Dagur - 30.06.1988, Side 5
30. júní 1988- DAGUR-5
Gunnar Hansson forstjóri IBM á íslandi, og Jón Vignir Karlsson framkvæmdastjóri markaðssviðs IBM.
tölvur erlendis og tæknifólk IBM
annast bilanagreiningar og hluta
af viðhaldi t.d. á hugbúnaði beint
yfir símalínukerfið.
Stýrikerfi IBM AS/400 ræður
yfir mjög vönduðum búnaði til að
annast kerfisstjórnun, sem hefur
að geyma hjálpargögn við
kennslu og felur í sér samskipta-
og netbúnað og forrit til frekari
kerfisþróunar. Einn höfuðþáttur
stýrikerfisins sem nefnist OS/400
er innbyggður venslagagnagrunn-
ur, búinn öflugu fyrirspurnamáli
sem gerir hvers kyns upplýsingar
mjög aðgéngilegar.
Hægt er að tengja IBM AS/400
tölvuna mörgum ólíkum tölvu-
kerfum. Hún getur samtímis
gegnt hlutverki móðurtölvu, ver-
ið samhliða tölva eða verið undir-
skipuð annarri tölvu, allt eftir því
hvað hentar hverju einstöku
fyrirtæki. Að auki býðst notend-
um AS/400 innbyggð tenging við
tókanet IBM.
Nýr staðall
fyrir hugbúnað
Nýja IBM-kerfið byggir á svo-
kölluðum SAA staðli sem kynnt-
ur var hjá IBM á síðastliðnu ári.
Þrjár megingerðir af IBM tölvu-
búnaði falla undir þennan staðal,
en það eru PS/2 (með OS/2), AS
400 og stórtölvurnar af 370 gerð.
Með þessum nýja staðli verður í
framtíðinni mögulegt að keyra
sömu verkefni á allar tölvugerð-
irnar. SAA er ætlað að auka
framleiðni því notendum og for-
riturum eru fengin í hendur ein-
föld, samræmd hugbúnaðartengi,
þar með taldar auðskildar val-
myndir og boðskiptabúnaður.
Þessu til viðbótar geta háþróaðir
eiginleikar sem byggðir eru inn í
vélbúnaðinn og örforritið stór-
lega aukið afköst forritara og létt
störf þeirra sem hanna hugbún-
að. Annar stór kostur er að gögn
eru skilgreind óháð vélbúnaði. Ef
t.d. er skipt um prentara eða
diskadrif er óþarft að endurþýða
forrit eða endurskipa gögnum.
Verð á þessari nýju IBM AS/400
tölvu er frá rúmum tveimur mill-
jónum króna til tæplega 25 mill-
jóna króna. AP
Þetta getur verið stórt vanda-
mál, einkum á norðlægum
slóðum, jurtir eru þar fjölærar og
tún varanleg, þ.e. bara ræktuð
einu sinni og landbúnaðurinn er
einhæfur.
Síðan var fjallað um lífeðlis-
fræðilegan þátt kalsins, þar voru
lagðar fram rannsóknarniður-
stöður frá Kanada. Þriðji þáttur
ráðstefnunnar fjallaði um hvern-
ig svellþol erfðist, um mismun
stofna og tegunda. Þar komu
fram talsvert miklar upplýsingar
um að framfarir, erfðaframfarir,
úrval og árangur í kynbótum á
þessu sviði hefur verið sáralítill.“
Bjarni sagði að það virtist sem
bændur og aðrir verði að líta á
skemmdir vegna svellkals, eins
og hverjar aðrar náttúruhamfarir
það sé ekki hægt að ráða við
þetta fremur en veðurfarið, svell-
kalið sé erfiðast viðureignar af
þeim kalflokkum sem áður voru
nefndir. „Kannski þess vegna
hefur þessi tegund kals verið
sniðgengin, menn hafa frekar
fengist við þessar skemmtilegu
rannsóknir, s.s. rannsóknir á kali
af völdum frosts, sveppa eða
þurrka, en gengið á svig við það
sem er erfiðast og kannski þýð-
ingarmest.
Þegar Skandinavarnir sáu kal-
skemmdirnar hér, þar sem jafn-
vel snarrótin var dauð sögðu þeir
að við þessu væri í raun og veru
ekkert svar og engin lausn í sjón-
máli. Það eina sem hægt er að
gera, er þá að láta túnin gróa upp
sjálfkrafa af íslenskum gróðri,
eða að endurvinna túnin og sá í
þau upp á nýtt.
Fjórði þáttur ráðstefnunnar
fjallaði um hvernig hægt væri að
fyrirbyggja og bregðast við kali,
en þar var fátt um svör eins og ég
sagði hér áður. Það eina sem
virðist hægt að gera er aö búa
túnin þannig úr garði að sem
minnst vatn standi á þeim til
dæmis með því aö hafa gott
skurðakerfi þar sem hætta er á að
vatn geti staðið á túnum."
Bjarni sagði að ráðstefnur sem
þessar hafi fyrst og fremst gildi
fyrir vísindamennina sem vinna á
þessu sviði, þeir fá tækifæri til að
skiptast á upplýsingum, þeir geti
rætt sameiginleg hagsmunamál
og þarna er vettvangur til að
skipuleggja sameiginlegar rann-
sóknir sem miða að lausnum.
„Varðandi svellkalið þá höfum
við fátt í höndunum sem viö get-
um gefið mönnum annað en þau
hefðbundnu ráð sem við höfum
gefið hingað til,“ sagði Bjarni
Guðleifsson að lokum. kjó
Aldnir og burtfluttír
Öngulsstaðahreppsbúar
Við komum saman í Freyvangi fimmtudaginn
30. júní kl. 14.30 og drekkum kaffi og dönsum á
eftir.
Kvenfélagið Aldan - Voröld.
IWJ Dómara-
námskeið
KRA mun halda dómaranámskeið fyrir aðildar-
félögin.
Námskeiðið hefst föstudaginn 1. júlí kl. 20.00 í
Lundarskóla.
Leiðbeinandi verður Rafn Hjaltalín.
Aðildarfélögum er bent á ákvæði um lágmarks þátt-
takendafjölda.
KRA.
Leikja- og íþrótta-
namskeiö Pórs
Næsta námskeið hefst mánudaginn 4. júlí
Gísli Bjarnason leiðbeinir.
Innritun á skrifstofu Þórs milli kl. 16 og 18 alla daga í síma
22381.
Þátttökugjald fyrir 2ja vikna námskeið aðeins kr. 400.- með
grillveislu og allt.
Knattspyrnudeild Þórs.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Umsóknartrestur á áöur auglýstum kennarastöðum við
eftirfarandi skóla framlengist til 12. júlí næstkomandi:
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til
umsóknar kennarastöður í þýsku og stærðfræði/eðlis-
fræði.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar kennarastöö-
ur í íslensku, íþróttum ogtölvufræði. Einnig vantar stunda-
kennara í faggreinum málmiðnaðar og myndmennt.
Umsóknir ásamt uþþlýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 12. júlí næstkomandi.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum við-
komandi skóla.
Menntamálaráðuneytið.
Sjallinn 25 ára
Bubbi Morthens
í Sjallanum fimmtudaginn
30.júní
Verð Kr. 700,-
Rúnar Þór og Jón Ólafs spila
í Kjallaranum alla helgina.