Dagur - 05.04.1988, Page 2

Dagur - 05.04.1988, Page 2
2 - DAGUR - 5. apríl 1988 y Hreppsnefnd Skagastrandar: Alyktar um hús- hitunarkostnað - Ályktun send Á fundi Höfðahrepps þann 17. mars var gerð samþykkt um verð á rafmagni til húshitunar. þar sem hreppsnefndin mót- mælti hinni stórfelldn hækkun sem orðið hefur á raforku til húshitunar, á síðustu mánuð- um. Samþykktin var send Friðrik Sophussyni, iðnaðar- ráðherra. Bent er á að gífurlegur aðstöðumunur er á milli heimila í einstökum sveitarfélögum í land- inu, að því er varðar húshitunar- kostnað. Samkvæmt athugun iönaðarráðherra Fjórðungssambands Norðlend- inga er hitunarkostnaður í meðalhúsum, með raforku, 87% hærri en ef hitunarkostnaður framfærsluvísitölunnar er notað- ur sem viðmiðun. Það er skoðun hreppsnefndarinnar að, leitast verði við að minnka þennan ntun í stað þess að auka hann. Verði ekki gerðar viðeigandi leiðréttingar í þessu efni, kemur til athugunar að hreppsnefndin semji í einu lagi, fyrir hönd hús- eiganda í hreppnum, um kaup á raforku eða öðrum orkugjafa til húshitunar. Ibúðir fyrir aldraða: Spurst fyrir um bygging- arreit sunnan Hlíðar Miðað við eftirspurn eftir íbúðum í fjölbýlis- og raðhús- um sem fyrirhugað er að byggja við Víðilund, þá er mikil þörf fyrir þjónustuhús- Nýjar götu- Ijósaperur - spara orku Rafveita Akureyrar er smám saman að skipta frá gömlu hvítu kvikasilfursgötuljósaper- unum yfir í nýjar gular háþrýstiperur. Þegar hefur verið skipt um perur í Ijósa- staurum við aðalumferðargöt- urnar og á næstu árum mun verða skipt um perur á öllum Ijósastaurum bæjarins. Að sögn Svanbjörns Sigurðs- sonar rafveitustjóra eru þessar nýju perur eitthvað dýrari en þær gömlu. Á móti kemur hins vegar að mun minna orkumagn þarf til lýsingar og þar að auki endast þær mun lengur. Háþrýstiperurn- ar eru því fljótar að borga sig og að sögn Svanbjörns er lýsingin frá þeim einnig talin mun betri. Þessar nýju perur eru þegar komnar upp við Hörgárbraut, Drottningarbraut, Glerárgötu, Þórunnarstræti, _ Kaupvangs- stræti, Þingvallastræti og Hlíð- arbraut. Á næstu mánuðum á síðan að setja þær upp við Hjalt- eyrargötu, Strandgötu, Tryggva- braut og nýju Dalbrautina. AP Einarsbakarí: Sækir um leyfi fyrir brauðvagni Skipulagsnefnd Akureyrar- bæjar hefur borist erindi frá Einarsbakaríi hf. þar sem sótt er um leyfi fyrir brauðvagni, sem staðsettur yrði á Ráðhús- torgi eða í göngugötunni. Nefndin bendir á þann mögu- leiga að koma söluvögnum fyrir á lóðinni nr. 105 við Hafnarstræti, þar sem rakarastofan var, uns byggingaframkvæmdir hefjast þar og nefndin mælir með því að pylsuvagn, sem nú er í göngugöt- unni, verði færður þangað. Að öðru leyti vísar skipulags- nefnd erindinu til bæjarráðs, en greinilegt er að vaxandi ásókn er í leyfi fyrir alls kyns söluvagna í Miðbænum. SS næði fyrir aidraða á Akureyri. Að beiðni félagsmálaráðs hef- ur Cecil Haraldsson forstöðu- maður dvalarheimilanna spurst fyrir um möguleika á byggingu parhúsa á reit sunnan Dvalarheimilisins Hlíðar og austan bygginga hitaveitunnar. í fyrirspurninni er gert ráð fyr- ir tveimur parhúsum en allt eins er talið heppilegt að byggja rað- hús á svæðinu. Þeim er ætlað að koma í stað raðhúsa sem ætlunin var að byggja á lóð dvalarheimil- isins, sunnan og vestan nýbygg- ingar. Af þeim byggingum verður að líkindum ekki þar sem nýting lóðarinnar er orðin með mesta móti. Skipulagsnefnd taldi sig ekki geta fallist á þær skipulagsbreyt- ingar sem fólust í fyrirspurn Cecils. Fyrst og fremst var það aðkoma að húsunum sem nefnd- in gat ekki fellt sig við, taldi hana þurfa að vera of nálægt gatna- mótum Mímisbrautar og Þórunn- arstrætis. Cecil Haraldsson sagði í sam- tali