Dagur - 18.12.1987, Page 4
4 - DAGUR - 18. desember 1987
úr hugskotinu
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (iþróttir),
PÁLL B. VALGEIRSSON (Blönduósi vs. 95-4070), STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Forgangsverkefni, sem
ekki má fresta
Frumvarp um stjórnun fiskveiða næstu fjög-
ur árin er nú til umræðu í sjávarútvegs-
nefndum Alþingis og margt bendir til þess
að erfitt verði að ná um það víðtækri sam-
stöðu. Það er alvarlegt mál ef ekki tekst að
afgreiða frumvarpið sem lög frá Alþingi á
allra næstu dögum, því núgildandi lög um
fiskveiðistjórnun renna út um áramót.
Miklar annir eru á þingi um þessar
mundir. Gífurlega mörg og brýn mál bíða
úrlausnar og þingfundir hefjast snemma
dags og standa fram á nótt. Tíminn er
naumur og þrátt fyrir langa þingfundi er
útlit fyrir að ekki náist að afgreiða nándar
nærri öll stóru málin, sem liggja fyrir, áður
en jólaleyfi þingmanna hefst.
Með tilliti til annríkisins hafa komið fram
hugmyndir um að fresta afgreiðslu frum-
varpsins um stjórnun fiskveiða og fram-
lengja núgildandi lög um nokkra mánuði.
Þeir sem til þekkja í sjávarútvegi vita að slík-
ar frestunarhugmyndir eru fráleitar, enda
byggðar á mikilli vanþekkingu. Það er úti-
lokað að stjórna fiskveiðunum til nokkurra
mánaða í senn, í fullkominni óvissu um hvað
síðan taki við. Það er algert frumskilyrði að
stefnan verði mörkuð til mun lengri tíma í
senn, enda er í frumvarpinu ákvæði um
fjögurra ára gildistíma laganna.
Frumvarpið um stjórnun fiskveiða er eitt
mikilvægasta mál þingsins og eitt þeirra
frumvarpa, sem hvað mest liggur á að verði
afgreitt fyrir áramót. Alþýðuflokksmenn
voru ekki alls kostar sáttir við frumvarpið í
upprunalegri mynd þess en virtust öllu sátt-
ari, eftir að gerðar höfðu verið nokkrar minni-
háttar breytingar á því. Sjálfstæðismenn
hafa haft fyrirvara á samþykki sínu vegna
fjögurra ára gildistíma frumvarpsins, en að
öðru leyti var útlit fyrir að víðtæk samstaða
gæti náðst um frumvarpið innan stjórnar-
flokkanna. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
hafa þegar lýst stuðningi sínum við þá fisk-
veiðistefnu sem frumvarpið byggir á. Það er
því mikill ábyrgðarhluti ef fresta á gildistöku
þess í tímahrakinu núna.
Það verður að teljast eitt af forgangsverk-
efnum ríkisstjórnarinnar að koma frumvarp-
inu um stjórnun fiskveiða í gegnum þingið.
Og það verður ríkisstjórninni að takast fyrir
áramót, því þessu máli má ekki undir nokkr-
um kringumstæðum skjóta á frest. BB.
Af gengistryggðu
jólafári
Fyrir mörgum árum var sýnd í
bíó mynd sem bar nafnið „Hvít
jól“, með Bing gamla Crosby í
einu aðalhlutverkanna. Mynd
þessi er svo sem ekkert sérstak-
lega merkileg, nema hvað í
henni var leikið eitt fallegasta
jólalag sem samið hefur verið.
Hún gengur annars út á það
mestmegnis, að lýsa örvænting-
arfullri bið gesta á skíðahóteli
nokkru eftir jólasnjó sem
eitthvað virðist ætla að láta á sér
standa. Auðvitað endar allt vel
eins og vera ber í amerískri
mynd, og snjórinn tekur að falla
meðan við heyrum Crosby
syngja lagið fallega. En svipaða
örvæntingu höfum við ísiend-
ingar nú einmitt upplifað þessar
síðustu vikur. Pað hefur fram til
þessa verið harla erfitt að
merkja það að jólin séu á næsta
leiti, enginn snjór, ekkert frost,
engin hressandi norðanhríð og
eftirfylgjandi stillur og heiðríkj-
ur. Bændur hafa ekki verið að
moka snjóinn af heimreiðum
sínum, heldur tfna kartöflur,
jafnvel gróðursetja trjáplöntur.
Jólafárið árvissa er þó ekki
langt undan, og samkvæmt
nýjustu fréttum frá veðurguð-
unum er ekki útséð um jóla-
snjóinn ennþá. Og að þessu
sinni er svo að sjá að jólafárið
verði gengistryggt, þó svo í
krónunni hrikti og skjálfi, og
frystingin blönk eins og venju-
lega. Dómsdagur kemur eftir
áramót segja menn.
