Dagur - 30.06.1988, Page 11
30. júní 1988- DAGUR - 11
hér & þor
„Ég er alltaf svangur
- segir hinn 280 kílóa þungi Norman Smith
íí
Norman Smith var um tíma orð-
inn um 280 kíló að þyngd, gjör-
samlega háður endalausu hungri
og botnlausum maga. Eins og
mannleg „Ókind“, át hann allt
sem hann kom höndum yfir og
gekk svo langt, að fremja afbrot
til þess að komast yfir meiri mat.
Þegar lögreglan kom til þess að
handtaka hann tók hún enga
áhættu, því 26 fílefldir lögreglu-
menn mættu á staðinn ef ske
kynni að hann reyndi flótta.
Hann var aðeins 31 árs og
dómarinn aumkvaði sig yfir
hann. í stað þess að dæma hann
til fangavistar, hlaut hann tveggja
ára skilorðsbundinn dóm.
Réttarhöldin fóru fram í
febrúar, en strax eftir þau ákvað
hann að fara í megrun. Hann hef-
ur þegar misst um 20 kíló en get-
ur vel hugsað sér að léttast um
100 kíló í viðbót.
„Ég var sjúkur í mat svo þegar
mér bauðst tækifæri til þess að
verða mér úti um auðfengna pen-
inga, sló ég tii!“ sagði Norman
þegar hann var beðinn um að
útskýra hvers vegna hann tók
þátt í þjófnaðinum. „Ég get ekk-
ert að þessu gert, ég er alltaf
svangur og mig dreymir meira að
segja mat á næturnar."
Norman missti atvinnu sína
sem verkamaður vegna þess að
hann var of feitur til þess að geta
unnið. Þá fékk hann styrk frá rík-
inu sem nam um 100 dölum á
viku en sagðist hafa getað borðað
fyrir minnst 300 dali á viku. „Ég
bjó heima hjá mömmu og át allt
sem ég fann, en það var samt
aldrei nóg.“
Áður en hann fór í megrun,
var dagskammtur hans af mat,
hálft kíló af skinku, kíló af osti,
um tvö kíló af kjöti, þrjú heil
brauð, þrír skammtar af fiski og
frönskum, kíló af sælgæti, tveir
pakkar af kexi, heil súkkulaði-
kaka og fimm lítrar af bjór.
„Þyngd mín hefur eyðilagt líf
mitt,“ sagði hann. „Ég get ekki
farið í bað. Ég reyndi það stund-
um en festist svo oft í baðinu að
það var niðurlægjandi. Nú fer ég
alltaf í sturtu. Eg þarf að láta
sérsauma á mig föt því þau eru
ekki seld svona stór í verslunum.
Þau þurfa því að endast vel, því
einn bolur kostar mig um 30 dali.
Vinur minn bauðst eitt sinn til
þess að aka mér í bæinn í gamla
bílnum sínum. Við ýttum sætun-
um aftur og ég þrengdi mér inn.
Viti menn, ryðgað gólfið í bíln-
um gaf sig, sætið lenti á götunni
en sem betur fer vorum við ekki
farnir af stað.“
Rúmið hans hefur sömuleiðis
gefið sig undan þyngd hans. Það
þurfti að sjóða málmrúmið sam-
an og styrkja það með stálbitum,
eins og reyndar hægindastólinn
' hans.
Þegar lögreglan kom til þess að
.handtaka hann, var hann sofandi
log dreymdi auðvilað um mat.
|„Þeir stóðu við rúmið og vöruðu
mig við því að reyna að flýja. Ég
hugsaði með mér að þeir myndu
vera að gera að gamni sínu, ég
sem varla gat hreyft mig, hvað þá
istokkið út um gluggann."
Þeir fóru með hann út að
bílnum, en gátu ekki troðið hon-
um inn. Kalla þurfti á „Svörtu
Maríu“, en þrátt fyrir það, þurfti
að taka sætin úr til þess að koma
honum inn.
„Þegar við komum á stöðina,
var mér stungið í klefa, en þar
sem þetta var í fyrsta skipti sem
ég hef sleppt morgunverði, var ég
orðinn vitstola af hungri eftir
nokkra tíma. Þegar mér var
sleppt var það fyrsta sem ég
gerði, að borða 10 manna
skammt af eggjum, fleski og
baunum.“
Allt frá þeirri máltíð, hefur
Norman reynt að hemja matar-
lyst sína. Hann segir það vera
ákaflega erfitt og að sér líði
hræðilega illa hverja mínútu
dagsins, en hann er ákveðinn í
þessu.
