kom fram á aðalfundi
félagsins og þar gerðist það í
fyrsta skipti að konur voru kosn-
ar í stjórn og varastjórn.
8. Hagnaður varð af rekstri
Hitaveitu Akureyrar árið 1985,
og var það í fyrsta skipti í sögu
fyrirtækisins sem hagnaður varð.
Hagnaðurinn var 96 milljónir
króna, en árið áður var tap fyrir-
tækisins 167 millj. króna. „Sveifl-
an“ milli ára nam því 263 milljón-
um króna. Sú reiknisaðferð var
notuð að færa gengistap veitunn-
ar á gjaldalið. Veitan hefur þurft
að taka mörg erlend lán á undan-
förnum árum, flest í Banda-
ríkjadollurum og eftir því sem
staða dollarans styrktist gagnvart
krónunni hækkuðu lánin og það
kom fram í auknum taprekstri
veitunnar.
Hins vegar kom þessi reiknis-
aðferð veitunni til góða í fyrra
þar sem staða dollarans veiktist
þá og á stóran þátt í að bókfærð-
ur hagnaður síðasta árs er 96
milljónir króna.
12. í Grímsey voru flestir
stærri bátarnir búnir með þorsk-
kvóta sinn þótt árið væri ekki
hálfnað, en einhverjir geymdu
hluta kvótans til að hafa
upp á að hlaupa fyrir þann þorsk
sem kynni að berast með öðrum
tegundum sem veiddar eru utan
kvóta.
15. Hagnaður í heildarrekstri
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
1985 nam tæplega 5,5 milljónum
króna. Bókaður hagnaður af
frystihúsinu nam 29,5 millj.
króna en hann var til kominn
vegna ársins 1984 og meira til,
rekstri Sambandsins, það þarf að
endurskoða marga þætti,“ sagði
Valur.
23. Þrjú norðlensk frystihús
fengu verðlaunaskildi sem Cold-
water Seafood, sölufyrirtæki
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna veitir árlega. Þetta voru
Skjöldur á Sauðárkróki, Jökull á
Raufarhöfn og Útgerðarfélag
Akureyringa. Tvö norðlensk
fyrirtæki fengu viðurkenningu,
Kaldbakur á Grenivík og Hrað-
frystihús Ólafsfjarðar.
26. Slippstöðin á Akureyri
samdi um breytingar á 5 togurum
frá Kanada. Gunnar Ragnars for-
stjóri stöðvarinnar sagði að þetta
væru mikilvæg verkefni fyrir
Slippstöðina, enda væru þetta
mikil verkefni.
JÚLÍ:
1. „Það er vont fyrir sálina að sjá
garðana hverfa undir vatn,“ sagði
Eiríkur Hreiðarsson garðyrkju-
bóndi að Grísará í Eyjafirði.
Mikil flóð voru í Eyjafjarðará
og fóru um 3 hektarar lands
Eiríks undir vatn, en þar ræktaði
hann kál, rófur og gulrætur.
1. 15,8 millj. króna rekstrarhalli
varð á rekstri Kaupfélags N,-
Þingeyinga á árinu 1985. „Við
verðum að snúa við blaðinu,“
sagði Pétur Þorgrímsson fram-
kvæmdastjóri Kaupfélagsins í
samtali við Dag.
2. „Það er gaman að geta stað-
ið í lappirnar aftur,“ sagði Vil-
helm Ágústsson, einn hinna
svonefndu Kennedybræðra á
Akureyri, en Vilhelm lenti í
alvarlegu vélsleðaslysi 5 vikum
áður. „Batinn kemur með