Dagur - 01.12.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 1. desember 1988
ÁTVR opnuð á Neskaupstað - Voru bæjarbúar þyrstir?:
Sala meiri en gert var
ráð fyrir í upphafi
- sérlega góð sala í viskíi sem kláraðist strax
Á Neskaupstað hefur nú verið
opnað útibú frá Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins í fyrsta
skipti og hefur nýju verslun-
inni verið tekið vel að sögn
útsölustjórans Hermanns
Beck. Verslunin er í tiltölulega
nýju húsnæði með veiðarfæra-
verslun Samvinnufélags útgerð-
armanna.
Húsnæðið er allt ný innréttað
og er verslunin með sjálfs-
afgreiðsluformi. Hermann er eini
starfsmaður ÁTVR, en nýtur
aðstoðar starfsfólks veiðarfæra-
verslunarinnar ef með þarf. „Við
opnuðum á byltingardaginn, 7.
nóvember en þetta var löng með-
ganga frá því að samþykkt var í
almennri atkvæðagreiðslu að
opna hér áfengisverslun," sagði
Hermann. Aðspurður sagði hann
Neskaupstaðarbúa hafa tekið
versluninni vel og að þegar væri
búið að selja meira en söluáætlun
gerði ráð fyrir. „Þetta bendir
e.t.v. til að bæjarbúar hafi verið
orðnir þyrstir en einnig nágrann-
ar okkar á Eskifirði, Reyðarfirði
og jafnvel Seyðisfirði sem koma
hingað í búðina. Við erum ekki
með póstkröfuþjónustu svo þeir
koma bara akandi. Ef menn eru
að flýta sér mikið tekur ferðin þá
ekki meira en 15-20 mínútur,“
sagði Hermann.
Dagur heyrði orðróm þess
efnis, að fyrstu dagana hefðu all-
ar hillur tæmst. „Þetta er nú ekki
alveg satt, en við réðum ekki
fyrstu sendingunni sem kom hér.
Þeir sendu okkur frekar lítið af
viskíi, en hér er mikil viskí-
menning svo það var ekki eftir
fleygur af neinu sem heitir viskí
rétt á meðan næsta sending var á
leiðinni.“
Nú er mikið unnið á Neskaup-
stað og nokkuð um aðkomufólk
svo þar er einnig komin skýringin
á hversu mikið hefur verið að
gera í versluninni þegar tækifæri
gefast. VG
Húsavík:
Endurskoðuð íjárhags-
áætlun samþykkt
Samvmnubankmn fær beina línu
Utibú Samvinnubankans á Kópaskeri tók nýlega upp beinlínu samband, sem mjög flýtir fyrir allri
afgreiðslu bankans. AUar færslnr fara nú jafnóðum inn til Reiknistofnunar bankanna og upplýsingar
þaðan berast útibúinu á Kópaskeri samdægurs. Starfsfólk bankans var að vonum ánægt með breyting-
una, en áður tók mun lengri tíma að fá nauðsynlegar upplýsingar. Á myndinni er starfsfólk bankans,
þær Bryndís Helgadóttir og Eyrún Egilsdóttir. Benedikt Davíðsson útibússtjóri og Jóhann Ólafsson frá
tölvudeild Samvinnubankans sem hafði umsjón með uppsetningu kerfisins. mþþ
Blönduós:
Drög að sanmingi
víð Orkustoftiun
- um eftirlit með jarðhitasvæðum
Blönduósbær hefur gert drög
að samningi við Orkustofnun
um eftirlit með jarðhitasvæð-
unum við virkjunarsvæði Hita-
veitu Blönduóss. Einnig verð-
ur tekið inn í það eftirlit jarð-
hitasvæði í Sauðanesnesi.
Að sögn Guðbjartar Ólafsson-
ar tæknifræðings er þarna um að
ræða svo kallaða forðafræðilega
úttekt en í því felst stöðugt eftir-
lit með borholunum og prufu-
dæíingar til að fylgjast með hvað
mikill forði af heitu vatni er í jörð
á virkjunarsvæðinu við Reyki.
Sauðanesnesið væri inni í athug-
uninni með það í huga að ná þar
viðbótarvatni og þá jafnvel sjálf-
rennandi.
Veitunefnd hefur fjallað um að
einir 25 heitir pottar séu við hús í
bænum og munu vera talsverð
brögð að því að fólk tengi pott-
ana við neysluvatnslagnir ýmist
með beinni tengingu eða við
krana. Það er með öllu óheimilt
að nota í pottana annað vatn en
frárennsli frá hitakerfi húsanna
eða með sérlögn að pottunum
sem þá yrði tengd í gegnum
rennslismæli. Ákveðið hefur ver-
ið að kaupa allt að 50 rennslis-
mæla og setja á þá staði þar sem
pottar eru og á aðra 25 staði þar
sem ekki eru pottar. fh
Endurskoðuð fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs Húsavíkur var sam-
þykkt á fundi bæjarstjórnar sl.
