Dagur - 30.12.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 30. desember 1986
unnar að framleiðsla er hafin á
loðnumeltu. Ákveðið var að
flytja sex þúsund tonn af meltu til
Noregs og eru tækin að komast í
gang í verksmiðjunni í þessu
skyni, en talsvert hefur orðið að
fá af vélum erlendis frá til að
framleiða þessa afurð.
3. Tólf bílar skemmdust í sjö
árekstrum á Akureyri. Ástæðan
var skyndileg ísing sem myndað-
ist á götum bæjarins en ökumenn
voru á vanbúnum bifreiðum.
7. „Það liggur fyrir í dag að við
munum ekki gera frekari samn-
inga við Sovétmenn um sölu á
ullarvörum fyrir þetta ár og það
eru vonbrigði útaf fyrir sig,“
sagði Aðalsteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Ullariðnaðar-
deildar SÍS.
8. Ekki er laust við að áhrif
leiðtogafundarins í Reykjavík
nái til Akureyrar. Sjö lögreglu-
þjónar og tugir bílaleigubíla
verða sendir frá Akureyri vegna
fundarins og Samver mun leigja
allan sinn búnað til myndatöku
suður.
9. Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar urðu miklar umræður um
hvernig staðið var að ráðningu
forstöðumanns öldrunarþjónustu
í bænum. Meirihluti bæjarstjórn-
ar réði Cesil Haraldsson í starfið
áður en öldrunarráð hafði tekið
afstöðu til umsókna.
9. Mikið er um rúðubrot í
miðbæ Akureyrar um helgar og
rúða var brotin í útibúi Lands-
banka íslands. Par fór ungur
maðurinn í bankann án þess að
valda frekara tjóni.
10. Útvarpsréttarnefnd hefur
veitt Eyfirska sjónvarpsfélaginu
hf. á Akureyri heimild til sjón-
Eyfírska sjónvarpsfélagið sem starfrækir Sjónvarp Akureyri, hóf útsendingar í desember. Myndin er tekin er tækj-
um til fyrirtækisins Samvers sem annast tæknivinnu Sjónvarps Akureyrar var skipað upp á Akureyri.
Kristján frá Djupalæk varð sjötugur á árinu. Lcikfélag Akureyrar flutti dagskrána „Dreifar af dagsláttu" honum til
heiðurs og er myndin tekin í lok frumsýningar á verkinu.
varpssendinga á Akureyri og í
Eyjafirði. Verið er að smíða
sendibúnaðinn í Frakklandi en
sendirinn verður staðsettur á
Vaðlaheiði.
11. Laun bæjarfulltrúa og
nefndarmanna á Akureyra
hækka talsvert og er kaup þeirra
nú miðað við ákveðið hlutfall
þingfararlauna í stað kjarasamn-
inga bæjarstarfsmanna.
11. Bæjarráð hafnar aukafjár-
veitingu til Verkmenntaskólans á
Akureyri að upphæð 160 þús. kr.
15. Mikið er spurt um mynd-
lykla hjá Akurvík hf. en eins og
kunnugt er þá þurfa menn að
eiga sérstaka „lykla“ til að geta
náð útsendingum Sjónvarps
Akureyri.
16. Menn velta nú fyrir sér
þeim möguleika að útvarpsstöðin |
Bylgjan komi til Akureyrar. Ein-
ar Sigurðsson, útvarpsstjóri
Bylgjunnar, segir að talsverður
áhugi sé fyrir þessu máli hjá
starfsmönnum stöðvarinnar.
16. Verslun Iðnaðardeildar SÍS
á Akureyri hefur verið lokað fyr-
ir fullt og allt, en þessi verslun
hefur starfað undanfarin 50 ár og
haft með höndum sölu fram-
leiðsluvara verksmiðjanna.
17. Fjórir aðilar á Akureyri
hafa verið kærðir fyrir ávísana-
misferli, en fólkið sveik út fleiri
hundruð þúsund krónur á flakki
um landið.
20. Annað og síðasta uppboð á
eignarhluta Akurs hf. í Sjallan-
um hefur nú farið fram. Kröfur
Iðnaðarbankans nema um 60
milljónum króna, en bankinn
bauð 35 milljónir í eignarhlut
Akurs.
20. Hitaveitustjóranum á
Akureyri hefur nú verið gefinn
kostur á að segja upp starfi sínu
eða verða rekinn að öðrum kosti.
Ástæðurnar fyrir þessu eru sagð-
ar vera samstarfserfiðleikar hita-
veitustjóra og bæjarstjórnar.
21. Bæjarstjórn Akureyrar
ákvað eftir fimm klukkustunda
langan fund að Vilhelm W.
Steindórssyni, hitaveitustjóra,
skyldi sagt upp. Ástæða brott-
rekstrarins er talin vera trúnaðar-
brestur milli hans og bæjarstjórn-
ar og skoðanaágreiningur í mörg
ár. Hitaveitustjóri er þó ekki sak-
aður um neins konar mistök, mis-
ferli eða vanrækslu í starfi.
