Dagur - 18.12.1987, Side 17

Dagur - 18.12.1987, Side 17
18. desember 1987 - DAGUR - 17 Fuglahandbókin Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út þriðju bókina í rit- röðinni íslensk náttúra, Fugla- handbókina - Greiningarbók um íslenska fugla - eftir Þorstein Einarsson fyrrum íþróttafull- trúa. Þetta er fyrsta íslenska greiningarbókin með litmyndum af öllum íslenskum varpfuglum, far- og vetrargestum og algeng- ustu flækingsfuglum. Helstu einkenni hverrar tegundar eru dregin fram á einfaldan hátt í máli og myndum. Kristinn Haukur Skarphéðins- son líffræðingur las yfir handrit og veitti fræðilega ráðgjöf um texta, myndir og teikningar og fuglaáhugamaðurinn Jóhann Óli Hilmarsson var höfundi til að- stoðar við alla þætti verksins. Fjallað er um 110 tegundir fugla í bókinni og eru litmyndir af fuglunum er sýna m.a. fjaðra- búning eftir kynferði, aldri og árstíðum. Við gerð bókarinnar var tekið mið af bestu fuglahand- bókum með ljósmyndum sem gefnar hafa verið út erlendis. Á sérstökum greiningarmyndum, smækkuðum myndum af lit- myndinni, er vísað á helstu ein- kenni hverrar tegundar með tölu- settum örvum. Undir skýring- armyndunum eru svo einkennin skýrð í hnitmiðuðum texta. Þetta form er nýjung í gerð slíkra bóka. í meginmálstexta er auk sjálfra fuglalýsinganna lýst búsvæði fugl- anna, varpi, rödd og sérstæðum lifnaðarháttum. Á teikningum eru auk þess sýnd einkenni fugla, sem dulist geta á ljósmyndum, t.d. mynstur í væng og stéli. Ýmsan annan fróðleik er að finna í bókinni sem gagnast jafnt lærðum sem leikum. Má þar nefna fuglanöfn á tungum ná- grannaþjóðanna, yfirlitskort af helstu fuglabjörgum landsins ásamt tegundasamsetningu þeirra, umfjöllun um fuglafriðun og margt fleira. Alls eiga 35 aðilar ljósmyndir í bókinni. Flestar á Grétar Eiríks- son, eða 35. Sigurgeir Jónasson á 23 myndir í bókinni, Jóhann Óli Hilmarsson 18, Magnús Magnús- son og Hans van Bradwijk 9 hvor, Kristján Lilliendahl 7, Kristinn Haukur Skarphéðinsson 6 og Arnþór Garðarsson 5. Eru þá ótaldir allir þeir sem eiga þrjár myndir eða færri. í átta tilvikum var brugðið á það ráð að fá hinn kunna lista- mann, Brian Pilkington, til þess að mála myndir af viðkomandi fuglum, þar eð ekki var unnt að fá nógu góðar ljósmyndir til birt- ingar. í bókinni eru hátt í tvö hundruð skýringarteikningar til þess að draga betur fram einkenni fugla. Þær teiknaði Sigurður Valur Sig- urðsson sem á sínum tíma teikn- aði skýringarmyndir í Plöntu- handbókina. Hönnun bókarinnar og umsjón með allri gerð hennar annaðist Sigurþór Jakobsson myndlistar- maður sem einnig hannaði Plöntuhandbókina. Ævintýríð um Gosa Fjölvaútgáfan hefur gefið út nýja þýðingu á hinu heimsfræga ævin- týri Gosa, eftir Carlo Collodi. Á frummálinu, ftölsku, heitir sagan Pinocchio og kom fyrst út í Flór- ens sem framhaldssaga í barna- blaði fyrir rúmum 100 árum og fór brátt sigurför um heiminn. Þorsteinn Thorarensen hefur þýtt Gosa úr frummálinu og er þetta jafnframt fyrsta óstytta heildarþýðingin á sögunni á íslensku. Eldri útgáfa sem birtist fyrir meira en hálfri öld var þýdd úr ensku og verulega stytt. Nýja Gosabókin er fögur útlits, skreytt 80 litmyndum eftir ítalska listmálarann Giorgio Scarato. Sagan skiptist í 36 kapít- ula, æði spennandi á köflum og eru fræg ýmis atvik, svo sem þeg- ar nefið fór að vaxa á Gosa, eða þegar hann breyttist í asna. Bókin er í stóru broti, um 120 bls. og gefur Fjölvi hana út í sam- starfi við Mondadori-útgáfuna á Ítalíu. Á veiðislóðum Á veiðislóðum nefnist bók eftir Guðmund Guðjónsson blaða- mann sem Frjálst framtak hf. hefur gefið út. Undirtitill bókar- innar er: Viðtöl og veiðisögur. Eins og nafn bókarinnar gefur til kynna er í henni fjallað um veiði- skap og þá einkum laxveiðar og silungsveiðar. I bókinni eru fjölmargar veiði- sögur úr ýmsum áttum. Þar segir frá hrakförum í veiðiskap, bar- áttu við stórlaxa, snautlegri veiði- ferð á sumardaginn fyrsta, og rómantískri veiðiferð í Langá. Katli í bókinni fjallar um „Klak- menn fslands" - hóp manna sem fer í Laxá í Aðaldal haust hvert og veiðir þar laxa sem settir eru í klak. Slóst höfundur í för með „klakmönnunum" sl. haust og segir frá þeirri för í lifandi og skemmtilegri frásögn. í bókinni eru einnig viðtöl við fjóra kunna laxveiðimenn: Stefán Á. Magnússon, Hörð Óskarsson, Guðmund Árnason og Magnús Jónasson. Viðhorf og reynsla þessara manna er í senn lík og ólík. Þeir hafa allir séð og reynt margt á sportveiðiferli sínum. Bókin Á veiðislóðum er 160 blaðsíður og prýða hana margar ljósmyndir, margar í lit. Stelpna- fræðarinn Iðunn hefur gefið út nýja bók sem nefnist Stelpnafræðarinn og er eftir Miriam Stoppard. Með Stelpnafræðaranum er komin fram bók sem gefur skýr og hreinskilin svör við ýmsum þeim spurningum sem óhjá- kvæmilega vakna á ákveðnu tímabili í lífi hverrar unglings- stúlku, þegar ekki einungis líkam- legur þroski á sér stað - heldur einnig ýmsar tilfinningalegar og félagslegar breytingar. Hér er að finna ráðleggingar um líkamsrækt, hollt mataræði og útlit, - leiðbeiningar um hvernig unnt er að ná góðu sam- bandi við félagana, vinkonur og stráka, og ekki síst bættu sam- komulagi við fjölskylduna. Hér er einnig fjallað um nám og skólastarf og ýmis vandamál sem því tengjast. í bókinni eru líka kaflar um kynlíif og getnaðar- varnir og jafnframt umfjöilun um þann félagslega þrýsting sem oft á sér stað varðandi reykingar, drykkju og fíkniefni og hvernig sporna megi gegn honum. Anna Ölafsdóttir Björnsson þýddi bókina. ■ Miriam Stoppard STELPNA FRÆDARINN Sirákar • útlit • vinir - þmski foreldrar • skóli • og allt hiit... ••• Mjólkursamlaa KEA ®Akureyri Simi96-21400

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.