Dagur - 18.12.1987, Page 1

Dagur - 18.12.1987, Page 1
Það voru þeir Kristján Karl Guðjónsson (t.v.) og Ragnar Magnússon sem flugu 300. ferðina út í Grímsey. Hér eru þeir félagar og heldur Ragnar á blómaskreytingu sem þeir fengu að gjöf við komuna út í Grímsey. Mynd: tlv Flugfélag Norðurlands: Yfir 300 ferðir til Grímseyjar á árinu Á miðvikudag var farin 300. flugferðin til Grímseyjar á veg- um Flugfélags Norðurlands frá áramótum. Sigurður Aðal- steinsson hjá FN sagði að þess- ar ferðir og þjónusta Ríkis- skipa væru einu reglulegu sam- göngur Grímseyinga við meginlandið. Þjónusta Flugfé- lags Norðurlands við Grímsey er mjög mikilvæg fyrir íbúana því segja má að allir fólksflutn- ingar þangað séu á vegum fé- lagsins. Fyrstu reglulegu flugferðirnar frá Akureyri til Grímseyjar hóf- ust um 1960 á vegum Norður- flugs, og var Tryggvi Helgason sá flugmaður sem flaug þangað á þeim árum. Þá mun Flugfélag íslands hafa haft einhverjar áætl- unart'erðir til Grímseyjar á árum áður. Að sögn Sigurðar Aðalsteins- sonar var þúsund metra löng mal- arflugbraut í Grímsey en hluti hennar hefur nú verið gerður að öryggissvæðum. Heildarlengd brautarinnar er því nokkuð styttri. Aðbúnaður á flugvellin- um er líkur því og almennt gerist á minni stöðum. „Við förum þrisvar í viku á veturna til Grímseyjar en yfir hásumarið förum við sex sinnum í viku. Fyrir utan þetta eru farnar aukaferðir og alltaf er töluvert um leiguflug. Síðastnefndu ferö- irnar eiga sinn þátt í að ferðirnar eru komnar yfir 300 á árinu. Auk þcss hefur orðið mikil aukning í farþegaflugi til Grímseyjar undanfarin ár,“ sagði Siguröur Aðalsteinsson. EHB 6 dagar tíl jóla Hlíð og Skjaldarvík: Nauðsynlegt að bæta eldvamir „Fyrir u.þ.b. tveimur árum var gerð úttekt á báðum dvaiar- heimilunum með tilliti til eld- varna. Hvorugt þeirra uppfyllti nýjustu kröfur, frekar en ýms- ar aðrar stofnanir í bænum. Áætlun var gerð um úrbætur en henni hefur ekki verið fylgt vel vegna fjárskorts,“ sagði Cecil Haraldsson, fram- kvæmdastjóri öldrunarmála á Akureyri. í bókun öldrunarráðs frá 7. desember kemur fram að bréf hafi borist frá Eldvarnaeftirliti Akureyrar. í bréfinu er sagt frá því að ekki hafi verið unnið sam- kvæmt áætlun um eldvarnir í Dvalarheimilinu Hlíð. Erindinu var vísað til gerðar fjárhagsáætl- unar dvalarheimilanna. Ákveðnar aðgerðir samþykktar - vegna þéttingar byggðar í Síðuhverfi Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti samhljóða bókun bæjarráðs frá 10. des. á síðasta fundi sínum varðandi einbýlis- húsalóðir í Síðuhverfi. Þar með hefur byggingafulltrúa, Jóni Geir Ágústssyni, verið falið að gera tillögu að sérskil- málum um framkvæmd ákveð- inna aðgeröa til að létta undir með húsbyggjendum á þeim einbýlishúsalóðum í hverfinu þar sem grafa þarf dýpri grunna en 2 metra. í Síðuhverfi er sums staðar langt á milli einbýlishúsa og óbyggðar lóðir margar, en hús- byggjendur hafa af eðlilegum orsökum reynt að velja þær lóðir sem hentugastar eru og ódýrastar með tilliti til jarðvegsskipta. Bæjarfulltrúar framsóknarmanna lögðu til í bæjarstjórn í haust að kannaðar yrðu leiðir til úrbóta með þéttingu byggðar í hverfinu fyrir augum. Sú tillaga hlaut jákvæðar undirtektir og er afrakstur hennar nú að koma í ljós. Bæjarráð leggur til að Akur- eyrarbær greiði lóðarhafa kostn- að við útgröft og malarfyllingu miðað við rúmmál fyllingar, sem þarf undir húsgrunn, samkv. stöðluðum húsgerðum og jarð- vegsskiptaplani, frá föstum grunni upp í kóta - 2,0 m miðað við gólfkóta 0,0 sem áætlaður er 0,3 m yfir götu. Bæjarráð ákveð- ur einingarverð á útgreftri og malarfyllingu og breytist það með byggingargjaldi. Áætlaður kostnaður bæjarins vegna þátttöku í jarðvegsskiptun- um er um átta milljónir króna umfram byggingargjöld sem áætl- uð eru um ellefu milljónir króna. EHB „Ég hef átt viðræður við starfsmann Eldvarnaeftirlits Akureyrar um þessi mál og tillög- ur um úrbætur verða fyrsta verk- efni í viðhaldsáætlun beggja dval- arheimilanna fyrir næsta ár. Bréf- ið frá Eldvarnaeftirlitinu var lagt fram samtímis og ný viðhalds- áætlun þannig að hér var fyrst og fremst um áréttingu að ræða. Aðalvandinn er að svokölluð brunahólf eru of stór. Við þurf- um að skipta húsnæðinu niður í smærri einingar með eld- og reykvarnarhurðum. Við munum gera allt sem hægt er til úrbóta og röðum verkefnum niður eftir því hvað er brýnast úrlausnar hverju sinni,“ sagði Cecil Haraldsson. EHB

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.