Dagur - 31.12.1987, Síða 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Kjörbúðir KEA:
Afgreiðslutími
breytist vemlega
- ein verslun verður opin til kl. 20.00 sex daga vikunnar
Frá og með áramótum lengist
afgreiðslutími matvöruversl-
ana KEA um 35 klst. á viku.
Ein kjörbúð, Byggðavegur 98,
verður opin til klukkan 20 sex
daga vikunnar, en verslanirnar
Hrísalundur 5, Sunnuhiíð 12
og Brekkugata 1 verða opnar
milli kl. 10 og 16 á laugardögum.
Verslun um söluop mun þess í
stað að mestu leyti falla niður á
virkum dögum en viðskipta-
vinum er bent á að kynna sér
auglýsingar í kjörbúðunum.
Kjörbúðinni að Byggðavegi 98
er ætlað að gegna hlutverki sér-
stakrar þjónustuverslunar, og á
laugardögum verður opnað þar
kl. 10.
Kjörmarkaðurinn að Hrísa-
lundi 5 verður opinn frá kl. 09-18
mánudaga, þriðjudaga og mið-
vikudaga, til kl. 20 á fimmtudög-
um, til kl. 19*á föstudögum og
milli kl. 10-16 á laugardögum.
Selt verður úr söluopi frá kl. 16-
20 á laugardögum og frá 11-18 á
sunnudögum.
í verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð 12 verður opið til kl. 18
fyrstu fjóra daga vikunnar. Á
föstudögum verður opið til 19 og
á laugardögum frá kl. 10-16.
Kjörbúðin Höfðahlíð 1 verður
opin til kl. 18 alla virka daga. Á
laugardögum verður selt gegnum
söluop frá kl. 11-20 og á sunnu-
dögum frá kl. 11-18.
I Brekkugötu 1 verður sömu-
leiðis opið til kl. 18 alla virka
daga. Á laugardögum verður
opið frá kl. 10-16 og selt verður
gegnum söluop frá 11-18 á sunnu-
dögum. Afgreiðslutími kjörbúða
KEA að Hafnarstræti 91, Hafn-
arstræti 20 og Ránargötu 10
breytist ekki.
Björn Baldursson, fulltrúi á
verslunarsviði KEA, lagði
áherslu á að þar sem opnunartími
verslana væri nú frjáls væri eðli-
legt að opna verslanirnar enn
meir og minnka viðskipti gegnum
söluop. Þjónusta væri augljóslega
betri í opinni verslun en gegnum
söluop og von KEA væri sú að
með þessu fyrirkomulagi fái við-
skiptavinir enn betri þjónustu.
Tíminn mun leiða í Ijós hvort
frekari breytinga er þörf. EHB
Úr einni af kjörbúðum KEA.
Endurhæfinaarstöðin
fær meira fjármagn
- „Mjög ánægjulegt,“ segir Guðmundur Bjarnason ráðherra
Framlög til endurhæfíngar-
stöðvar Sjálfsbjargar hækka
um 3 miljónir frá upprunaleg-
um tillogum í tjárlögum.
Sjálfsbjörg á Akureyri átti að
fá tæpar 4,5 milljónir en þessi
upphæð hefur nú verið hækk-
uð í rúmar 7,4 miljónir.
„Það er mjög ánægjulegt að
fjárveitinganefnd hafi tekið þetta
mál til endurskoðunar,“ sagði
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra eftir að fjárveit-
inganefnd hafði lagt fram breyt-
ingartillögur sínar. „Fjárskortur
hefur háð starfsemi stöðvarinnar
í undanförnum árum. Þingmenn
kjördæmisins hafa því lagt á það
áherslu að meira fjármagn fengist
og nú hefur nefndin fallist á það
sjónarmið. Hins vegar gerum við
okkur grein fyrir því að þetta er
ekki nóg til þess að stöðin geti
skilað hlutverki sínu fullkom-
lega. Þetta er samt sem áður spor
í rétta átt og á vonandi eftir að
vera lyftistöng í starfsemi Sjálfs-
bjargar á Akureyri,“ sagði Guð-
mundur Bjarnason ráðherra að
lokum. AP