Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 2
2 -mDAGJJR ’r.l t. janúar 1988
Umframkartöflurnar til Noregs?
Norðmenn vilja
frekari viðræður
- um kaup á 10 þúsund tonnum af kartöflum
Viðbrögð við reynsiusendingu
á íslenskum kartöflum sem
fóru á markað í Noregi fyrir
jólin eru nú að berast og er lík-
legt að nú á næstu dögum muni
koma fuiltrúar frá Noregi til
Islands til að ræða um kaup á
öllu umframmagni af kartöfl-
um sem til eru í landinu. Mark-
aðssvið Búnaðarbanka íslands
kannaði í haust fyrir samtök
kartöflubænda hvort mögu-
leikar kynnu að vera á útflutn-
ingi umframbirgða af íslensk-
um kartöflum og í framhaldi af
því var samið við Norðmenn
um 12-15 tonna reynslusend-
ingu.
Að sögn Heimis Hannessonar,
framkvæmdastjóra markaðssviðs
Búnaðarbankans er um að ræða
10 þúsund tonna umframbirgðir
hér á landi. Framleiðsla Norð-
Strætisvagnar Akureyrar:
Nýtt leiða-
kerfi
manna brást á síðasta sumri og
eru kartöflur þeirra senn á
þrotum. Viðræðuaðili íslendinga
í Noregi, Gartnerhallen, er til-
búinn til að kaupa allar
umframbirgðir héðan þ.e.a.s.
ef um semst og markaðsviðbrögð
ytra verða jákvæð.
„Óskir Norðmanna um við-
ræður við okkur eru ekki endan-
lega staðfestar en það byggist á
að niðurstöður eru ekki komnar
úr öllum héruðum í Noregi þar
sem kartöflurnar fóru á markað.
Það er hins vegar ljóst að Norð-
menn þurfa að fara að flytja inn
kartöflur mjög fljótlega þar sem
heimabirgðir eru á þrotum," seg-
ir Heimir.
Reynslusendingin var seld víða
í Noregi og þau viðbröð sem bor-
ist hafa eru í flestum tilfellum
jákvæð. Heimir sagði að ljóst
væri hvað norskir bændur fengju
greitt fyrir kartöflur en Norð-
menn vilji fá viðbrögð við kart-
öflunum áður en til samninga
verði gengið. „Við vitum nokk-
urn veginn á hvaða verðbili þetta
liggur en best er að láta það iiggja
milli hluta í bili,“ sagði Heimir
Hannesson. JÓH
Utibússtjórar banka á Akureyri telja lausafjárstöðuna vel viðunandi og í
jafnvægi um áramót. Mynd: TLV
Akureyri:
Nýskrán-
ing bíla
- jókst um 63%
Bifreiðum fjölgaði mjög á
Akureyri á nýliðnu ári og að
sögn Sigurðar Indriðasonar hjá
Bifreiðaeftirliti ríkisins á
Akureyri voru í kringum 1.800
bifreiðar nýskráðar á árinu.
Þetta er um 63% aukning frá
árinu áður en þá voru nýskrán-
ingar um 1.100.
Sigurður sagði að A-númerin
væru nú komin upp í 12700 og
því ekki langt í það að bifreið
með númerinu A-13000 aki um
vegi Eyjafjarðar. Þótt nýskrán-
ingar hafi verið 1.800 í fyrra
fjölgaði bílunum meira, en ávallt
er nokkuð um að bílar á A-núm-
erum séu skráðir í Reykjavík.
Tölur um fjórhjól, vélhjól og
vélsleða eru ekki fyrirliggjandi en
sem kunnugt er hófst skráning
fjórhjóla síðastliðið vor og hafa
þau streymt til bæjarins í umtals-
verðu magni. Sigurður sagði hins
vegar að það teldist til undan-
tekninga ef komið væri með
skellinöðrur til skráningar hjá
eftirlitinu. Svo virðist sem þessi
áður vinsælu farartæki eigi ekki
upp á pallborðið hjá unglingum
lengur og má kannski kenna um
hve dýrar skellinöðrur eru
orðnar. Þá hafa fjórhjólin að ein-
hverju leyti leyst þær af hólmi.
SS
Lokið hefur verið gerð nýs
leiðakerfis Strætisvagna Akur-
eyrar. Stærsta breyting frá
núgildandi kerfl er sú að enda-
stöð og aðstaða vagnstjóra
verður flutt á Syðri-Brekku úr
Miðbæ og fer tímajöfnun þar
fram. Ekki er enn Ijóst hvenær
kerfið kemst í gagnið þar sem
húsnæði fyrir vagnstjóra og
endastöð er ófundið enn.
Megin breyting í nýja kerfinu
er sú að ekinn er nokkurs konar
hálfhringur á Brekkunni, síðan í
gegnum Miðbæinn og út í Glerár-
hverfi þar sem nánast sömu leiðir
verða eknar og áður. Sama leið
er síðan ekin til baka þannig að
með þessu fæst betri tenging mili
Oddeyrar og Brekku annars veg-
ar og Glerárhverfis og Brekku
hins vegar.
