Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 13
18. desember 1987 - DAGUR - 13
- Komdu hingað með koníakið!
- Ætlarðu ekki að lesa fyrir mig
sögu eins og mamma gerði?
- Við skulum fara varlega, þetta
getur verið gildra!
- Hvergi er friður!
- Afsakið er konan mín bráðum til-
búin?
hvoð er að gerost?
Grafík í
Glugganum
Sýning á verkum íslenskra
grafíklistamanna stendur nú
sem hæst í Glugganum. Vel
fer um verkin í sýningar-
salnum og þar getur fólk séð
úrval grafíkmynda, unnar
með mismunandi hætti.
Sýningunni lýkur á sunnu-
daginn og er Glugginn
Þorsteinsdóttir, Daði Guð-
björnsson, Guðmundur
Ármann, Jón Reykdal,
Ragnheiður Jónsdóttir,
opinn frá kl. 14-20.
Listamennirnir sem sýna
verk sín eru: Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Björg
Sigrún Eldjárn, Valgerður
Hauksdóttir, Þórður Hall og
Örn Þorsteinsson.
Á sýningunni eru yfir 30
verk og hefur hún vakið
töluverða athygli. Rétt er að
hvetja fólk til að kynna sér
grafíklistina og grípa tæki-
færið í Glugganum.
Piltur og stúlka
í Samkomuhúsinu
Leikfélag Akureyrar frum-
sýnir „Pilt og stúlku“ næst-
komandi laugardag, 2. dag
jóla, kl. 17. Forsala
aðgöngumiða stendur nú
sem hæst, en næstu sýningar
verða 27., 29. og 30. desem-
ber og eftir áramót hefjast
sýningar að nýju fimmtu-
daginn 7. janúar. Vert er að
gæta að sýningartíma hverju
sinni því hann er breytileg-
ur. ■
Piltur og stúlka er sívin-
sæll alþýðusöngleikur, gerð-
ur eftir skáldsögú Jóns
Thoroddsen. Leikgerð og
tónlist er eftir Emil Thor-
oddsen, leikstjóri er Borgar
Garðarsson, leikmyndina
T •• /
Tvo ny
frímerki
Fyrstu frímerkin á árinu
1988 koma væntanlega út í
febrúar. Verða það tvö frí-
merki í flokknum „Merkir
íslendingar", og sýna þau
myndir af skáldunum Davíð
Stefánssyni og Steini Stein-
arr.
Evrópufrímerki í tveimur
verðgildum munu koma út í
maí og verða þau að þessu
sinni helguð nútíma flutn-
inga- og samskiptatækni.
Tvö blómafrímerki og tvö
fuglafrímerki koma út á
árinu.
{ tilefni Ólympíuleikanna
í Seoul á hausti komanda
verður gefið út frímerki
með myndefni úr hand-
knattleik.
Pá hefur verið ákveðið að
gefa út frímerki með tileink-
un um „Heilbrigði, fyrir
alla“ en það eru einkunnar-
orð Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar 1988.
Smáörk (blokk) kemur út
á Degi frímerkisins.
Jólafrímerki í tveimur
verðgildum teiknar Kjartan
Guðjónsson að þessu sinni.
Auk þess er í undirbún-
ingi að gefa út í hefti frí-
merki með landvættunum,
með breyttu verðgildi.
Reykjavík,
25. nóvember 1987
Póst- og
símamálast ofnunin.
hannar Örn Ingi Gíslason,
Jón Hlöðver Áskelsson er
tónlistarstjóri og Ingvar
Björnsson annast lýsingu.
Fjölmargir leikarar taka
þátt í sýningunni og fara
nokkrir þeirra með fleiri en
eitt hlutverk. Arnbjörg
Valsdóttir og Páll Finnsson
leika Sigríði og Indriða í
æsku en síðan taka Arn-
heiður Ingimundardóttir og
Pétur Eggerz við hlutverk-
unum. Sunna Borg leikur
Ingveldi í Tungu, Kristjana
N. Jónsdóttir leikur Ingi-
björgu á Hóli, Pórey Aðal-
steinsdóttir leikur Gróu á
Leiti, Guðmundur Jónsson
óperusöngvari leikur Jón
Ludvigssen og þannig mætti
lengi telja.
