Dagur - 01.12.1988, Side 6
6 - DAGUR - 1. desember 1988
•. 'iyinríia^'Sb .r—
BASAR!
Hinn vinsæli köku- og munabasar
verður í Laugarborg sunnudaginn 4. des.
Kafiihlaðborð frá kl. 15.00.
Sala basarmuna hefst kl. 15.30.
Komið og gerið góð kaup!
KVENFÉLAGIÐ IÐUNN.
10%
jólaafsláttur
til jóla af öllum fatnaði, skóm,
veiðivörum og gjafavörum.
• •
WEYFJORÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Ein þeirra mörgu skýrslna sem
mér berast í hendur er atvinnu-
vegaskýrsla frá t’jóöhagsstofnun.
Það sem vakti áhuga minn fyrir
atvinnuvegaskýrslunni 1978-1986
var yfirlit, sent þar var að finna
urn heildarþróun vinnumarkaðs-
ins á þessu tímabili. Á þessu
tímabili hafði aukning vinnuafls
verið 23147 mannár. Petta svarar
til 2893 ársverka á ári. Petta
reiknast vera 11,6 mannáraaukn-
ing á hverjum raunverulegum
vinnudegi.
I þessum skýrslum er vinnuafl-
inu skipt í þrjá geira, sem eru
fyrirtækjageiri, opinberi geirinn
og félagslegi geirinn. Til fyrir-
tækjageirans telst hinn almenni
atvinnurekstur í landinu. Til
Askell Einarsson.
Áskell Einarsson:
Tilfærsla til þjónustu-
starfa 10% af vinnuaflinn
opinbera geirans er talin opinber
starfræksla ríkis og sveitarfélaga.
Til félagslega geirans er talin
starfsemi. sem rekin er af félaga-
samtökum, hagsmunasamtökum
og líknarsamtökum, hvort heldur
þau njóti opinbers fjár eða ekki.
Meðalaukhing vinnuafls á
þessum árum er 22,8%. Hlut-
lólama
Til jólanna
Ódýrt frá bensínsölum ESSO
Sjónaukar 7x55 kr. 2.495.- ... Jólatilboð kr. 1.990.-
Baðvogir kr. 3.665,- ........ jólatilboð kr. 2.980.-
Símar kr. 2.150.- ............ Jólatilboð-kr. 1.750.-
Kirkjur með Ijósi kr. 1.799.- . Jólatilboð kr. 1.580.-
Kertastjakar kr. 990.- ...... Jólatilboð kr. 380.-
Straujárn (gufa) kr. 3.415.- . Jólatilboð kr. 2.820.-
Brauðristar kr. 2.795.- ..... Jólatilboð kr. 2.310.-
Aðventuljós ★ Stjörnur með Ijósi ★ Ljósastjörnur ★
Jólatré ★Toppar á jólatré ★ Jólakúlur ★Allt til jóla-
skreytinga ★
Esso Leiruvegi • Esso Tryggvabraut • Esso Veganesti
... 11 'Y'.... .. .. "
Nyjar vörur
- vandaðar vörur
0
fallslegur vöxtur
atvinnugeira er þessi:
Fyrirtækjageirinn
Opinberi geirinn
Félagsgeirinn
einstakra
Aukning
17,7%
37,2%
112,4%
Kaupmannafélag
Akureyrar
Ljóst er af þessu að fyrirtækja-
geirinn nær ekki meðaltalsaukn-
ingu vinnuafls á þessum árum.
Þetta svarar til að 4298 mannár
hafi flust til þeirra atvinnugeira,
sem hafa meiri aukningu en með-
altalsaukning vinnuafls á þessu
tímabili. Þetta er tilfærsla, sem
svarar til 2,2 starfa á hverjum
virkum degi á átta árum. Það sem
er athyglisverðast við þetta, er að
tæpur helmingur vinnuaflstil-
færslunnar fer til félagslega geir-
ans.
Um 38,8% mannáraaukningar
opinbera geirans er tilfærsla frá
fyrirtækjageiranum, en 79,7% af
vinnuaflsaukningu félagslega
geirans. Þarna speglast sú stefna
að færa stóran hluta velferðar-
starfseminnar frá ríkinu til líknar-
og áhugafélaga. Þetta er. .tjlfærsla
frá atvinnuvegunum til sam-
félagslegrar þjónustustarfsemi,
eftir mismunandi leiðum.