22. Fyrirhugaðri hækkun á
gjaldskrá Hitaveitu Akureyrar
hefur verið frestað. Forsætisráð-
herra, Steingrímur Hermanns-
son, hefur gefið yfirlýsingu um að
ríkisstjórnin muni hlutast til um
að húshitunarkostnaður verði að
einhverju leyti greiddur niður af
ríkinu eða að ríkið muni taka á
sig hluta af fjárhagsvanda hita-
veitunnar.
24. Ákveðið var á stjórnar-
fundi í Byggðastofnun að Akur-
eyri fái fyrstu stjórnsýslumiðstöð-
ina. Er þetta hluti af áætlun
stofnunarinnar um dreifingu
stjórnsýslumiðstöðva um landið.
29. Ákveðið var að selja Iðn-
garðana í Ólafsfirði. „Þetta eru
mikil vonbrigði,“ sagði Valtýr
Sigurbjarnarson, bæjarstjóri.
Taldi hann almennt áhugaleysi
hafa staðið Iðngörðunum fyrir
þrifum.
31. Framkvæmdir eru hafnar
við sjónvarpssal Samvers hf. á
Akureyri vegna Eyfirska sjón-
varpsfélagsins hf. Gólfflötur í
húsi sjónvarpsfélagsins við
Grundargötu er 190 fermetrar,
en inni í þeirri tölu er 110 fer-
metra nýbygging sem SS Byggir
sf. reisir. Framkvæmdin er öll hin
vandaðasta.
Nóvember
3. Guðmundur Bjarnason hlaut
1. sætið í prófkjöri framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra. Valgerður Sverrisdóttir
lenti í öðru sæti og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson í þriðja. Stefán
Valgeirsson gekk af kjördæmis-
þingi er ljóst var að hann náði
ekki fyrsta sæti. „Þá hefur aftak-
an farið fram,“ sagði Stefán.
Spurningar vöknuðu um sér-
framboð hans og það varð að
veruleika síðar meir.
Togarinn Dreki til Kópaskers.
Kaupsamningur að upphæð 75
milljónir króna var undirritaður
með fyrirvara um að skipið
stæðist gaumgæfilega skoðun.
4. Viðræður standa yfir um
framlengingu leigusamnings milli
Kaupfélags Eyfirðinga og for-
svarsmanna KSÞ á Svalbarðseyri.
Þórður Stefánsson sagði að úti-
lokað hefði verið að endurnýja
samninginn óbreyttan.
5. Sorpeyðingarmál ber á
góma. Á Sauðárkróki stefnir í
málaferli í sorpbrennslumálum,
bærinn mun reka mál gegn Ríp-
urhreppi vegna afturköllunar
byggingarleyfis. Á Akureyri eru
möguleikar á sorpeyðingu í
athugun.
6. Rækjuveiðar hófust í Húna-
flóa, en kvótinn var aðeins 500
tonn á móti 2800 tonnum í fyrra.
Kvótinn er byggður á ítarlegum
rannsóknum sem leiddu í ljós
hrun innfjarðarrækjustofnsins í
Húnaflóa.
11. „Það að farið verði að
byggja nýjan herflugvöll á Sauð-
árkróki kemur alls ekki til
greina,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, en umræður um vara-
flugvöll voru áberandi á þessu
tímabili og reyndar enn.
12. Fimm tonn af laxi drápust
hjá Hafrúnu á Sauðárkróki í
norðanveðri og hafróti.
Frétt um ólöglegt efni í niður-
soðinni rækju frá K. Jónsson
skýtur upp. Rækjan var endur-
send frá Þýskalandi vegna notk-
á Húsavík, en þangað kom hún
24. júlí. Á laugardagskvöldið var
svo lokið við að tengja síma í
Kelduhverfi og Öxarfirði við sím-
stöðina á Kópaskeri og þar með
er búið að tengja sjálfvirkan síma
á alla sveitabæi á landinu.
4. „Það er ekki laust við að
mikla birgðir séu til, því við liggj-
um með 105 tonn af alikálfakjöti
og 60 tonn af kýrkjöti og hefur
aldrei verið til annað eins af kjöti
og núna,“ sagði Óli Valdimars-
son sláturhússtjóri hjá KEA á
Akureyri. ÓIi taldi þetta m.a.
stafa af offramleiðslu og eftir-
spurn eftir nýrra kjöti á kostnað
birgða.
8. „Loðnuverð er mun lægra í
ár en var í fyrra eða um 20% og
tala verksmiðjueigendur um að
lækka enn meira. Þegar menn
tala um að verksmiðjurnar tapi
500 krónum á tonninu þá hljóta
þær að vera allt of margar og ætti
að loka þeim á stundinni,“ sagði
Sverrir Leósson, útgerðarmaður
á Akureyri í sambandi við loðnu-
verðið.
9. Ný Volvobifreið brann á
Akureyri og er talið að bensín-
slanga hafi losnað frá mótornum
og íkveikjan orðið þannig.
