Dagur - 30.12.1986, Blaðsíða 11
30. desember 1986 - DAGUR - 11
IÞROTTIR
- v>
stunda nám næstu ár og jafnframt
Ingigerður Júlíusdóttir sigraði í svigi á landsmótinu í Bláfjöllum um pásk-
ana.
Norðlenskir íþróttamenn náðu
margir hverjir mjög góðum
árangri á árinu sem er að líða.
A það jafnt við um þá sem
stunda hópíþróttir og einstakl-
ingsíþróttir. Nú í lok ársins er
rétt að renna yfír farinn veg og
rifja upp það helsta í hverri
grein.
Körfubolti
Tindastóll frá Sauðárkróki sigr-
aði glæsilega í 2. deildar keppn-
inni í körfubolta á árinu og
vann sér þar með sæti í 1. deild.
Þórsarar léku í 1. deild sem fyrr
og olli liðið nokkrum vonbrigð-
um. Þórsarar voru í fallhættu
lengi vel en liðið náði að bjarga
sér á síðustu stundu. USAH lék
eins og Tindastóll í 2. deild. Lið-
inu gekk illa og vann aðeins einn
leik í deildinni.
Handbolti
KA lék í 1. deild á ný og náði
mjög góðum árangri. Liðið hafn-
aði í 4. sæti með 15 stig í 14 leikj-
um. KA vann 7 leiki, gerði 1
jafntefli og tapaði 6 leikjum. KA
var slegið út úr bikarnum strax í
fyrsta leik. Þór lék í 3. deild en
liðið komst bakdyramegin í 2.
deild á ný þar sem fjölgað var í 1.
og 2. deild. Þór hafnaði í 3. sæti
3. deildar og það dugði liðinu.
Völsungur tók þátt í deilda-
keppninni í handbolta á ný eftir
nokkurra ára hlé. Liðið lék í 3.
deild og stóð sig þokkalega.
í úrslitakepppni yngri flokka
náði 5. flokkur Þórs bestum
árangri en liðið varð í 2. sæti eftir
að hafa tapað fyrir Val í úrslita-
leik.
Knattspyrna
Árið sem er að líða er eitt merki-
legasta ár norðlenskrar knatt-
spyrnusögu, því bæði Völsung-
ur og KA unnu sér sæti í 1. deild
næsta sumar og því munu þrjú
norðlensk félög leika í þeirri
deild næsta ár. Völsungar komu
skemmtilega á óvart og unnu 2.
deildina. KA varð í öðru sæti eft-
ir að hafa leitt deildina lengst af.
Þórsarar léku sem fyrr í 1.
deild. Liðið olli miklum von-
brigðum, átti misjafna leiki og
hafnaði í 6. sæti deildarinnar. Þá
var liðið slegið strax út í Mjólkur-
bikarkeppni KSI.
Leiftur frá Ólafsfirði gerði
góða hluti í sumar. Liðið sigraði
glæsilega í 3. deildinni og endur-
heimti sæti sitt í 2. deild að ári.
Tindastóll, Reynir Árskógs-
strönd og Magni léku einnig í 3.
deildinni. Tindastóll háði harða
keppni við Leiftur um sigur í riðl-
inum en varð að láta í minni
pokann. Reynir varð í 4. sæti rið-
ilsins og Magni í 6. sæti.
Mývetningar unnu sér sæti í 3.
deild á ný að lokinni úrslita-
keppni í 4. deild. Auk þeirra
tóku Hvöt á Blönduósi og Sindri
frá Hornafirði þátt í úrslita-
keppninni en þau lið sigruðu í
sínum riðli. Eftir harða baráttu
voru það Sindri og HSÞ-b sem
náðu þeim tveim sætum í 3. deild
sem keppt var um.
Kvennalið KA vann sér sæti í
1. deild á ný með því að sigra í
sínum riðli í 2. deildinni í sumar.
KA lék síðan til úrslita við
Stjörnuna um sigur í 2. deildinni
en tapaði þeim leik naumlega.
Þór lék í 1. deildinni í sumar.
Liðið lék eins og karlaliðið mis-
jafnlega og hafnaði í 6. sæti.
