Dagur - 30.06.1988, Side 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Birgir ísleifur Gunnarsson:
VMA hefur ekki borið
skarðan hlut frá borði
- framkvæmdum hraðað með aukafjárveitingum
„Ég tel að þetta sé ekki rétt.
Það má auðvitað deila um
hversu hratt eigi að byggja upp
slíkar stofnanir en miðað við
fjárveitingar til annarra fram-
haldsskóla í Iandinu undanfar-
ið hálft annað ár þá held ég að
Verkmenntaskólinn hafi ekki
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar & Co. hf. á Akureyri er
um þessar mundir að ganga frá
samningi um sölu á 2.000.000
dósa af niðursoðinni rækju til
Þýskalands fyrir 7 milljónir
marka, eða um 177 milljónir
íslenskra króna.
í apríl síðastliðnum var gerður
svipaður samningur um sölu á
rækju til Þýskalands og samtals
hljóða því þessir tveir samningar
borið skarðan hlut frá borði,“
sagði Birgir Isleifur Gunnars-
son, menntamálaráðherra,
þegar hann var inntur álits á
ummælum Árna Gunnarssonar
alþingismanns um Háskólann
og Verkmenntaskólann á
Akureyri.
upp á um 14 milljónir marka, eða
yfir 350 milljónir íslenskra króna.
Báða þessa samninga mun fyrir-
tækið afgreiða fram á næsta ár.
í apríl síðastliðnum gerði K.
Jónsson & Co. hf. einnig samn-
ing um sölu á síldarafurðum til
Sovétríkjanna fyrir 2.685.000
dollara eða um 120 milljónir
íslenskra króna og á afgreiðslu
hans að vera lokið fyrir 1. des-
ember á þessu ári. -KK
Árni Gunnarsson sagði í frétt
hér í blaðinu á þriðjudag að hann
teldi að réttast hefði verið að
fresta stofnun háskóla á Akureyri
um 1-2 ár því umræða og
umstang um Háskólann hefðu
tafið verulega fyrir uppbyggingu
VMA.
„Ég held að umræðan um
Háskólann hafi alls ekki orðið til
að tefja fyrir Verkmenntaskólan-
uin. Hins vegar hafa menn mis-
jafnar skýringar á því að setja
upp háskóla á Akureyri, það er
annað mál,“ sagði menntamála-
ráðherra.
Birgir ísleifur var spurður álits
á því hvort hann teldi að rekja
mætti húsnæðisskort VMA til
stofnunar Háskólans. Hann sagði
þá: „Háskólinn hefur ekki ýkja
mikið húsnæði þannig að það
skiptir, held ég, ekki sköpum. í
dag er Háskólinn með hluta 1.
hæðar hússins við Þingvallastræti
og tvær kennslustofur í íþrótta-
höllinni. Ég veit ekki hverju það
hefði breytt fyrir VMA að fá
þetta til afnota.“
- En telur þú að grípa verði til
sérstakra ráðstafana vegna hús-
næðisleysis VMA?
„Ég kom á sérstakri samstarfs-
nefnd mennta- og fjármálaráðu-
neytis og bæjarstjórnar Akureyrar
til að gera áætlun um húsnæðisþörf
Háskólans m.a. með tilliti til mögu-
legs byggingarhraða VMA. Nefnd-
in leggur til að byggingu VMA
verði hraðað á þann veg að
sumarið ’88 verði 5. áfangi gerð-
ur fokheldur og lokið við 5
kennslustofur fyrir næstu áramót.
Sumarið 1989 verði hafnar fram-
kvæmdir við 6. áfanga þannig að
hann verði tekinn í notkun haust-
ið 1990. Þetta kostar hins vegar
nokkra aukafjárveitingu á þessu
ári sem ekki er búið að afgreiða
ennþá og liggur hún í fjármála-
ráðuneytinu til ákvörðunar.“
EHB
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar:
Selur rækju fyrir
yfir 350 milljónir
- Fyrirtækið hefur einnig gert samning um
sölu á síldarafurðum fyrir um 120 milljónir
Löggæsla á hálendinu:
Með líku
sniði og
í fyrra
- niðurskurður
í þjóðvegagæslu
Löggæsla á hálendisvegum í
sumar verður með líku sniði og
í fyrra. Þjóðvegaeftirlitið hefur
umsjón með þessu samkvæmt
sérstakri dagskrá sem útbúin
er fyrir sumarmánuðina. Vega-
eftirlitsbílum var fækkað úr
sex í fjóra í hittifyrra og verða
þeir einnig fjórir í sumar.
Að sögn Ómar's Smára Ár-
mannssonar aðalvarðstjóra
umferðardeildar lögreglunnar
var eftir ákvörðun lögreglustjór-
ans í Reykjavík, ákveðið að
útbúa einn bíl til viðbótar upp á
hálendið síðastliðið sumar, sem
styrkingu við vegaeftirlitið.
„Þessi hálendisbíll verður sett-
ur upp á hálendið einhvern hluta,
eða í tilfallandi verkefni í sumar.
Þá verður að öllum líkindum ein-
um vegaeftirlitsbíl lagt á meðan.
Þaö sýndi sig í fyrra að það er full
þörf á löggæslu þarna uppi á há-
lendinu, bæði varðandi aðstoð og
leiðbeiningar almennt. Það er
líka þörf á því að lögreglan láti
sjá sig á hálendinu, það veitir
visst aðhald. Þessu ætlum við að
reyna að halda uppi í sumar, en
ég reikna með að það verði á
kostnað þjóðvegalögreglunnar,"
sagði Ómar Smári.
Hann segir fækkun vegaeftir-
litsbíla vera mjög vafasaman
sparnað, full þörf sé á aukinni
löggæslu á þjóðvegunum, slysa-
og óhappatíðnin sýni það glöggt.
„Ég tel að allt ma*li með því að
löggæsla á þjóðvegunum verði
aukin frá því sem veriö hefur,
löggæslan er stór þáttur í fyrir-
byggjandi aðgerðum, það erekki
nauðsynlegt að við kærum hvern
einasta sem við náum í en það að
að vita af okkur á vegunum er
stór þáttur í löggæslunni." kjó
Útgerðarfélag
Akureyringa:
Gísli
Konráðsson
hættir
Staða annars framkvæmda-
stjóra Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. hefur verið auglýst
laus til umsóknar. Gísli Kon-
ráðsson framkvæmdastjóri
mun brátt láta af störfum
vegna aldurs.
Gísli hefur verið framkvæmda-
stjóri ÚA um langt árabil, en
hann verður 72ja ára í október í
haust. Hann mun verða við störf
út þetta ár og fram að aðalfundi
félagsins í apríl á næsta ári. Gert
er ráð fyrir að nýr framkvæmda-
stjóri komi til starfa um næstu
áramót og taki formlega og að
fullu við starfinu þann 1. maí
1989. kjó