9. Gerfihnattaöldin er hafin á
Akureyri því verslunin Hljómver
hefur hafið sölu á móttökudisk-
um fyrir sendingar um gerfi-
hnetti. Fyrirtækið Rafeind í
Reykjavík annast innflutning
diskanna, sem eru af gerðinni
NEC. Búið er að staðsetja einn
slíkan á þaki Hljómvers. Sam-
kvæmt upplýsingum Hljóm-
versmanna mun vera hægt að ná
níu stöðvum frá gerfihnettinum
ECS-1.
10. Guðmundur Guðlaugsson,
bæjarverkfræðingur, segir að
svæði sorphauganna við Akur-
eyri sé á þrotum og nauðsynlegt
sé að gera ráðstafanir til úrbóta
hið fyrsta.
11. Bæjarráð Akureyrar hafn-
aði beiðni um fjárstuðning við
alþjóðlegt skákmót á Akureyri,
en áður hafði verið gefið vilyrði
fyrir slíkum stuðningi.
11. Iðnaðarráðuneytið hefir
ákveðið að fella niður olíustyrki í
áföngum vegna lækkunar olíu-
verðs undanfarna mánuði.
12. Nýtt hlutafélag, Kjörland
hf., hefur verið stofnað. Þetta er
hlutafélag um rekstur kartöflu-
verksmiðju á Svalbarðseyri.
Hlutafé er 1,8 milljónir króna.
KEA á 60%, Ágæti 20% og
Hlutur hf., sem er í eigu kartöflu-
bænda við Eyjafjörð, á 20%.
12. Samkvæmt upplýsingum
frá Ólafi G. Vagnssyni sauðfjár-
ræktarráðunauti virðist riðuveiki
vera að breiðast út í Eyjafirði.
Tilfelli hafa verið staðfest á
þremur bæjum.
16. Rússneskir jarðvísinda-
menn hafa undanfaið sprengt til-
raunasprengjur í Eyjafirði og
hefur hristingurinn fundist greini-
lega í húsum á Akureyri og
nálægum sveitum. Sumir hafa
verið uggandi um borholur hita-
veitunnar sem eru nálægt spreng-
istöðunum.
16. „Ég hef ekki heyrt talað
um frjálst fiskverð á annan hátt
en þann að koma upp fiskmark-
aði á suðvesturhorninu og reikna
ekki með að slíkt verði tekið
upp hér hjá okkur,“ sagði Gísli
Konráðsson, forstjóri ÚA er
hann var spurður um fiskmarkað
og frjálst fiskverð.
17. Eigendur Kórónakjúklinga
á Akureyri lögðu fram beiðni um
lögbann við hlutafjáraukningu í
Akri hf. sem rekur Sjallann.
Telja þeir að þessi hlutafjáraukn-
ing stríði gegn hagsmunum sín-
um þar sem þeir hafi verið komn-
ir með bindandi kaupsamning.
18. „Það er ekki hægt að segja
að Eimskip neiti að borga, heldur
er spurning hversu mikið þeir
eigi að borga,“ sagði Valtýr Sig-
urbjarnarson bæjarstjóri á Ólafs-
firði, en Skeiðsfoss, skip Eim-
skipafélagsins, sigldi á bryggju í
Ólafsfirði 29. september í fyrra
og skemmdi hana nokkuð.
18. „Við förum að lögum,“
sagði Elías I. Elíasson, bæjar-
fógeti á Akureyri, en jafnréttis-
nefnd Akureyrar hefur beðið
hann að fara að lögum við
ráðningar í lögregluna á Akur-
eyri. Aðeins karlar voru ráðnir í
lögregluna á Akureyri og telur
Erlingur Pálmason, yfirlögreglu-
þjónn, ekki mögulegt að ráða
konur til lögreglustarfa að
óbreyttu ástandi mála hvað varð-
ar aðstöðu í lögreglustöðinni.
19. Tveir menn voru handtekn-
ir þegar lögreglan á Akureyri
lokaði einkabruggstöð í bænum.
22. Alvarlegt vinnuslys varð í
sútunarverksmiðju SÍS á Akur-
eyri þegar piltur um tvítugt missti
hægri höndina í vél.
22. Ákveðið hefur verið að
breyta Sléttbak, togara ÚA, í
frystiskip og verður breytingin
framkvæmd í Slippstöðinni á
Akureyri.
25. Ákveðið hefur verið að
leggja samtals 10 kílómetra af
boðveituköplum á Akureyri. Rör
hafa verið lögð í gangstéttir áður
en þær voru malbikaðar.
Október:
1. Á sameiginlegum fundi skóla-
stjóra á Norðurlandi eystra sem
haldinn var í Stórutjarnaskóla og
á almennum félagsfundi BKNE
sama dag var samþykkt harðorð
ályktun vegna vinnubragða
menntamálaráðuneytisins við
afgreiðslu á áætlun um kennslu í
grunnskólum næsta skólaár.
2. Sú nýjung hefur orðið í
starfsemi Krossanesverksmiðj-