Dagur - 30.12.1986, Qupperneq 13
30. desember 1986 - DAGUR - 13
Já eða nei
- Gunnar Rafn Jónsson
Okkur, mig og þig, langar að byggja .
hús. Það á að vera traust og gott hús.
Sérfræðingar á öllum sviðum svo sem
tæknifræðingar, arkitektar, rafvirkj-
ar, smiðir og múrarar eru kallaðir til
og beðnir að sjá um sinn þátt
verksins. Sannarlega reynum við að
forða húsinu okkar frá steypu-
skemmdum og myglu ef við eigum
þess kost. Það getur reynst okkur
erfitt og kostnaðarsamt að bæta tjón
og mögulega ógjörningur.
Við köllum einnig til sérfræðinga
þegar við fáum flókin vandamál, sem
við ráðum ekki við. Þetta gerði
Alþingi 7. maí 1981 er samþykkt var
þingsályktun um mörkun opinberrar
stefnu í áfengismálum. 17 manna
nefnd sérfræðinga var skipuð 2 árum
síðar. í bráðabirgðatillögum nefnd-
arinnar sem ríkisstjórninni voru
afhentar 1. nóv. 1983 var m.a. lagt til
að áfengis- og vínveitingastöðum
yrði ekki fjölgað næstu 2 árin. Ekki
var nú farið að ráðum sérfræðing-
anna, þar sem vínveitingastöðum
fjölgaði um 50% á ÍVi ári.
Hvers vegna ráðlögðu sérfræð-
ingarnir okkur þetta? Vegna þess að
neyslan eykst með fleiri stöðum.
Aukinni neyslu fylgja aukin vanda-
mál. Þú gætir þá sagt: „Það er allt í
lagi með mig. Ég passa mig. Ég
drekk aldrei of mikið.“ Því miður
reynist þetta ekki rétt. Það ætlar sér
enginn að verða ofdrykkjumaður.
En segjum sem svo að þú neytir
áfengis í hófi. Hvað þá með félaga
þinn? Er hann jafn sterkur á svellinu
og þú? Þú hjálpar ekki þeim félögum
þínum á Húsavík sem eiga við áfeng-
isvandamál að stríða með því að
opna áfengisútsölu. Ég hélt að þú
vissir að ein sterkasta aðferð dreif-
ingaraðila eiturlyfja er að senda
sífellt ókeypis eiturlyfjaskammta til
fyrrverandi sjúklinga, þar til þeir
ánetjast á ný.
Þú gerir málið ekki auðveldara fyr-
ir unglingana. Fram hefur komið í
könnun að þeir piltar, sem bjuggu í
þéttbýli þar sem hægara var að nálg-
ast áfengi en í dreifbýlinu, höfðu
13% líkur til að verða drykkjusjúkir
en aðeins 4% þeirra sem bjuggu í
dréifbýli áttu í hættu að verða
drykkjusýki að bráð.
En lítum aðeins nánar á áhrif
áfengisútsölu úr rannsókn Tómasar
Helgasonar o.fl. Þeir, sem drekka
áfram daginn eftir mikla drykkju í
prósentum af fjölda þeirra, sem
neyta áfengis eftir búsetu.
Karlar:
Reykjavík og nágrenni 5,0
Þéttb. með áfengisúts. 4,6
Þéttb. án áfengisúts. 2,1
Dreifbýli 2,3
Landið allt 4,1
í þessari töflu kemur í ljós að það
eru hlutfallslega fleiri karlar á svæð-
um þar sem áfengisútsala er sem •
halda áfram að drekka daginn eftir
mikla drykkju heldur en á þeim
svæðum þar sem engin áfengisútsala
er.
Áfengisneyslan sem persónulegt
vandamál eftir búsetu, (í prósentum
af þeim sem neyta áfengis).
Karlar
Reykjavík og nágrenni 12,5
Þéttb. með áfengisúts. 12,5
Þéttb. án áfengisúts. 8,3
Dreifbýli 8,4
Landið allt 11,3
Þarna kemur í ljós að það eru hlut-
fallslega fleiri karlar á svæðum með
áfengisútsölu sem telja áfengisneyslu
sína persónulegt vandamál heldur en
á svæðum þar sem engin áfengisút-
sala er. Þessar tvær síðastnefndu töfl-
ur benda eindregið til þess að máli
skipti hvort áfengisútsala sé í næsta
nágrenni eða ekki. í þessari könnun
eru konurnar svo fáar að ekki verður
lagt upp úr þeim tölum.
