Dagur - 30.06.1988, Síða 12
12 - DAGUR - 30. júní 1988
ISLANDSMÓTIÐ
Óvænt en sanngjörn úrslit á Akureyrarvelli:
Loks fataðist Skaga-
mönnum flugið
- Lágu fyrir frískum KA-mönnum í gær
Skagamenn töpuðu sínum
fyrsta leik á þessu keppnis-
tímabili þegar liðið mætti KA
á Akureyrarvelli í gærkvöld.
KA-menn áttu sinn langbesta
leik til þessa og unnu óvæntan
en tvímælalaust sanngjarnan
sigur, 3:2. Barátta liðsins var
til fyrirmyndar og það sýndi
virkilegan „karakter“ þegar
það náði að rífa sig upp úr
lægð á mikilvægu augnabliki í
síðari hálfleik og sigurinn var
öruggari en tölurnar gefa til
kynna.
KA-menn komu frískir til
leiks. Liðið fékk nokkur þokka-
leg færi strax í upphafi sem ekki
tókst að nýta en markið virtist
liggja í loftinu.
Á 27. mínútu dró svo til tíð-
inda. Örn Viðar Arnarson fékk
þá knöttinn á hægra horni víta-
teigs Skagamanna og sendi hann
með glæsilegu þrumuskoti neðst í
markhornið fær.
Ef eitthvað var virtust KA-
menn hressast við þetta mark og
þeir réðu nær algerlega gangi
leiksins það sem eftir lifði hálf-
leiksins. Þrívegis fengu þeir ágæt
færi til að auka forystuna en tókst
ekki að færa sér þau í nyt. Heimir
Guðmundsson átti skot úr auka-
spyrnu rétt yfir KA-markið á 35.
Óheppnir Völsungar:
Gerðu markalaust
jafntefli við Víking
á Húsavík í gær
„Við ætluðum okkur að vinna
leikinn en því miður tókst það
ekki. Ég var ánægður með spil
liðsins, sérstaklega í síðari
hálfleik. Við áttum færi á að
skora en tókst ekki að nýta
þau. En þetta kemur í næsta
leik,“ sagði Arnar Guðlaugs-
son, nýráðinn þjálfari
Völsungs, eftir að liðið gerði
markalaust jafntefli við Víking
á heimavelli í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu í
gærkvöld.
Völsungar léku í fyrri hálfleik
undan hvassri suðaustanátt.
Vindurinn setti mjög svip sinn á
leikinn. Völsungar tóku þó fljót-
lega yfirhöndina og annað veifið
brá fyrir skemmtilegu spili hjá
liðinu. Fyrsta hættulega mark-
skotið átti Kristján Olgeirsson á
12. mín cn boltinn fór yfir. Vík-
ingar komust lítt gegn hvössum
vindi en vörðust vel. Á 18. mín-
útu kom skemmtilegt þríhyrn-
ingsspil hjá Völsungum, Grétar
Jónasson komst upp hægri kant
og gaf fyrir markið þar sem tveir
Völsungar voru á auðum sjó en
Vikingar komust inn í sending-
una og bægðu hættunni frá.
Stuttu síðar átti Atli Einarsson
góða fyrirgjöf fyrir niark Völs-
ungs en Hlynur Stefánsson náði
ekki að skalla. Það sem eftir lifði
hálfleiks pressuðu Völsungar
þungt en náðu ekki að nýta þau
færi sem gáfust.
Víkingar mættu nokkuð
grimmari til síðari hálfleiks og
ætluðu sér greinilega að nýta
vindinn til langskota. Hættuleg-
asta skotið kom frá Andra Mart-
einssyni en Þorfinnur sló boltann
aftur fyrir markið. Nú komu
Völsungar meira inn í leikinn og
náðu að skapa sér færi með sókn-
um upp kantana og hættulegum
fyrirgjöfum. Má með sanni segja
að sóknarmenn þeirra hafi oft
verið grátlega óheppnir inni á
markteignum. Eftir eina slíka
fyrirgjöf skaut Guðmundur Guð-
mundsson að ntarki en nafni hans
Hreiðarsson í Víkingsmarkinu
varði örugglega. Helgi Helgason
var oft vel staðsettur við mark
Víkings en komst lítt gegn varn-
armönnum Víkings. Víkingum
tókst nánast ekki að skapa færi í
hálfleiknum og leikurinn var
flautaður af án marka.