Hins vegar, ef athugaðar eru
þjónustugreinar innan fyrirtækja-
geirans, sem ná meiri aukningu
en meðaltalsaukningu í landinu,
kemur eftirfarandi í ljós:
Mannár
+ 1492
+ 1003
+ 909
+ 811
+ 655
6. Menning og skemmtistarfsemi + 541
+ 5411
Tilfærsla til þjónustugreina, inn-
an fyrirtækjageirans, er 5411
mannár frá öðrum greinum þessa
sama geira. Ef aukningu í heil-
brigðisþjónustu einkaaðila og
þjónustuviðgerðum er bætt við,
er tilfærslan innan fyrirtækjageir-
ans, til ýmiss konar þjónustu-
starfsemi 5926 mannár.
Þegar á heildina er litið hafa
10224 mannár flust til þjónustu-
greina á þessum átta árum frá
öðrum atvinnugreinum. Aukn-
ingin skiptist þannig, að 58% er
tilfærsla innan fyrirtækjageirans,
en 42% vegna tilfærslu vinnuafls
frá fyrirtækjageiranum til opin-
bera og félagslega geirans. Þetta
nálgast það, að 5,1 mannár hafi
bæst við þjónustustarfsemina á
hverjum virkum vinnudegi á
þessum átta árum.
í"Ef við röðum þeim atvinnu-
greinum, þar sem mannáraaukn-
ing hefur verið meiri en 1000
störf á þessum átta árum, er röð-
'n ÞeSS': Mannár
1. Smásöluverslun 2215
2. Heildverslun 2023
3. Þjónusta v/atvinnuvega 1981
4. Velferðarstofnanir 1876
1. Þjónusta við atvinnuvegi
2. Peningastofnanir
3. Heildverslun
4. Hótelrekstur
5. Smásöluverslun
5. Sjúkrahús og heilbrigðisst. 1803
6. Fiskiðnaður 1578
7. Peningastofnanir 1560
8. Veitingarekstur 1246
9. Annar matvælaiðnaður 1155
Samtals 15433
Allar þessar greinar ná meðal-
talsaukningu vinnuafls, nema
fiskiðnaður. Atvinnugreinar,.
með meiri aukningu en nemur
meðaltalsaukningu opinbera
geirans þ.e. 37,2% eru þessar:
Heildverslun, þjónusta við
atvinnuvegi, vélferðarstofnanir,
peningastofnanir og veitinga-
rekstur. Þessar greinar, sem búa
við verulega umframaukningu til-
heyra allar, nema velferðarstofn-
anir, fyrirtækjageiranum.
Þetta segir ekki alla söguna.
Aðrar greinar sem hafa, aukningu
umfram meðalaukningu opin-
bera geirans eru þessar:
Menningar- og skemmtistarf-
semi, stjórnsýsla sveitarfélaga,
elliheimili, heilbrigðisstarfsemi
einkaaðila, sérskólar, Háskóli
íslands, menntaskólar, stjórnar-
ráð og Alþingi, ýmsar þjónustu-
viðgerðir og hagsmunasamtök.
Það er eðlilegt að spurt sé frá
hvaða greinum leitar vinnuaflið.
í landbúnaði og trjávöruiðnaði
fækkar mannárum um 1789 störf.
Til þess að átta sig betur á þessu
þarf að athuga hvaða aðrar grein-
ar ná ekki meðaltalsaukningu
fyrirtækjageirans. Þær eru
þessar: Byggingastarfsemi, sam-
göngur, persónuleg þjónusta,
málm- og skipasmíði, vefjaiðnað-
ur, rekstur Pósts og síma, varnar-
liðið, fiskveiðar og rekstur vatns-
veitna. í opinbera geiranum eru
það utanríkisþjónusta og rann-
sóknarstarfsemi, sem ekki ná
meðaltalsaukningu fyrirtækja-
geirans.
Megin niðurstaðan er þessi: Á
árunum 1978-1986 hafði megin-
hluti vinnuaflsaukningar í land-
inu leitað til viðskipta og þjón-
ustustarfa. Þessi tilfærsla skiptist
í tvennt. í fyrsta lagi með tilflutn-
ingi vinnuafls til opinbera og
félagslega geirans frá fyrirtækja-
geiranum. I öðru lagi tilfærsla frá
úrvinnslu- og frumgreinum við
viðskipta- og þjónustustarfsemi,
innan fyrirtækjageirans.
Samfélagsleg starfsemi er að
taka á sig nýja mynd, með vexti
félagslega geirans þ.e. hin félags-
lega velferðarstarfsemi í landinu.
Þær úrvinnslugreinar, sem eru
undirstaða atvinnulífs á Akureyri
og víðar á landsbyggðinni búa við
samdrátt. Þangað er að leita
skýringa á mörgu í atvinnulífi hér
á Akureyri og annars staðar á
landsbyggðinni.
(Byggt á erindi, fluttu í
Rotaryklúbbi Akureyrar 18. nóvember sl.)
Áskell Einarsson,
framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlendinga.