Dagur - 24.04.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 24.04.1987, Blaðsíða 3
24. apríl 1987 - DAGUR - 3 Guðmundur Bjarnason: Verkin sýna merkin Þá er komið að lokum þessarar kosningabaráttu. Staða okkar framsóknarmanna hér í kjör- dæminu var í upphafi nokkuð erfið, þar sem ekki náðist full- komin samstaða um framboðs- listann. Var hann þó ákveðinn af flokksfólkinu í kjördæminu og án aílrar íhlutunar „að sunnan“. í lokabaráttunni síðustu dagana hefur hins vegar myndast mikil samstaða og auðfundið er, að fólki er ljóst mikilvægi þess að Framsóknarflokkurinn fái góð kosningaúrslit, svo hann geti áfram gegnt forystuhlutverki, bæði hér í þessu kjördæmi og á landsvísu. Stefnufesta og ábyrgð Fólk virðir þá stefnufestu og ábyrgð sem flokkurinn hefur sýnt á kjörtímabilinu og skilur mikil- vægi þess að þeim árangri sem náðst hefur verði ekki fórnað með því að kjósa yfir sig sundr- ungar- og upplausnaröfl. sem undanfarið hafa reynt að gera sig gildandi og gefið kjósendum alls- kyns kosningaloforð og gylliboð, án nokkurra útskýringa á því hvernig við þau skuli staðið. Fyrir kosningarnar 1983 sagði Framsóknarflokkurinn hvað þyrfti að gera. Þjóðin sætti sig við þær fórnir, bæði einstaklingar, atvinnurekstur og opinberir aðil- ar. Þetta kostaði samdrátt, sem því miður bitnaði meira á lands- byggðinni en höfuðborgarsvæð- inu. Nú hefur tekist að skapa atvinnulífinu traustan grunn og það er að skila sér í nýrri upp- byggingu um land allt. Traust efnahags- og atvinnulíf er for- senda þess áð hægt sé að halda þeirri uppbyggingu áfram. Kjölfestan Framsóknarflokkurinn hefur ver- ið kjölfestan í íslenskum stjórn- málum á undanförnum árum og áratugum og átt stærstan þátt í uppbyggingu þess velferðarþjóð- félags sem við búum nú við. Framsóknarflokkurinn hefur tek- ið mið af breyttum þjóðfélagsað- stæðum og mun gera svo áfram, því stjórnmálaafl sem ekki gerir það er staðnað. Framsóknar- flokkurinn hefur á hinn bóginn haldið fast við sín grundvallar- sjónarmið, sem byggjast á félags- hyggju og samvinnuhugsjón. Framsóknarflokkurinn mun berj- ast gegn því að frjálshyggjuöfl nái yfirhönd í heilbrigðis-, mennta- og menningarmálum þjóðarinnar og halda áfram að styrkja og styðja það samneyslu- þjóðfélag sem tryggir stöðu þeirra sem minna mega sín. „Eg er bjartsýnn á góða útkomu“ -segir Siguröur Haraldsson, kosningastjóri B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra „Þetta er búin að vera mikil vinna en skemmtileg og það úrvalslið sem hér hefur unnið í sjálfboðavinnu nótt og dag síð- ustu vikurnar, hefur staðið sig frábærlega. Þá hefur ekki dregið úr ánægjunni, sá mikli meðbyr sem við höfum fundið að er með Framsóknarflokkn- um og ég er því bara bjartsýnn á góða útkomu,“ sagði Sigurð- ur Haraldsson, kosningastjóri Framsóknarflokksins á Norðurlandi eystra, er hann var inntur eftir því hvernig kosningabaráttan hafi gengið fram að þessu. Hann sagðist fyrst og fremst vilja þakka það góðri málefna- stöðu, markvissum stefnumálum og síðast en ekki síst frábærum frambjóðendum, hvað andinn væri góður í dag. „Eg vil nota þetta tækifæri til að korna á framfæri þakklæti til fjölmargra stuðningsmanna Framsóknarflokksins fyrir mjög góðar undirtektir við þeim gíró- seðlum sem við sendurn út til að afla fjár í kosningasjóðinn. Þeirra framlag hefur gert það að verkum að við höfum getað stað- ið að svo fjölbreyttri og skemmti- legri kosningabaráttu sem rauti ber vitni.