Dagur - 27.05.1987, Síða 1
NotarþúCfio?
Þjónusta
í miðbænum
KARL
GLERAUGNAÞJONUSTAN DAVÍÐSSON
SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 - 602 AKUREYRI - SÍMI24646
Húsbmni á
Skagaströnd
- Maður brenndist illa
Gamalt hús á Skagaströnd
eyðilagðist í eldi síðastliðna
nótt. Einn maður var í húsinu
þegar eldurinn kom upp og
slapp hann út um glugga en
brenndist nokkuð og skarst.
Eldsins mun hafa orðið vart á
sjötta tímanum og var þá orðinn
nokkuð magnaður og mikinn
reyk lagði upp frá húsinu enda
þekjan einangruð með torfi og
spónum. Eigandi hússins var ekki
heima en bróðir hans var einn í
Fjörkippur í
áburðarsölu
húsinu og komst út um glugga og
í næsta hús. Maðurinn var illa
brenndur að sögn læknis á Héraðs -
hælinu á Blönduósi og því var
þyrla Landhelgisgæslunnar feng-
in til að flytja hann á sjúkrahús
í Reykjavík. Einnig hafði hann
hlotið slæma skurði. Talið er lík-
legt að eldurinn hafi kviknað út
frá rafmagni og að sögn lögreglu
virðist sem hann hafi verið mest-
ur við ísskáp sem stóð á ganginum
framan við herbergið sem maður-
inn svaf í. Húsið sem heitir Sæból
er mjög illa farið og sumir telja
ónýtt. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn en nokkurn tíma tók að
slökkva glæður í einangrun og
var höfð vakt við húsið nokkurn
tíma eftir að slökkvistarfi var
lokið. G.Kr.
Sæból á Skagaströnd er mjög illa farið eftir brunann. Maðurinn komst út um gluggann sem er lengst til hægri á
myndinni.
Húsavík"
Um 30 jarðskjálftar í fyrrinótt
„Það hefur verið gífurlega
mikið um áburðarpantanir síð-
ustu daga og hafa verið pöntuð
ein 200 tonn á stuttum tíma.
Það er eins og bændur séu
eitthvað að taka við sér með
áburðarkaup eftir að hafa ver-
ið tvístígandi í vetur,“ sagði
Sigtryggur Björnsson í Kaup-
félagi Skagfirðinga þegar hann
var spurður um áburðarkaup
bænda nú í vor. Ekki er ólík-
legt að hin góða tíð undan-
farna daga, sem drifíð hefur
grasið upp úr jörðinni hafí orð-
ið til að ýta undir áburðar-
kaup.
Sigtryggur sagði erfitt að segja
til um það hve áburðarkaup
bænda yrðu mikil miðað við síð-
asta ár. Nú væri kominn rúmlega
helmingur af sölu síðasta árs og
sér sýndist þetta ætla að verða
svipað og í fyrra. Því virtist eins
og áhrifa niðurskurðar vegna
riðu og búháttabreytinga ætlaði
ekki að gæta í minnkandi áburð-
arsölu eins og menn höfðu búist
við. Hins vegar sagði hann það
greinilegt að bændur stæðu nú
betur en áður við þær áburðar-
pantanir sem þeir hafi gert og
benti það til þess að menn hefðu
sparað of mikinn áburð á síðasta
ári og ætli ekki að brenna sig á
því sama nú. -þá
Fasteignaverð á Akureyri
hefur hækkað mjög mikið frá
því í fyrra. Þannig hafa
vinsælustu stærðirnar, þ.e.
3ja og 4ra herbergja íbúðir,
hækkað um 50-60% frá því í
júlí og meirihluti þeirrar
hækkunar hefur átt sér stað
síðustu þrjá mánuði, eða frá
því að áhrifa nýja húsnæð-
islánakerfísins fór að gæta að
einhverju marki. 2ja her-
Um 30 jarðskjálftar urðu á
Húsavík í fyrrinótt og voru
tveir þeirra stærstir, sá fyrri
kom 43 mín. 32 sek. yfír tvö og
mældist 4,2 stig á Richter en
hinn mældist 50 sek. síðar og
var 4 stig. Fyrsti skjálftinn varð
kl. 12:34, um hálftíma síðar
kom skjálfti sem mældist 3 stig
og nokkrir skjálftanna mæld-
ust um 2,5 stig.
Ekki er vitað um neitt tjón eða
óhapp af völdum skjálftanna en á
stöku stað skekktust myndir á
veggjum og hlutir duttu niður úr
hillum.
