Dagur - 21.04.1987, Side 3

Dagur - 21.04.1987, Side 3
21. apríl 1987 - DAGUR - 3 tvær í Safnahúsinu á Húsavík, á þessar sýningar hefur komiö fjöldi gesta og ég hef selt vel. Þetta er ekki nóg til að lifa af, maður verður að hafa eitthvað annað með en þó ég hafi lítið unnið við annað að undanförnu er ég samt lifandi. Að vísu veitir maður sér ekki mikið og verður að lifa af nægjusemi. Það er ákaf- lega gaman að sýnæsérstaklega í sinni fyrri heimabyggð og eins hér, á Húsavík þar sem maður þekkir fólkið og tækifæri gefst til að sjalla við það, því góð aðsókn hefur verið að sýningunum mín- um bæði á Vopnafirði og Húsa- vík. Þó hefur verið lélegri aðsókn að sýningum hér síðustu árin og fáar sýningar hafa verið haldnar. Ég hef tekið eftir því að þvf fleiri sem sýningarnar eru, því betri er aðsóknin. Eitt haustið voru fjór- ar sýningar á einum og hálfum mánuði og þá var aðsókn mjög góð en svo er eins og staðurinn gleymist ef hann er ekki í umfjöllun. Að vísu var met- aðsókn að stóru sýningunni sem Gunnar Rafn Jónsson stóð fyrir til styrktar sumarbúðunum við Vestmannsvatn." - Kári, hefurðu lært myndlist? „Ég verð bara að segja mcð stolti eins og Gunnar Örn Gunn- arsson hefur sagt og reyndar fleiri góðir myndlistarmenn að ég sé sjálfmenntaður myndlistarmaður. Ég er það að mestu leyti og gall- inn við það er að maður er lengur að kynnast ýmsum efnum og þarf að prufa sig áfram, en það er lær- dómsríkt. Ég er ekki á móti skólanum en þegar ég var yngri sá ég enga möguleika á að fara í myndlistarskóla þó að mig langaði til þess, eftir á sé ég að þetta hefði ekki verið nokkurt mál. Tíðar- andinn var þannig að maður varð að fara í einhverja vinnu svo maður gæti séð fyrir sér. Þegar ég fór að búa á Húsavík var ekki um margs konar framhaldsnám að ræða nema iðnnám, ég var kom- inn með fjögurra manna fjölskyldu og þá þótti gott að geta lært á kaupi. Ég valdi húsasmíði og vann við hana til 1977 en þá fór ég að vinna hjá kaupfélaginu. Þegar ég kemst yfir upplýsing- ar um vinnuaðferðir og efni í blöðum eða myndlistarbókum þá koma þær mér ekki alltaf á óvart því ég er oft búinn að vinna svona sjálfur, hef fundið þetta út og er nokkurn veginn á réttri leið, en samt sem áður er maður alltaf að læra eitthvað nýtt.“ - Hvert er þitt uppáhalds við- fangsefni? „Það hefur alltaf verið náttúr- an og landslag. Ég er ábyggilega undir töluverðum áhrifum frá Hring Jóhannessyni. Fyrstu sýn- ingu hans sá ég 1966 og þá var ég mjög hrifinn af hvað hann gat gert góða inynd af ekki neinu, mótívin voru þröng. Þegar ég var að byrja að mála sem unglingur heima þá vildi fólk helst fá mynd- ir af öllum sjóndeildarhringnum, allt þurfti að komast fyrir á einni mynd. A sýningu Hrings upp- götvaði ég að myndefnið þarf ekki að vera svo margbrotið, þetta eru fyrst og fremst áhrifin sem ég varð fyrir hjá Hring og það koma margir fleiri til en fólk hér þekkir Hring vel og bendlar mig við hann. Mér finnst það ekkert sárt því ég er mjög hrifinn af honum. Ég hef unnið mikið með olíukrít, bæði vegna þess að fyrst bjuggum við þröngt og eftir að fluttum í okkar eigið hús vann ég á borðstofuborðinu og þá var þægilegt að ganga frá olíukrítinni og ekkert sull í kringum mann. Mér hefur verið olíukrítin mjög kær og mér er sagt að ég hafi náð ágætis tökum á henni. Á þessari sýningu eru flest verkin unnin með olíu m.a. vegna þess að nú hef ég góða vinnuaðstöðu í bíl- skúrnum, mótívin á myndunum eru að mestu úr fjörunni." - Að lokum Kári, hvað færðu út úr því að fást við myndlistina? „Þetta er erfið spurning, ég hef í sjálfu sér aldrei hugsað út í það hvað maður fær út úr þessu. Það er viss ánægja að vinna við verkið, þetta er glíma og oft er maður óánægður en stundum er maður sæmilega ánægður. Þetta hefur verið hluti af mínu lífi alveg frá því að ég man fyrst eftir mér. Það voru ekki mörg mál- verk í húsum fyrir austan, þar sem ég ólst upp, fyrstu málverkin sem ég sá voru hjá kaupfélags- stjórahjónunum heima, en þau áttu nokkrar myndir eftir Kjarval. Okkur krökkunum var alltaf boðið í jólaboð til þeirra og ég hvorki drakk kakóið né borð- aði brauðið því mér var svo star- sýnt á eina stóra mynd á veggnum. Fyrst fannst mér þetta vera gróft klessuverk sem ég sá ekki neitt út úr, en þegár við sett- umst til borðs fór ég að sjá ýmis- legt út úr myndinni. Frúin hélt að ég væri lystarlaus eða veikur því ég glápti bara á þessa mynd og aðrar. Þannig hefur alltaf blund- að áhugi hjá mér, en fyrsta mál- verkasýning sem ég sá var hjá Veturliða Gunnarssyni á Vopna- firði en sú stórkostlegasta var sýning Kára Eiríkssonar í gamla Listamannaskálanum.