“ Sigurður sagðist vilja mitina fólk á að kjósa snemma á morgun og hafa samband við kosninga- skrifstofuna á Hótel KEA. ef þaö vildi láta sækja sig. Þar vcrður Sigurður Haraldsson. boðið upp á kosningakaffi á morgun og um miðnættið hefst svo kosningavaka Framsóknar- flokksins og stendur hún fram á næsta dag. „Eg minni á að stuðningur við Framsóknarflokkinn cr örugg- asta leiðin til að tryggja áfram- haldandi öfluga stjórn landsmála. Þá hefur frammistaða Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra sýnt, svo ekki vcrður um villst. að þar fer sá maður sem langhæf- astur er til að leiða næstu ríkis- stjórn. Um það eru flestir sam- mála. Hvcrt einasta atkvæði greitt Framsóknarflokknum á sinn þátt í að svo megi veröa." sagði Sigurður Haraldsson að lokum. BB. Rannsóknir á lífríki Mývatns: Silungsveiðin í fyrra sú mestafrá1957 - Andasteggjum hefur fækkað um 1000 frá árinu 1985 Guðmundur Bjarnason. Verkin sýna merkin Við frambjóðendur Framsóknar- flokksins í þessu kjördæmi viljum að kjósendur virði og meti þá stefnufestu sem flokkurimí hefur sýnt - meti hann af verkum sín- um þegar það gengur að kjör- borðinu á morgun. Verkin sýna merkin. í nýútkomnu fréttabréfi rann- sóknarstöðvarinnar við Mývatn kemur fram að í hefðbundinni fuglatalningu í Mývatnssveit og Laxárdal sl. sumar hafi anda- steggjum fækkað um þús- und frá árinu 1985. í talning- unni sáust sjö þúsund steggir en það er um fimm þúsund og fimm hundruð færri en þegar stofninn var í hámarki 1983. Mest var af fugli í Álftavogi og Bekraflóa, í Neslandsvík, austan Geiteyjar og á vestanverðum Ytriflóa. Ef miðað er við árið 1985 fækkaði skúfönd og hrafns- önd mest, eða um helming. Þá fækkaði duggönd og rauðhöfða nokkuð en húsönd, gargönd og toppönd stóðu í stað. Meira var af straumönd en sést hefur undanfarin tíu ár, einnig er talið öruggt að hávellu hafi fjölgað talsvert. Veiðimálastofnun hefur um árabil staðið fyrir rannsóknum á lífríki Mývatns og má skipta þeim í nokkra höfuðþætti. Þeir eru: Athugun á áhrifum dýpkun- ar vegna kísiligúrnáms í Ytriflóa á lífríki flóans, áhrif súrefnis- þurrðar í Syðriflóa á mýflugu- stofna, rannsóknir á lífsferlum mikilvægustu mýflugnategunda og útbreiðslu þeirra í Syðriflóa og rannsóknir á fiskstofnum og fæðu fiska í vatninu. Ákveðið hefur verið að láta rannsóknir á áhrifum súrefnis- þurrðar í Syðriflóa á mýflugna- stofna ganga fyrir á þessu ári en bíða með úrvinnslu gagna úr Ytriflóa. Rannsóknir fyrri ára sýna að á vetrum staðnar vatn við botninn og er hitastig þess um fjórar gráður vegna hitaleiðni frá botninum. Þetta vatn verður súr- efnissnautt og beinast rannsóknir nú að því að kortleggja þau svæði Mývatns þar sem súrefni þrýtur yfir vetrarmánuðina. Áætlað er að ljúka fyrsta áfanga þessara rannsókna á árinu. Ástand silungastofna í Mývatni er mjög gott og hefur veiðin í vatninu ekki verið meiri frá árinu 1957. í fyrra veiddust 46 þúsund silungar, þar af 43.600 bleikjur. Þegar aflinn er skoðað- ur nánar kemur í ljós að þrír árgangar standa að mestu undir veiðinni en þetta eru árgangarnir 1983, 1982 og 1981. Þá kom í ljós að vaxtarhraði silungsins var mun meiri í Syðriflóa en í Ytriflóa. EHB Ég hafna öfgastefnum Ég kýs Framsókn! Sigurður Ingólfsson Bílvirki, bílasala Daihatsu Charade væntanlegir. Úrval af notuðum Daihatsu bílum á staðnum. Vantar allar gerðir bíla á skrá og á staðinn. Bílvirki, bílasala Fjölnisgötu 6, Akureyri, sími 27255.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.