Dagur - 30.06.1988, Page 13
íþróffir
30. júní 1988 - DAGUR - 13
l
Mjólkurbikarinn 3. umferð:
Tindastóll í 16 liða úrsKt
eftir sigur á Magna
- úrslitin 2:1 í framlengdum leik
Tindastóll er kominn í 16 liða
úrslit Mjólkurbikarsins eftir að
hafa unnið Magna 2:1 á Sauð-
árkróksvelli í gærkvöld, í
framlengdum og rislitlum leik.
Kalsaveður og rok settu sitt
mark á leikinn á náðu leik-
menn ekki að sýna áferðarfal-
lega knattspyrnu. Staðan í
hálfleik var 0:0 eftir daufan
fyrri hálfleik.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu mínútur leiksins og fljót-
lega fór að bera á mikilli hörku.
En þegar lengra dró á hálfleikinn
náði Tindastóll yfirhöndinni og
sótti stíft að marki Magna, en
tókst ekki að gera mark, þrátt
fyrir mörg dauðafæri. Magna-
menn fengu ekki umtalsverð færi
í fyrri hálfleik, en börðust af
hörku.
Strax í byrjun seinni hálfleiks
fékk Tindastóll gullið marktæki-
færi. Guðbrandur Guðbrandsson
komst inn fyrir vörn Magna, lék á
markvörðinn en þrumuskot hans
lenti í stönginni og út. Heppnin
var ekki með Guðbrandi í þess-
um leik. Fimm mínútum síðar
kemur svo fyrsta mark leiksins.
Eyjólfur Sverrisson tók auka-
spyrnu fyrir Tindastól í öðru
horni vallarins og skaut boga-
bolta beint í mark Magna, glæsi-
Akureyri:
Ólympíu-
legt mark.
Á 13. mínútu seinni hálfleiks
jafnar svo Sverrir Heimisson fyrir
Magna með glæsilegu þrumu-
skoti utan af teig, upp undir
markslána. Pað sem eftir var
seinni hálfleiks gerðist fátt
markvert, og var sá kafli lélegast-
ur í leiknum. Framlenging blasti
við og voru leikmenn orðnir
þreyttir. Staðan því 1:1 að lokn-
um venjulegum leiktíma.
Fyrri hálfleikur framlengingar
var tíðindalítill en í þeim seinni
réðust úrslit leiksins. Á 2. mínútu
skoraði Eyjólfur aftur úr auka-
spyrnu fyrir Tindastól, á sama
KA sigraði í þremur leikjum af
Ijórum þegar yngri flokkar
félagsins mættu KS á KA-vell-
inum á Akureyri á sunnudag.
Leikirnir voru liðir í Islands-
mótinu í knattspyrnu og unnu
Siglflrðingarnir leik 5. flokks
en KA vann hina leikina.
3. flokkur
KA-menn höfðu geysilega yfir-
burði í þessum leik og gersigruðu
hátt og hann gerði í fyrra mark-
inu. Það sem eftir lifði leiks sóttu
bæði lið án afláts og Magni átti
mörg þrumuskot að marki Tinda-
stóls en Gtsli Sigurðsson varði
vel.
Bestir í liði Magna voru Tómas
Karlsson í vörninni og hinn ungi
Þorsteinn Jónsson. í annars slöku
liði Tindastóls, stóð Björn Sverr-
isson upp úr sem aftasti maður,
auk þess sem gamla kempan
Rúnar Björnsson átti ágæta
spretti.
Dómari leiksins, Páll Leó
Jónsson, stóð sig svona þokka-
lcga, en ekki meira. -bjb
KS-inga 14:0. Jón Egill Gíslason
hafði sig mikið í frammi að venju
og skoraði 5 mörk, Helgi Níels-
son skoraði 3, Karl Pálsson 2 og
þeir Karl Karlsson, Þorvaldur
Þorvaldsson, Þórður Guðjónsson
og Höskuldur Þórhallsson gerðu
1 mark hver.
4. flokkur
Yfirburðir KA-manna voru einn-
ig miklir í leik 4. flokks þótt ekki
yrði sigurinn jafn afgerandi og
hjá 3. flokki. Lokatölurnar urðu
9:0 og það voru þrír menn sem
skoruðu 2 mörk hver, þeir Val-
garður Gíslason, Brynjólfur
Sveinsson og ívar Bjarklind.
Kristinn Kristinsson og Rúnar
Snæland skoruðu 1 mark hver og
1 markið var sjálfsmark.
5. flokkur
Siglfirðingar sigruðu örugglega í
leik A-liðanna, 1:4. Því miður
tókst ekki að afla upplýsinga um
markaskorara KS en Óskar
Bragason skoraði eina mark KA-
manna.
KA sigraði hins vegar í leik B-
liðanna, 2:1, og það voru Tómas
Jóhannsson og Stefán Sigurðsson
sem skoruðu mörk KA en ekki er
vitað hver skoraði mark KS.