“ IM Fyrirtæki Einstaklingar Framieiðum allar stærðir og þykktir plastpoka M.a.: Heimilispoka ★ Haldapoka ★ Ruslapoka ★ Iðnaðarpoka Óseyri 1, sími 96-22211 • 600 Akureyri Sölustjóri: Pöntunarsími 96-26888. Eigandi: Sjálfsbjörg Akureyri Ingólfur Viktorsson, formaður landssamtaka hjartasjúklinga, afhenti um daginn vandaðan blóðþrýstingsmæli og hjartalínuritstæki til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir veitti tækjunum viðtöku fyrir hönd FSA og þakkaði hann samtökunum fyrir gott og mekilegt starf síðan þau voru stofnuð 8. okt. 1983. _____________________________________________________________________Mynd: EHB Könnun markaðsnefndar: Dregiö hefur úr kaupum á lambakjöti - kjötið þó almennt talið gott Fólk hefur í talsverðum mæli dregið úr innkaupum á lamba- kjöti og virðist samdrátturinn ganga jafnt yfír alla aldurs- flokka. Þó þykir yfírgnæfandi meirihluta lambakjöt mjög gott eða gott. Verð er í ríkum mæli nefnt sem ástæða minnk- andi lambakjötskaupa og birgðasöfnunar. Stór hluti treysti sér samt ekki til að segja til um hvað lambalæri kostar. Þetta kemur fram í markaðskönnun sem Hag- vangur gerði fyrir Markaðs- nefnd landbúnaðarins. Úrtak- ið var 1000 manns og svöruðu 779 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára, eða 77,9%. Könnunin var gerð dagana 19.- 26. mars. í könnuninni voru þátttakend- ur spurðir ýmissa spurninga um málefni landbúnaðarins með til- liti til neyslu á lambakjöti. Meðal annars voru þátttakendur spurðir hvernig þeir hefðu upplifað umræðuna um landbúnaðarmál og álitu 43,5% að almenn umræða um málefni landbúnað- arins hafi verið fremur neikvæð eða neikvæð, en 33,5% töldu hana jákvæða eða fremur já- kvæða. Af þeim sem álitu umræðuna vera neikvæða var mikill meirihluti þeirrar skoðun- ar að umræðan hafi mótast af ósanngirni. Á meirihluta heimila hafði ver- ið keypt lambakjöt á síðastliðn- um hálfum mánuði og á 16% heimila hafði lambakjöt verið í matinn um síðustu helgi, þar á eftir komu kjúklingar með 13% og nautakjöt með tæp 12%. Þeir sem ekki höfðu lambakjöt í mat- inn töldu í rúmum 40% tilvika að fyrir því hafi ekki verið nein sér- stök ástæða. Hins vegar nefndu rúm 17% að verð á lambakjöti væri of hátt og hefði þess vegna ekki verið í matinn umrædda helgi. Rúm 52% álitu að innkaup á lambakjöti til heimilisins hefði minnkað frá því sem þau voru fyrir þremur árum, þar af töldu rúm 27% að um verulega minnk- un hafi verið að ræða. Tæp 59% sögðu að verð á lambakjöti þyrfti að lækka verulega til þess að þeir myndu auka neyslu sína, en um 17% töldu að þeir myndu ekki auka neyslu sína frá því sem hún væri nú. Meirihluti var fylgjandi áfram- haldandi niðurgreiðslum á lambakjöti, eða um 58%, en um 26% álitu að framleiðslukostnað- ur ætti að koma fram í hækkuðu vöruverði. Um 36% þátttakenda töldu að meginástæðan fyrir auk- inni birgðasöfnun á lambakjöti væri vegna þess að lambakjötið væri of dýrt, en um 21% nefndu offramleiðslu eða skipulagsleysi. Rúmlega þriðjungur aðspurðra töldu að lækka ætti verðið til að minnka birgðirnar, en um 26% álitu að endurskipulagning fram- leiðslunnar stuðlaði að minnk- andi birgðum. Þær upplýsingar sem úr könn- un þessari fengust munu nýtast við markvissari markaðssetningu á íslensku lambakjöti og við al- menna stefnumótun í framtíð- inni. mþþ Nýtt fjáimálafyrirtaeki Kaupþing Norðurlands hf. er nýstofnað fjármálafyrirtæki sem mun veita einstaklingum og fyrirtækjum á Norður- landi alhliða fjármálaþjónustu m.a. á sviði verðbréfa- viðskipta. Fyrirtækið mun annast: ★ Verðbréfamiðlun. ★ Sölu Einingabréfa og Lífeyrisbréfa. ★ Skuldabréfaútboð fyrir fyrirtæki. ★ Hönnun og aðstoð við útgáfu skuldabréfa. ★ Fjárvörslu. ★ Kröfukaup, m.a. kaup á Euro-Visa sölunótum. ★ Fasteignasölu - verðmat fasteigna. ★ Núvirðingu kaupsamninga, mat á greiðslubyrði. ★ Gjaldmiðilsráðgjöf. Skrifstofa félagsins Ráðhústorgi 5, Akureyri, er opin daglega frá kl. 9-12 og 13-17. (Gengið er inn frá Skipagötu). Kaupþing Norðurlands hf. Ráðhústorgi 5 • Pósthólf 914 • 602 Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.