Af árangri yngri flokka ber
fyrst að nefna glæsilegan árangur
5. flokks Þórs á íslandsmótinu
þar sem liðið vann til silfurverð-
launa. 3. flokkur Þórs komst
einnig í úrslitakeppnina og hafn-
aði í 4. sæti. 4. flokkur KA lék
einnig í úrslitakeppninni og varð
í 5. sæti. Völsungar stóðu sig best
6. flokks liða á svæðinu. Liðið
hafnaði í 2. sæti á Tommamótinu
í Eyjum og í 4. sæti á Pollamóti
KSI og Eimskips í Reykjavík.
Skíði
Norðlenskir skíðamenn létu sem
fyrr mikið að sér kveða á skíða-
mótum vetrarins. Á landsmót-
inu sem fór fram í Bláfjöllum,
vann Daníel Hilmarsson frá Dal-
vík til þrennra gullverðlauna.
Hann sigraði í svigi, stórsvigi og
alpatvíkeppni. Þá varð Daníel
bikarmeistari SKÍ. Daníel æfði
og keppti erlendis stóran hluta af
árinu og stóð sig nokkuð vel. Nú
skömmu fyrir jólin var hann síð-
an útnefndur skíðamaður Skíða-
sambandsins 1986.
Þorvaldur Jónsson frá Ólafs-
firði gerði líka góða hluti á lands-
mótinu. Hann vann einnig til
þrennra gullverðlauna, sigraði í
stökki af 40 m, og 47 m palli og í
norrænni tvíkeppni. Ingigerður
Júlíusdóttir frá Dalvík sigraði í
svigi kvenna á landsmótinu.
Guðrún H. Kristjánsdóttir skíða-
drottning frá Akureyri varð að
láta sér lynda 3. sætið í svigi og
stórsvigi og 2. sætið í alpatvi-
keppni kvenna. Guðmundur Sig-
urjónsson frá Akureyri varð í 2.
sæti í alpatvíkeppni og Björn
Brynjar óíslason frá Akureyri í
því 3. Anna María Malmquist frá
Akureyri sem hafði staðið sig
mjög vel á mótum fram að lands-
mótinu, náði sér ekki á strik á
sjálfu landsmótinu og höfðu
mótshaldarar þar mikil áhrif á
eins og komið hefur fram. Anna
María varð þó bikarmeistari SKÍ
í alpagreinum.
Unglingameistaramótið á skíð-
um fór fram á ísafirði. Þar stóðu
Akureyringar sig mjög vel í alpa-
greinum og Ólafsfirðingar og
Siglfirðingar í norrænum grein-
um. Kristinn Svanbergsson sigr-
aði í svigi pilta í flokki 15-16 ára,
varð í 2. sæti í stórsvigi og sigraði
í alpatvíkeppni. Vilhelm Þor-
steinsson sigraði í svigi í flokki
13-14 ára, varð í 3. sæti í stórsvigi
og sigraði í alpatvíkeppni.
Jóhannes Baldursson varð í 2.
sæti í stórsvigi í flokki 13-14 ára
og hann varð bikarmeistari SKÍ í
þeim flokki. Ása Þrastardóttir
varð í 3. sæti í svigi stúlkna í
flokki 13-14 ára, í 2. sæti í stór-
svigi og í 2. sæti í alpatvíkeppni á
mótinu. Kristín Jóhannsdóttir
varð í 3. sæti í svigi í flokki 15-16
ára og í 2. sæti í alpatvíkeppni.
Valdimar Valdimarsson varð í 2.
sæti í bikarkeppni SKÍ og María
Magnúsdóttir varð í 3. sæti. Allir
þessir krakkar eru frá Akureyri.
í boðgöngu á unglingameist-
aramótinu urðu Ólafsfirðingar
sigursælir. Þeir sigruðu í flokki
stúlkna og drengja 13-14 ára. í
einstaklingskeppninni urðu þær
Magnea Guðbjörnsdóttir og
Lena Rós Matthíasdóttir í 2. og
3. sæti í flokki 13-15 ára. Þær
urðu einnig númer 2 og 3 í bikar-
keppni SKÍ í göngu. Sölvi Sölva-
son frá Siglufirði sigraði í göngu í
flokki 13-14 ára og hann varð
einnig bikarmeistari SKÍ í þeim
flokki. Grétar Björnsson frá
Ólafsfirði varð í 2. sæti bæði í
göngu og bikarkeppni SKÍ.
