Dagur - 18.12.1987, Side 22

Dagur - 18.12.1987, Side 22
22 - DAGUR - 18. desember 1987 Orðsending til jólasveina og barna Karíus og Baktus fara ekki í jólafrí. Tannvemdarráð HAGKAUP Akureyri Það getur valdiö slímhúðar- bólgum að taka í nefið eða vörina. LANOLÆKNIR Amerísku snjósleðagallamir komnir. Stærðir S-M-L-XL-XXL. ★ Pantanir óskast sóttar. ★ Verð aðeins kr. 8.600.- 10% jólaafsláttur EYFJORÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 VISA E ISBflRHBGBvBI WSB 3.- kci. gbÉHÉpg uaötio : ' - - ", .“ ■ M IWIIIl lfllKII IfeÆIBIiiiBteiiirffi?".- mnmm ímm mmMwm - §*ÉÉ Kaldaljós Bókaforlagið Svart á hvítu sendir nú frá sér bókina „Kaldaljós“ fyrstu skáldsögu Vigdísar Gríms- dóttur. Vigdís er að góðu kunn sem höfundur smásagnasafnanna „Tíu myndir úr lífi þínu“ og „Eldur og regn“. í skáldsögunni „Kaldaljós“ sækir hún efnivið sinn öðrum þræði til sannsögu- legra atburða - m.a. ógæfu er eitt sinn reið yfir íslenskt sjávarpláss. Við íslenskan fjörð rís fjallið Tindur yfir svörtum kofum erfið- ismanna. Á skuggsælu kvöldi sit- ur draumlyndur drengur við glugga þegar norn á priki ríður hjá og þau horfast í augu andar- tak. Hann heitir Grímur Her- mundsson. Barn í föðurhúsum teiknar hann máttugar myndir, uppkominn heldur hann til höfuðborgarinnar og nemur myndlist. í veröld hans virðist flest lúta illskýranlegum lögmál- um, í sömu mund er fæst sem sýnist. Jafnvel fjallið sem gnæfir yfir heimi bernskunnar er ekki allt þar sem það er séð. Hestar og menn Einn þeysti á skellinöðru upp á Kjalarnes með hnakkinn sinn á bakinu, annar lærði hesta- mennsku af rollukörlum suður í Hvassahrauni en sá þriðji var með hesta í litlum skúr niður við Eiliðavog. Og hverjir eru þessir menn? I dag eru þetta afreks- knaparnir okkar, íþrótta- mennirnir sem gerðu garðinn frægan á heimsmeistarmótinu í Austurríki og glöddu augu áhorf- enda á stórum og smáum mótum hérna heima. í þessari nýstárlegu hestabók er rakinn ferill þessara manna og margra fleiri, hér eru þau öll, Reynir Aðalsteinsson, Sigur- björn Bárðarson, Sigurður Sæm- undsson, Hafliði Halldórson, Eiríkur Guðmundsson, Peter Schröder, Bernd Vith og Els van der Tas. Hér er einnig sagt frá helstu mótum á liðnu ári, bæði hér á landi og erlendis. í bókinni er fjöldi ljósmynda og teikninga. Petta er bók sem enginn hestamaður getur látið fram hjá sér fara. Hestar og menn er sannkölluð árbók hesta- manna 1987. Konur og völd - Reykjavíkursaga í þessari bók er á hispurslausan hátt fjallað um kerfið, sem allir vita af, en enginn þekkir til hlítar, og eigi síður um stjórn- máiamenninga og þá rómuðu athafnamenn, sem stjórna á bak við tjöldin, þó að aðferðir þeirra séu ekki alltaf í góðu samræmi við það lýðræði, sem börnum er kennt í skólunum. Og ástalíf- ið, sem hér greinir frá, er heldur ekki í miklu samræmi við fram- tíðardrauma saklausra stúlkna. Sannarlega tímabær nútíma- saga. „Ástvaldur mætti klukkutíma of seint svo stjórnarmenirnir, sem vissu sig ekki til annars kjörna en að segja já og amen við tillögum Ástvalds, höfðu losað stíflu úr flöskuhálsi þótt venjan væri að gera það ekki fyrr en á fundinn leið og mönnum reið líf- ið á hressingunni ætti böðulslegur yfirgangur formannsins ekki að klára þá. Og því var komið vor í huga stjórnarinnar í stað vetrar- kvíðans sára, sem stjórnin var einlægt altekin í byrjun funda . . . allir brostu þeir utan einn, sá var áhrifamaður hjá því opinbera og þótti ekki vogandi að teyga þetta djöfulsglundur með því hann var nýkominn úr afvötnun á Kleppi.“ „Jónatan viðurkenndi aldrei nema eina reglu í hverju máli, einfaldlega þá reglu, sem þjónaði hagsmunum hans betur en hinar reglurnar." Útgefandi er Skjaldborg. (.isii rtissoiv Sambúð manns og sjávar Nýverið sendi bókaforlagið Svart á hvítu frá sér bókina „Sambúð manns og sjávar“ eftir Gísla Pálsson. Höfundur er lektor í mannfræði við Háskóla íslands og vinnur hér brautryðjendastarf með því að fjalla á skýran og greinargóðan hátt um sjávarbú- skap íslendinga frá öðru sjónar- horni en menn hafa vanist hingað til. Efni þessarar bókar varðar okkur öll af þeirri einföldu ástæðu að fáar þjóðir eru eins háðar fisk- veiðum og íslendingar. í bókinni er m.a. fjallað um landskunna aflaskipstjóra eins og Binna í Gröf, Eggert Gíslason o.fl. og leitað skýringa á frægð þeirra. Peirri kenningu er varpað fram að aflasæld ráðist ekki af hæfi- leikum einstakra skipstjóra en sú staðhæfing hefur vakið miklar deilur. Einnig er leitað svara við spurningum svo sem hvaða aug- um líta sjómenn starf sitt? Fjöl- skylduna? Hvernig er framleiðsl- unni í landi og verkaskiptingu kynjanna háttað? Verður kvóta- kerfið þess valdandi að aflakóng- urinn skipar ekki lengur þann sess sem hann hafði í vitund þjóðarinnar? STAÐAR NEM! Öll hjól eiga að stöðvast

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.