Dagur - 05.04.1988, Síða 4

Dagur - 05.04.1988, Síða 4
4 - DAGUR - 5. apríl 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÚLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 60 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR. Skagaströnd: Bömum boðið um borð í Arnar eftir rannsóknaleiðangur RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (fþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Dýrkeypt ánauð Margir eru þeirrar skoðunar að reykingar séu fárán- legar, tilgangslausar og beinlínis vitlausar og er auð- velt að taka undir þá skoðun með tilliti til þess hve hættulegar þær eru. Engum blöðum er um það að fletta að reykingar eru skaðlegar heilsu manna og hví í ósköpunum eru menn þá að dunda við að soga ofan í sig tóbaksreyk í tíma og ótíma? Jú, þeir eru háðir þessari nautn, kikna undan ofurvaldi eitursins, byrja hvern dag skjálfandi af löngun, fálmandi eftir sígar- ettu til þess að geta mætt nýjum degi. Grípi þeir í tómt er voðinn vís því nikótínkonungurinn er harður hús- bóndi og hann refsar þegnum sínum grimmilega svík- ist þeir undan merkjum. Nikótínþörfin brýst út í heift- arlegri skapvonsku hjá þeim sem ánetjast hafa eitrinu ef þeir fá ekki sinn skammt. Sem betur fer hefur mörg- um tekist að losna út úr þessum vítahring og hafa tek- ið upp heilbrigðara líferni og eru fyrir vikið í mun betra ásigkomulagi, andlega sem líkamlega. Auðvitað er heppilegast að byrja aldrei að reylcja og þá stefnu virðast æ fleiri aðhyllast. Reykingar eru á undanhaldi hér á landi, einkum meðal barna og ungl- inga. í ávarpi Guðmundar Bjarnasonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, í tilefni af alþjóða heilbrigðis- deginum 7. apríl nk. kemur fram að árið 1986 reyktu tæplega 13% af 12-16 ára grunnskólanemum í Reykja- vík samanborið við 32% árið 1974. Meðal 15-20 ára skólanema reyktu 24% árið 1986 en 30% árið 1984 og árið 1987 reyktu 35% íslendinga á aldrinum 18-69 ára daglega á móti 40% árið 1985. Guðmundur segir í ávarpi sínu: „Árlega deyja 200- 300 íslendingar úr sjúkdómum sem tengjast reyking- um. Hér er fyrst og fremst um að ræða hjarta- og æðasjúkdóma ásamt lungnakrabbameini. Einkum er áhyggjuefni hversu hratt tíðni lungnakrabbameins vex meðal kvenna svo og hversu algengar reykingar eru meðal ungra kvenna. Á síðustu árum hefur verið sýnt fram á það í fjölda rannsókna að tóbaksreykur skaðar ekki reykingamennina eina heldur og þá sem reykja ekki sjálfir en verða að anda að sér reyk frá öðrum. Það verður því æ brýnna að tryggja svo sem frekast er kostur að þeir sem ekki reykja geti lifað og starfað í umhverfi sem er laust við slíka mengun." Þetta eru óneitanlega uggvænleg tíðindi og í ljósi þeirra hlýtur það að teljast argasta eigingirni og tillits- leysi að reykja innan um fólk sem gerir það ekki. Öfga- menn vilja sjálfsagt láta loka reykingamenn inni og banna innflutning á tóbaki en aðgerðir í þeim dúr væru afskaplega heimskulegar. Fræðsla og forvarnar- starf hlýtur að vera vænlegra til árangurs og það starf verður að styðja. Alþjóða heilbrigðisdagurinn er 7. apríl og sá dagur er jafnframt reyklaus dagur á íslandi. Tóbaksvarna- nefnd, landlæknisembættið, heilbrigðisráðuneytð, heilsugæslustöðvar, krabbameinsfélagið og RÍS 2000 standa fyrir ýmiss konar fræðslu og upplýsingastarf-" semi í tilefni reyklausa dagsins og aðstoð við þá sém vilja hætta að reykja. Þessi dagur getur orðið þýðing- armikill áfangi í lífi margra og Dagur tekur heilshugar undir orð heilbrigðisráðherra: „Það er von mín að reyklausi dagurinn 1988 hafi varanleg áhrif til að bæta heilsu landsmanna." SS - fiskseiði og sjávardýr skoðuð Að undanförnu hefur Haf- rannsóknastofnun verið með togarana Arnar, Rauðanúp, Ólaf Bekk, Bjart og Ljósafell við fiskirannsóknir umhverfis iandið og hafa menn frá stofn- uninni verið um borð í skipun- um við rannsóknarstörf. Þarna er unnið að verkefni sem nefnt er stofnmæling botnfisks á Islandsmiðum. Skipverjar á togaranum Arnari