Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 11. janúar 1988
fþróttir
i
Þórunn Siguröardóttir brýst inn af línunni og skorar fyrir Þór í leiknum gegn
GrÓttU. Mynd: EHB
Handbolti 2. deild kvenna:
Mikilvægur sigur
í toppbaráttunni
Þór sigraði Gróttu 19:16
Þórsstelpurnar unnu mikilvæg-
an sigur á Gróttu er liðin mætt-
ust í 2. deildinni í handbolta í
Skemmunni á laugardag.
Grótta hafði aðeins tapað fyrir
ÍBV fyrir leikinn á laugardag
en liðið hefur nú tapað tveimur
leikjum eins og Þór sem hefur
leikið fjórum leikjum fleira.
Þórsstelpurnar náðu yfirhönd-
inni strax í upphafi og höfðu yfir
nær allan fyrri hálfleikinn. Um
miðjan hálfleikinn var staðan
jöfn 3:3 en Þórsstelpurnar skor-
uðu þá þrjú mörk í röð og
breyttu stöðunni í 6:3. í hálfleik
hafði Þór þó aðeins eins marks
fory'stu, 8:7.
I síðari hálfleik var munurinn
lengst af þetta 1 til 2 ntörk Þór í
vil og það var ekki fyrr en á allra
síðustu mínútunum að liðinu
tókst að tryggja sér sigurinn,
þrátt fyrir ágæt marktækifæri. En
úrslitin urðu 19:16 Þór í vil og var
þessi sigur liðsins mjög mikilvæg-
ur í toppbaráttunni. Þórsstelp-
urnar misnotuöu alls 5 vítaköst í
leiknum sem er allt of mikið og
hefði getað reynst þeim dýr-
keypt.
Þórsstelpurnar hafa oft leikiö
betur en sigur liðsins var engu að
síður mjög sanngjarn. Að venju
voru þær Þórunn Sigurðardóttir,
Inga Huld Pálsdóttir, Valdís
Hallgrímsdóttir og Sólveig Birg-
isdóttir atkvæðamestar. Þórunn
skoraði 6 mörk, Inga Huld 5,
Valdís 4, Sólveig 3 og Steinunn
Geirsdóttir 1.
Hjá Gróttu bar langmest á
Þuríði Reynisdóttur en hún skor-
aði 7 mörk. Ágústa Pétursdóttir
skoraði 5 mörk, Elísabet Þor-
geirsdóttir 2, Brynhildur Þor-
geirsdóttir 1 og Sigríður Snorra-
dóttir 1.
Dómararnir komu frá Húsavík
að þessu sinni en það voru gömlu
kempurnar Arnar Guðlaugsson
og Pálmi Páimason sem klæddust
svörtu búningunum og stóðu þeir
sig vel.
Bikarkeppni KKÍ:
IR-ingar löbbuðu
yfir Þórsara
unnu öruggan sigur 102:65 í gær
Þórsarar riðu ekki feitum hesti
frá viðureign sinni við ÍR í
bikarkeppninni í körfubolta í
Seljaskóla í gær. ÍR-ingar
hreinlega löbbuðu yfir Þórslið-
ið og sigruðu með 102 stigum
gegn 65.
Það var einungis í hluta af fyrri
hálfleik sem Þórsarar höfðu roð
við frísku ÍR-liðinu. Annars
Eiríkur Sigurösson og félagar hans í Þór eru úr leik í bikarnum eftir tap gegn
IR í gær.
Blkarkeppni KKÍ:
Góður leikur á Kióknum
- þrátt fyrir 16 stiga sigur Hauka
Úrvalsdeildarlið Hauka fékk
verðuga mótspyrnu þegar það
lék gegn Tindastól á Króknum
í gær. En þrátt fyrir mikla bar-
áttu og góðan leik lengst af
náðu heimamenn ekki að bera
gestina ofurliði og töpuðu með
16 stiga mun. Er það minni
munur en almennt var búist
við.
Stólarnir byrjuðu af miklum
krafti og er 5 mínútur voru liðnar
höfðu þeir yfir 11:5. Það var síð-
an mest fyrir forgöngu þeirra
Websters og Pálmars sem Hauk-
arnir réttu úr kútnum og náðu að
jafna skömmu síðar 13:13, og
komast síðan í beinu framhaldi í
20:13. Á þessunt tíma misstu
heimamenn taktinn. Leikurinn
var síðan í jafnvægi fram undir
leikhlé, að Tindastólsmenn áttu
annan siæman kafla. Má segja að
hann hafi gert útslagið í leiknum
og var staðan í leikhléi 49:34.