Skíðastökkið var flutt til Ólafs-
fjarðar og þar unnu heimamenn
þrefalt. Kristinn Björnsson sigr-
aði, Grétar Björnsson varð annar
og Magnús Þorgeirsson þriðji.
Akureyringar urðu tvöfaldir
íslandsmeistarar í skíðagöngu
karla. Haukur Eiríksson sigraði í
flokki 17-34 ára og Sigurður
Aðalsteinsson sigraði í flokki 35
ára og eldri. Haukur stóð sig
mjög vel á mótum síðastliðinn
vetur. Hann er nú á leið til Sví-
þjóðar, þar sem hann mun
stunda skíðagönguna af miklum
krafti.
Andrésar Andar leikarnir fóru
fram á Akureyri sem fyrr. Á
fimmta hundrað keppendur
mættu á mótið frá 14 bæjarfélög-
um. Leikarnir þóttu takast mjög
vel og voru þeim er að fram-
kvæmdinni stóðu til mikils sóma.
Glíma
Mývetningar stóðu sig mjög vel í
Landsflokkaglímu Glímusam-
bands íslands á árinu og vakti
Arngeir Friðriksson úr HSÞ
mikla athygli á mótinu fyrir góð-
an árangur. HSÞ-menn sigruðu í
fjórum flokkum á mótinu. Eyþór
Pétursson sigraði í yfirþyngd,
Kristján Yngvason í milliþyngd,
Arngeir Friðriksson í piltaflokki
og Böðvar Pétursson í drengja-
flokki.
í Sveitaglímu íslands sigraði
HSÞ KR 13:3. Þá var í fyrsta
skipti keppt í drengjaflokki í
sveitaglímunni og þar sigraði
HSK HSÞ naumlega 13:12.
Sund
Sundfélagið Óðinn varð stiga-
hæst félaga á sundmeistaramóti
Norðurlands í sundi sem fram fór
á Akureyri í sumar. Óðinn
keppti í bikarkeppni SÍ í haust og
hafnaði þar í 3. sæti. Óðinn tók
einnig þátt í aldursflokkamótinu
í sundi og hafnaði þar í 6. sæti.
Svavar Þór Guðmundsson varð
Akureyrarmeistari í sundi í
sumar. I öðru sæti varð Birna
Björnsdóttir og í þriðja sæti Vala
Magnúsdóttir. Svavar Þór komst
tvisvar á verðlaunapall í íslands-
mótinu í sundi. Hann varð þriðji
í 100 m og 200 m baksundi.
Mörg önnur mót fóru fram hér
víðs vegar um Norðurland og
náðist í þeim ágætis árangur.
Sundfólk úr Óðni setti nokkur
íslandsmet á árinu og fjölmörg
Akureyrarmet.
Blak
Karla- og kvennalið KA í blaki
léku í 1. deild á síðasta keppnis-
tímabili en árangur liðanna var
slakur. Eikin frá Akureyri varð
Islandsmeistari í 1. flokki í blak-
inu á árinu og þá sigraði liðið í
haustmóti sem fram fór nú í
haust. Strákarnir úr Skautafélagi
Akureyrar náðu öðru sæti á
íslandsmóti 1. flokks.
Öldungamót íslands í blaki fór
fram í Kópavogi í byrjun maí. í
kvennadeild varð Eik í 2. sæti og
einnig í öðlingadeild. Karlalið
Óðins sigraði í 1. deild öldunga
og Skautafélag Akureyrar í öðl-
ingadeild og þar varð Óðinn í 2.
sæti.
Frjálsar
UMF Svarfdæla hlaut flest stig
félaga á innanhússmóti UMSE í
frjálsum íþróttum sem haldið var
á Dalvík um páskana og einnig á
aldursflokkamótinu sem fram fór
í sumar. Hvöt varð stigahæst
félaga á unglingamóti USAH í
frjálsum íþróttum. Héraðsmót
UMSE var haldið í júlí. Þar urðu
þau Cees van de Ven og Laufey
Hreiðarsdóttir stigahæst. Meist-
aramót íslands í frjálsum íþrótt-
urn 14 ára og yngri fór fram á
Húsavík í sumar. Mótið tókst vel
í alla staði og þótti góður undir-
>
Völsungar unnu sér sæti í 1. deild knattspyrnunnar í fyrsta sinn í sögu félagsins.