Dagur - 30.12.1986, Síða 7
30. desember 1986 - DAGUR - 7
Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri
handleikur hér forláta loftvog sem
var ein veglegra gjafa er KEA bár-
ust á aldarafmælinu.
við Dag. Konurnar ætlaði Gísli
að nota til fiskvinnslu en þó var
sá hængur á að þótt Gísli fengi
konur til Þórshafnar var ekki til
leiguhúsnæði fyrir þær. Gísli
sagði einnig að karlarnir væru
ekki jafn góðir í snyrtinguna og
konur, þeir virtust hafa „fleiri
þumalfingur“, eins og hann orð-
aði það.
10. Byggðastofnun ekki flutt
norður. Stjórn stofnunarinnar
tók þessa ákvörðun en talið hafði
verið líklegt að flutningur
Byggðastofnunar til Akureyrar
yrði að veruleika. Það vakti
athygli við afgreiðslu málsins að
framsóknarmenn í stjórn stofn-
unarinnar greiddu atkvæði gegn
flutningnum og Sigfús Jónsson
nýkjörinn bæjarstjóri á Akureyri
tók ekki þátt í afgreiðslunni.
11. Hann hefur sennilega ver-
ið að flýta sér ökumaðurinn sem
lögreglan á Akureyri hirti í Gler-
árhverfinu er verið var að mæla
hraða bifreiða þar. Þessi kom inn
í geisla radarsins á 107 km hraða
og hafði það helst upp úr krafs-
inu að vera sviptur ökuleyfi á
staðnum.
14. Heyskapur á Norðurlandi
gekk erfiðlega framan af sumri.
Þó rættist verulega úr er á leið og
þegar upp var staðið var heyfeng-
ur orðinn mjög þokkalegur bæði
að magni og gæðum.
21. „Vinsældalistinn er ógild-
ur þessa viku vegna stórsvindls
Skriðjökla,“ sagði Ásgeir Tómas-
son hjá Rás 2. Ragnar stórsöngv-
ari „Jöklanna“ mótmælti hástöf-
um en „Hesturinn“ komst ekki
inn í toppsætið að þessu sinni
þótt svo yrði skömmu síðar.
25. Rússarnir komu ög héldu
margir að styrjöld væri skollin á.
Sá ótti reyndist þó ástæðulaus, en
Rússarnir sem voru frá sovésku
vísindaakademíunni voru í Eyja-
firði við jarðhitaleit með spreng-
ingum og endurkastsmælingum.
28. „Það er sorglegt að missa
framhjá sér 1300 farþega vegna
hafíss í júní og júlí, en við verð-
um bara að sætta okkur við að
við búum á íslandi," sagði Gísli
Jónsson hjá Ferðaskrifstofu
Akureyrar eftir að fjögur
skemmtiferðaskip höfðu siglt
framhjá Akureyri vegna hafíss
úti fyrir Norðurlandi.
ÁGÚST:
6. Stórbruni varð á bænum Sól-
bergi í Eyjafirði. Hlaða og fjós
brunnu til kaldra kola og 2 kálfar
og nokkrir minkar drápust.
7. Lögreglan á Húsavík stóð í
ströngu. „Við erum auðvitað
með tárin í augunum,“ sagði einn
lögreglumanna þar er hann og
félagar hans stóðu í því að hella
niður bjór úr 2880 dósum á ösku-
haugunum. Bjórinn sem þarna
var um að ræða var smyglvarn-
ingur, en orðinn svo gamall að
ekki var um annað að ræða en
hella honum niður.
8. Mikið gekk á í deilu íbúa í
Rípurhreppi í Skagafirði og
hreppsnefndarinnar þar og gengu ,
bréfaskriftir á milli aðila. Við
hreppsnefndarkosningarnar þar
kom fram einn listi sem leiddi til
þess að hreppsnefndin var sjálf-
kjörin. Nokkrir íbúar hreppsins
mótmæltu þessu með því að neita
að sitja í nefndum sem þeir höfðu
verið skipaðir í. Hreppsnefndin
svaraði með bréfi þar sem sagði
m.a.: „Annars er það álit okkar
að þið aðstandendur þessa furðu-
lega plaggs gerið ykkur harla litla
grein fyrir hvaða afleiðingar
þetta frumhlaup ykkar kann að
hafa. ...
11. Hann hefur sennilega verið
að flýta sér drukkni ökumaður-
inn sem lögreglan á Akureyri
stöðvaði á 150 km hraða. Maður-
inn var eltur út úr bænum í átt til
Dalvíkur en bifreiðin fannst síð-
an á afleggjara að bæ á Árskógs-
strönd. Hafði hann reyndar ekið
útaf og rotaðist við það. Annars
vann hann engum öðrum skaða
og verður það að teljast mildi.
19. Akúr hf. fór fram á það við
Akureyrarbæ að bærinn keypti
hlutabréf í Sjallanum fyrir 10
milljónir króna. Því var hafnað
og síðar í þessum annál víkjum
við að gangi mála í Sjallanum.
29. Kaupfélag Svalbarðseyrar
var tekið til gjaldþrotaskipta, en
málefni þess höfðu verið mjög í
sviðsljósinu. Munur á skuldum
og eignum nam 126 milljónum
króna.
September:
1. Þrjú umferðaróhöpp komu til
kasta lögreglunnar á Akureyri
um helgina. Bíll valt í Öxnadal,
önnur bílvelta varð við Sólgarð á
laugardag og aðfaranótt sunnu-
dags lenti bíll á brúarhandriði á
Hörgárbrú. 2. „Ég held að ég
verði að svara því játandi að okk-
ur grunar að brennuvargur gangi
laus í bænum,“ sagði Tómas Búi
Böðvarssson slökkviliðsstjóri á
Akureyri við Dag. Talið er víst
að um íkveikju hafi verið í tveim-
ur tilvikum þegar kviknaði í húsi
við Eyrarveg og bíl í Fjólugötu.
Fólk er varað við að læsa húsum
sínum og safna ekki eldfimu rusli
á lóðum.
2. Ingvar Gíslason, alþingis-
maður, gefur til kynna að hann
muni ekki gefa kost á sér til fram-
boðs í komandi alþingiskosning-
um.
2. Siglfirðingar skora á Flug-
leiðir að endurskoða áætlunar-
flug til Sauðárkróks. Ástæðan er
óheppileg áætlun flugsins miðað
við snjómokstur á leiðinni Sauð-
árkrókur-Siglufjörður.
3. „Flakkarinn", hin færanlega
stafræna stöð Pósts og síma tengd
Þú ert lykillinn að
fararheill
í umferði
' •'Vs>É,,r
jr I
§ L'*4Bð t £ 411 L? 4 f Q ' » g!: g a' I k I £ 83 iw' * * >'
ÍmIÍImhmÉ
■ .y. ■■
Gerum
1987
að heillaári
FARARHEILL87
W
/HAK BIFREIDATRYGGINGAFÉLAGANNA
ÍUMFERÐ