„Ég er orðinn hundleiður á að
vera feitur og ógeðslegur. Von-
andi tekst mér að losna við fleiri
kíló,“ sagði hann að lokum.
Hér sýnir Norman „aðeins“ dagskammt af mat sem hann var vanur að láta
ofan í sig.
ríl
dogskrá fjölmiðlo
SJÓNVARPIÐ
FIMMTUDAGUR
30. júni
18.50 Fréttaágrip og táknmáls-
fréttir.
19.00 Heiða.
Nýr, teiknimyndaflokltur byggð-
ur á skáldsögu Johanna Spyri.
19.25 íþróttasyrpa.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Stangveiði.
(Go Fishing).
21.05 Matlock.
Bandarískur myndaflokkur um
lögfræðing í Atlanta.
21.55 Svíþjóð og Sovétríkin.
(Record Magazinet).
Er Sviþjóð hernaðarlega mikil-
vægt fyrir Sovétrikin? Sýnd er
sovésk heimildamynd og á eftir
ræðast við Sergej Aksjonov yíir-
maður sovéska sendiráðsins i
Sviþjóð og Bo Hugemark yfir-
maður varnarmála í Sviþjóð.
22.55 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
SJONVARP
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR
30. júní
16.40 Votviðrasöm nótt.
(A Night Full of Rain.)
Mynd um stormasamt samband
bandariskrar jafnréttiskonu og
italsks blaðamanns sem búsett
eru i Róm.
Aðalhlutverk: Giancarlo Giann-
ini og Candice Bergen.
18.20 Furðuverurnar.
(Die Tintenfische.)
18.45 Dægradvöl.
(ABC's World Sportsman)
19.19 19.19.
20.30 Svaraðu strax.
20.50 Á heimaslóðum.
Farið fram f fjörð.
Umsjón: Helga Jóna Sveinsdóttir.
21.55 Sofiðút.
(Do not Disturb.)
Mike Harper er framkvæmda-
stjóri hjá stóru uilarvinnslufyrir-
tæki sem á ítök víða í Evrópu.
Starfið krefst mikflla ferðalaga tU
annarra landa, en það á eigin-
kona hans, Janet, erfitt með að
þola. TU að vekja athygli eigin-
manns sins á sér hyggst Janet
beita bragði, sem oft hefur
reynst vel á skjánum, og gera
hann afbrýðisaman með þvi að
sýna öðrum manni áhuga.
AðaUrlutverk: Doris Day og Rod
Taylor.
23.35 Viðskiptaheimurinn.
(WaU Street Joumal.)
Nýir þættir úr viðskipta- og efna-
hagsUfinu.
00.00 Á nálum.
(Panic in Needle Park.)
Ung stúUra yfirgefur fjölskyldu
sína og flyst tfl New York í leit að
ævintýrum. Hún hittir skemmti-
legan pUt sem þvi miður neytir
fíkmlyfja og stundar rán. Fljót-
lega samlagast hún þessum
nýju lifnaðarháttum og sekkur
dýpra og dýpra með hverjum
deginum sem líður. Lærdómsrík
mynd fyrir ungt fóUt með ævin-
týraþrá.
Aðalhlutverk: A1 Pacino og Kitty
Winn.
Ekki við hæfi barna.
01.50 Dagskrárlok.
0
RÁS 1
FIMMTUDAGUR
30. júni
6.45 Veðurfregnir - Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna.
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpóstur - Frá Norður-
landi.
Umsjón: Jón Gauti Jónsson.
10.00 Fréttir - Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið.
11.00 Fréttir - Tilkynningar.
11.05 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit ■ Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir ■ Tilkynning-
ar.
13.05 í dagsins önn.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar
himnaríkis" eftir A. J. Cronin.
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur.
Umsjón: Inga Eydal. (Frá Akur-
eyri.)
15.00 Fréttir.
15.03 Ertu að ganga af göflunum,
'68?
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
19.40 Að utan.
Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Kvöldstund barnanna.
20.15 Tónlistarkvöld Rikisút-
varpsins.
Listahátíð i Reykjavík 1988.
Tónleikar „Empire Brass kvint-
ettsins" í Háskólabíói 12. júní.
22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgun-
dagsins • Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ljóð frá ýmsum löndum.
23.00 Tónlist á síðkvöldi.
24.00 Fréttir.
fljóðbylgjan
FM 101,8
FIMMTUDAGUR
30. júni
07.00 Pétur Guðjónsson
leikur tónlist við allra hæfi og
spjallar við hlustendur.