JHB
Golfmót á Húsvík:
Magnús vann
Víkurbarða-
bikarínn
Víkurbarðamótiö, punkta-
keppni í golfí var haldin á golf-
vellinum við Húsavík sl. sunnu-
dag. Keppt var í fyrsta sinn um
farandbikar sem hjólbarða-
verkstæðið Víkurbarðinn gaf
Golfklúbbi Húsavíkur og voru
24 þátttakendur í mótinu.
Magnús Hreiðarsson fékk 43
punkta og hreppti bikarinn sem
Tryggvi Bessason, annar eigandi
Víkurbarðans aflienti. í öðru sæti
varð Ingimar Hjálmarsson með 39
punkta og í þriðja sæti Hreinn
Jónsson með 36 punkta. IM
hlaup
Ólympíuhlaup í tilefni Ólympíu-
dagsins, sem var 21. júní, fer
fram á Akureyri á laugardag-
inn kemur. Hlaupið hefst kl.
14 á Ráðhústorgi og endar þar.
Það er Ungmennafélag Akur-
eyrar sem sér um framkvæmd
hlaupsins.
Keppt verður í 5 km skemmti-
skokki og 10 km hlaupi. Fyrstu
sex í hvorum flokki hljóta ólymp-
íupening og auk þess verða þrenn
pör af hlaupaskóm í aukaverð-
laun, sem dregið verður um. Þá
fá allir þátttakendur ólympíubol.
Eyðublöð til skráningar liggja
frammi í Sundlauginni og á
íþróttavelli Akureyrar og er fólk
beðið að tilkynna einnig vega-
lengdina sem það liyggst hluupa.
Einnig er hægt að skrá sig við rás-
mark á hlaupdag. Þátttökugjald
er kr. 200 fyrir fullorðna en kr.
100 fyrir 16 ára og yngri.
Jón Egill Gíslason hefur skorað
mikið af mörkum fyrir KA í sumar.
Mynd: KG
Ingimar Hjálmarsson, Magnús S. Hreiðarsson með Víkurbarðabikarinn,
Hreinn Jónsson og Tryggvi Bessason, annar eigandi Víkurbarðans. Mynd: im
Knattspyrna yngri flokka:
Jón Egill með
5 mörk gegn KS
SSSc Utboð
Ólafsfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gerð
íjsróttasvæðis í Ólafsfirði.
Utboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunni að
Ólafsvegi 4, Ólafsfirði og Verkfræðiskrifstofu Sigurð-
ar Thoroddsen, Glerárgötu 34, Akureyri frá 30. júní.
Tilboðin verða opnuð á bæjarskrifstofunni, Ólafsvegi
4, þriðjudaginn 5. júní kl. 14.00.
Bæjartæknifræðingur.
jpLAWDSVIRKJUN
Vinnubúðir tii
16 einingar stærð 2,40x5,40 m, mesta hæð 3,20 m þar
af 11 svefneiningar, 2 samliggjandi sem stofa 1 forstofa
og þvottaeining, 1 eining eldhús án skápa og 1 snyrtiein-
ing með 2 klósettum og sturtu.
Auk þessa 5 eininga hús, hentugt sem sumarbústaður.
Tilboðum sé skilað til skrifstofu Landsvirkjunar Glerár-
götu 30, Akureyri fyrir 10. júlí nk.
Landsvirkjun.
AKUREYRARB/tR
Unglingavinna
Flokksstjórar óskast til starfa nú þegar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri
og hafi reynslu af verkstjórn.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu
umhverfisdeildar í síma 25600.
Garðyrkjustjóri.
Vantar vélstjóra
á 60 tonna rækjubát frá Dalvík nú þegar.
Upplýsingar í síma 96-61416 eða um borð í bátnum
í síma 985-20162.
Otur hf.
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.
auglýsir lausa til umsóknar stöðu annars
framkvæmdastjóra félagsins.
Krafist er góðrar menntunar og starfsreynslu. Gert er
ráð fyrir að nýr framkvæmdastjóri komi til starfa um
næstu áramót og taki að fullu við starfinu 1. maí
1989.
Umsóknir skulu sendar stjórnarformanni Sverri
Leóssyni, sími 96-22841, sem veitir nánari upplýs-
ingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf.
við Fiskitanga. 600 Akureyri.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GUNNAR JÓHANNESSON,
fyrrverandi kennari,
Þingvallastræti 6, Akureyri,
sem lést hinn 27. júní verður jarðsettur frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 3. júlí kl. 13.30.
María Ágústsdóttir,
Bergrós Sigurðardóttir, Þórarinn Magnússon,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Gfsli Pálsson,
Þorgils Sigurðsson, Björk Sigurjónsdóttir
og barnabörn.