Dagur - 30.12.1986, Qupperneq 16
Akureyri, mánudagur 30. desember 1986
KA-heimiIið
Nudd - Sauna - Ljósabekkir - Nuddpottur.
Opnunartími: Mánud.-föstud. frá kl. 8,00-12,00 og 13,00-23,00
Laugard. og sunnud. kl. 10,00-19,00.
Tímapantanir í síma 23482.
Akureyri:
Tveir
nefbrotnir
Tveir menn voru slegnir niður
á Akureyri um helgina. Annar
þeirra í Sjallanum aðfaranótt
sunnudags með þeim afleiðing-
um að hann ncfbrotnaði og
hinn nóttina áður í göngugöt-
unni og er talið að sá hafi einn-
ig nefbrotnað.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar eru bæði þessi mál upplýst
en í báðum tilfellunum var um
ölvun að ræða. Um helgina var
einnig brotist inn í verslanirnar
Heilsuhornið og Hólabúðina og
stolið skiptimynt og tóbaki. Auk
þessa var nokkuð um ryskingar
og rúðubrot í bænum um helgina
og talsvert um að menn væru
teknir grunaðir um ölvun við
akstur. gk-.
Húsavík:
Skorað á
bæjarstjórn
Á almennum borgarafundi
sem Áfengisvarnarnefnd
Húsavíkur boðaði til um helg-
ina var samþykkt tillaga um að
skora á bæjarstjórn Húsavíkur
að endurskoða samþykkt sína
um kosningu um opnun áfeng-
isútsölu sem fram á að fara í
bænum 3. janúar.
Rújnlega 100 manns voru á
fundinum og fluttu þeir Hörður
Harðarson 14 ára nemi og Gunn-
ar Rafn Jónsson formaður
Áfengisvarnarnefndar ræður.
Tillagan sem sagt var frá hér að
framan var samþykkt með öllum
þorra atkvæða gegn 5. Bæjar-
stjórn Húsavíkur hefur þegar
borist tillagan og mun hún verða
tekin fyrir á fundi bæjarráðs í
dag. IM.
Góður
túrhjá
Harðbak
I gær var verið að landa úr tog-
aranum Harðbaki EA hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa
hf. og var aflinn einn sá mesti
ef ekki sá mesti sem togari hjá
fyrirtækinu hefur komið með á
árinu.
Harðbakur var með um 250
tonn og var aflinn nær eingöngu
þorskur sem fékkst á Stranda-
grunni og Þistilfjarðargrunni í 13
daga veiðiferð. Hásetahlutur fyr-
ir túrinn mun vera á bilinu 60-70
þúsund krónur.
Harðbakur og Hrímbakur
munu verða í landi um áramótin.
Aðrir togarar ÚA voru inni um
jólin og eru farnir á veiðar. Peir
munu svo landa um eða eftir 10.
janúar og stöðvast síðan standi
þá yfir verkfall það sem boðað
hefur verið um áramótin. gk-.
Sjónvarp Akureyri:
Áramót
a
Akureyri
Fagnaðarfundir hjá fjölskyldu Halldórs er hann kom til Akureyrar á laugardaginn. Frá vinstri eru Gunnar Friðriks-
son faðir Halldórs, Magni bróðir hans, þá Halldór og móðir hans Guðrún Ilalldórsdóttir. Mynd: ri>b
Fyrsti þátturinn sem unninn er
sérstaklega fyrir Eyfirska sjón-
varpsfélagið verður sendur út á
gamlársdag kl. 16.55.
í þessum þætti er víða komið
við, en hann er nær eingöngu
byggður upp á viðtölum. Rætt er
við forsvarsmenn helstu stórfyrir-
tækja bæjarins um árið sem er að
líða og komandi ár. Þá er litið inn
á jólaball, rætt er við þá aðila
sem annast brennur í bænum á
gamlárskvöld og við skáta um
meðferð flugelda. Einnig er rætt
við forsvarsmenn veitingastaða
um hvað þeir bjóða gestum sín-
um upp á um áiamótin.
Þátturinn hefst sem fyrr sagði
kl. 16.55 þegar dagskrá ríkissjón-
varpsins lýkur og er klukkustund-
ar langur.
„Það þýðir ekkert að hætta“
- segir Halldór Gunnarsson, sem var 1. vélstjóri á Suðurlandi
„Spennan er tekin að sjatna og
þreytan farin að segja til sín.
Mér líður bara vel, er reyndar
með sár á fæti og hendi en
þetta er á góðum batavegi. Við
stóðum í sjó upp að hnjám og
stundum lengra í tæpa 11 tíma.
Við ætluðum að þrauka en
auðvitað vorum við fegnir þeg-
ar Nimrod þotan varpaði til
okkar heilum björgunarbát.
Tveir af okkur hefðu ekki mátt
standa öllu lengur í sjónum,“
sagði Halldór Gunnarsson
fyrsti vélstjóri á Suðurlandi
sem sökk á jólanótt.
Halldór sagðist ekki vita um
orsök slyssins frekar en aðrir.