Önnur niðurstaða rannsóknanna
er að því fyrr sem farið er að neyta
áfengis þeim mun hættara er við að
verða ofdrykkju að bráð.
Lítum nú á fleiri niðurstöður og
kannanir. Staðreynd er að því.auð-
veldara sem er að nálgast áfengi
þeim mun meira er drukkið og því
meira sem drukkið er þeim mun stór-
kostlegra verður tjónið sem áfengis-
neysla veldur. Samkvæmt nýjum vís-
indarannsóknum er ljóst að tjón af
völdum áfengisneyslu fjórfaldast ef
neyslan tvöfaldast. Þrefaldist neyslan
verður tjónið nífalt o.s.frv. Heil-
brigðisstofnun SÞ (WHO) hvatti á
haustfundi sínum 1978 aðildarþjóðir
til að snúast gegn áfengisböli með
öllum tiltækum hömlum á dreifingu
og sölu. í skýrslu heilbrigðisráðherra
Bandaríkjanna til þingsins 1978 var
lagt til að dregið yrði úr því gífurlega
tjóni, er áfengisneyslu fylgir, með að
beita vissum hömlum. Meðal þess
sem þar er bent á er . . . að fækka
vínveitingahúsum og áfengisútsöl-
um .. .
Einnig segir í skýrslunni. „Það er
sérstakt áhyggjuefni að aukin áfeng-
isneysla unglinga felur í sér fyrirboða
um neysluvenjur á fullorðinsaldri."
Finnska áfengisrannsóknastofnunin,
Evrópudeild Heilbrigðisstofnunar SÞ
og Fíkniefnarannsóknastofnun Ont-
ariofylkis í Kanada hafa sameigin-
lega unnið að könnun á sambandi
áfengisneyslu og heilsufars. Af
niðurstöðum má nefna: „Fræðilegar
ályktanir og niðurstöður rannsókna
eru samhljóða: Aukningu heildar-
neyslu áfengis fylgir fjölgun ofneyt-
enda.“
Dæmi eru til sem sanna að hömlur
draga úr heildarneyslu og að neysla
eykst sé slakað á hömlunum. Þessi
dæmi varða m.a. aldurstakmörk til
áfengiskaupa og fjölda dreifingar-
staða.
Við skulum næst athuga, hver
þróunin varð eftir opnun áfengisút-
sölu á Sauðárkróki 1. des. 1983.
Yfirlit yfir skýrslugerð lögreglunn-
ar á Sauðárkróki 1984 (í sviga eru
tölur fyrir 1983).
í fangahús færðir ........ 81 (32)
a. v./ölv. á alm.færi .... 23 (12)
b. v./ölv. og óspekta
á alm.færi ............. 43 (12)
Ölvun við akstur .......... 50 (38)
Ekið á og stungið af ...... 12 ( 5)
Akstur bifr. án ökurétt... 12 ( 4)
Innbrot ................... 17 ( 4)
Þjófnaður ................. 27 (12)
Skemmdarverk .............. 16 ( 9)
Rúðubrot................... 26 ( 5)
Vinnuslys................... 7 ( 3)
Ölvun á almannafæri ...... 21 ( 0)
Áfengi tekið af ungl...... 5 ( 0)
Áfengi keypt f. ungl...... 6 ( 0)
Ég leyfi mér að fullyrða að stærsta
heilbrigðisvandamál íslensku þjóðar-
innar er neysla tóbaks, áfengis og
annarra vímuefna.
1. Algengasta dánarorsök úr
krabbameini, karla jafnt sem
kvenna, er lungnakrabbamein, að
mestum hluta vegna reykinga. Þá er
ótalinn þáttur reykinga í fjölmörgum
öðrum sjúkdómum svo sem lungna-,
hjarta- og æðasjúkdómum og
skemmdir á hinum ýmsu líffærakerf-
um af völdum áfengis eru vel
þekktar.
2. Áfengis- og fíkniefnamál er
ekkert . einkamál sjúklinganna
sjálfra. Kostnaður sænska samfélags-
ins vegna áfengissjúklinga er talinn
nema 29 þús. ísl. króna á mann á ári,
þar af þriðjungur vegna heilbrigðis-
þjónustu.
3. Áætlaður kostnaður vegna
áfengis á íslandi er áætlaður 3,5-5,5
milljarðar á ári.