Flestir þeir Húsvíkingar, sem
Dagur hafði tal af í gær, vöknuðu
við stærstu jarðskjálftana en yfir-
leitt kipptu þeir sér ekki upp við
kippina. „Jarðskjálftinn truflaði
mig ekkert en það var verra með
skjálftann í konunni," sagði einn
viðmælenda blaðsins. Annar
sagðist aldrei hafa ætlað að sofna
aftur vegna láta í páfagaukunum
sínum, einn sagðist hafa verið
hræddur um að skorsteinninn
væri að detta af húsinu sínu og
bergja íbúð á Akureyri í dag
kostar u.þ.b. það sama og 3ja
herbergja íbúð kostaði fyrir
ári. Aðrar fasteignir, bæði
smærri og stærri, hafa einnig
stigið jafnt og þétt í verði og
framboð er minna en eftir-
spurn.
Þetta kernur fram í viðtali í
blaðinu í dag við Pétur Jósefs-
son, reyndan fasteignasölu-
annar að allir lausir og léttir mun-
ir í íbúðinni hefðu farið af stað.
„Þetta voru bölvuð læti,“ sagði
ein konan en þegar sumir voru
spurðir í gærmorgun hvort þeir
hefðu vaknað við skjálftann,
Á morgun verður haldinn á
Hjalteyri stofnfundur hlutafé-
lags um lúðueldi í Eyjafírði.
Hlutafjárloforð eru þegar
komin frá um 20 aðilum við
mann á Akureyri. Hann telur
jafnframt að fasteignaverð á
Akureyri sé sífellt að nálgast
markaðsverð fasteigna í
Reykjavík og sé nú 75-80% af
því sem þar tíðkast. Einnig
kemur fram að Akureyririgar
eru farnir að fjárfesta í nýjum
íbúðum aftur, eftir langt sam-
dráttartímabil í slíkum bygg-
ingaframkvæmdum á Akureyri.
Sjá bls. 5
svöruðu þeir bara: „Hvaða
skjálfta?“
Upptök jarðskjálftanna eru
talin vera á Skjálfandaflóa um
miðja vegu milli Flateyjar og
Húsavíkur. Miklir jarðskjálftar
Eyjafjörð, alls fyrir um 4,5
milljónum, en einnig er von á
hlutafé frá Þróunarfélagi
íslands og Byggðastofnun.
Að sögn Inga Björnssonar
framkvæmdastjóra Iðnþróunar-
félagsins voru undirtektir svipað-
ar og reiknað var með. Kostnað-
aráætlun ársins hljóðaði upp á 9
milljónir en hægt er að komast af
með minna fé. Einnig gera menn
sér vonir um að einhverjir styrkir
fáist til verkefnisins, frá innlend-
um og erlendum aðilum og þegar
hefur fengist loforð frá fóður-
framleiðandanum Skretting A/S í
Noregi, sem þarna sér bæði
markað fyrir fóður og samstarfs-
möguleika í því að þróa lúðufóð-
ur.
Stærstu hluthafarnir af heima-
aðilum eru Akureyrarbær með 1
milljón, Iðnþróunarfélagið og
ÚA með um 650 þúsund hvort og
Arnarneshreppur með um hálfa
milljón. Aðrir hluthafar eru m.a.
ístess, Krossanesverksmiðjan,
KEA og Samherji.
hafa orðið á Húsavík, að meðal-
tali einu sinni á öld og Hjörtur
Tryggvason sagði að skjálftarnir í
fyrrinótt gætu hugsanlega verið
undanfari stærri skjálfta. Sjá nán-
ar í viðtali við Hjört á bls. 3. IM
íslandslax hf. í Grindavík hef-
ur verið með rannsóknir á lúðu-
eldi í rúmt ár í samvinnu við
Rannsóknaráð ríkisins. Hlutafé-
lag um lúðueldi í Eyjafirði mun
njóta góðs af þeirri vinnu og
þeim niðurstöðum sem þar hafa
fengist auk þess sem notaðar
verða niðurstöður rannsókna
Norðmanna á þessu sviði.
Nú um mánaðamótin koma
hingað norður tveir fiskifræðing-
ar sem í sumar munu vinna að
rannsóknum á aðstæðum til eldis-
ins í Eyjafirði og í lóninu á Hjalt-
eyri, en þar verður starfsemin
staðsett. Fljótlega verða hafnar
tilraunir með lúðuna í kerum og
einnig er veríð að huga að nýt-
ingu gamalla lýsistanka á staðn-
um til eldisins.
Á fundinum á morgun verður
kosin stjórn fyrirtækisins en Iðn-
þróunarfélagið ætlar að sögn
Inga að bjóðast til að fara með
framkvæmdastjórn og bókhald
fyrst um sinn. ET
Fasteignaverð á Akureyri:
Hækkað um 50-60% á einu árí
- mest síðustu þrjá mánuði
Hlutafélag um lúðueldi í Eyjafirði:
Hlutafjárloforð komin
frá um 20 aðilum
- og von á innlendum og erlendum styrkjum