09.00 Rannveig Karlsdóttir
með góða tónlist og kemur öllum
i gott skap.
12.00 Ókynnt hádegistónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson
á dagvaktinni og leikur bland-
aða tónlist við vinnuna. Tónhst-
armaður dagsins tekinn fyrir.
17.00 Pétur Guðjónsson
leikur létta tónlist. Tími tækifær-
anna er kl. 17.30 til kl. 17.45.
Síminn er 27711.
19.00 Ókynnt kvöldmatartónllst.
20.00 Linda Gunnarsdóttir
með tónlist í rólegri kantinum.
22.00 Kvöldrabb.
Steindór G. Steindórsson fær til
sin gesti í betri-stofu og ræðir
við þá um þeirra áhugamál.
24.00 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
30. júni
7.03 Morgunútvarpið.
Dægurmálaútvarp með frétta-
yfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum
kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15.
Leiðarar dagblaðanna að loknu
fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit.
- Þröstur Emilsson. (Frá Akur-
eyri.)
10.05 Miðmorgunssyrpa.
12.00 Fréttayfirlit ■ Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála.
16.03 Dagskrá.
18.00 Sumanveifla.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tekið á rás.
Fylgst með tveimur leikjum i 1.
deild íslandsmótsins í knatt-
spymu, leik ÍBK og Þórs og KR
og Vals.
22.07 Af fingrum fram.
00.10 Vökudraumar.
01.00 Vökulögin.
Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns.
Að loknum fréttum kl. 2.00 verð-
ur endurtekinn frá mánudegi
þátturinn „Á frivaktinni" þar
sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
Veðurfregnir kl. 4.30.
Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7,
7.30, 8, 8.30, 9, 10,11, 12,12.20,
14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
RlKISUIVARHÐl
AAKUREYRU
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
FIMMTUDAGUR
30. júni
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norður-
lands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður-
lands.
FM 104
FIMMTUDAGUR
30. júni
07.00 Bjarni Dagur Jónsson.
Lífleg og þægileg tónlist, veður,
færð og hagnýtar upplýsingar
auk frétta og viðtala.
Eréttir kl. 8.
09.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
Seinni hluti morgunvaktar með
Helga Rúnari.
Fréttir kl. 10 og 12.
12.00 Hádegisútvarp.
Bjarni Dagur veltir upp frétt-
næmu efni, innlendu jafnt sem
erlendu í takt við vel valda
tónlist.
13.00 Jón Axel Ólafsson.
Leikið af fingrura fram, með
hæfilegri blöndu af nýrri tónlist.
Fréttir kl. 14 og 16.
16.00 Mannlegi þátturinn.
Árni Magnússon leikur tónlist,
talar við fólk um málefni líðandi
stundar og mannlegi þáttur til-
verunnar í fyrirrúmi.
Fréttir kl. 18.
18.00 íslenskir tónar.
Innlend dægurlög að hætti
hússins.
19.00 Stjömutiminn á FM 102.2
og 104.
Gullaldartónlist í einn klukku-
tíma. Syngið og dansið með.
20.00 Siðkvöld á Stjörnunni.
Gæða tónlist leikin fyrir þig og
þína.
24.00-07.00 Stjömuvaktin.
989
BYLGJAN
FIMMTUDAGUR
30. júni
07.00 Haraldur Gislason og morg-
unbylgjan.
Litið i blöðin og spjallað við
gesti. Hressileg tónlist á milli.
Fréttir kl. 7, 8 og 9.
09.00 Anna Björk Birgisdóttir.
Hressilegt morgunpopp bæði
gamalt og nýtt.
Fréttir kl. 10 og 11.
12.00 Hádegisfréttir
- Aðalfréttir dagsins.
12.10 Hörður Arnarson.
Sumarpoppið allsráðandi.
Fréttir kl. 13, 14ogl5.
16.00 Ásgeir Tómasson, í dag - I
kvöld.
Ásgeir Tómasson spflar þægi-
lega tónlist fyrir þá sem eru á
leiðinni heim og kannar hvað er
að gerast.
Fréttir kl. 16 og 17.
18.00 Kvöldíréttatimi Bylgjunnar.
18.15 Margrét Hrafnsdóttir
og tónhstin þin.
21.00 Þórður Bogason
með góða tónlist á Bylgjukvöldi. -
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
- Bjami Ólafur Guðmundsson.