Tónlist skipar veglegan
sess í sýningunni og er
hljómsveitin skipuð þeim
Beryl Farr, Felecity Elsom-
Cook, Pórdísi Skúladóttur,
Lilju Hjaltadóttur og Aðal-
heiði Þorsteinsdóttur. Þá
var stofnaður sérstakur leik-
húskór sem syngur undir
stjórn Jóns Hlöðvers
Áskelssonar.
Líkan af Akureyrarkirkju
Sóknamefnd Akureyrar-
kirkju hefur látið steypa
líkön af kirkjunni sem ætl-
unin er að selja til styrktar
kirkjunni og hinu nýja safn-
aðarheimili. Margir bera
hlýjan hug til Akureyrar-
kirkju og hafa lýst áhuga á
að eiga slíkan grip, auk þess
sem ferðamenn spyrja iðu-
lega eftir minjagripum þeg-
ar þeir koma í kirkjuna.
Líkön þessi, sem eru
nýkomin til landsins, voru
gerð á Ítalíu og eru með
tvenns konar áferð, silfur- og
koparlitaðri. Þau kosta
1.200 kr. og verða til sölu í
blómabúðunum Akri og
Laufási en einnig í Hljóm-
veri og Skóverslun M.H.i
Lyngdal. Ennfremur munu
sóknarprestarnir hafa þau til
sölu.
Heimilisfriður f
skugga frjáls vais
Þórhallur
Ásmunds-
son
skrifar
Jæja, þá er Stöö 2 komin hing-
að vesturfyrirTröllaskagann og
friöurinn þar með úti. Ég er enn
ekki búinn aö fá mér myndlykil,
hef enn staðið af mér alla vinda
frá yngra fólkinu á heimilinu,
sem að sjálfsögðu er alveg ólmt
að horfa á stöðina. Það segir
sem von er að myndlykill sé
kominn hjá þessum og þessum
bekkjarfélaga sínum og að við
verðum að fá okkur hann líka.
En ég er ekkert spenntur fyrir
kaupum á myndlykli þó svo að
mig blóðlangi til að horfa á
íþróttaþætti' Stöðvar 2 sem ég
veit að eru mun betri en hjá
Sjónvarpinu. Það er nefnilega
öruggt mál að fjölskyldan er
ekki sammála um hvora stöðina
á að horfa á og hefur þess þeg-
ar orðið vart á ólæstum tlmum.
Hjá kunningja mínum, sem
býr svo vel að eiga lítið auka-
tæki, var það þannig fyrsta
kvöldið sem Stöð 2 sást hér á
Sauðárkróki, að hann horfði
afskiptur á Sjónvarpið meðan
aðrir fjölskyldumeðlimir með
nýjabrumið í augunum horfðu
hugfangnir á Stöð 2. Kunning-
inn er alveg handviss um að
þegar fram líða stundir verði
skermur á hvern fjölskyldu-
meðlim og svo sitji hver í sínu
horni. Að sjálfsögðu muni þetta
leiða af sér ekkert allt of mikil
samskipti innan fjölskyldunnar.
Ég er ekki frá því að eitthvað
sé til í þessu og ekki veiti af að
vera á varðbergi allmiklu. Þegar
íslenska sjónvarpið kom á sín-
um tíma var talað um að það
drægi úr samgangi milli fólks og
orsakaði þannig minni sam-
skipti milli fjölskyldna. Og nú
þegar völ er á fleiri sjónvarps-
rásum er hætt við að það leiði til
minni samskipta innan fjöl-
skyldunnar sjálfrar.
Hvað útvarpinu viðkemur, er
ég einn af þeim sem er ekkert
allt of ánægöur meö þær breyt-
ingar sem urðu á Rásinni með
vetrardagskránni. Mér finnst
hafa verið skotið dálítið yfir
markið með Dægurmáladeild-
inni og Stefán Jón Hafstein sem
eitt sinn var minn uppáhalds
fréttamaður er nú orðinn sem
gömul slitin grammófónplata.
Kjaftæðið á Rásinni er allt of
mikið og að auki finnst mér
lagavalið ekki eins fjölbreytt og
það var framan af þessu ári. En
ekki er ólíklegt að þeir rásar-
menn taki sér tak og gerður
verði einhver uppskurður á
dagskránni. Þá trúlega á grund-
velli hlustendakannana sem
alltaf eru framkvæmdar annað
slagið.