Hamstur og happdrætti
Það er einmitt þessi tilfinning,
að eins konar dómsdagur sé í
nánd skömmu eftir áramót, sem
ef til vill gerir það að verkum að
manni finnst fárið vera á ein-
hvern hátt svo miklu ákafara og
hamslausara en oft áður. Menn
hamstra sem óðast ýmsar dýrar
vörur, hvort sem þær eiga nú að
hækka eða lækka eftir áramót
samkvæmt nýju skatta- og tolla-
lögunum. Reyndin verður
nefnilega sú að þessar- vörur
munu sennilega allar hækka
verulega í verði á fyrstu mánuð-
um ársins, ef ekki vegna „hækk-
aðra flutningsgjalda og annars
kostnaðar“, þá vegna gengis-
fellingarinnar sem frystihúsa-
eigendur eru búnir að láta Þjóð-
;; ';:
hagsstofnun reikná út, að þurfi,
sjálfsagt með svipuðum rökum
og þegar hún fann það út, að
áfengisneysla íslendinga myndi
aukast um þriðjung við það að
leyfa bjórinn, þó svo enginn
geti auðvitað gert sér grein fyrir
því hvort hún muni yfirhöfuð
aukast eða minnka, þar sem
engin hliðstæða hefur nokkru
sinni átt sér stað í heiminum.
Það þarf auðvitað ekki að taka
það fram, að mikill hluti þess
kaupæðis sem virðist hafa gripið
fólk, er fjármagnaður með
plastkortum, sem sjálf Sam-
vinnuhreyfingin hefur nú haft
forgöngu um að gera enn gjald-
gengari en fyrr, nokkuð sem
kemur sér ekki allt of vel fyrir
hina efnaminni í þjóðfélaginu,
sem verða að láta sér nægja
verðlausu pappírsbleðlana sem
hann Jóhannes Nordal hefur
undirritað. Jæja, ef til vill eru
þeir eftir allt heppnari en hinir
plastkortavæddu, því það kem-
ur einhvern tímann að skulda-
dögunum hjá þeim líka, og allir
þekkja það bága samhengi sem
er milli kaupmáttar og vaxta.
Annað einkenni hins árlega
jólafárs sem einnig virðist meira
áberandi nú en oft áður, eru
happdrættin. Það eru vitanlega
ófá góðu málefnin sem maður
verður samvisku sinnar vegna
að styðja. En að þessu sinni eru
það ekki bara góðgerðaraðil-
arnir sem leitast við að full-
nægja spilafíkn þjóðarinnar,
heldur eru þarna einnig komnir
inn aðilar á borð við Kókakóla,
svo og allar útvarps- og sjón-
varpsstöðvarnar sem efna til
jólaleikja hver í kapp við aðra
með allt upp í bensíneyðandi
blikkbeljur í verðlaun. Stærsta
happdrættið í öllu þessu happ-
drættaflóði er svo auðvitað það,
að einhver þeirra hljóta nánast
að detta uppfyrir, önnur að
hanga réttum megin við núllið, en
aðeins örfá fyrir utan auðvitað
gömlu rótgrónu risana og lottó-
ið, fá „þann stóra“ þ.e. ná að
slá í gegn og afla mikilla fjár-
hæða fyrir viðkomandi málefni.
Jólin týnd
Afleiðing þessa fárs sem allir
reyna að gengistryggja, með
Reynir
Antonsson
skrifar
plastkortum eða öðruvísi, verð-
ur svo sú að jólin vilja týnast
með öllu sínu fagra innihaldi.
Týnast innan um alla fallegu
pakkana sem birtast á skjám
sjónvarpstækjanna okkar í
auglýsingatímum, sem hafa
gjörsamlega riðlað allri dagskrá
þeirra, þannig að hún stendur
nú vanalega langt fram eftir öll-
um nóttum. Nú veitir fjölmiðl-
unum sjálfsagt ekki af þessum
tekjuauka sem desembermán-
uður ávallt færir þeim, en frem-
ur er þetta nú hvimleitt fyrir
blessaða neytendurna sem fjöl-
miðlar eru jú fyrir. Sú spurning
vaknar hvort ekki væri hægt að
draga eitthvað úr þessu auglýs-
ingaflóði, til að mynda með því
að hætta að reikna auglýsinga-
kostnað inn í verðlagið, og
hækka verð auglýsinganna
verulega, þannig að það yrðu
fyrst og fremst vörumerki sem
auglýst yrðu, en ekki búðir eins
og nú er. Þá ber harðlega að
fordæma auglýsingar sem aug-
ljóslega er beint að börnum,
jafnvel settar innan um barna-
efni, en ólíklegt verður því mið-
ur að telja, að kerfislið það sem
valið var til að endurskoða
útvarpslögin skipti sér eitthvað
af þessu máli.
En maður vonar nú í lengstu
lög að þjóðinni megi auðnast að
finna jólin sín innan um allt
glysið og glauminn. Vonandi fá
menn, þó ekki sé nema í nokkra
daga, að skynja það að við
erum manneskjur á stundlegri
ferð um óravíddir eilífðarinnar,
börn með hreint hjarta þegar
hið mannlega fær að njóta sín.
Og þá mun hin ómótstæðilega
kveðja hljóma frá dali til dals,
strönd til strandar GLEÐILEG
JÓL.
Hvít jól. Það sem alia dreymir um.