Dagur - 02.12.1987, Síða 16
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgaiyisting á Hótel Húsavík
Hótel__________
Húsavik
The MidnighUun
Hoiei
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Framlög sveitar-
félaga lækka
- þrátt fyrir skerta tekjustofna sambandsins
Börnin spretta áhyggjulaus úr spori á meðan þeir fullorðnu reyna að leysa
vandamálin. Mynd: TLV
Dagvistir Akureyrar:
342 böm á biðlista
Raunlækkun árgjalda sveitar-
félaga til Fjórðungssambands
Norðlendinga nemur 22 prós-
entum milli áranna 1985 og
1987. Þetta gerist þrátt fyrir
skerta tekjustofna, verðhækk-
anir og aðrar almennar kostn-
aðarhækkanir í þjóðfélaginu á
þessu tímabili, samkvæmt
niðurstöðum Áskels Einars-
sonar, framkvæmdastjóra
Fjórðungssambandsins.
Á fjórðungsþinginu að Laug-
um 1985 var fullkomin samstaða
Sigló hf.:
Kröftugar umræður
í bæjarstjóm
„Bæjarstjórn Siglufjarðar
harmar, að atvinnumálanefnd
og bæjarráði skuli ekki hafa
verið gefinn kostur á að leita
allra leiða til að tryggja áfram-
haldandi framleiðslu gaffal-
bita, áður en stjórn Sigló hf.
samþykkti að selja framleiðslu-
línu sína til Hornafjarðar,“
sagði m.a. í ályktun sem lögð
var fram á bæjarstjórnarfundi
á Siglufírði í gær.
Vanþóknun var lýst yfir með
vinnubrögð iðnaðarráðuneytis og
Sölustofnunar lagmetis, að stað-
festa sölusamninginn og flutning
framleiðsluréttar án þess að leita
samþykkis bæjaryfirvalda.
Kristján Jónsson og Ólafur
Marteinsson frá Niðursuðu K.
Jónssonar á Akureyri mættu á
fund bæjarráðs í gær. Rætt var
um hugsanlega aðild fyrirtækisins
að nýju fyrirtæki sem myndi yfir-
taka framleiðslu Sigló hf. á gaff-
albitum, svo framarlega að unnt
reyndist að ganga inn í samning
síðarnefnda fyrirtækisins og
Fiskimjölsverksmiðju Horna-
fjarðar. EHB
um nokkrar breytingar á starf-
semi Fjórðungssambandsins.
Ákveðið var að hætta rekstri iðn-
ráðgjafastarfsemi á vegum þess
og leggja niður milliþinganefndir
til að spara í starfseminni.
Ákveðið var að lækka árgjöldin
með því að miða þau við 0,35%
af tekjum sveitarfélaga í stað
0,5% áður.
Ákvörðun um lækkun árgjalda
var byggð á þeirri trú að áfram
fengist framlag úr Byggðasjóði til
áætlanagerðar og að framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga yrði
ekki skert frekar en orðið var. Þá
var gert ráð fyrir hliðstæðri
álagningu og árið 1985.
Raunin varð þó sú að vegna
lækkaðrar álagningar útsvara í
kjölfar febrúarsamkomulagsins
minnkuðu tekjur sambandsins
um 140 þúsund krónur. Þá skert-
ist framlag Jöfnunarsjóðs um 260
þúsund kr. miðað við áætlun.
Niðurfelling á framlagi Byggða-
sjóðs nam kr. 600 þúsund. Þetta
þýðir tekjutap upp á um eina
milljón króna auk þess sem
kostnaðarhækkanir urðu meiri á
árinu en ráð var fyrir gert.
Þrátt fyrir þetta skilaði áform-
aður sparnaður sér að fullu til
sveitarfélaganna og árgjöld
margra þeirra stærstu, eins og
t.d. Siglufjarðar, stóðu í stað
milli ára. Sjá nánar í grein eftir
Áskel Einarsson á bls. 5. EHB
Vegagerð ríkisins hefur efnt
til forvals á verktökum vegna
byggingar jarðganga í Olafs-
Qarðarmúla og er síðasti skila-
dagur á forvalsgögnum 19.
Nú eru 342 börn á biðlista við
dagvistir Akureyrarbæjar. AIIs
bíða 169 börn á Brekkunni og
Eyrinni eftir plássi á dagvistum
og 173 börn utan Glerár, en
sem kunnugt er gerir tilrauna-
verkefni Félagsmálastofnunar
ráð fyrir að Glerárhverfí verði
sérstök eining í dagvistakerfí
bæjarins.
I bókun félagsmálaráðs kemur
janúar 1988. Með forvalinu
getur Vegagerðin valið úr þá
verktaka sem hafa burði til að
taka verk sem þetta að sér en
miðað er við að gerð ganganna
hefjist síðla næsta sumars.
fram að á árinu 1988 munu 132
börn hætta á dagvistum bæjarins,
þar af 14 vegna svokallaðrar 3ja
ára reglu, en afgangurinn hættír
fyrir aldurs sakir.