söfnuðu í ferðinni nokkru magni af lif- andi fiskseiðum, kröbbum og öðrum sjávardýrum, og komu með þau lifandi í sjókerum að landi. Þegar skipið kom að landi sl. föstudag var börnum úr grunnskólum á Húnavöllum og Skagaströnd boðið um borð til að skoða „sædýrasafnið“. Skólastjórar sýndu þessu áhuga og var fjölmennt um borð í Arnari, þar sem hann lá í höfninni á Skagaströnd, þeg- ar blaðamaður Dags kom þar við fyrir skömmu. Að sögn Björns Ævars Steins- sonar, leiðangursstjóra, hófust þessar rannsóknir á árinu 1985 og voru þá þessir fimm togarár tekn- ir á leigu til að sinna verkefninu. Síðan hafa verið farnar þessar rannsóknarferðir á hverju ári. Hann sagði að þessu væri þannig hagað að allir togararnir færu út samtímis og gerðu kann- anir á miðunum allt í kring um landið. Fimm menn frá Hafrann- sóknastofnun væru um borð í hverju skipi, auk áhafnanna. Hvert skip togar á 120 tog- stöðvum, á sínu svæði og hefði verið togað á sömu stöðvum frá því að rannsóknirnar hófust á árinu 1985. Björn Ævar sagði að þessar rannsóknir hefðu í upp- hafi farið af stað, í samráði við skipstjórnarmenn, í hverjum landshluta. Togað er í eina klst. á hverjum stað og allur afli lengd- armældur og að hluta gerðar kannanir á aldri fisksins, fæðu- sýni tekin og fæðumagn í maga kannað. Alls voru í ferðinni mældir 300 þús. fiskar, þar af 100 þús. þorskar. Tilgangur rannsóknanna er að meta stærð botnlægra fiskstofna og sérstök áhersla er lögð á þorskstofninn í því sambandi. Jafnframt fást góðar upplýsingar um stærð uppvaxandi árganga. Að sögn Björns Ævars voru þeir á Arnari fyrstir að ljúka sinni ferð. Þeir hefðu verið heppnir með veður en orðið að sleppa því að kanna 6-8 togstöðvar nyrst á svæðinu, vegna hafíss. Svæði Arnars í þessum rann- sóknum er út af vestanverðu Norðurlandi. Frá Grímsey að austan og að Þverálshorni og Kögurgrunni að vestan. En hvaða ályktanir má svo draga að lokinni ferð? Ekki taldi Björn Ævar neitt hægt um það að segja á meðan ekki lægju fyrir niðurstöður frá öllum skipunum sem þátt tóku í rannsókninni. Hinu væri ekki að neita að heldur meira líf hefði verið á þessu svæði en á síðasta ári. Það hlýtur þó að valda áhyggj- um, að mestur hluti aflans var 4 og 5 ára fiskur og bar lítið á eldri og yngri árgöngum. Björn Ævar kvaðst, að lokum, vilja þakka skipshöfninni á Arn- ari fyrir ánægjulegt samstarf, skipshöfnin hefði staðið sig frá- bærlega vel. Strákunum á dekkinu datt þetta í hug: „Þetta er allt strákunum á dekkinu að þakka. Þeim datt þetta í hug þegar við fengum upp kökk af steinbítshrognum. Ég vissi ekki um það fyrr en seinna að þeir settu hann í fötu fulla af sjó, til að reyna að klekja þeim út, og það tókst,“ sagði Birgir Þorbjörnsson, skipstjóri á Arn- ari. Eftir það var farið að safna kröbbum og öðrum botndýrum. Undir lokin á túrnum var svo reynt að hífa rólega til að ná vel lifandi fiski til að setja í kerin sem steinbítsseiðin og krabbarnir voru þá komin í. Það var haft samband við skólastjóra grunn- skólanna á Skagaströnd og Húnavöllum og þeim boðið að koma með krakkana um borð, þegar skipið kæmi í höfn, til að skoða það sem þá var komið í kerin. Þeir sýndu þes u mikinn áhuga og voru fengnar rútur til að flytja krakkana frá Húnavöllum, til Skagastrandar, þegar skipið kom inn. Þegar komið var að landi voru steinbítsseiðin orðin 9 daga gömul. Birgir kvaðst álíta að yfir 200 krakkar hefðu komið um borð til að skoða það sem í kerjunum var. Kokkurinn um borð sá um að gæða börnunum á kóki og súkku- laðikexi svo það voru veitingar innifaldar í dagskránni. fh Ólafur Bekkur frá Ólafsfirði er einn þeirra togara sem tóku þátt í „togara- rallinu“ svokallaða. Mynd: jóh Skömmu fyrir páska stóð verslunin Tölvutæki-Bókval fyrr tölvusýningu í nýstandsettu húsnæði verslunarinnar á annarri hæð hússins að Kaupvangsstræti 4. Á myndinni sjást tveir af eigendum fyrirtækisins, bræðurnir Jón Ellert (t.v.) og Unnar Lárussynir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.