Yfir vetrartímann mun tíðni
ferða aukast á Brekkunni en ekki
er gert ráð fyrir að aksturstími
strætisvagnanna muni breytast
frá því sem nú er. JÓH
Bankar og sparisjóðir á Akureyri:
Talsverð raunaukning
innlána á síðasta ári
Heildarinnlán banka og spari-
sjóða á Akureyri, jukust á síð-
asta ári um 34,4% að meðal-
tali. Um er að ræða talsverða
raunaukningu, því sé til að
mynda borið saman við hækk-
un lánskjaravísitölu á árinu þá
var hún um 22,2%. Almenn
útlán jukust heldur meira hjá
stofnununum eða um 36,2%.
Munar þar mest um þrjá
stærstu bankana sem allir juku
útlán sín meira en innián.
Flestir bankarnir náðu að
standa við bindiskyldu sína hjá
Seðlabankanum en hún er um
13% innlána, og lausafjárbind-
ingu sem er um 8%. Yfirleitt
sögðu útibússtjórar að lausafjár-
staðan væri vel viðunandi og í
jafnvægi um áramótin.
Landsbanki Islands sker sig
talsvert úr því bankinn var á sfð-
asta ári með um helming innlána
á Akureyri eða um 1.732,9 millj-
ónir og aukningu upp á 34,4%.
Útlán bankans voru hvorki meira
né minna en 3.153,7 milljónir og
jukust um 51,9%. Bankinn þurfti
því að taka talsvert fé að láni frá
Seðlabanka íslands og erlendum
bönkum. Séu aðeins tekin
almenn útlán og landbúnaðarlán
en gengistryggðum afurðalánum
sleppt þá voru útlánin 1.854,3
milljónir og jukust um 42,4% frá
fyrra ári.
Búnaðarbankinn er í öðru sæti
með innlán en þau voru á síðasta
ári 817 milljónir og jukust um
37% en útlánin voru 703 milljón-
ir og jukust um 39%. Iðnaðar-
Akureyri:
Iðnverkafólk fær viðurkenningar
bankinn er í þriðja sæti, þar voru
innlánin 417,7 milljónir og aukn-
ingin 30,14% og útlán 408,2
milljónir, aukningin 38,6%.
Hjá öðrum bönkum og spari-
sjóðum á Akureyri voru innlán
og útlán sem hér segir. Á eftir
upphæðum í milljónum er hækk-
unin frá fyrra ári sýnd í prósent-
um.
Útvegsbankinn: Innlán 195 m.
28%, útlán 125 m. 25%. Alþýðu-
bankinn: 156,6 m. 29,9%, útlán
118,6 m. 29,8%. Sparisjóður
Akureyrar: Innlán 121,7 m.
48,7%, útlán 93 m. 48%. Spari-
sjóður Glæsibæjarhrepps: 81,5
m. 33%, 73,8 m. 30,6%.
í innlánum var aukningin alls
staðar mest í svokölluðum sér-
kjarareikningum en í útlánunum
var mesta aukningu að finna í
verðtryggðum skuldabréfum.
námskeiðinu.
afliendir viðurkenningu fyrir þátttöku í starfsmenntunar-
Mynd: TLV
A þriðjudaginn voru eitt
hundrað sextíu og fímm starfs-
mönnum í ullariðnaði á Akur-
eyri afhent námsskírteini við
athöfn í Félagsborg, starfs-
mannasal verksmiðja Álafoss
hf. og Iðnaðardeildar SÍS á
Akureyri. Jón Sigurðarson,
forstjóri Álafoss hf., afhenti
skírteinin og flutti ávarp til
starfsfólksins.
Námskeið þessi brjóta blað í
starfsmenntun fólks í fata- og
vefjariðnaði á íslandi. Iðja, félag
iðnverkafólks á Akureyri, stóð
fyrir námskeiðunum í samvinnu
við forráðamenn Iðnaðardeildar,
sem þá var, og Vinnumálasam-
band samvinnufélaga. Þátttaka í
námskeiðunun var mjög góð en
þeir sem luku öllum þáttum þessa
fá launahækkun og viðurkenn-
ingu innan sinnar atvinnugreinar
fyrir að hafa stundað nám tengt
vinnunni.
Ráðgjafarfyrirtækið Ari hf. á
Akureyri skipulagði stærsta hluta
námskeiðahaldsins, sem stóð yfir
í um þrjá mánuði. Iðnverkafólk-
ið, sem sótti námskeiðin, var
ánægt með þau enda var efni
námskeiðanna hagnýtt og hafði
mikið upplýsingagildi fyrir
starfsmenn. Vonir standa til þess
að með þessum námskeiðum sé
stigið fyrsta skrefið á þeirri braut
að koma á réttindanámi innan
fata- og vefjariðnaðar og skapa
grundvöll fyrir áframhaldandi
nám verksmiðjufólks. EHB
ET
Hofsós:
Fjölgun
íbúa
Að sögn Ófeigs Gestssonar
sveitarstjóra á Hofsósi er útlit
fyrir að þorpsbúum hafl fjölg-
að um 5% á síðasta ári.
Bráðabirgðatölur frá 1. des.
segja fjölgunina minni. En Ófeig-
ur segir að hið rétta komi í ljós
þegar leiðréttingar verða gerðar.
Kærufrestur á manntali vegna
aðsetursskipta er enn ekki
útrunninn. -þá