Dagur - 17.03.1988, Side 7
17. mars 1988 - DAGUR - 7
„Vottar Jehóva eru hvergi álitnir
kristnir innan kirkjunnar“
- segir sr. Birgir Snæbjörnsson
„Ég gleðst ákaflega mikið yfír
því að þetta rit komi nú fram
til að vara fólk við kenningum
votta Jehóva, því mér líst ekk-
ert á þær kenningar og það
yrði vá fyrir þjóðina ef þetta
færi að breiðast verulega út,“
sagði sr. Birgir Snæbjörnsson,
sóknarprestur á Akureyri,
vegna bækiings sem Reynir
Yaldimarsson, læknir, hefur
látið prenta og mun dreifa í
hús á Akureyri.
Sr. Birgir sagði, eftir að hafa
kynnt sér bækling Reynis, að
Reynir noti mikið eigin orð vott-
anna, og sýni með því fram á
hversu fáránlegar kenningar
þeirra eru. Reynir gerir grein fyr-
ir því að kenningar vottanna
standist engan veginn, að sögn sr.
Birgis. „Ég man eftir því þegar
ég var í guðfræðideild Háskól-
ans, að þá kom roskinn maður
upp á Garð til okkar. Hann
hafðu alveg sannfærst af kenn-
ingu vottanna um að heimsendir
væri alveg að koma, og fullyrti
við okkur að hann myndi lifa af
þessi straumhvörf. Þessi maður
átti bjargfasta trú, sefjaður af
vottunum. Nú hlýtur hann að
vera búinn að liggja í áratugi
undir grænni torfu, en það eru
liðin rúm 35 ár frá því að þetta
gerðist. Ef sannleikur vottanna
er líkur þessu þá býð ég ekki
mikið í hann.
Ef benda ætti á eitthvert
ákveðið dæmi í kenningum vott-
anna, sem stangast á við kenn-
ingu jrjóðkirkjunnar, er slíkt
auðvelt því þar er um auðugan
garð að gresja. T.d. segir Kristur
við ræningjann á krossinum að
hann muni vera með honum í
Paradís, ekki einhvern tímann í
framtíðinni heldur þá strax.
Hann segir: „Sannlega segi ég
þér, í dag skaltu vera með mér í
Paradís." Vottarnir neita að trúa
þessu, en mér finnst þetta atriði
mikils virði í sambandi við fram-
tíðarheill okkar og trú á að Krist-
ur taki á móti okkur þegar ævi
okkar er öll.
Ég vil ekki dæma um það hvort
vottarnir stofni sáluhjálp sinni í
hættu vegna þess að Kristur segir
að Guði sé ekkert ómáttugt. Það
er fyrst og fremst Guð sem
stjórnar því. Við verðum öll að
koma fram fyrir okkar dómara og
það er hans að dæma en ekki
okkar mannanna. Ég vil því ekki
segja að einn fyrirfarist en annar
sé hólpinn, en þetta gera vottarn-
ir alveg hiklaust. Þeir segja að
ekki nema 144 þúsund manns
komist í Guðsríki. Ég tek mér
ekki slíkt dómsvald.
Vottar Jehóva telja kenningu
okkar prestanna hreina villu-
kenningu, en þeir eru hvergi
nokkurs staðar í heiminum álit-
inn kristinn trúflokkur af neinni
viðurkenndri kristinni kirkju.
Þeir miða allt sitt við Gamla
testamentið og leggja frekar upp
úr því en hinu nýja. Gamla te&ta-
mentið er að sönnu trúbók gyð-
inga en aðalatriðið er að vottarn-
ir eru ekki kristnir. Vottarnir
vilja ekki hafa mikið með Krist
að gera og alls ekki í þeirri mynd
sem kristnir menn trúa á hann,
sem frelsara sinn sem týndi lífi
sínu svo við mættum lifa.
Ég vil ráðleggja fólki, sem er
að velta því fyrir sér að ganga í
söfnuð vottanna, að hafa sam-
band við okkur prestana og
ræða við okkur um þessi mál, eða
aðra kristna menn. Fólk má ekki
láta sefja sig, en því miður virðist
vera auðvelt að sefja margt fólk
og af mannkynssögunni þekkjum
við hvernig einræðisherrar hafa
sefjað heilar þjóðir og hafa getað
talið þeim trú um nánast hvað
sem er. Þessi miðstöð vottanna,
sem gefur út kenningar þeirra,
Sr. Birgir Snæbjörnsson.
virðist hafa mjög sterk tök á
þeim. Moons í Bandaríkjunum
er hliðstæður við þetta, hann hef-
ur sefjað fólk í stórum stíl. Ef
hægt er að ná einum og einum út
úr hópnum og sýna fólki fram á
hvað það hefur verið að gera þá
skilur það ekkert í því og hvers
vegna það hefur lagt lag sitt við
vottana.