„Skipið fór skyndilega að hallast
en vindurinn hélt á móti. Snögg-
lega tók það ákveðna stöðu yfir
bakborðið og þá fóru sírenur í
vélarrúminu að væla og ég fer
niður að hjálpa yfirvélstjóranum.
Hann sagði mér að það væri ekk-
ert annað að gera en drífa sig upp
og klæðast. Eftir það gengu
atburðirnir eldsnöggt fyrir sig.
En ég var aldrei hræddur nema
þegar ég var niðri í vél, enda er
það langversti staðurinn við þess-
ar aðstæður,“ sagði Halldór.
Hann lýsti hörmungunum og
þeirri þrekraun sem þeir gengu í
gegnum. Halldór er í Vélskólan-
um og á eftir eitt ár. Hann sagðist
„Það er greinilegt að talsverð-
ur samdráttur hefur orðið í
útleigu myndbanda á Akureyri
eftir að Eyfirska sjónvarps-
félagið hóf útsendingar. Það er
ekkert leyndarmál. Ég er í
beinum tengslum við Mynd-
bandaleigu . kvikmyndahús-
anna fyrir sunnan og þar er
málið statt þannig núna að
fimmtudagurinn er ekki svipur
hjá sjón. Utleiga aðra daga er
nærri því eins mikil og áður en
hún hefur samt minnkað um
10%,“ sagði Sverrir Sveinsson
'hjá Myndbandaleigu kvik-
stefna á það að klára skólann og
auðvitað yrði hann að vinna
næsta sumar, fara á sjó. „Maður
myndahúsanna á Akureyri.
Að sögn Sverris er þetta mikil
breyting frá því sem var því
fimmtudagar voru tekjuhæstu
dagar vikunnar. Fléstar kvik-
myndir sem Eyfirska sjónvarps-
félagið og Stöð 2 sýna eru búnar
að ganga lengi á myndbanda-
leigunum, það væru frekar fram-
haldsþættirnir sem fóik hefði
ekki séð áður.
„Þessi samdráttur er yfir alla
línuna. Breytingin sem verður
núna felst í því að fólk fer að
velja úr öllu því efni sem því
stendur til boða af meiri vand-
virkni en áður. Ég hef síður trú á
prófar það alla vega. Það þýðir
ekkert að hætta,“ sagði Halldór
að lokum. SS
að fólk fái sér almennt tvö sjón-
varpstæki," sagði Sverrir.
„Við höfum orðið fyrir sömu
reynslu og aðrir sem eru með
leigur hérna f bænum en mér
finnst samt sem áður að það sé
ekki nógu mikið að marka þenn-
an samdrátt enn sem komið er.
Þessi síðasti tími rétt fyrir jól er
rólegur á öllum myndbandaleig-
um hvort eð er. Ég held að ekki
sé hægt að segja mikið um áhrif
hinnar nýju sjónvarpsstöðvar á
myndbandaleigurnar fyrr en eftir
hátíðarnar," sagði Helgi Sigurðs-
son hjá Myndbandahöllinni.
EHB
Akureyri:
Samdráttur hjá
myndbandaleigunum
Hlíð og VMA:
Aðalgeir með lægstu tilboðin
Á laugardag voru opnuð tilboð
í 4. áfanga Verkmenntaskólans
á Akureyri og í gær voru opn-
uð tilboð í 6. áfanga ný-
byggingar Dvalarheimilisins
Hlíðar á Akureyri. Mörg til-
boð bárust í verkin eins og
vænta mátti en Aðalgeir Finns-
son hf. átti lægstu tilboðin í
bæði.
Tilboð í sjö.tta áfanga Dvalar-
heimilisins Hlíðar voru opnuð í
gær. Hér er um að ræða innrétt-
ingu og frágang nýbyggingar
dvalarheimilisins. Aðalgeir
Finnsson hf. var með lægsta til-
boðið, 84,66% af kostnaðaráætl-
un. Híbýli hf. var með næstlægsta
tilboðið, 88,09%, Norðurverk hf.
88,29%, S.S. Byggir 92,54%,
Fjölnir sf. 88,54%. Jón
Björnsson, Ljósgjafinn, Blikk-
virki og Valsmíði buðu saman og
var tilboð þeirra 94,41%. Áætl-
aður kostnaður er kr. 50.760.835.
Lægsta tilboð var að krónutölu
kr. 42.972.444 en hæsta tilboð kr.
47.923.384.
„Kostnaðaráætlunin er að
mínu mati allt of lág, ég held að
þar skakki einum tíu prósent-
um,“ sagði Hörður Tuliníus hjá
Híbýli hf. um kostnaðaráætlun
við 4. áfanga VMA, innréttingar
og frágang stjórnunarálmu.
Kostnaður var áætlaður kr.
8.855.000. Lægsta tilboðið var frá
Aðalgeiri Finnssyni hf., kr.
8.513.159 sem er 96,1% af áætl-
uðum kostnaði. Þrjú önnur til-
boð bárust og voru þau öll fyrir
ofan kostnaðaráætlun. SJS bauð
kr. 9.012.618, Norðurverk hf. var
með tilboð upp á kr. 9.741.878 og
Híbýli hf. bauð kr. 9.896.644.
EHB