Síðari hálfleikurinn var mun
betri hjá Stólunum og náðu þeir
annað slagið að klóra í bakkann,
allt niður í 7 stig. En sigur Hauk-
anna var aldrei í hættu og urðu
lokatölur 91:75. Pálmar Sigurðs-
son var potturinn og pannan í
leik þeirra, en einnig áttu þeir
Henning Henningsson og Ivar
Ásgrímsson góðan leik. Þá var
Webster drjúgur þrátt fyrir að
hann skorði aðeins 7 stig. Pálmar
skoraði 25 stig, mest 3ja stiga
körfur. Henning 24 og ívar Á.
14.
Tindastólsliðið lék eins og áður
segir vel lengst af. Eyjólfur
Sverrisson og Björn Sigtryggsson
voru atkvæðamestir að þessu
sinni. Skoraði Eyjólfur 24 stig og
Björn 23. Haraldur Leifsson átti
góðan sprett þegar hann kom
inná í seinni hálfleiknum og skor-
aði þá 10 stig. Kári Marísson og
Sverrir Sverrisson voru drjúgir að
vanda. Kári skoraði 8 og Sverrir
6. Þá komst Ágúst Kárason, sem
skoraði 4 stig, vel frá leiknum.
Sigurður Valur Halldórsson og
Bergur Steingrímsson dæmdu
vel. -þá
byrjaði leikurinn ekki vel fyrir
norðanmenn. ÍR-liðið notaði
pressuvörn og kom það Þórsur-
um dálítið í opna skjöldu. Þeir
glopruðu boltanum niður hvað
eftir annað og ÍR-ingar skoruðu
auðveldar körfur. Brátt var því
staðan orðin 30:17.
Þórsliðið hresstist nú eilítið við
og náði að skora nokkur stig og
það lifnaði þá yfir þeim fáu
áhorfendum sem studdu þá rauð-
klæddu. Annars er það styrkur
ÍR hve aðdáendur þeirra taka vel
þátt í leiknunt. Hávaðinn er oft
yfirþyrmandi og það kemur auð-
vitað niður á spili gestanna.
í seinni hálfleik byrjaði hins
vegar slátrunin fyrir alvöru. ÍR-
ingar hreinlega löbbuðu í gegn-
um Þórsvörnina og norðanmenn
voru afar slakir í fráköstunum við
báðar körfurnar. Það greip um
sig hálfgert vonleysi hjá þeirn
rauðklæddu og menn fóru að
reyna að skora þriggja stiga körfur-
úr vonlausum færunt. Staðan
breyttist úr 42:30 í hálfleik, í
90:53 seint í seinni hálfleik. Síð-
ustu mínúturnar voru bara spurn-
ing hvort ÍR-liðinu tækist að rjúfa
100 stiga múrinn. Þeim tókst það
og leikurinn endaði því eins og
áður sagði 102:65.
Þórsliðið var slakt í þessum
leik, eins og leikmennirnir vita
best sjálfir. Það vantaði alla
grimmd í varnarleikinn og hittnin
var í lágmarki í sókninni. Eini
maðurinn sem lék af fullri getu
var Guðmundur Björnsson, en
það dugir ekki gegn heilu liði.
Helsti styrkleiki ÍR er liðs-
heildin. Allir leikmenn liðsins,
utan eins, skoruðu körfur í leikn-
um og engin liðsmanna liðsins
virðist ómissandi. í þessum leik
voru þeir Björn Steffensen og
Vignir M. Hilmarsson einna best-
ir og hittni þeirra, sérstaklega í
seinni hálfleik, var með ólíkind-
Stig Þórs: Guðmundur Björns-
son 20, Jóhann Sigurðsson 12,
Björn Sveinsson 10, Bjarni Öss-
urarson 10, Eiríkur Sigurðsson 9,
Einar Karlsson 4.
Stig ÍR: Vignir M. Hilmarsson
22, Björn Steffensen 20, Karl
Guðlaugsson 18, Jón Örn Guð-
mundsson 16, Jóhann Sveinsson
8, Bragi Reynisson 8, Halldór
Hreinsson 8, Björn Leósson 2.
Dómarar voru þeir Jón Otti
Ólafsson og Gunnar Valgeirsson
og dæmdu þeir leikinn ágætlega,
enda var hann auðdæmdur. AP
Kvennalið KA í blaki tapaði fyrir UBK á laugardag.
Mynd: EHB
■ ■
Blak 1. de
Orugc
UBKgc
UBK var ekki í vandræðum
með KA er liðin léku í 1. deild
kvenna í blaki í íþróttahúsi
Glerárskóla á laugardag. Þrátt
fyrir að þrjár af bestu leik-
mönnum UBK léku ekki með,
var sigur liðsins mjög öruggur.
Meðal þeirra sem ekki mættu í