þriðjudag með átta atkvæðum,
en fulltrúi Þ-listans sat hjá við
atkvæöagrciösluna. Sam-
kvæmt fjárhagsáætlun er
heildarfjárvöntun 15,944 millj-
ónir króna.
í máli Bjarna Þórs Einarssonar
bæjarstjóra kom fram að fjár-
vöntunin skiptist þannig að það
er 8,4 milljónum verri innheimta
en reiknað var með í fjárhags-
áætlun, 5,6 milljónir vantar
Leiðrétting
í grein Dags í gær um stefnumót-
unarátak Iðntæknistofnunar var
ranglega sagt að fimm fyrirtæki á
Akureyri tækju þátt í því. Hið
rétta er að þrjú akureyrsk fyrir-
tæki taka þátt í átakinu. Þá er
rétt að geta þess að auk Ásgeirs
Páls Júlíussonar hefur Guðbjörg
Pálsdóttir umsjón með stefnu-
mótunarátakinu af hálfu rekstr-
artæknisviðs Iðntæknistofnunar.
vegna þess að ákveðið var að
taka minna af langtímalánum en
fram kom í áætlun. Rekstur
bæjarsjóðs kemur út 1,4 milljón-
um hagstæðari en fjárhagsáætlun
gerir ráð fyrir en framlög frá rík-
inu vegna íþróttamannvirkja og
annars er 3,3 milljónum lægri en
reiknað var með. Samþykkt var á
fundinum að skera niður rekstrar-
og eignabreytingaliði um 7,665
milljónir en taka 8,279 milljónir
sem skammtímalán. „Stærsti
hlutinn af fjárvöntuninni er
vegna erfiðari innheimtu sem
stafar af tvennu: í fyrsta lagi hef-
ur gengið illa að innheimta eftir
álagningu og skuldir frá fyrra ári.
Eftir að staðgreiðslukerfið komst
á virðast menn eiga erfiðara með
að borga eldri skuldir jafnhliða.
Hins vegar er það erfið fjárhags-
leg staða hjá okkar stærstu fyrir-
tækjum í sjávarútvegsgreinum og
Teyndar fleiri stórum fyrirtækjum
á staðnum sem valda þessu. Sú
staða fer væntanlega batnandi og
maður reiknar með því að fá
þetta allt saman með skilum á
endanum,“ sagði bæjarstjóri í
samtali við Dag. IM
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Vinnuhópur skipaður um
breytingar á úthlutunarreglum
Menntamálaráðherra hefúr
skipað vinnuhóp sem á að
fjalla um Lánasjóð íslenskra
námsmanna. Hópnum er ætlað
að fjalla um með hvaða hætti
verði settar lánareglur sem
komi í stað þeirra sem nú gilda
og settar hafa verið á undan-
förnum árum. Hópurinn á að
skila áliti fyrir lok janúarmán-
aðar 1989 og er einnig ætlast til
að hópurinn geri grein fyrir
breytingum á lánareglum þessa
árs áður en fjárlög fá afgreiðslu
á Alþingi.
Vinnuhópurinn mun sérstak-
lega fjalla um stöðu fyrsta árs
nema gagnvart lánasjóðnum svo
og aðra þætti sem mögulega
mætti lagfæra í úthlutunarreglum
sjóðsins. Kannað verður hvort
nauðsynlegt er að breyta fram-
færsluviðmiðunum í úthlutun
lána til námsmanna og mun hóp-
urinn gera það með því að beita
sér fyrir framfærslukönnun meðal
námsmanna heima og erlendis.
Sæti í vinnuhópnum eiga allir
fulltrúar námsmanna í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
einn iðnnemi og fjórir fulltrúar
skipaðir af menntamálaráðherra.
JÓH
Húsavík:
Útsvör 7,5 prósent
á næsta árí
Á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur sl. þriðjudag var sam-
þykkt að álagningarprósenta
útsvara 1989 verði 7,5% af
útsvarsstofni.
Samþykkt var að fjölga gjald-
dögum fasteignagjalda í sex en
þeir hafa verið fimm, verður
fyrsti gjalddagi 1. feb. og síðan
verða gjalddagar fyrsta hvers
mánaðar og sá síðasti á árinu 1.
júlí. Innheimt verður fullt álag,
25% á fasteignaskatt á íbúðar-
húsnæði, eins og verið hefur á
atvinnuhúsnæði en álag á fast-
eignaskatt íbúðarhúsnæðis var
12,5% á þessu ári. Talið er að
tekjur bæjarsjóðs af þessari
hækkun nemi um einni milljón
króna. Sorpgjöld munu hækka
sem nemur um 30% milli ára og
verða 2.600 af íbúðarhúsnæði
en ýmist 9.500 eða 29.000 af
atvinnuhúsnæði. IM