4. 1984 voru 365 sjúkrarúm á ís-
landi fyrir áfengissjúklinga og vímu-
efnaneytendur, á 16 hælum, heimil-
um og deildum.
5. 85% af þeim sem gista fangelsin
eru þar vegna neyslu áfengis og ann-
arra vímuefna.
í vetur hefur verið þáttur í Sænska
sjónvarpinu sem heitir „Torra
fakta“. Þar fara menn ekki út í nein-
ar erfiðar læknisfræðilegar skýringar
eða staðtölufræði, þess í stað eru ein-
staklingar kallaðir til og beðnir að
skýra frá ýmsu því sem þeir sjálfir
hafa upplifað sem alkóhólistar eða
sem ættingjar eða vinir alkóhólista.
Eftir hvern þátt var síðan símatími
þar sem 50 alkóhólistar og ættingjar
þeirra sátu fyrir svörum og gat við-
talsfjöldinn farið yfir 10.000 á kvöldi.
Rík áhersla var lögð á það að hvert
og eitt okkar getur lagt sitt af mörk-
um til hjálpar. Það eiga allir sínar
döpru stundir. Þar getur þú hjálpað.
Freistingarnar eru margar. Þegar nær
dregur helgi verður baráttan harðari.
Okkur er það öllum fullvel kunnugt
Opið bréf til
Valdimars Bragasonar
„Ég fór fram á að þetta bréf
yrði birt í Bæjarpóstinum á
Dalvík og var það talið
sjálfsagt. Síðan kom í Ijós að
það var ritskoðað af ákveðnum
mönnum og þar af leiðandi var
komið í veg fyrir að það birtist.
Þess vegna fer ég fram á að
bréfíð fáist birt í Degi,“ sagði
Snorri Snorrason skipstjóri um
það bréf sem hér er og er ætlað
Valdimar Bragasyni bæjarfull-
trúa á Dalvík.
„Ég heyrði til þín í útvarpinu
hér á döguiium. Satt best að
segja varð ég bæði undrandi og
reiður að heyra þig, langreyndan
stjórnarformann Söltunarfélags
Dalvíkur, fjalla um málefni
félagsins á þann hátt, að þeir sem
á hlýddu fengu mjög ranga mynd
af gangi mála.
Eins og allir vita átti félagið í
verulegum fjárhagserfiðleikum á
umræddu tímabili eins og raunar
fjölmörg önnur hliðstæð fyrir-
tæki. Erfiðleikarnir stöfuðu af
ytri aðstæðum og reyndust tíma-
bundnir. En ég gat ekki betur
heyrt en þú fullyrtir að fyrirtækið
hefði orðið gjaldþrota, ef
ákveðnir aðilar hefðu ekki komið
því til bjargar. Það er ekki venja
fjársterkra aðila að „bjarga“
fyrirtækjum frá gjaldþroti með
því að kaupa í þeim hlutabréf á
margföldu nafnverði.
Þú nefndir líka að K.E.A.
hefði farið út í þessa fjárfestingu
að beiðni bæjarstjórnar Dalvík-
ur. Það er ekkert launungarmál,
að á lokastigi samninga bað
kaupfélagsstjóri bæjarstjórn að
óska bréflega eftir því við
K.E.A. að það yki hlut sinn í
Söltunarfélaginu. Bæjarstjórn
varð við þessari beiðni. Á sínum
tíma fordæmdir þú þessi vinnu-
brögð, taldir þau aldeilis óviðun-
andi enda í engu samræmi við
gang málsins.
Nú jæja, K.E.A. varð sem sagt
við beiðni bæjarstjórnar og þar á
bæ þurfa menn víst ekki að naga
sig í handabökin fyrir. Eða
skyldu fjárfestingar almennt skila
jafn góðum arði og hér hefur orð-
ið raunin á?
Jæja Valdimar, látuin þetta
gott heita, en ég er ennþá undr-
andi. Hvað gengur þér til með
þessum rangfærslum - ertu að
reyna að fela eitthvað, ertu
kannski að undirbúa eitthvað, þú
ert þó aldrei að hella þér í alvöru
út í pólitík?“
Snorri Snorrason.
að margir líða andlega og líkamlega
beint eða óbeint vegna áfengis. í
nánasta umhverfi alkóhólistans eru
oftast 5-6 manns sem líða. Fíkni-
efnavandamál eru oft á tíðum ekki
síður foreldravandamál en unglinga-
vandamál. I skoðanakönnun á veg-
um Landlæknisembættisins kvörtuðu
25% unglinga um vandræði á heimili
vegna áfengisneyslu.
