Dagur - 03.12.1987, Page 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMtÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
„Berjumst fyrir
útflutningnum"
- segir Sveinn Kristinsson
togarasjómaöur á Dalvík
Togarasjómenn á Dalvík telja
að samningar við vinnslu hafi á
engan hátt verið brotnir með
gámaútflutningi í haust. Sveinn
Kristinsson, skipverji á Björg-
Nýtt fiskiskip
á næsta ári
Bliki hf. á Dalvík hefur gengið
frá samningi við Auðbjörgu hf.
í Þorlákshöfn um skipti á
fiskiskipum fyrirtækjanna,
þ.e. Blika EA 12 og Arnari ÁR
55. Um leið gengur Bliki hf.
inn í samning sem Auðbjörg
hafði gert í Svíþjóð varðandi
smíði á nýju frystiskipi.
Að sögn Ottós Jakobssonar,
framkvæmdastjóra Blika hf.
munu fyrirtækin skipta á skipum
í mars n.k. Samkvæmt samningi
mun síðan nýja skipið verða til-
búið til afhendingar í ágúst og er
ætlunin að Arnar gangi upp í
kaupverð þess. Nýja skipið er
tæplega 300 tonna frystiskip en
Bliki EA 12 er tæplega 150 tonna
skip.
Ekki mun verða um neinn
kvótatilflutning að ræða samhliða
þessum kaupum og mun því fiski-
kvóti Blikans færast yfir á Arnar
og þaðan á nýja skipið. JÓH
21
dagur til jóla
úlfi og trúnaðarmaður áhafn-
arinnar segist ekki kannast við
að samið hafi verið við frysti-
húsið um meira en 50-70 tonn
af fiski á viku og hafí það magn
verið ósk frystihússins.
„Ég vil benda frystihússtjóra á
að þegar frjálst fiskverð tók gildi
var samið um að frystihúsið fengi
allan fisk sem það og gerði og
verð miðaðist við verð á Fisk-
markaðinum í Hafnarfirði. Síðan
sagði frystihúsið þessu verði upp
í haust og nýir samningar voru
gerðir sem tóku mið af meðal-
verði á Hafnarfjarðarmarkaði. í
þessum samningum var samið um
að eitthvað færi í gáma og þá
sagðist frystihússtjóri ekki þurfa
nema 50-70 tonn á viku fyrir
húsið. Ég held að ég geti fullyrt
að þetta magn hefur húsið
fengið,“ segir Sveinn.
Sveinn segir að veiði hafi verið
léleg í haust og því sé eðlilegt að
sjómenn og útgerð reyni að fá
sem best verð fyrir fiskinn enda
beri þeim það samkvæmt sjó-
mannalögum. Frystihúsið sjálft
hafi boðið sjómönnum að þeir
mættu ráðstafa öðrum tegund-
um en þorski og við það hafi sjó-
menn staðið.
„Ég held að hægt sé að komast
að samkomulagi í þessum málum
og sjómenn eru tilbúnir til að ræða
þetta. Hins vegar munum við
aldrei gefa gámaútflutninginn
eftir því að hann skiptir okkur
verulegu máli hvað tekjur
varðar. Útflutningurinn er búinn
að bjarga okkur í haust og fyrir
honum munum við berjast,“ seg-
ir Sveinn. JÓH
Álafoss - Iðnaðardeiid SÍS:
Flestir vilja vinna áfram hjá okkur
Fjölskyldan á Ásláksstöðum gróðursetti plöntur í gær í sannkallaðri vorblíðu. Heimilishundurinn lét ekki sitt
eftir liggja eins og sjá má. Mynd: tlv
Gróðursetning á jólaföstu
- Bóndinn á Ásláksstöðum hamast við vorverkin
Tíðarfarið þykir ekki einleik-
ið um þessar mundir og í stað
þess aö moka snjó af tröpp-
um eru menn nú aö gróður-
setja plöntur! Já, Gylfí Sig-
urösson bóndi á Ásláksstöð-
um í Glæsibæjarhreppi og
fjölskylda hans voru að
planta í skjólbelti í túnjaðrin-
um í gær þegar við heilsuðum
upp á þau. Sannarlega
óvenjulegt og sjálfsagt eins-
dæmi norðanlands á þessum
árstíma.
Gylfi sagðist ætla að gróður-
setja um 140 plöntur í þessu
skjólbelti sem er í þremur sam-
hliða rásum. Hann sagðist nota
Alaskavíði syðst og nyrst en ösp
í miðjunni. „Þetta fer að gera
gagn eftir um 5 ár,“ sagði hann
og benti á túnin norðan við land
Asláksstaða þar sem skjólbelti
hafa aukið sprettuna og gert
grasið jafnara.
