Dagur - 05.04.1988, Síða 5

Dagur - 05.04.1988, Síða 5
5. apríl 1988 - DAGUR - 5 Steinar til trafala - við umferðarmið- stöðvarnar gömlu og nýju Inga hafði samband við blaðið og vildi fá skýringar á því hvaða tilgangi stórir málaðir steinar þjónuðu sunnan umferðarmið- stöðvarinnar nýju. Steinar þessir væru dreifðir tvist og bast um planið og væru stórvarasamir fyr- ir þá sem þar aka um. Sjálf sagð- ist hún nýlega hafa lent í því að bakka á einn þessara steina og skemma bíl sinn nokkuð. Oft væru margir bílar á planinu og þröngt að aka þar um og stein- arnir væru síst til að bæta. Annar lesandi hafði samband vegna sams konar steina sunnan gömlu umferðarmiðstöðvarinnar gegnt Búnaðarbankanum við Geisla- götu. Þar eru einhver dæmi þess að á þá hafi verið ekið. Gunnar Jóhannesson verk- fræðingur hjá gatnamáladeild sagði að steinunum fyrir sunnan umferðarmiðstöð Norðurlands væri fyrst og fremst ætlað að loka fyrir hugsanlega umferð af bílastæðinu og út á götuna sem tengir saman Drottningarbraut og Hafnarstræti, og ber nafnið Austurbrú. Svo virtist sem marg- ir ættu erfitt með að sætta sig við þetta og vildu aka eftir gömlu Drottningarbrautinni sem þarna lá. Steinarnir væru því færðir til og þvældust ef til vill eitthvað um. Um steina inni á planinu sagðist Gunnar ekki vita en ætl- aði að athuga hvort þeir væru á vegum bæjarins eða lóðarhafa. Steinarnir suðaustan við Geislagötuna sagði Gunnar að hefðu verið settir upp vegna ítrekaðra óska lögreglunnar. Oft og iðulega hefði sú staða komið upp að bílar sem lagt væri á plan- inu hefðu lokast inni. Steinunum væri ætlað að mynda „rennu“ sem hægt væri að aka um, inn og út af planinu. Raunin væri líka sú að ástandið hefði skánað. Gunn- ar viðurkenndi hins vegar að hér gæti aðeins verið um bráða- birgðalausn að ræða enda væri þetta svæði langt frá því að vera fullfrágengið. DAGUR Sauðárkróki 8 95-5960 Norðlenskt dagblað Borgarbíó Alltaf nýjar myndir Karnabær óskar eftir plássi til leigu í miðbæ Akureyrar Samstarf viö verslun í rekstri kemur til greina. Upplýsingar gefur Örn Ingólfsson á skrifstofu Karna- bæjar í síma 91-45800. Byggðastofnun RAUÐARÁRSTÍG 25 • SÍMI: 25I33 • PÓSTHÓLF 54I0 • I25 REYKJAVlK Byggðastofnun auglýsir til sölu hraðfrystihús á Patreksfirði Byggðastofnun auglýsir til sölu hraöfrystihús á Vatneyri viö Patreksfjörð (áður eign Vatneyrar hf.) ásamt tilheyrandi eignarlóð. Eignin er til sölu í heilu lagi, en einnig kemur til greina að selja einstaka hluta hennar. Tilboðum í ofangreinda eign skal skila fyrir 15. apríl nk. til lögfræðings Byggðastofnunar Karls F. Jóhannssonar, Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík, sími 91-25133, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Skákþing Norðlendinga 1988 Skákþing Norðlendinga verður haldið í Víkurröst á Dalvík dagana 21.-24. apríl nk. Þingið verður sett fimmtudaginn 21. aprílkl. 13.30. Keppt verður í eftirtöldum flokkum ef næg þátttaka fæst í þeim öllum: Opnum flokki, kvennaflokki, unglingaflokki (13-16 ára) og barnaflokki (12 ára og yngri). Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi í opnum flokki en 9 í öðrum flokkum. Heildarupphæð verðlauna í opnum flokki er kr. 60.000,- sem skiptist þannig: 1. verðlaun kr. 20.000.- 2. verðlaun kr. 15.000.- 3. verðlaun kr. 10.000,- 4. verðlaun kr. 7.000,- 5. verðlaun kr. 5.000,- 6. verðlaun kr. 3.000,- Þátttökugjald í opnum flokki er kr. 1000,- og kr. 500,- í kvenna- og unglingaflokki. Þátttökutilkynningar skulu berast Ingimar Jónssyni, skrifstofu Dalvíkurbæjar (sími 96-61370) í síðasta lagi mánud. 18. apríl. Hraðskákmót Norðlendinga fer fram sunnud. 24. apríl og hefst kl. 14.00. Taflfélag Qalvíkur. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Sjúkraliðar! Á haustönn 1988 ætlar Verkmenntaskólinn á Akur- eyri að gangast fyrir endurmenntunarnámskeiði fyrir sjúkraliða sem útskrifuðust fyrir árið 1977 (samkv. eldri reglugerð) ef næg þátttaka fæst. Kennslan fer fram á fimmtudögum á tímabilinu 1. sept.-15. des. Fjöldi takmarkaður. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu VMA á Eyrarlandsholti. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðvikudaginn 13. apríl. í tengslum við þetta verður boðið upp á dönskunám- skeið sem hefst fimmtudaginn 14. apríl. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu VMA sími: 96- 26810. Skólameistari. Vantar starfskraft í herbergi og eldhús. Þarf að geta byrjað strax. Uppl í síma 26366. Hótel Stefanía. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA A NORÐURLANDI EYSTRA Vistheimilið Sólborg Starfsfólk vantar á íbúðardeildir í tvær 40% stöður strax, eina 100% stöðu frá 1. maí, eina 20% stöðu, frá 1. maí, eina 80% stöðu frá 20. júní og 20% á vinnustofur (morgna) frá 1. apríl. Sumarafleysingafólk frá 15. maí í íbúðardeildir og í eldhús. Fagfólk í sumarafleysingar fyrir deildarstjóra og matreiðslumann í sumarafleysingar í 2V2 mánuð. Upplýsingar í síma 21755 milli kl. 9 og 16. Forstöðumaður. AÐAL FUNDUR Aðalfundur Útvegsbanka íslands hf. árið 1988 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík, þriðju- daginn 12. apríl 1988. Fundurinn hefst kl. 16:30. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf í samræmi við ákvæði 28. greinar samþykkta bankans. 2. Önnur mál löglega upp borin á fund- inum. Aðgöngumiðar að fundinum og at- kvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í aðalbanka, Austurstræti 19, 3. hæð, dagana 7., 8. og 11. apríl næstkomandi og á fundardag við innganginn. Ársreikningur bankans fyrir árið 1987, dagskrá fundarins og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á framangreindum stað í aðalbanka frá 5. apríl næstkomandi. Utvegsbanki Islandshf Bankaráð

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.