Dagur - 03.12.1987, Qupperneq 13
3. desember 1987 - DAGUR - 13
/ skáldlegu uppnámi
orti hann ljóð,
í öndverðu
háfleygt og bundið.
En lesendur gátu ekki
hrifningu hans
né hjartslátt
í kvæðinu fundið.
Og svo liðu dagar. -
Þá dæmdi ’ann eitt kvöld
til dauða
sitt gamla kvæði.
En mildaði dóminn
og orti það upp
af einstakri
þolinmæði.
Hann samræmdi efnið
og orðanna hljóm,
sem átti við formið
og Ijóðið,
uns kvæðið var rímað
við reynslu hans sjálfs
og runnið í merginn
og blóðið.
Ljóðabók sinni skiptir Heið-
rekur í þrjá flokka. í hinum fyrsta
eru aðeins þrjú ljóð, tuttugu og
átta í öðrum, en tuttugu og eitt í
þeim þriðja. Nöfn ljóðanna gefa
til kynna fjölbreytt viðfangsefni
og áhugaverð, en í svo stuttri
umfjöllun sem þessari verða
þeim ekki gerð nokkur skil, er
þau sannarlega verðskulda. Mörg
bera þau svip uppgjörs aldur-
hnigins manns, sem hefur ein-
beitt sér að því að finna viðun-
andi lausn á áleitnum gátum.
Hann er ekki sáttur við það
mistur, sem byrgir honum sýn
þegar hann nálgast landamærin,
en um það yrkir Heiðrekur:
Ég er á leið
til landamæra,
aldraður maður
og einn á ferð.
Það er mistur fram undan
og fátt um kennileiti,
að baki mér
bjarmar enn af degi.
Þar hverfa þeir
einn af öðrum
áningarstaðir mínir
síðast við sjóndeildarhring.
Bókin Landamæri ber þó ekki
svip undanhalds, heldur rís hún
miklu fremur eins og tindur upp
af hjöllum þess fjalls, sem Heið-
rekur Guðmundsson hefur klifið.
Hann á brýnt erindi við samtíð
sína í áleitnum ljóðum, sem bera
traustan svip sígildrar listar. Og
ekki þarf hann að óttast um gengi
ljóða sinna, ef íslensk tunga lifir
og andlegri menningu vorri verð-
ur bjargað frá hruni. Ljóðin í
Landamærum eru máttug vörn
gegn því slysi. - Bókin er fallega
út gefin og Margrét E. Laxness
hefur gert listræna og lifandi
mynd á kápu.
(t
%.
Ný sending
af rúffköppum og gluggatjaldaefnum
— Aldrei meira úrval
Rúmföt og rúmfataefni fyrir börn og fullorðna.
Lök og teygjulök, margar gerðir og stærðir.
Handklæði, stök og í gjafapakkningum.
Barnahandklæði og þvottapokar með Tomma og Jenna.
Diskamottur úr taui og plasti.
Plastdúkar.
Jóladúkar og jóladúkaefni í úrvali.
Jólagluggatj aldaefni.
Jólatrésdúkar.
Værðarvoðir.
Rúmteppi.
Saumakassar.
Tvinna- og spólubox
Úrval af fataefnum og
smávörum til sauma.
Svarta og gráa rúskinnslíkið
loksins komið aftur
ásamt tveimur nýjum litum.
vefnaðarvöruverslun
Sunnuhlíð. Sími 96-27177
J
Opnunartímí verslana í des. umfram venju
Laugard. 5. des. frá kl. 10-16.
Laugard. 12. des. frá kl. 10-18.
Fimmtud. 17. des. frá kl. 9-22.
Laugard. 19. des. frá kl. 10-22.
Miðvikud. 23. des. frá kl. 9-23.
Fimmtud. 24. des. frá kl. 9-12.
Fimmtud. 31. des. frákl. 9-12.
(t
#HITACHI
hljómtækjasett
MD28
Útvarp með 5 stöðva minni.
Hálfsjálfvirkur plötuspilari.
2x30 sínuswatta magnari
með tónjafnara.
Tvöfalt kassettutæki.
45 watta hátalarar.
Fallegur dökkur skápur.
Verð kr. 39.500,00 stgr.
V
ÍUIMBUÐIN S 22111
mjNMUMb
Mýjar vörur
- vandadar vörur
Kaupmannafélag
Akureyrar
j
J