Dagur - 30.06.1988, Blaðsíða 3

Dagur - 30.06.1988, Blaðsíða 3
30. júní 1988 - DAGUR - 3 Nýkomin sending af fallegum sumar- og heilsársfatnaði frá 'BtomdteK* Ifticific Club BRANDO CRÉATION ÉLEGANie OE 8B t*c Sjón er sögu ríkari l ★ SlMI (96)21400 Lögreglan ásökuð um seinagang: „Ég harma þessi ummæli“ - segir Ólafur Ásgeirsson um ásakanir í garð lögreglu vegna leitarinnar að fólkinu á Sprengisandi Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn á Akureyri, hafði samband vegna fréttar af fólkinu sem týndist á Nýja- bæjarafrétt á Sprengisandi. Ólafur sagði að aðstandendur þeirra týndu hefðu stórlega hallað réttu máli með því að segja að lögreglan hefði ekki brugðist nógu skjótt við til aðgerða og leitar. Ólafur sagði að lögreglunni hefði verið tilkynnt um að fólks- ins væri saknað kl. 15.30 á mánu- dag. Eftir það og allt þar til fólkið fannst aðfaranótt þriðjudags hefði það verið aðalstarf varð- stj óra, aðstoðaryfirlögregluþj óns og fjölda annarra aðila að sinna þessu máli með fyrirspurnum og beiðnum um aðstoð. Að sögn Ólafs var aðalvanda- málið það að ekkert var vitað hvert fólkið hefði farið fyrr en kl. 23.00 á mánudagskvöld en þá hefði maður haft samband við lögregluna og gefið upplýsingar á þá leið að kunningi sinn segðist hafa hitt Magnús Vilmundarson að morgni sunnudags og hefði Magnús þá sagst ætla að líta upp á Sprengisand úr Bárðardal. Petta varð til þess að fólkið fannst skömmu síðar. Lögreglan var allan tímann í stöðugu og góðu sambandi við aðstandendur hinna týndu en enginn ættingi vissi hvert fólkið hafði farið. Voru ýmsir staðir nefndir s.s. Bárðardalur, Fjörður, Hornafjörður o.fl. Aug- lýst var eftir bílnum í útvarpi og sjónvarpi en engar upplýsingar bárust þrátt fyrir það. Á mánu- dagskvöld voru leitarstjórar Flugbjörgunarsveitar og Hjálpar- sveitar skáta kallaðir á lögreglu- stöðina, haft var samband við nærliggjandi lögreglustöðvar, hringt á þá bæi í Bárðardal sem samband náðist við, einnig í hótel og bensínafgreiðslur. Samband var haft við flugturn og brást Sigurður Aðalsteinsson hjá Flugfélagi Norðurlands skjótt við og snemma var flugvél tilbúin til að fara til leitar þegar ein- hverjar vísbendingar bærust um ferðir fólksins. Ólafur Ásgeirsson sagði að lokum að hann harmaði að fram hefði komið það álit aðstandenda hinna týndu að lögreglan hefði ekki staðið sig eins og skyldi. Þá bæri að taka sérstaklega fram að Flugbjörgunarsveitin, Hjálpar- sveit skáta, lögreglan á Akureyri, Húsavík o.v. og Sigurður Aðal- steinsson hjá FN hefðu brugðist svo vel við að til fyrirmyndar væri. Hilmar Guðmundssson, bróðir konunnar sem týndist, hafði einnig samband og taldi að lög- reglan hefði gert allt sem í henn- ar valdi stóð til að bregðast rétt og eðlilega við og að ummæli um vanhæfni lögreglu væru ekki frá sér eða konu sinni komin. EHB Fylgst náið með...? Raufarhöfn: Gömul verbúð rifin Nýverið var gömul verbúð í eigu SR á Raufarhöfn rifin. Húsið hefur lengi staðið autt og verið smátt og smátt að grotna niður. Það var lengst af notað sem íbúðarbraggi og mötuneyti fyrir starfsfólk Síld- arverksmiðju ríkisins á síldar- árunum. Árni Sörensson verksmiðju- stjóri SR segir að lítil eftirsjá hafi verið í húsinu og að hreppurinn og heilbrigðiseftirlit hafi lengi krafist þess að yrði rifið. „Það hefur lengi verið geymt í því gamalt drasl og ekki hefur gefist tími til að rífa það fyrr en nú. Ég er nú ekki svo gamall í hettunni að ég þekki sögu hússins, en ég er ekki áhugamað- ur um gamalt drasl og hef aldrei heyrt neinn minnast á að eftirsjá væri í húsinu. Húsið var væntan- lega byggt milli 1930-40, og þá fyrir Norðmenn þegar þeir voru með verksmiðjuna hér áður fyrr. Þetta þótti vera orðið staðnum til mikillar óprýði, ryðgað og ljótt og krakkar farnir að tína rúðurn- ar úr því,“ sagði Árni Sörensson. kjó Kartöfluverksmiðjan Kjörland: „Erum með mun betri vöru“ - segir Guðmundur Ingólfsson framkvæmdastjóri Rekstur kartöfluverksmiöj- unnar Kjörlands á Svalbarðs- strönd hefur farið batnandi að undanförnu og að sögn Guð- mundar Ingólfssonar fram- kvæmdastjóra virðist nokkuð bjart framundan hjá fyrirtæk- inu. Kjörland selur franskar kartöflur undir heitinu Frans- man og þá hefur fyrirtækið einnig hafið sölu á forsoðnum kartöflum. „Við erum með mun betri vöru í dag og henni hefur verið tekið mjög vei. Við kaupum ennþá kartöflur af sömu framleiðend- um og áður en hráefnið er betra í dag. Kartöflurnar eru heldur mjölmeiri en voru á rigningarár- unum og þá var vinnslunni breytt upp úr áramótum. Salan hefur verið heldur að aukast að undan- förnu og nú erum við komnir með Fransman kartöflur í allar helstu verslanirnar á Reykjavík- ursvæðinu en með því hefur verið stigið stórt skref,“ sagði Guð- mundur ennfremur. Sala á frönskum kartöflum er nokkuð jöfn yfir árið en þó dett- ur hún talsvert niður á haustin, þegar nýjar kartöflur koma á markaðinn. Hjá Kjörlandi vinna 13 manns en framundan er sumarfrí flestra starfsmanna og á meðan framleiðsla liggur niðri, verður tækjabúnaður fyrirtækis- ins yfirfarinn. -KK Unnið að niðurrifí hússins. KONUR í Golfklúbbi Akureyrar Áríðandi fundur í kvöld kl. 20 að Jaðri. Stjórnin. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Skrifstofa skólans veröur lokuð frá og meö 1 júlí til 8. ágúst. Skólameistari.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.