„Ég hef unnið mikið við
gróðursetningu á undanförnum
árum en aldrei á þessum
árstíma. í vor setti ég niður um
2.000 trjáplöntur og gerði skjól-
belti við túnið hér fyrir neðan,"
sagði Gylfi. Hann viðurkenndi
það fúslega að þetta væri eitt
helsta áhugamálið hans, en
vissulega bæði erfitt og tíma-
frekt.
Varla var vottur af frosti í
moldinni þar sem Gylfi var að
búa til skjólbeltið. Efst á
hryggjunum var jarðvegurinn
eilítið harðari, en lungamjúkur
þar undir. Úrvals aðstæður til
gróðursetningar. SS
færu til starfa í verksmiðjunni í
Mosfellsbæ. Sagði hann það allt
óráðið ennþá en ef menn hefðu
aðstöðu til að flytja suður væru
þeir velkomnir í loðbandsdeild-
ina þar. EHB
Góð sala hjá
Björgúlfi
Togarinn Björgúlfur EA 312
frá Dalvík seldi tæplega 131
tonn í Hull í gærmorgun. Gott
meðalverð fékkst fyrir aflann
eða 80,36 kr. fyrir kflóið.
Afli Björgúlfs var aðallega
þorskur en einnig eitthvað af
grálúðu og kola. I heild fengust
158.753,80 pund eða 10,5 millj-
ónir króna fyrir aflann sem teljast
verður góð sala. Björgúlfur er
eini íslenski togarinn sem selur í
Hull í þessari viku. JÓH
„Auðvitað eru flestir óánægðir
með að vera sagt upp, það geta
menn sagt sér sjálfír. Hins veg-
ar skilur meginþorri starfs-
manna þá stöðu sem fyrirtækin
eru í. Margt af þessu fólki vill
- segir Birgir Marinósson, starfsmannastjóri
vinna hjá okkur áfram undir
breyttum kringumstæðum og
við nýtt fyrirtæki,“ sagði Birgir
Marinósson, starfsmannastjóri
Iðnaðardeildar SÍS á Akur-
eyri.
Veöurfar í nóvember:
Það næstbesta á öldinni
„Þetta var í alla staði afskap-
lega óvenjulegur nóvember,“
sagði Trausti Jónsson veður-
fræðingur í samtali við Dag, en
nýliðinn nóvember var sá næst-
hlýjasti á öldinni.
Meðalhiti mánaðarins var 3,9
gráður sem er 3,7 gráðum
umfram meðaltal áranna 1951-
1980. Hiti nóvembermánaðar
hefur ekki verið svona hár síðan
1956 en þá var hlýjasti nóvember
aldarinnar með meðalhita 4,8
gráður.
Hitinn í mánuðinum fór hæst í
13,4 gráður og neðst niður í mín-
us 5 gráður sem er að sögn
Trausta, hvortveggja fremur
óvenjulegt.
Úrkoma á Akureyri var í
nóvember 2/3 af meðalúrkomu,
og varð jörð aldrei alhvít, sem
mun frekar óalgengt.
Aðspurður sagði Trausti að
þetta veðurfar segði ekkert um
áframhaldandi góðviðri. „Ég get
nefnt sem dæmi að veturinn
1956-1957, þegar hlýjasti
nóvember aldarinnar var, og vet-
urinn ’68, þegar nóvember nálg-
aðist að vera eins góður og
nú, reyndust ákaflega leiðinlegir
eftir áramót. Gerði þá mikinn
snjó þegar leið á veturinn,“ sagði
Trausti að lokum. VG
Sextíu og einum iðnverka-
manni sagt upp, aðallega í loð-
bandsdeild, auk fimmtán félaga í
Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks, verkstjórum o.fl. sem
tengdust deildinni á ýmsan hátt. í
dag mun atvinnumiðlun taka til
starfa, sérstaklega fyrir þá sem
sagt var upp, og munu þrír aðilar
starfa við hana.
„Við munum reyna að útvega
fólki önnur störf og komast að
því hvaða ^törf henta því best.
Við munum leita eftir störfum
bæði innan og utan Sambandsfyr-
irtækjanna. Ég ræddi við marga
starfsmenn þegar ég afhenti þeim
uppsagnirnar og benti þeim á að
hafa samband við okkur þegar
atvinnumiðlunin færi af stað. Við
gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að útvega fólkinu
vinnu,“ sagði Birgir Marinósson.
Birgir var spurður að því hvort
einhverjir starfsmenn á Akureyri