Það er augljóst að sá, sem er
vel að sér í Heilagri ritningu, fell-
ur síður fyrir kenningum þeirra
en fólk sem lítið hefur kynnt sér
Guðs orð. Boðorðin tíu eru í
sínu fulla gildi og einnig margt í
Gamla testamentinu en það virð-
ist vera að hægt sé að leggja þetta
út á furðulegustu vegu. Túlkun
þeirra samrýmist ekki kenningu
neinnar kristinnar kirkju í heim-
inum og það hlýtur því að vera
einkennileg túlkun."
Sr. Birgir sagði að lokurn, að
hann ráðleggði fólki að geyma
bækling Reynis og jafnvel nota
liann ef votta bæri að garði. „En
að gefnu tilefni vil ég segja að
fólki ber engin skyída til að
hleypa vottum inn á heimili sín,
því heimilin eru friðhelg."
Nissan Sunny 4x4
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdi-
marssonar á Akureyri hefur
undanfarið haldið nokkrar bíla-
sýningar á Nissan og Subaru
bifreiðum. Nissan bifreiðir hafa
sótt töluvert á hér á landi, að
sögn umboðsmanna, enda er
verð þeirra hagstætt.
Á sýningu fyrir skömmu á vegum
Sigurðar Valdimarssonar og
Ingvars Helgasonar hf. á Akur-
eyri var sýndur Nissan Sunny
fólksbíll með fjórhjóladrifi, en
þennan bíl er einnig hægt að fá í
„Sedan“ útgáfu. Fólksbíllinn
kallast Sedan 1,6 SLX en skut-
bíllinn er auðkenndur sem Wagon
1,5 SLX í kynningarbæklingi.
Nissan Sunny er aðlaðandi bfll,
og fyrir þá sem hugsa um erfiðar
akstursaðstæður er fjórhjóladrif-
ið mikill kostur. í kynningar-
bæklingi stendur, að Nissan
Sunny sé bíll allra aðstæðna án
þess að fórna þægindum eða
sparneytni. Fyrsta flokks innrétt-
ingar í fyrsta flokks bíl.
Innréttingar eru smekklegar í
Nissan Sunny, og mælaborð er
einfalt og þægilegt aflestrar.
Sterkt áklæði er á sætum, gólf er
teppalagt og gott rými er fyrir
ökumann og fjóra farþega.
Vélarnar í Nissan Sunny nefn-
ast E15S (fólksbíllinn) og E16S
(skutbíll). Vélin í fólksbílnum er
1597 cc og gefur 94 hö./5600 sn.
Vél skutbílsins er aðeins minni
eða 1487 cc og afl hennar er 84
hö./5600 sn. Þjöppunarhlutfall
vélanna er 9:1, en þær eru af
hefðbundinni gerð; fjögurra
strokka vatnskældar línuvélar
með yfirliggjandi knastás. Blönd-
ungur er tveggja hólfa, elds-
neytistankur tekur 50 lítra.
Hægt er að velja um beinskipt-
an fimm gíra kassa eða þriggja
þrepa sjálfskiptingu í þessa bíla.
Snúningsradíus bílanna er 10,2
metrar, lengd milli hjóla er 2430
mm, þyngd (Sedan) 1120 kg
(hlassþyngd 455 kg), Wagon 1140
kg (hlassþyngd 435 kg).
Nissan Sunny er stílhreinn og rennilegur bíli.
Mynd: EHB
Félagar munið aðalfundinn í Skátaheimilinu
Hvammi föstudagskvöldið 18. mars kl. 20.30.
Stjórnin.
Eldridansaklúbburinn
Dansleikur í Lóni Hrísalundi,
laugardaginn 19. mars kl. 22-03.
Hljómsveit Bigga Mar og Dolli sjá um fjörið.
★ Allir velkomnir ★
Stjórnin.
Veiðimenn - Veiðimenn
ísborir og dorgir í úrvali
Veiðileyfi í Þverbrekkuvatni
Húnvetningar —
Húnvetnlngar
Almennur fundur um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga verður haldinn að Hótel Blönduós
fimmtudaginn 24. mars nk. kl. 20.30.
Frummælendur:
Guðni Ágústsson alþingsimaður og Valgarður Hilm-
arsson oddviti.
Allt áhugafólk um framtíð landsbyggðarinnar er
kvatt til að mæta.
í dag fimmtudag frá kl. 2-6
Mjólkursamlag KEA kynnir
MYSUOST OG
TREFJAJÓGÚRT
Kynnist nyrri framleiöslu
Opið föstudaga til kl. 18 og laugardaga 10-16
Kjörbúð KEA
Sunnuhtíð