Hér er opið bréf til foreldra úr
dagblaðinu Expressen í Svíþjóð 17.
nóv. 1986.
„Mamma og pabbi drekka. Skiljið
þið það ekki? Skiljið þið ekki að ég
hata það þegar þið komið full heim?
Skiljið þið ekki að ég skammast mín
fyrir ykkur þegar þið hittið ekki í
skráargatið? Skiljið þið ekki að ég
sekk niður úr jörðinni af skömm þeg-
ar fólk talar um ykkur í bænum?
Skiljið þið ekki að mér þykir vænt
um ykkur? Af hverju hættið þið ekki
að drekka fyrir - fyrir mig. Ykkar
elskandi dóttir."
Mörg okkar hér á Húsavík eiga
dætur og syni og viljum þeim vita-
skuld vel. Einn faðir sagði við mig
um daginn, að hann ætlaði að kjósa
með áfenginu svo að synir hans lærðu
að umgangast áfengi. Hann hefur
sjálfsagt sín rök fyrir því. Aðrir tala
um almenn mannréttindi og frelsi. Er
það frelsi að ögra sjálfum sér og
freista náunga síns með áfengi?
Frelsi er ekki að gera það sem mann
langar til, heldur það sem manni ber
að gera.
Við val búsetu á landinu vega flest-
ir og meta kosti og galla. Hættur og
freistingar sem bíða barna og ungl-
inga borgarinnar eru ógnvekjandi
miðað við okkar litla samfélag á
Húsavík. Persónulega hef ég mesta
trú á forvörnum eða svokölluðum
grunnvörnum. En þar má nefna:
Traust heimili, nægilegur tími for-
eldra til samvista við börn sín, upp-
eldisfræðsla í skólanum, gott samlíf,
aðhald í uppeldi samfara góðum
menntunarmöguleikum og tóm-
stundaiðju. Þetta eflir sjálfstraust og
sálarstyrk unglinga og gagnar þeim
vel á lífsbrautinni.
í afskiptum okkar af áfengisneyslu
og annarri vímuefnaneyslu má einnig
tala um ávanavarnir, sem beinast að
þeim, sem eru orðnir háðir vímuefn-
um, og síðan neyðarvarnir sem beitt
er þegar allt er þegar komið í óefni.
Á myndinni getum við séð hvernig
þessar varnir nýtast og hvað þær
kosta hlutfallslega.
(%) Fjöldi þess fólks
sem aðgerðir ná til
Kostnaður á mann
vegna mismunandi leiða
Við höfum feikigóða skóla á Húsa-
vík. Kennarar og nemendur leysa
störf sín ljómandi vel af hendi. Ekki
er annaö hægt en hrífast með þegar
börnin okkar, leika, syngja og dansa
á tónlistarfundum, leika frumsamin
leikrit, lesa eigin ljóð og sögur á for-
eldrakvöldum í skólanum, sjá þau
taka þátt í fjölmörgum íþróttagrein-
um, sjá gleðina geisla úr svip þeirra
er þau kyrja sunnudagaskólasöngv-
ana sína.
Þeirra er framtíðin,
okkar er ábyrgðin.
Ég sagði hér í byrjun að mig og þig
langaði að byggja hús, traust og gott
hús. Börnin okkar verða senn mátt-
arstólparnir. Við skulum vanda vel
til smíðinnar, þú og ég. Taktu ekki
óþarfa áhættu. Það verður erfitt að
bæta skaðann.
Ég hvet þig lesandi góður til þess
að taka afstöðu og kjósa í kosningun-
um 3. jan. 1987. Ég hvet þig til þess
að vega og meta, líta í eigin barm,
líta til náunga þíns og umfram allt-
þora að horfast í augu við staðreynd-
ir.
KJÓSTU - ÞÍN ER ÁBYRGÐIN
í tilefni af 70 ára afmæli Brunabótafélags
íslands bjóöum við viðskiptavinum og vel-
unnurum félagsins að líta inn til okkar,
mánudaginn 5. janúar n.k., og þiggja hjá
okkur kaffisopa.
BRUimB8lBFállCÍSU«1DS
Akureyrarumboð
Þórður Gunnarsson
w
Aramótafagnaður
Skriðjöklar skemmta
verð kr. 1.200-
Næturmatur, hattar og knöll innifalið í verði
Sfatöttut