Dagur - 02.12.1987, Side 10
D^taUR'-2If«ö5embep't98?^
MJÓLKURSAMLAG KAUPFÉLAGS WNGi-YINGA
Haukur Haraldsson mjólkur-
fræðingur er verkstjóri hjá
Mjólkursamlagi Kaupfélags
Þingeyinga en hann hefur unn-
ið þar frá upphafi.
„Ég vann við að setja niður
vélarnar og byrjaði svo fyrsta
daginn sem tekið var á móti
mjólk, 10. október 1947, þá var
ég 19 ára. Síðan hóf ég fljótlega
nám hjá Haraldi og lauk því
1955, áður en ég lauk námi var ég
orðinn verkstjóri og hef verið
það síðan. í fyrstu var þetta ákaf-
Ein af afmælistertunum skorin.
lega smátt í sniðum, nú er al-
gengt að fá inn á einum degi það
magn af mjólk sem tekið var á
móti fyrsta mánuðinn. Það var
strax farið að framleiða smjör,
skyr og osta, fyrsta mánuðinn
voru framleidd 535 kg af smjöri
en nú framleiðum við 800 kg í
einu lagi í strokknum. Pá voru
framleidd 1126 kg af 45% osti í
mánuðinum, það er svipað magn
og við framleiðum nú í einum
tank og stundum framleiðum við
í 2-3 yfir daginn.
Húsakosturinn var um 1/5 af
því sem við erum með í dag. Við
unnum þrjú við vinnsluna, Har-
aldur, Jónheiður Kristjana Stein-
þórsdóttir og ég en Páll Jónsson
vann á skrifstofunni. Framleiðsl-
an jókst mjög hratt og á fyrsta ári
byrjuðu Ragnar Kjartansson,
Stefán Jakob Hjaltason og Sól-
veig Jónsdóttir að vinna hérna.“
- Var gaman að vinna að
þessu?
„Það var óskaplega gaman að
vinna að þessu, á þessum tíma
var matvælaframleiðsla hjá okk-
ur afskaplega frumstæð. Á fyrstu
árunum voru mjólkurframleið-
endurnir tæplega 400 en í dag eru
þeir 126. Það voru margir fram-
leiðendur hér á Húsavík, hér
voru rekin nokkur kúabú fram-
undir og framyfir þennan tíma.
Við byrjuðum strax framleiðslu á
neyslumjólk og í fyrstu var
mjólkin afgreidd þannig að henni
var ausið í brúsa, síðan var byrj-
að með handvirk mælitæki í
brúsa, næst var mjólkin afgreidd
í glærum flöskum, svo í brúnum
flöskum, þá var farið yfir í plast-
poka og loks í fernur.“
- Var framleiðslunni vel
tekið?
„Já þessu var afskaplega vel
tekið, en eins og ævinlega er í
matvælaframleiðslu var mjög
mikil gagnrýni á mjólkurvörur. Við
íslendingar erum sennilega mikl-
ir neytendur á mjólk og mjólkur-
Haukur Haraldsson verkstjóri býður börnunum ostapinna
Haukur Haraldsson verkstjóri:
„Neyshimjólk var
sótt á snjóbíl“
Haraldur Jóhannesson og Davíð Gunnarsson buðu gestum að smakka mysu-
ostinn.
vörur og mjólkurvörur má aldrei
vanta. Við komum inn í búð og
spyrjum eftir brauði og er sagt að
því miður sé það búið en ef við
komum inn í búð þar sem seld er
mjólk og sagt er að hún sé búin
þá hvolfist allt við. Þetta á ekki
aðeins við um börn sem þurfa
mjólk heldur á þetta við um okk-
ur öll, við látum svona í sam-
bandi við mjólkina. Það þarf
frekar að vinna allan sólarhring-
inn heldur en það verði mjólk-i
urlaust."
Það var nóg að gera við að útbúa
ostapinna.
- Er mikill munur á vinnu-
brögðum við framleiðsluna núna
frá því sem var fyrir fjörutíu
árum?
„Það er kominn nýr tækjakost-
ur, t.d. byrjaði ostagerðin með
handavinnu, osturinn var hrærð-.
ur með höndunum fyrstu árin,
svo komu vélhrærur og að síð-
ustu tankar sem vélhrært er í.
Það varð bylting 1975 þegar tank-
væðingin kom bæði hvað mjólk-
ina varðar og vinnubrögðin við
hana. Aðstæður hvað varðar
flutninga á mjólkinni hafa mikið
breyst, sérstaklega yfir veturinn
en kannski hjálpar tíðarfarið til
líka. Mér finnst tíðarfarið betra
núna en einnig höfum við betri
tæki og betri vegi og þetta hjálp-
ast allt saman að.
Ég man eftir því að við unnum
einu sinni til klukkan 6 eða 7 á
aðfangadagskvöld við að losa
mjólkurbílana og þá áttu þeir eft-
ir að fara heim. Reykdælingarnir,
þeir Sigtryggur á Breiðumýri og
Friðrik í Vaílakoti komu heim
til sín klukkan 6 á jóladagsmorg-
un. Stundum varð alveg ófært og
þá var notaður lítill snjóbíll til að
sækja neyslumjólk, þetta var oft
heilmikið bras.“
- Nú hefur þú verið fjörutíu ár
á sama vinnustað, hefur þér líkað
svona vel hérna?
„Það hlýtur að vera, ég væri
ekki búinn að vera fjörutíu ár á
sama stað nema mér hefði líkað
vel. Ég rek þetta mikið til þess
sérstaka persónuleika sem Har-
aldur Gíslason var. Ég kenni
honum um að ég er búinn að vera
hér allan þennan tíma, hann var
á sinn hátt einstæður persónu-
leiki og ég hefði aldrei tollað í
þessu nema vegna þess að okkur
kom þannig saman. Þegar ég
byrjaði ætlaði ég aðeins að vera í
sumarvinnu, ætlaði ekki að fara
að læra þetta eða neitt slíkt. “ IM
JJj ÁNHITA JJJ
Þarf ekki að endurnýja
á baðherberginu?
★ Handúðarar
★ Sturtustangir
★ Barkar
★ Baðhengi og
-mottur
Verslið vib
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Borgarbíó
Miðvikudagur kl. 9.00
Predator
Miðvikudagur kl. 9.10
Angel Heart
Miðvikudagur kl. 11.10
52 Pick-Up
Miðvikudagur kl. 11.00
Stjúpfaðirinn
Arnarsíðu
Kjalarsíðu
KeilusTðu
V/estursTðu
KúpasTðu