Leikmcnn Völsungs: Þorfinnur Hjaltason.
Helgi Helgason. Cirétar Jónasson (Sn.evar
Hreinsson á 69. mín), Sveinn Freysson, Björn
Olgeirsson, Eiríkur Björgvinsson, Kristján Ol-
geirsson, Guömundur t». Guömundsson, Theó-
dór Jóhannsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Leikmenn Víkings: Guömundur Hreiðarsson.
LJnnsteinn Kárason. Siguröur (iuönason. Hall-
steinn Arnarson, Gunnar Gunnarsson, Atli
Helgason, Andri Marteinsson (Lárus Guö-
mundsson á 70. mín), Trausti Ómarsson, Atli
lánarsson. Hlvnur Stelansson. Björn Bjart-
marsson.
Gul spjöld: Trausti Ómarsson á 30. mínútu.
Dómari: Ólafur Lárusson. JÓH
Helgi Helgason var oft nálægt því
að skora gegn Víkingi.
mínútu og þar með eru færi ÍA í
fyrri hálfleik upptalin.
Það voru ekki liðnar nema 3
mínútur af síðari hálfleik þegar
ÍA jafnaði. Þá kom sending fyrir
KA-markið frá vinstri, Haukur
virtisl hafa boltann en náði hon-
um ekki og Gunnar Jónsson var
ekki í vandræðum með að senda
hann í opið markið.
Akurnesingar voru betri aðil-
inn næstu mínúturnar en smátt
og smátt komu KA-menn meira
inn í leikinn og á 72. mínútu
náðu þeir forystunni. Anthony
Karl var þá felldur innan víta-
teigs og vítaspyrna var dæmd sem
Örn skoraði úr.
KA-menn höfðu nú öll völd á
vellinum og á 77. mínútu fékk
Anthony Karl boltann inn í teig
ÍA eftir sendingu frá Valgein,
skaut úr þröngri stöðu í Ólaf í
markinu og þaðan í netið. KA-
menn sóttu síðan áfram og hefðu
getað bætt við mörkum en það
voru þó Skagamenn sem skoruðu
síðasta mark leiksins á síðustu
mínútunni. Það var Haraldur
Ingólfsson sem skoraði með við-
stöðulausu skoti frá vítateig.
Anthony Karl Gregory var
mjög frískur og hættulegur í
framlínunni og var besti maður-
inn í jöfnu KA-liði. Ólafur Gott-
Anthony Karl Gregory (t.h.) olli oft usla upp við mark Skagamanna.
Mynd: TLV
skálksson var mjög góður í marki
Akurnesinga og þá var Ólafur
Þórðarson sterkur á miðjunni.
Liö KA: Haukur Bragason, Erlingur Kristjáns-
son, Jón Kristjánsson, Friðfinnur Hermannsson
(Arnar Bjarnason á 68. mín.), Bjarni Jónsson,
Halldór Halldórsson, Örn Viðar Arnarson,
Gauti Laxdal, Porvaldur Örlygsson, Anthony
Karl Gregory, Valgeir Barðasón (Árni Her-
mannsson á 86. mín.).
Lið ÍA: ólafur Gottskálksson, Hafliði Guðjóns-
son, Siguröur Lárusson (Haraldur Ingólt'sson á
62. mín.), Siguröur B. Jónsson, Ólafur Þórðar-
son (Sigursteinn Gíslason á 82. mín.), Karl
Þóröarson, Aðalsteinn Víglundsson, Gunnar
Jónsson, Mark Duffield, Heimir Guðmundsson,
Guðbjörn Tryggvason.
Gult spjald: Gauti Laxdal á 68. mínútu.
Dómari var Þorvarður Björnsson og var slakur.
Línuverðir: Þóroddur Hjaltalín og Ari Þórðar-
son JHB
Leiftur lá á Laugar-
dalsvelli í gær
Fram sigraði Leiftur með
tvcimur mörkum gegn engu á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöld. Sigur Framara var
sanngjarn en Leiftursmenn
börðust vel í leiknum.
Fram byrjaði af miklum krafti
og virtist ætla að labba yfir Leift-
ursliðið. En varnarmennirnir og
Þorvaldur í markinu voru öruggir
og brátt komu Norðanpiltarnir
meira inn í leikinn.