viö Dag að hann myndi á næsta fundi skipulagsnefndar leggja fram nýjar tillögur um byggingu íbúða á lóðinni. Ef skipulagsnefnd getur fallist á þær þá er næsta skref í málinu að leita eftir því við Hitaveitu Akureyrar að hún afsali sér lóðarréttindum. ET Bændaklúbbsfundur: Maraþonsund Nemendur eldri bekkja Þelamerkurskóla tóku sig saman og syntu maraþonsund föstudaginn 25. mars. Tilgangur sundsins var að safna peningum til kaupa á nýjum íþróttabúningum fyrir lið skólans í hinum mismunandi íþróttagreinum. Það voru 24 nemendur sem þreyttu maraþonsundið og synti hver í 15 mínútur í senn. Síðan tók við a.m.k. sex tíma hvíld þannig að engin myndi ganga of nærri sjálfum sér. Krakkarnir syntu síðan í 24 tíma og í heild var vegalengdin sem þau syntu uin 58 km. Tókst þeim með þessu að safna um 100 þúsund krónum. Að sögn Þórarins Inga Péturssonar formanns skólafélagsins fékk hver nemandi í 7., 8. og 9. bekk áheitaseðil til að taka með sér heim og gekk vel að safna áheitum. 9. bekkur stefnir að því að fara í helgarferð til Reykjavíkur og fá þau einhvern hluta af þessum pen- ingum. AP Nú hefur SS Byggir hf. á Akureyri afhent fyrstu íbúðina í Ijölbýlishúsinu að Hjallalundi 18. F.v.: Heimir Rögnvalds- son, Sigurður Sigurðsson og Sveinn Magnússon, húsvörður, en myndin er tekin við afhendingu húsvarðaríbúðarinn- ar. Mynd: EHB Mánudaginn fjórða júlí nk. verður haldinn síöasti fundur hreppsnefndar Blönduóss- hrepps og fyrsti fundur bæjar- stjórnar Blönduóss, en þann dag verður Blönduós gerður að bæ. Áætlað er að helgina 1.-3. júlí verði haldið upp á þessi tímamót og þá um leið upp á 112 ára afmæli byggðar á Blönduósi. Skipuð hefur verið þriggja manna nefnd til að vinna með sveitarstjóranum að undirbúningi þessara tíma- móta og þeim hátíðahöldum sem þeim tengjast. Að sögn Hauks Sigurðssonar, sveitarstjóra Blönduóshrepps, hefur þróunin í landinu stefnt í þá átt að sveitarfélög, með yfir eitt þúsund íbúa, hafi verið gerð að bæjarfélögum. Hreppar teljast vera dreifbýli í hugum fólks en bæir til þéttbýlisstaða. Bæir hafa sömu réttindi og kaupstaðir og eru í beinu sambandi við félags- málaráðuneytið. Hreppar þurfa aftur á móti að sækja sitt til ríkisins, í gegnum sýslunefndir. Bæir eru ekki aðilar að sýslufélögum og losna því undan ýmsum ákveðnum gjalda- þáttum sýslufélagsins, svo sem greiðslum í sýsluvegasjóð. Þess má geta að fyrirhugað er að sýslufélög verði lögð niður um næstu áramót og við taki héraðs- nefndir eða byggðasamlög sem taki við verkefnum sýslunefnda. íbúar Blönduóss voru 1104 1. des 1987 og hafði þeim þá fjölgað um 32 á milli ára. Fjölgun íbúa á Blönduósi hefur verið yfir landsmeðaltali síðastliðin 12-15 ár. fh Menningarmálanefnd: Reynt að fá atriði af Listahátíð Listahátíð 1988 verður haldin í Reykjavík í sumar. Menning- armálanefnd Akureyrar hefur að undanförnu rætt um hvaða atriði af listahátíðinni væri hugsanlega hægt að fá til Akureyrar. Á fundi nefndarinnar 23. mars var samþykkt að reyna að fá þrennt: Danssýningu Black Bal- let Jazz frá Bandaríkjunum, tón- leika með finnska baritonsöngv- aranum Jorma Hynninen og myndlistarsýningu frá Listasafni íslands, sem væntanlega yrði þá sett upp í Glugganum. Nefndin samþykkti að gera ráð fyrir 150 þúsund krónum úr Menningarsjóði til þessara verk- efna. SS Blönduós verður bær 4. júlí Matjurtarækt og heimilis- gróðurhús Bændaklúbbsfundur verður hald- inn á Hótel KEA næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 21.00. Frummælandi á fundinum verður Garðar R. Árnason garðyrkju- ráðunautur Búnaðarfélags íslands og mun hann einkum fjalla um matjurtarækt og notkun heimilisgróðurhúsa.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.