Dagur - 24.04.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, föstudagur 24. apríl 1987 77. tölublaö
Norðurlandskjördæmi eystra:
Talningu
lokið á
5. tímanum
- ef vel gengur
- um 17.900 manns á kjörskrá í 43 kjördeildum
Þaö hefur víst ekki fariö fram
hjá neinum, og ætti ekki að
gera það, að á morgun fara
fram kosningar til Alþingis
Islendinga. í Norðurlandskjör-
dæmi eystra eru um 17.900
manns á kjörskrá, 1600 fleiri
en í síðustu kosningum. Kosið
er í 43 kjördeildum, sú stærsta
er á Húsavík, með um 1700
manns, en sú minnsta er í
Fjallahreppi og í Þverárkjör-
deild í Reykdælahreppi þar
sem eru um 20 á kjörskrá.
Kjördeildirnar eru einni færri
en í síðustu kosningum. Þá voru
9 kjördeildir á Akureyri en þær
eru nú 8 með um 1200 kjósend-
um hver.
Kjörstöðum verður lokað
klukkan 23:00 en strax klukkan 8
verður hafist handa við að flokka
atkvæðin. Talning getur hins veg-
ar ekki hafist fyrr en öll atkvæðin
hafa borist og sagðist Ragnar
Steinbergsson formaður yfirkjör-
stjórnar vonast til að það gæti
orðið um klukkan eitt.
Þetta er þó mjög komið undir
veðurguðunum því úr Norður-
Þingeyjarsýslu og hluta af S.-Þing-
eyjarsýslu koma kjörkassarnir
með flugvél í fylgd lögreglu-
manna. Kjörkassi úr Grímsey
kemur einnig með flugi en kjör-
kassar frá öðrum kjördeildum
verða fluttir með bílum.
Ragnar sagðist vonast til að
talningu yrði lokið á fimmta
tímanum. Atkvæðin verða talin í
Oddeyrarskóla eins og undanfar-
in ár og talningin er í höndum
yfirkjörstjórnar. Að kosningun-
um vinna hins vegar að minnsta
kosti 200 manns ef allt er talið.
í Norðurlandskjördæmi eystra
eru níu listar í framboði. Kjör-
seðillinn er um 40 cm á lengri
kantinn eða 20 cm samanbrotinn.
Það er svipað og lengd minnstu
kjörkassanna og að sögn Ragnars
hafa athugasemdir borist vegna
þessa frá undirkjörstjórnum í
minnstu deildunum. ET
Kosningahandbók Dags
— Bls. 8 og 13
Ertu hjátrúarfullur?
- Bls. 12
Strengir í vöðvum
-Bls.9
Hvað segir Hallfreður
um kosningamar?
-Bls.15
Andrésar Andar-leikarnir
Andrésar Andar-leikarnir voru settir í fyrrakvöld og eru á fjórða hundraö ungmenni skráð til keppni. Eins og sést
á myndinni þá mættu menn ákveðnir til leiks. Mynd: ri*b.