Þeir áttu nokkrar góðar sóknir
en svo gegn gangi leiksins skoraði
Fram. Innkast var tekið upp við
endamörkin og gefið var á
Guðmund Steinsson. Hann lék á
tvo varnarmenn Leifturs, sendi
fyrir markið og þar kom Pétur
Árnþórsson og þrumaði knettin-
um í markið án þess að Þorvaldur
ætti nokkra möguleika á því að
verja.
Jafnræði var nteð liðunum í
seinni hálfleik og ef eitthvað sótti
Leiftur meira. Þeir áttu ágætt
marktækifæri um miðjan seinni
hálfleik er Friðgeir Sigurðsson
tók aukaspyrnu rétt fyrir utan
vítateig Framara. Fast skot Frið-
geirs fór í vörnina og þaðan aftur
til hans - þá renndi hann knettin-
um inn á Óskar Ingimundarson
en Birkir Kristinsson í marki
Fram varði skot Óskars stórglæsi-
lega.
Síðara mark Fram kom á 38.
mínútu síðari hálfleiks. Aðdrag-
andi var nokkuð skondinn,
Framarar áttu skot á markið og
tapaði 0:2 fyrir Fram
Árni Stefánsson varði það glæsi-
lega með báðum höndum í horn.
Öllum til undrunar og Leifturs-
mönnum til mikils léttis þá
dæmdi Magnús Jónatansson
dómari hornspyrnu en ekki víta-
spyrnu. Það var hins vegar
skamntgóður vermir því úr horn-
spyrnunni skoraði Pétur Ormslev
með skalla.
Leiknum lauk því með sann-
gjörnum sigri Fram 2:0, því þeir
voru sterkari aðilinn allan leik-
inn.
Bestur Leiftursmanna var Þor-
valdur Jónsson markvörður og
varði hann oft mjög vel. Haf-
steinn Jakobsson barðist vel á
miðjunni og Steinar Ingimundar-
son var ógnandi frammi.
Framliðið var jafnt að vanda.
Einna bestur hjá þeim var Orm-
arr Örlygsson en hann virðist
vera í mjög góðu formi þessa
dagana. Einnig átti Steinn Guð-
jónsson ágæta spretti.
Dómari var Magnús Jónatans-
son og átti hann frekar slakan
dag. Honum var frekar laus
höndinn í sambandi við gulu
spjöldin og fengu sjö leikmenn
að kenna á því, fjórir Framarar
og þrír Leiftursmenn. Samt var
þetta frekar prúðmannlegur leik-
ur.
Liö Fram: Birkir Kristinsson. Kristján Jónsson.
Jón Sveinsspn, Ormarr Örlygsson. Viðar Þor-
kelsson. Kristinn R. Jónsson, Ómar Torfason,
Guðmundur Steinsson, Pétur Ormslev, Steinn
Guðjónsson, Pétur Arnþórsson.
Liö Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Guömundur
Garðarsson, Sigurbjörn Jakobsson, Árni Stef-
ánsson, Gústaf ómarsson, Hafsteinn Jakobs-
son, Halldór Guðmundsson, Óskar Ingimund-
arson (Helgi Jóhannsson), Friðgeir Sigurösson
(Friðrik Einarsson), Steinar Ingimundarson,
Höröur Benónýsson.
Gul spjöld: Pétur Arnþórsson, Viöar Þorkels-
son, Ormarr Örlygsson, og Guðmundur Steins-
son úr Fram. Hörður Benónýsson, Steinar Ingi-
mundarson og Árni Stefánsson úr Leiftri. AP
Staðan
1. deild
Þrír leikir fóru fram í 8. umferð í gær og urðu úrslit
þeirra þessi:
Völsungur-Yíkingur 0:0
KA-IA 3:2
Fram-Leiftur 2:0
Staðan í deildinni er þessi:
Fram 8 7-1-0 17: 2 22
ÍA 8 4-3-1 13: 6 15
KR 7 4-1-2 12: 9 13
KA 8 4-1-3 10:12 13
Valur 7 3-2-2 10: 6 11
Þór 71-4-2 7: 9 7
Leiftur 8 1-4-3 6: 9 7
ÍBK 7 1-3-3 9:12 6
Víkingur 8 1-3-4 5:13 6
Völsungur 8 0-2-6 3:14 2
Markahæstir:
Guðmundur Steinsson Fram 7 Pétur Ormslev Fram 5 Gunnar Jónsson í A 4