Mismunurinn á þeim börnum
sem eru á biðlista og þeim sem
munu hætta á dagvistunum á
næsta ári er 210 börn og því ljóst
að dagvistarþörfin er enn brýn.
Með forvalsgögnunum fær
Vegagerðin upplýsingar um
stærð og gerð fyrirtækjanna,
rekstrarreikninga síðustu ára,
tækjaeign, fyrri verkefni o.s.frv. í
forvalsgögnum segir m.a.: „í
framhaldi af úrvinnslu úr forvals-
gögnum er Vegagerðinni berst er
ætlun Vegagerðarinnar að bjóða
verkið út aðeins til þeirra er
metnir eru hæfir til að fram-
kvæma verkið. Vegagerðin áskil-
ur sér rétt til að takmarka fjölda
bjóðenda sem útboðsgögn verða
send til. í því tilfelli að Vega-
gerðin telji þátttöku í forvali
ófullnægjandi áskilur hún sér rétt
til að hafa almennt útboð.“
Forvalsgögn eru bæði á
íslensku og ensku og er beinlínis
hvatt til að erlendir aðilar taki
upp samvinnu við íslenska aðila í
þessu verki. Um þetta segir í
forvalsgögnum: „Erlend fyrirtæki
eru hvött til að hafa samvinnu við
íslensk fyrirtæki."
Sigurður Oddson, umdæmis-
tæknifræðingur Vegargerðarinn-
ar sagði að enginn íslenskur verk-
taki ætti nú tæki til verks sem
þessa. Dæmi væri um að íslenskir
og erlendir aðilar hafi tekið upp
samvinnu af þessu taki í verkefn-
um sem þessum og því hvetji
Vegagerðin til þess. JÓH
Bæjarráð Akureyrar:
Þétting
byggðar í
Síðuhverfi
Bæjarráö Akureyrar hefur nú
til athugunar tillögur, unnar af
Jóni Geir Ágústssyni, bygg-
ingafulltrúa, og Stefáni Stefáns-
syni, bæjarverkfræðingi, um
hvaða leiðir séu vænlegastar til
að þétta byggð í Síðuhverfí.
Tillögurnar ganga út á að
Akureyrarbær komi til móts
við væntanlega húsbyggjendur
í hverfinu varðandi kostnað
við jarðvegsskipti og niðurfell-
ingu lóðagjalda.
Tillögurnar eru, í grófum
dráttum, þessar: 1. Fella niður
byggingargjöld af lóðum, þar
sem jarðvegsdýpi er meira en
tveir metrar. 2. Skipta um jarð-
veg í áföngum í grunnum hús-
anna áður en lóðarveiting fer
fram, miðað við byggingarreit
samkv. skipulagi, og fylla grunna
í jarðvegshæð. 3. Deila bygging-
arsvæðinu upp í 21 reit og telji
hver reitur eina eða fleiri lóðir
eftir aðstæðum. Reitunum verði
síðan úthlutað til verktaka, ein-
staklinga eða verkamannabú-
staða.
Hugmyndir þessar byggja á til-
lögu bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins frá 17. september, um
að bærinn láti kanna hvaða ráð-
stafanir sé hægt að gera til að
gera óleigðar einbýlishúsalóðir í
Síðuhverfi byggilegri en vegna
mikils kostnaðar við jarðvegs-
skipti veigri fólk sér við að byggja
á mörgum lóðanna. Sigurður
Jóhannesson, annar flutnings-
manna, sagði það álit sitt að 1. og
3. tillaga tæknideildar, eða sam-
eiginleg atriði þeirra, væru
hentugastar til úrbóta. EHB
Leikfélag Akureyrar:
Góð aðsókn
á leikárinu
Sýningar Leikfélags Akureyrar
hafa hlotið mjög góða aðsókn
á þessu leikári, sem hófst
óvenju snemma með afmælis-
dagskrá í tengslum við 125 ára
kaupstaðarafmæli Akureyrar
29. ágúst. Reyndar höfðu
menn búist við ívið meiri
aðsókn að Lokaæfíngu en þó
munu 1.200 manns hafa séð
sýninguna, sem telst ekki
síæmt.
Að sögn Theodórs Júlíusson-
ar, formanns leikhúsráðs, mættu
1.100 áhorfendur á „Afmælis-
veislu handa Eyrarrós" sem l'lutt
var í íþróttaskemmunni á af-
mælishátíðinni. „Halló Einar
Áskell'1 fékk fádæma góða
aðsókn, en alls munu um 5.500
börn og fullorðnir á Norðurlandi
hafa séð þetta barnaleikrit.
Samtals hafa því um 7.800
manns séð sýningar Leikfélagsins
á þessu leikári og enn á eftir að
sýna „Pilt og stúlku", „Horft af
brúnni“ og „Fiðlarann á þakinu“.
Theodór sagðist vera mjög
ánægður með þessa aðsókn og
benti á að leikfélagið væri nú
þegar búið að ná svipaðri aðsókn
og á öllu leikárinu í fyrra. SS
Jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla:
Hvatt til samvinnu inn-
lendra og erlendra verktaka